Þjóðviljinn - 22.09.1978, Side 7
Föstudagur 22. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Sveinbjörn Klemenzson
MINNING
vélstjóri — Sólbaröi, Álftanesi
— Fæddur 1.10.1913
— Dáinn 14.9.1978
Sveinbjörn Klemenzson lést
snögglega aö heimili sinu 14.
sept. sl.
Okkur, sem til þekktum kom
skyndilegt fráfall hans ekki á
óvart. Hann haföi um árabil
ekki gengiö heill til skógar.
Samt hvarflaöi þaö sist aö mér,
er hann kvaddi okkur hjónin i
hlaöinu á Sólbaröi sunnudaginn
10. sept. sl. i fegursta haustveöri
glaöur og reifur, aö svo skammt
undan væri hans endadægur.
Enginn má sköpum renna.
Sveinbjörn Klemenzson fædd-
istað Vestri-Skógtjörn Alftanesi
l. okt. 1913. Einn margra táp-
mikilla barna merkishjónanna
Auöbjargar Jónsdóttur og
Klemenzsar Jónssonar bónda
og kennara sama staö. Haim
ólst upp i foreldrahúsum og
hlaut i heimanfylgju gott vega-
nesti, semfólgiö eri ööruen þvi,
sem mölur og ryö fá grandaö.
Ungur réöst hann til náms i
vélvirkjun i Landssmiöjunni.
Fór að þvi búnu i Vélskóla Is-
lands og brautskráöist þaöan
1938. Eftir þaö vélstjóri til sjós
m. a. á m/s Esju, þegar henni
var nýrri hleypt af stokkunum I
Alaborg 1939. Sjómennskan átti
hins vegar ekki alls kostar vel
viö hann. Var vélstjóri viö Sild-
arverksmiöjur rikisins á Siglu-
firöi nokkur sumur.
Stofnaöi ásamt fleirum vél-
smiöjuna Klett i Hafnarfiröi.
Verkstjóri þar um 10 ára skeið.
Stofrisetti siðar og rak Vél-
smiöju Alftaness.
Framleiddi um árabil miö-
stöðvarkatla auk annarrar ný-
smiöi og viöhalds véla. Jafn-
framt var hann nokkur sumur
vélstjóri viö Sildarverksmiöiur
rikisins á Skagaströnd og
Seyöisfiröi. Einnig um tima i
Sildar- og fiskimjölsverksmiöju
i örfirisey. Hann var til dauöa-
dags eöa i aldarfjóröung
umboösmaöur Brunabótafélags
Islands i Bessastaiahreppi. Auk
þess gegndi hann ýmsum trún-
aðarstörfum i heimabyggö
sinni.
Hann var prófdómari i vél-
virkjun i Hafnarfiröi i mörg ár.
Frá árinu 1965 tókaö há honum
sjúkdómur, sem einkum bagaöi
hann i fótum og skerti þrek
hans.
Til þess-aö sporna viö þvi
stundaöi hann sund af krafti,
einnig styrkjandi æfingar. 1970
fékk hann kransæðastfflu. Náöi
samt aftur þeirri heilsu aö eftir
þaö vann hann um nokkurt skeið
sem vélstjóri viö Sikiar- og
fiskimjölsverksmiöjuna Lýsi og
Miöl i' Hafnarfiröi eöa svo lengi
sem heilsan leyföi.
Þegar svo var komiö aö heils-
an leyföi ekki aö hann gæti
starfað á almennum vinnu-
markaði fór fjarri því að hann
settist i helgan stein. Aögeröar-
leysi átti sist af öllu viö hann.
Stöðugt haföi hann eitthvað fyr-
ir stafni, ýmist i smiöju sinni
eöa garði. Viö garöinn lagöi
hannmikla rækt og vinnu. Hann
haföi af öllum gróöri yndi mikiö
og ánægju.
12. okt. 1940 kvæntist Svein-
björn systur minni Margréti
Sveinsd. frá Siglufiröi.
