Þjóðviljinn - 22.09.1978, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐViLJINN Föstudagur 22. september 1978
Skotveiðimenn
Stofnfundur skotveiðifélags íslands verð-
ur haldinn i Árnagarði stofu 201 laugar-
daginn 23. september kl. 14
Dagskrá
Drög að lögum og siðareglum félagsins.
Áhugamenn um skotveiðar fjölmennið
Undirbúningsnefnd.
KEFLAVÍK - GRINDAVÍK -
NJARÐVÍK -
GULLBRINGUSÝSLA
Laust er starf á skrifstofu embættisins i
Keflavik frá og með 1. nóvember n.k.
Laun skv. kjarasamningum B.S.R.B. nú
launaflokkur B9.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist undirrituðum
fyrir 10. október 1978.
Bæjarfógetinn i Keflavik, Grindavik og
Njarðvik.
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu,
19. september 1978
Innritun í almenna flokka
fer fram mánudag 25. og þriðjudag 26.
september i Miðbæjarskóla kl. 16-18 og 20-
21:30 báða dagana.
Þátttökugjald greiðist við innritun
Kennslugreinar:
Tungumál:
íslenska (einnig fyrir útlendinga), fær-
eyska, danska, norska, sænska þýska,
latina, franska, spænskan, italska, rúss-
neska, esperanto, enska, ensk verslunar-
bréf, enskir stilar og málfræði.
Verklegar greinar:
Bótasaumur (kludeklip — guiting), mynd-
vefnaður, hnýtingar, batik, kjólasaumur,
barnafatasaumur, postulinsmálning, leir-
munagerð (i Fellahelli).
Annað:
Ættfræði, leikfimi (Fellahellir og Mið-
bæjarskóli), stærðfræði, vélritun og bók-
færsla (i Laugalækjarskóla), ljósmynda-
iðja (i Fellahelli).
Tímar fyrir
V AKTA VINNUFÓLK
i ráði er að setja upp kennslu fyrir vakta-
vinnufólk, sem verða þá blanda úr heima-
námi og kennslu aðra hvora viku. Þeir
sem hefðu áhuga á sliku námi eru beðnir
að hafa samband við skólastjóra i sima
14862.
ÞÁTTTÖKUGJALD:
22 kennslustundir kr. 8.000.00
33 kennslustundir kr. 12.00.00
44 kennslustundir kr. 16.000.00
NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR:
Símar 12992 og 14106
Frá fundi Samstarfsnefndar um reykingavarnir með fjölmiðlafólki.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti:
1130 nemendur í vetur
Fjölbrautaskólinn i Breiðholti
var settur í Bústaöakirkju mið-
vikudaginn 6. sept. Skólameist-
ari, sr. Guðmundur Sveinsson,
hélt ræðu við það tækifæri, og
sagði m.a. að skráðir nemendur á
þessu fjórða starfsári skólans
væru 1120 talsins, og hefðu 400
bæst við frá i fyrra.
Guðmundur sagöi einnig að i ár
yrði i fyrsta sinn lokið viö aö
þræða heildarferil i námi við
skólann, ef þannig mætti að oröi
komast um stofnun sem byöi
uppá mislangar námsbrautir, frá
eins árs brautum til fjögurra ára.
Nýnemar við skólann eru u.þ.b.
600, þaraf 520 á fyrsta ári, en 80
nemendur hafa verið metnir inn i
skólann á mismunandi námsstig.
Þegar skólinn hóf starfsemi
sina áriö 1975 voru námssviðskól-
ans 4 talsins, en námsbrautir 9.
Nii eru námssviöin hinsvegar 7 og
námsbrautirnar 26, þegar allt er
talið. Nemendur skiptast þannig
á námssviö, aö256,eða 22%, eru á
almennu bóknámssviöi eða
menntaskólasviöi, 167 (15%) á
heilbrigðissviöi, 70 (6%) á hús-
I stjórnarsviöi á álika margir, eða
Frá setningarathöfninni I Bústaðakirkju
73, á listasviði. A tæknisviöi eru
206 (19%), 100 (9%) á uppeldis-
sviðiog 265 ( 23% á viðskiptasviði.
Auk þeirra námssviða og
námsbrauta sem skólinn hefúr i
húsakynnum skólans við Austur-
berg verða námsbrautir á fjöl-
brautastigi i Armúlaskóla og
Laugalækjarskóla tengdar Fjöl-
brautaskólanum i Breiöholti,
samkvæmt ákvörðunum fræðslu-
ráðs Reykjavikur og mennta-
málaráöuneytisins, Sagði sr.
