Þjóðviljinn - 01.09.1978, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.09.1978, Blaðsíða 9
Föstudagur 1. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Steingrímur Hermannsson, landbúnaðar-, dóms- og kirkjumálaráðherra: Magnús H. Magnússon, heilbrigöis-, trygginga- og félagsmálaráðherra: Treysti því aö unnið verði af fullum heilindum „Mér list vel á rikisstjórnina,” sagöi Steingrimur Hermannsson landbúnaðar, dóms- og kirkju- málaráðherra þegar hann var spurður hvernig honum litist á að vera orðinn ráðherra. „>að er ekki aðalatriðið hvort ég er orðinn ráðherra eða einhver ann- ar. Ég er ánægður með að það er komin stjórn og fagna þvi mjög að það skuli vera vinstri stjórn. Ég hef alltaf talið rétt fyrir þessa flokka að vinna saman ef þess er nokkur kostur. Stjórnarsamstarfið er mest komið undir heilindum þeirra manna sem þar eiga hlut að máli. Ef rikisstjórnir springa þá gerist það oftast innanfrá,en mér list vel á samstarfsaðilana og treysti þvi að unnið verði af fullum heilind- — Ertu ánægður með sam- starfsyfirlýsingu rikisstjórnar- flokkanna? „Það er margt mjög gott i henni en ég held að það verði erfitt að framkvæma það allt. Þarna eru i raun settir fram eins- konar óskalistar þessara flokka og að sjáifsögðu verður unnið að þvi að framkvæma stjórnarsátt- málann eins og timi og aðstæður leyfa. En auðvitað getur ýmislegt komið i ljós, sem getur tafið og breytt þessum góðu áformum. Þótt efnahagsmálin skipi um- fangsmesta sessinn i samstarfs- yfirlýsingunni er ekki unnt að gera svo stórum málum skil i slikum samningi þvi þar eru svo margir óvissuþættir. Efnahags- málin eru yfirgnæfandi þvi þar er vandinn svo mikill og öll atvinnu- Kjartan Jóhannsson, sjávarútvegsrádherra: Endurskipu - lagning Steingrfmur Hermannsson. mál koma þar mjög við sögu. Það skiptir mestu máli að leitað verði allra leiða til að ná tökum á þess- um vanda.” — Eru einhver sérstök mál sem þú munt beita þér fyrir sem land- búnaðar- og dómsmálaráðherra? „Það er nú kannski of snemmt að tala um það. En ég tel mjög brýnt að tryggja bændum þau kjör sem þeim ber og þaö verður að leita allra leiða til að ná þvi marki. Annað er ekki sæmandi. 1 dómsmálunum hefur verið unnið mjög vel og margt lagfært upp á siðkastið. Það þarf að halda áfram á þeirri braut og gera dómskerfið fljótvirkara en nú er” —eös V er ðtry ggður lífeyrissjóður „Þetta á að vera aðhaldsstjórn og verður að vera aðhaldsstjórn til aö byrja með,” sagði Magnús H. Magnússon ráðherra heil- brigðis- trygginga- og félags- mála. „Það er þvi ekki hægt að reikna með að menn komi miklu af áhugamálum sinum i kring, a.m.k. ekki fyrsta kastið.'* „Já, ég er ánægður með stjórnarsáttmálann,” sagði Magnús. „Að visu hefðum við viijað hafa meira i honum af þessum sérstöku áhugamálum okkar og umbótamálum, en i heild er ég ánægður með hann.” Að þvi er snertir félagsmálin, sagðist Magnús hafa mikinn á- huga á að ganga endanlega frá lögum um breytingu á verkefna- skiptingu rikis og sveitarfélaga. I tryggingamálum þyrfti að endur- skoða almannatryggingalögin með það i huga aö beita þeim meira i tekjujöfnunarátt, og bæta og jafna aðstöðu aldraðs fólks. „Það sem ég hef þó allra mestan áhuga á er verðtryggður lifeyris- sjóður fyrir alla landsmenn, sem kveðiö er á um i stjórnarsáttmál- anum. Það held ég aö sé mesta timamótaverkefnið sem fyrir liggur i þessum málaflokkum,” sagði Magnús. Magnús H. Magnússon: „Aöalat- riðið er að allir vinni af fullum heilindum i þessu samstarfi.” „Aöalatriðið er að allir vinni af fullum heilindum i þessu sam- starfi og þá held ég að árangur stjórnarsamstarfsins verði góð- ur,” sagði Magnús að lokum. Magnús H. Magnússon hefur ekki setið á þingi áður fremur en reyndar þrir aörir hinna nýju ráðherra. En hann hefur mikla reynslu i