Byrjuöu þau búskap i Reykja-
vik. Æskustöövarnar áttu samt
hug Sveinbjörns allan. Fluttust
þau hjónin þvi fljótlega út á
Alftanes. Fyrst aö Skógtjörn, en
reistu sér fljótt eigiö hús i landi
Vestri-Skógtjarnar. Þau nefndu
þaö Sólbarö. Þeim var 4 barna
auöiö. Þau eru:
Auöunn Klemenz f. 1941, svæf-
ingarlæknir viö Lsp. Kvæntur
Ingibjörgu Oskarsdóttur kenn-
ara frá Höfn i Hornafiröi. Svein-
rós f. 1942, hjúkrunarfr. gift
Hauki H. Ingólfssyni lækni frá~
Akureyri. Þau eru nýkomin frá
Sviþjóð en þar hefur Haukur
lokiö framhaldsnámi i heimilis-
lækningum.
Sveinbjörn Hrafn f. 1951, raf-
virki, kvæntur Huldu Róberts-
dóttur úr Hafnarfirði. Kristján
f. 1958 iönnemi ennþá i foreldra-
húsum. Þá ólu þau hjón upp
Jóhönnu Rósamundu Sveins-
dóttur. Foreldrar hennar voru
Jóhanna Systir Margrétar og
Sveinn bróbir Sveinbjarnar.
Jóhanna og Sveinn voru heit-
bundin er Jóhanna lést i blóma
lifsinsfrá dótturinni fárra mán-
aöa.
Jóhanna er gift Ottó L. Olafs-
syni. Þau eru búsett i Sviþjóö.
Sveinbjörn var einstakur Ööl-
ingur og gull aö manni. Þykist
undirritaöur þar geta trútt um
talað þvi aðöll hans skólaár hér
syöra var heimili þeirra hjóna
athvarf hans og annab heimili.
Raunar okkar yngri systkin-
anna allraeftir lát foreldra okk-
ar.
Sveinbjörn var einkar barn-
góöur og nærgætinn. Alltaf var
gott aö leita til hans ef vanda
bar aö höndum. Vandann leysti
Sveinbjörn af einstakri lipurö og
alúö, án þess aö telja þaö eftir
sér eöa ætlast til launa. Ósjald-
an hefur undirritaöur, og ég
hygg fleirileitað til mágs mins i
smiðjuna þegar bíllinn hefur
gert þeim grikk. Þangaö var
gott aö koma. Engar eftir- eöa
úrtölur, gengiö hreint til verks
og vandinn leystur aö bragöi, ef
þess var nokkur kostur.
Ekki var hart eftir greiöslum
gengiö, hinsvegar ljómaöi vinur
minn einsog sólin ef köttum,
sem jafnan vorueinhversstaöar
nálægt honum i smiöiunni voru
sýnd vinarhót. Hann var ein-
stakur dýravinur.
Ungur kynntist Sveinbjörn
erfiöleikum þeim sem komu i
kjölfar kreppunnar miklu, sem
áheimsbyggöina dundu eftir lok
heimsstyr jaldarinnar fyrri.
Hann geröist snemma róttækur
hugs jónamaöur. Hann bar ætiö
hag þeirrasem minna máttu sin
mjög fýrir brjósti.
Þeirri hugsjón sinni var hann
trúr til hinshi stundar. 1 veik-
indum sinum fór þvi fjarri aö
Sveinbjörn léti hugarvil eöa
sjálfsmeöaumkvun ná taki á
sér. Þvert á móti setti hann ný
járn i eldinn.
Siöustu ár lagöi hann mikla
hugsun og vinnu i að finna leiöir
til þess aö eyða ólykt og mengun
frá sildar- og fiskimjölsverksm.
en erfiölega hefur gengiö að
ley sa þann vanda eins og dæmin
sanna. Mun hann hafa komiö á
framfæri athyglisveröri tillögu
tillausnar þessum vanda. Munu
þær tUlögur vera til athugunar
hjá viökomandi ráöuneyti.
Margs er enn aö minnast en
nú er mál aölinni. Viö hjónin og
dætur okkar þökkum meö
hræröum huga ánægjulegar
samvistir liöinna ára. Veit ég aö
þar mæli ég einnig fyrir munn
systra minna og mága.
Astvinun Sveinbjarnar mágs
mins og vinar biö ég allrar
blessunar.
Þaöer huggun harmi gegn aö
seint fyrnist minningin um
mætan mann og góöan dreng.
Hafi hann þökk fyrir allt og
allt.
Friörik Sveinsson.