Framhald á 14. siðu
„Reykingar eru
tóm tjara”
Nú stendur yfir „Varnarvika
gegn reykingum”, sem skipulögö
er af Samstarfsnefnd um
reykingavarnir. Hér er um að
ræða upplýsinga- og auglýsinga-
herferð, sem menn hafa áreiöan-
lega oröiö varir viö. „Reykingar
eru tóm tjara” segja plastpokar,
limmiðar og barmmerki, og
strætisvagnarnir spyrja hvort við
notum lungun sem sorppoka.
Samstarfsnefndin boðaði
blaðamenn á sinn fund til að
kynna þessa herferð og jafnframt
aðra starfsemi sina. 1 næstu viku
verður haldin ráðstefna um reyk-
ingar og heilsufar og boðið til
hennar fulltrúum fjölmargra
samtaka og stofnana, sem tengj-
ast reykingasjúkdómum og reyk-
ingavörnum beint eða óbeint.
Ráðstefnan fer fram að Hótel
Loftleiðum n.k. þriðjudag. Þar
verður m.a. fjallað um þróun tó-
baksmála hér og erlendis, um-
fang heilbrigöisvandamálsins,
sem reykingar hafa valdið og
varnaraðgerðir þar að lútandi.
Enn fremur verður rætt um
markmiö og leiöir i baráttunni
gegn tóbaksreykingum.
Næsta stórverkefni nefndarinn-
ar er undirbúningur fyrir reyk-
lausan dag, sem ákveðinn hefur
verið 23.janúar 1979. Þá er ætlun-
in að fá sem flesta landsmenn til
að reykja ekki og er ráðgert að
vekja athygli á skaðsemi tóbaks
og leiðum til þess að draga úr
skaðsemi reykinga á margvis-
legan hátt. Reyklausir dagar hafa
verið skipulagðir viða erlendis
með góðum árangri.
A blaðamannafundinum kom
frani m.a. að reykingar valda
meira heilsutjóni og fleiri ótima-
bærum dauðsföllum en nokkur
annar áhættuþáttur sem þekktur
er i sambandi við sjúkdóma.
Kostnaður þjóðfélagsins vegna
reykinga landsmanna er mun
meiri en þær hreinu tekjur, sem
tóbakssalan skilar i rikissjóö, að
þvi er Olafur Ragnarsson, for-
maður Samstarfsnefndarinnar,
upplýsti. Atti hann þá við þann
kostnað sem skapast vegna
áhrifa reykinganna á heilsufar
landsmanna, þ.e. sjúkrakostnað,
tapaðar vinnustundir ofl. Otgjöld
einstaklinganna sjálfra vegna tó-
bakskaupa eru ekki tekin meö i
reikninginn. A vegum nefndar-
innar er verið að áætla þennan
kostnað þjóðfélagsins vegna
reykinga tslendinga á árinu 1977,
og verða niðurstöður væntanlega
birtar á ráöstefnunni á þriðjudag-
inn. 1 þessu sambandi má geta
þess, að heinar tekjur rikisins af
tóbakssölu á árinu 1977 munu
hafa numið um 4 miljörðum
króna, þannig að hér er ekki um
neinar smáupphæðir að ræöa.
Þá benti Ölafur á, að hálfu pró-
senti af þessum hreinu tekjum,
sem rikið hafði af tóbakssölu i
fyrra, eða 20 miljónum króna, er
varið til þess að vekja athygli á
skaðsemi tóbaks á árinu 1978.
Þessi upphæð er lægri en
rekstrarkostnaður tveggja
sjúkrarúma á islenskum spitala á
ári. Sagöi Ölafur að lita bæri á
upplýsinga- og fræðslustarf varð-
andi skaðsemi reykinga og
reykingavarnir almennt sem
góða fjárfestingu fyrir þjóöfélag-
ið, þvi að með sliku starfi ætti að
vera hægt aö draga verulega’ úr
afleiðtngum reykinga og um leiö
kostnaðinum sem þær leiða af
sér. '<•
1 Samstarfsnefnd um reykinga-
varnir eiga sæti, auk ólafs
Ragnarssonar, þeir Asgeir Guð-
mundsson skólastjóri og Þor-
varður örnólfsson framkvæmda-
stjóri. Esther Guðmundsdóttir,
þjóðfélagsfræðingur, hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri
nefndarinnar, sem er til húsa að
Lágmúla 9.
Nefndin var skipuð af heil-
brigðisráðherra fyrir réttu ári
og er hlutverk hennar að annast
framkvæmd laga þeirra sem
samþykkt voru á Alþingi vorið
1977 um ráðstafanir til að draga
úr tóbaksreykingum, og aðrar aö-
gerðir á því sviði. íh