félagsmálum og stjórn- unarmálum, sem ætti aö koma til góða i ráðherraembætti. Magnús hefur verið simstöðvarstjóri i Vestmannaeyjum og bæjarstjóri um árabil. —eös fiskviimslunnar „Þetta er eins og hvert annað starf sem maður gengur i og verður að reyna að gegna eftir þvi sem maður getur,” sagði Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra, er Þjóðviljinn spurði hann hvernig ráöherradómurinn leggðist i hann. „Ég vona bara að vel takist til.” Kjartan sagðist vera ánægður með sumt og annaö ekki i sam- starfssamningi rikisstjórnar- flokkanna. „Þaö er eins og geng- ur og gerist i samsteypustjórn- úm, að flokkarnir koma ekki fram vilja sinum nema að tak- mörkuðu leyti,” sagöi hann. „Ég er þeirrar skoðunar aö það þurfi að gera mikið átak i sam- bandi við tæknilega og rekstrar- lega endurskipulagningu i fisk- vinnslu, og ég minni sérstaklega á suðvestur-hornið i þeim efnum og þau vandamál sem þar er við að kljást. Það er lika mikilvægt að fiskistofnarnir séu vel nýttir, og helst hvorki of- né vannýttir.” Kjartan sagðist ekki vera með öllu ókunnnugur sjávarútvegs- Kjartan Jóhannsson. málum, þvi hann hefði verið for- maður útgerðarráðs Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar um fjög- urra ára skeið. Kjartan Jóhanns- son er varaformaður Alþýðu- flokksins. Hann útskrifaðist sem byggingarverkfræðingur frá Svi- þjóð 1959 og lærði siöan rekstrar- hagfræöi i Bandarikjunum. Hann hefur rekið eigin verkfræðistofu og kennt i Háskóla Islands. —eös Tómas Árnason, fjármálarádheirra: Jafnvægi í ríkisbúskapnum Tómas Árnason er fjármála- ráðherra hinnar nýju rikisstjórn- ar. „Ég held að starf fjármála- ráðherra sé frekar erfitt eins og sakir standa,” sagöi hann. Tómas sagðist að sjálfsögðu vera ánægður með að takast skyldi að mynda þessa rikisstjórn og sagðist vænta þess að henni vegnaði vel. „Ég er að sumu leyti ánægður með stjórnarsáttmálann og að sumu leyti ekki,” sagði hann. „Samkomulag þriggja flokka hlýtur að byggjast á þvi að menn ná ekki fram öllu þvi sem þeir mundu kannski helst kjósa." I sambandi við efnahagsmálin sagðist Tómas vilja leggja áherslu á það að miðað við rikj- andi aðstæður i islensku efna- hagslifi væri mjög nauðsynlegt að ná jafnvægi i rikisbúskapnum. „Ég tel það vera brýnasta verk- efni rikisstjórnarinnar og þjóðar- Tómas Arnason. innar að ná verðbólgunni niður,” sagði Tómas Arnason að lokum. VIÐOPNUMÍDAG MEÐ FRUMSYNINGU KL.16 „Stórglœsileg sýning, sem á vafa- laust eftir að vekja umtal. . ólafur Laufdal, Hollywood Tuttugu og þrír fataframleiðendur, Karon, Módelsamtökin og félagar ur Hárgreiðslumeistarafélagi íslands og Sambandi íslenskra fegrunarsér- fræðinga, hafa einsett sér að koma öllum rækilcga á óvart á FÖT ’78. Sýndar verða nýjungar í innlendri fataframleiðslu í sérstökum sýningar- deildum, en á sýningarpalli verður sér- sýning á hárgreiðslu, sérsýning á snyrtingu, og síðast en ekki síst STÓRGLÆSILEG TÍSKUSÝNING. ISLENSK FÖT/78 LAUGARDALSHOLL 1,—10. SEPTEMBER AKRAPRJÓN HF. ÁLAFOSS HF. ~~ <| ARTF.MIS SF. NÆRFATAGERÐ “ BLÁFELDUR HF.____________ BÓT HF.__________________ ELGUR HF.________________ FATAGF.RÐIN HF.__________ FÖT HF,__________________ GRÁFELDUR HF.________- HENSON — SPORTFATNAÐUR HF. HII.DA HF._______________ KARNABÆR HF._____________ KLÆÐI HF,________________ LEÐURSMIÐJAN_____________ LEXA HF. ______________ MAX HP.__________________ NÆRFATAGERÐIN CERES HF. PAPEY HF.________________ R. GUÐMUNDSSON___________ SJÓKLÆÐAGERÐIN HF,_______ SKINFAXI HF._____________ SPORTVER HF._____________ VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS HF. Opið virka daga kl. 17—22. Laugardaga og sunnudaga kl. 14—22. Aðgöngumiðaverð: kr. 700 ______________fyrir fullorðna kr. 300 fyrir börn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.