Sveinbjörn Klemensson eöa
Sveinbjörn á Sólbaröi eins og
hann hét i daglegu máli okkar
Alftnesinga, var fæddur þann 1.
október 1913 i Amakoti á Alfta-
nesi. Sonur Klemensar Jóns-
sonar, barnakennara og bónda
þar og konu hans Auöbjargar
Jónsdóttur. Sveinbjörn var hinn
fimmti i rööinni af 10 systkin-
um. Sveinbjörn lifði lifi sinu á
Alftanesinu ef frá er talinn stutt-
ur timi, er hann vann fyrir norö-
an viö sildar.verksmiöju sem
vélstjóri, þá ungur maöur. A
þeim tima kynntist hann eftir-
lifandi konu sinni Margréti
Sveinsdóttur frá Siglufiröi. Þau
hjónin eignuöust 4 börnr auk
þess ólu þau upp eitt systkina-
barn beggja.
Þegar ég fluttist á Alftanesið
fyrir 30 árum var þar færra fólk
fyrir en nú er og þvi hægara aö
sjá hina einstöku og kynnast
þeim. A þeim tima var þetta
litla byggöarlag i raun skipt i
nokkur ættarsamfélög auk þess
aö vera landfræöilega skipt i
noröur- og suöurnes. Öræktin
Breiöamýri skildi á milli. Ég
kom aö Þórukoti framandi, án
fjölskyldubanda viö ættarsam-
félögin, ég haföi veriö aö leita
mér aö aösetri utan þéttbýlis,
þá nýkominn heim frá námi og
stórborg. Ég kynntist fljótt
Klemensi fööur Sveinbjarnar,
einöröum, fróöleiksfúsum fræð-
ara, sem mér virtist alla tiö
berahag meöbræöra sinna meir
fyrir br jósti en eigin hag. Smám
saman kynntist ég einnig Svein-
birni og hans fjölskyldu, en
Sveinbjörn, sem þá var starf-
andi vélsmiöur i Hafnarfiröi og
meöeigandi i Vélsmiöjunni
Kletti, byggöi sér hús i túnfæt-
inum hjá foreldrum sinum og
nefndi Sólbarö. Þegar ég kom á
nesiö voru þau ungu hjónin
Sveinbjörn og Margrét fyrir
skömmu flutt i eigiö hús, þau
höfðu áöur búiö hjá Eggert,
bróöur Sveinbjarnar á Skóg-
tjörn. I nafngiftinni Sólbarö
sagði til sin rikur þáttur i eöli
Sveinbjaraar, bjartsýnin og
lifsgleöin. Handan viö veginn
var eyöibýliö Svalbaröi. Þetta
kom einhverju sinni til tals hjá
okkur, ég innti Sveinbjörn aö,
hvi hann heföi ekki tekiö upp
Svalbaröa nafniö. „Þaö er svo
kalt maöur, en sólin þaö er lif-
ið”, var svar Sveinbjarnar. Sól-
ar oglifsgleöi Sveinbjarnar var
ekkiaðeinsí oröi, þaö má sjá.ef
litiöerá garöinn umhverfis hús-
iö á Sólbaröi. Sveinbjörn sá, aö
skjólleysið á nesinu stóö trjá-
gróöri fyrir þrifum og þá var
ráðist i þaö meö handverkfæri
aö vopni aö breyta landinu um-
hverfis húsiö og skapa þaö skjól,
sem vantaöi. Sveinbjörn var
ekki verkkviöinn maöur. Annar
þáttur, sem mér fannst rikur i
eöli Sveinbjarnar var hjálpsem-
in. Trúlega hefur uppeldiö i
hinni stóru fjölskyldu félags-
hýggjum annsins Klemensar
haftmikU áhrif i þá átt aö glæöa
hjálpsemistilfinninguna, en svo
hkir hafa mér sýnst þeir feögar
um þetta, aö þar er trúlega um
ættlægan eiginleika aö ræöa.
Sveinbjörn seldi eignarhlut
sinn i' Vélsmiðjunni Kletti og
reisti sér eigiö verkstæöishús á
Sólbaröi 1953, aö mig minnir.og
hóf þar framleiöslu á oliukynnt-
um kötlum til húsahitunar, en
æöi oft trufluöust framleiöslu-
störfin vegna þess aö sveitung-
sirnir komu meö sln vandamál.
bilaöa bila og heyvinnutæki,
sem viögeröar þurftu. Vinnu-
brögð Sveinbjarnar einkenndust
af þvi aö hann lagfæröi ekki aö-
eins þaö nauösynlegasta. til aö
koma hlutunum frá sér, heldur
einnig þaö annaö, sem hann sá,
aö var i ólagi. Þvi allir hlutir
skyldu vera i lagi. Sveinbjörn
var góöur smiöur.
