Þjóðviljinn - 22.09.1978, Síða 16

Þjóðviljinn - 22.09.1978, Síða 16
DJOÐVIUINN Föstudagur 22. septeipber 1978 Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaös- ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. I BUOIIM sirni 29800, (5 linurr—^ ý Versliö í sérverslun með litasjónvörp oghljómtœki Vílja ekki fulltrúa starfs- manna á stjómarfundum Fulltrúar Sjálfstæöis- flokksins í stjórn SVR lögðust gegn þvi á fundi stjórnarinnar 13. septem- ber s.l. að starfsmenn til- nefndu áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögu- rétt á stjórnarf undum. Starfsmannafélag SVR ritaði stjórninni bréf fyrir skemmstu, þar sem farið var fram á að 1 fulltrúi starfsmannanna sem eru um 180 talsins fengi að sitja stjórnarfundi með öllum réttindum nema atkvæðisrétti. Sigriður Ásgeirsdóttir og Sveinn Björnsson lögöu þá fram tillögu þess efnis að stjórn SVR væri ekki bær til aö fjalla um þetta erindi, sem varðaði nýja stefnu- mörkun i stjórnkerfi borgarinnar og vildu visa málinu til borgarráðs. Tillaga þeirra var felld með 3 atkvæðum gegn tveimur og siðan var erindi starfsmanna- félagsins boriö undic atkvæöi. Það var samþykkt gegn atkvæði Sveins Björnssonar en Sigriður Asgeirsdóttir sat hjá. Af þessu tilefni ræddi Þjóö- viljinn við formann stjórnar SVR, Guðrúnu Agústsdóttur, og sagöist hún vænta þess aö full- trúi starfsmannafélagsins yrði skipaður fyrir næsta stjórnar- fund, sem er 26. september n.k. ,,Ég vænti mér mikils góðs af Guðrún Ágústsdóttir, formaður stjórnar SVR: Stjórnin mun njóta góðs af sliku samráöi við starfsmenn. haldin hefur verið á verk- um Snorra. 175 myndir eru á sýningunni. Nánar verð- ursagtfrá henni í blaðinu á morgun. Á myndinni eru þau Snorri og Selma Jóns- dóttir, forstöðumaður Listasafns fslands, en þar var haldinn kynningar- fundur með fjölmiðlafólki í gær. samvinnu við starfsmenn SVR”, sagði Guðrún, ,,og er ánægð með að erindi þeirra var samþykkt.” Starfsmenn fyrir- tækisins hafa allt aðra þekkingu á málunum en við i stjórninni sem komum utan úr bæ, ef svo má segja. Stjórnin hlýtur þvi að njóta góðs af þvi að hafa fulltrúa starfsmanna á fundum sinum, auk þess sem þetta fyrirkomu- lag hlýtur að efla nauðsynleg tengsl milli stjórnar og starfs- fólks. Ég vona lika að vagn- stjórar, verkstæöisstarfsmenn og skrifstofufólkið skipti þessu fulltrúasæti reglubundið með sér, þannig að sem flestir starfsmanna eigi kost á þvi að koma á stjórnarfundina.” —AI ÍRAKAR: Hafna Camp- David samn- ingnum BAGDAD, 21/9 (Reuter) — Utan- rikisráöherra traks, Saadoun Hammadi kallaði sendiherra Arabarikja á sinn fund i dag og lýsti þvi yfir að yfirvöid lands hans höfnuðu niðurstöðum Camp David-viðræðnanna, þar sem þær væru hættuicgar Aröbum og þá sérstaklega Palestinumönnum. St jórnvöld i Irak eru ósammáia Egyptum i stefnu þeirra gagnvart Israelsmönnum, en eru þó ekki í bandalagi fimm arabarikja, sem stofnaö var eftir för Sadats til Israels á siðasta ári. Dagblöð i Irak hafa gagnrýnt úrslit viðræðnanna i Camp David harðlega. Fangarnir á Kýpur gáfust upp NICOSIA, 21/9 (Reuter) — Sjö- menningarnir sein héldu iög- regiumönnum i gisiingu í stærsta fangelsi Kýpur gáfust upp i fyrra- dag. Unnusta Vassos Pavlides sem talin er hafa smyglað skamm- byssutil fanganna var leidd fyrir rétt i gær og bornar á hana niu ákærur, þ.