Þessi hjálpsemi var samhliöa
rikri réttlætiskennd i þjóö-
félagsmálum. Sveinbjörn var
ekki læröur i félagsvisindúm
eöa hagfræöigrdnum. enda var
honum alla tiö ofvaxiö aö skilja
aö hægt væri aö grundvalla gott
þjóöfélag á prettum og undan-
drætti. Fengi maöur lánaöar
hjólbörur þá skyldi maöurskila
heilum hjólbörum, en ekki hálf-
um eins og veröbólguspeking-
arnir kenna.
Siðustu átta ár ævinnar varö
Sveinbjörn aö draga af sér i
verkum, þvi' 1970 kenndi hann
fyrst þess sjúkdóms. sem siðar
varö hans bani. En þá tók hann
til viö æöi merkilegt viðfangs-
efni. aö levsa mengunarvanda
sildar- og fiskimjölsverksmiöja.
En hann gerþekkti þessa fram-
leiöslu f rá starfsárum sinum viö
Sildarverksmiöju rikisins á
Siglufiröi og frá Lýsi og Mjöli
i Hafnarfiröi. Eina lausnin á
þeim vanda haföi áöur veriö aö
ressa sifellt hærri reykháfa til
þess aö lyfta óloftinu þaö hátt,
aö ekki fyndist fyrir þvi i næsta
nágrenni. Sveinbjörn leysti
þetta á mjög athyglisverðan
hátt og smiöaði likan, sem skil-
aöi lyktarlausum eimi þó soöin
væri úldin sild. Þaö voru Svein-
birni litt skiljanleg viöbrögö
þegar latir kerfismenn virtust
ekki nenna aö setja sig inn i
þessalausn hans. Leti i hugsun
og athöfnum var Sveinbirni
fjarlæg. Fræöimaöur ólatur
setti sig inn i þessa hugmynd
Sveinbjarnar og hvatti til aö
tækin yröu sett upp til reynslu,
en allt kom fyrir ekki. Einka-
rekstrarmenn i islensku
athafnalifi taka ekki áhættu
andspænis öruggu styrkjakerfi.
Þetta var Sveinbirni erfiö staö*
reynd og samrýmdist ekki viö-
horfum þess manns, sem i öllum
verkum sinum leitaöi aö náttúr-
legustu lausn þess vanda, sem
fyrir lá hverju sinni. En hin
þegjandisamstaöa hinna lötu er
þaö ofurefli. sem fæstir ráöa
viö.
Sveinbiörn var ekki einsamall
um ævina. Auk hinna sterku
tengsla innan Arnakotsfjöl-
skyldunnar bjó hann viö traust-
an félagsskap konu sinnar,
Margrétar, en hún hefur auk
þess að vera annar buröarásinn
i góöu fjölskyldulifi á Sólbaröi.
veriö mikill máttarstólpi i
menningar- og félagslifi innan
hreppsins. Hún er gædd sömu
hjálpseminni og Sveinbjörn
haföi gagnvartgrönnum sinum.
Þaö er mikill missir fyrir
þetta litla samfélag á Alftanes-
inu þegar fyrirmyndarmenn um
mannleg samskipti hverfa, eins
og nú Sveinbjörn Klemensson.
Ég þakka þau samskipti. er
viö Sveinbjörn áttum og votta
fjölskyldu hans innilega samúö
mina sem og hreppsfélaginu
öllu.
Hannes Kr. Daviösson
Ég veitaö Svenni vinur minn er
dáinn. Þaö fer fyrir mér sem
mörgum öðrum. aö ég get ein-
hvern veginn ekki áttaö mig á
þvi. eöa viöurkennt þaö þrátt fyr-
ir þaö aö dauöinn er ekkert óeöli-
legra fyrirbæri en t.d. fæöingin.
Svenni var einn sá allra besti
vinur. sem ég hefi átt og aldrei
hefur boriö skugga á þann vin-
skap. Hann var sannur og góöur
drengur og svo heiöarlegur aö af
bar. Kunningi okkar beggja sagöi
viömig eitt sinn: ..Svenni er eins
heiöarlegur og væri hann banki”.
Þetta var skemmtileg samliking.
'Vonandi eru bankarnir ennþá svo
heiöarlegir aö hægt sé aö gera
svona samlikingar.
Sveinbjörn Ktemenzson fæddist
1. 10. 1913, aö Vestri-Skógtjörn,
Alftanesi. Hann var sonur hjón-
anna Auöbjargar Jónsdóttur og
Klemenzar Jónssonar, mestu
sæmdarhjóna, sem nú eru bæði
látin.
Sveinbjörn læröi vélvirkjun i
Landssmiöju Islands og lauk þaö-
an prófi áriö 1935. Siöan fór hann i
Vélstjóraskóla Islands og útskrif-
aðist þaöan áriö 1938. Sveinbjörn
stundaði lengst af véla- og renni-
smiöi, ennfremur vélstjórn til
sjós og lands. Hann kvæntist eft-
irlifandi konu sinni Margréti
Sveinsdóttur frá Siglufirði 12.
október 1940. Þau eiga fjögur
börn: Auöun Klemenz, Sveinrós,
Sveinbjörn Hrafn og Kristján,
einnig ólu þau upp fósturdóttur
Jóhönnu Sveinsdóttur. Börn og
barnabörn eru 15 aö tölu.
Sveinbjörn var mikiö hagleiks-
og snyrtimenni og haföi gott auga
fyrir þvisem fallegt er. A heimili
þeirra hjóna er margt fallegra
muna. sem hann hefur smiöaö og
garöurinn hans. sem hann haföi
sérstakt yndi af, er bæöi snyrti-
legur og fallegur.
Heimiliö ber þess vitni aö þar
hafa búið hjón. sem hafa veriö
samstillt um aö prýöa. fegra og
rækta. Þegar ég fór aö heiman
ungur aö árum, fullur af minni-
máttarkennd út i hinn stóra og
viðsjárverða heim, var gott aö
kynnast góöum pilti eins og
Svenni var.
Ég eignaöist aldrei bróöur. en
mér fannst sem ég heföi eignast
bróöur. Viö Svenni lærðum sam-
an i Landssmiöjunni og bar fund-
um okkar fyrst saman þar.
Svenni haföi þá veriö þar eitt ár
og kunni náttúrlega skil á ýms-
um hlutum.
Gott var aö leita til hans meö
ýms'ar spurningar og þurfa ekki
alltaf aö ónáöa hina eldri menn.
Svenni var alltaf boöinn og bú-
inn til hjálpar. Alltaf tók hann upp
hanskann bæöi fyrir mig og aöra.
ef honum fannst rangt aö fariö;
var hann hvers manns hugljúfi.
Eins og fyrr segir. tókst meö okk-
ur Svenna góö vinátta og hefur
hún haldist æ siöan. Vib tókum
saman herbergi á leigu. Frá þeim
tima á ég margar minningar um
ánægjustundir, sem aldrei munu
gleymast. Reglusemi var í
hávegum höfö, jafnt frá báöum
hliöum. Svenni var friöur sýnum
og myndarlegur og ég verö aö
gera þá leiðinlegu játningu. aö
ekki er fritt \"iö aö ég öfundaöi
hann. þegar dömurnar voru aö
senda honum hýrt auga.
Ég kom oft heún til Svenna aö
Vestri-Skógtjörn. Þar bjuggu
foreldrar hans. Heimiliö var stórt
og börnin mörg. Þangaö var gott
aö koma. likast þvi aö vera kom-
inn heim til sin; þar skein ástúö úr
hverju andliti.
Sveinbjörn var alltaf bjarts\-nn
og léttur i lund. Hann var hug-
myndarikur og átti nýjar hug-
myndir. Þaö er oft erfitt aö koma
nýjum hugmyndum á framfæri,
ég þekki þaö litilsháttar. og svo
eru stundum hákarlar i kjölfarinu
hér eins og annars staöar.
Ég kveö Svenna vin minn meö
söknuöi og biö almættiö aö geyma
hann.
Viöhjónin vottum öllum vanda-
mönnum okkar innilegustu
samúö.
Brandur Tómasson
.... '
Enginn kemst
hjá æfingu
ef hann viII tala erlend tungumál.
Æfinguna færöu hjá okkur.
Hin vinsælu kvöldnámskeið fyrir fullorðna
hefjast 21. september.
Sími 10004 og 11109.
Málaskólinn Mímir
Brautarhoiti 4
L ------------ -