á.m. um morötilraun, vopnað ránog mannrán. Hún var úrskurðuð i átta daga varðhald. Stærsta sýningin á verkum Snorra Á sunnudaginn kl. 14 verður opnuð í Listasafni (slands stór yfirlitssýning á verkum Snorra Arin- bjarnar. Hér er um að ræða stærstu sýningu sem SJÁLFSTÆÐISFLOKKSMENN í STJÓRN SVR: Páfinn vill banna hjónaskilnaði í Bandaríkjunum VATIKANIÐ, 21/9 (Reuter) — Um þessar mundir eru rúmlega fjörutiu bandariskir biskupar i heimsókn hjá Jóhannesi Páli páfa. I heimalandi þeirra eru hjónaskilnaðir mjög tiöir og hvatti páfinn þá til að krefjast þess, að hjónabönd kristinna manna yrðu órjúfanleg þar i landi. Páfinn sagöi, að sér leiddist að þurfa að segja þetta, en slikt væri Guðs orö. Birgir tsleifur: Allt óráðið um framtiöina. „Hef ekkert ákvedid í huga” segir Birgir ísl. Gunnarsson um það hvort hann hyggist sækja um nýtt starf Ég hef ekkert ákveðið i huga sagði Birgir tsl. Gunnarsson fyrrv. borgarstjóri er Þjóðviljinn hafði i gær samband við hann I Sjálfstæöishúsinu og spurði hann hvort hann hefði I hyggju að sækja um eitthvert faststarf eftir að hann iét af embætti borgar- stjóra. Eins og er hef ég á hendi ýmis „free lance” verkefni en allt er óráðið um framtiðina, sagði hann. Mennhafa veitt þvi athygli að undanförnu að Birgir hefur verið iðinn við að skrifa greinar i Morgunblaöið og hafasumir gert þvi skóna að hann fari inn á rit- stjórn blaðsins. —GFr Frá GÍSLA GUNNARSSYNI, fréttaritara Þjóðviljans í Lundi: Talsverðar líkur taldar á að sænska stjórnin falli LUNDI 21/9 — Talsveröar likur voru laldar á þv! I Sviþjóð I dag að kjarnorkumálin myndu verða sænsku stjórninni aö falli. Stjórnin hefur setiö á miklum fundum að undanförnu, og I dag lokuöu formenn allra þriggja stjórnarflokkanna, Thorbjörn Falldin, formaður miðflokksins, Gösta Boman, formaöur ihalds- flokksins og Ola UUsten, for- maður þjóöarflokksins, sig inni á leynifundi. Ékkert orð hefur enn síast út um þann fund, en blaðamenn biða i ofvæni fyrir utan. Deiluefni stjórnarflokkanna eru kjarnorkumálin. Nú er lokiö byggingu tveggja kjarnorku- vera og þarf aö taka ákvöröun um rekstur þeirra. Falldin for- sætisráöherra vill ekki undir neinum kringumstæðum leyfa að þau veröi tekin i notkun og hafnar öllum tillögum sem leiða til þess, en formenn hinna flokk- anna vilja hins vegar gefa leyfi til að þau verði starfrækt. Eins og menn muna snerist kosningabaráttan i Sviþjóð sið- ast mjög um kjarnorkumálin, og voru sósialistar hlynntir byggingu kjarnorkuvera og ihaldsmenn og þjóðarflokks- menn voru á sama máli,- þó þeir flikuðu þeirri skoðun ekki mjög, en miðflokksmenn voru andvig- ir kjarnorkuverum. Allar rann- sóknir benda nú til þess að stjórn borgaraflokkanna hefði aldrei fengið meirihluta án baráttu miðflokksins sem fékk þá talsveröan hljómgrunn. En stjórnin byggöist þó á misskiln- ingi, þar sem flokkarnir þrir höfðu ekki sömu stefnu i málinu. Nú benda skoöanakannanir til að fylgi miöflokksins sé aö minnka og sé nú 17,5% (en hann fékk 24% i kosningunum). Þær benda einnig til þess að borg- araflokkarnir þrir hafi minna fylgi en sósialistar: 44,5% á móti 48,5%. Þessi þróun gerir það aö verkum aö stjórn miö- flokksins er mjög rög við að svikja þau kosningaloforö, sem hún fékk fylgi sitt á, og veldur þaö hörku F'álldins i þessu máli. Ástæðan fyrir þvi aö þjóðar- flokksmenn halda nú mjög til streitu þeirri stefnu i kjarnorku- málum sem þeir vildu áður ekki flika mikiö er sú, að sósialistar eru óbeint búnir að lofa þeim hlutleysi ef þeir myndi einir stjórn fram að næstu kosningum sem eiga að fara fram eftir ár eða jafnvel stuðningi i myndun samsteypustjórnar sósialista og þjóðarflokksins. Þeir eru þvi ekki hræddir við að sprengja FáTldin stjórnina að svo stöddu. thalds- menn eru hins vegar i klemmu, þvi að þeir eru á sama máli og þjóöarflokksmenn hvaö kjarn- orkuna snertir en vilja þó um- fram allt forðast að stjórnin falli.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.