Þjóðviljinn - 30.09.1978, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.09.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 30. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 ' Jafnrétti til Þjóð- leikhússins Athugasemd frá Sigurdi D. Kristinssyni i ■ n ■■■■■■■ i ■ ■■■ ■ i !■■■■! Fimmtudaginn 14. september s.l. birtist I Þjóðviljanum mynd af tröppum Þjóðleikhússins ásamt þessum texta: „Hér er svo sannarlega ekki gert ráð fyrir aö fatlaðirgeti notið menningarlifs á við þá sem öfatlaðir eru”. t tilefni af þessum myndtexta birtist i sama blaði laugardaginn 16. september leiörétting frá Þjóð- leikhúsinu. Þar segir m.a.: „t til- efni þessa vilja forráðamenn Þjóðleikhússins koma þviá fram-' færi að reynt hefur verið eftir föngum að bæta aðstöðu fyrir fatlaða og auðvelda t.d. fólki i hjólastólum að sækja leikhiísið.” Hér verður ekki dregið i efa að rétt séfrá sagtum góðan vilja, en úrbætur hafa ekki orðið í sam- raémi við hann. Fáumdögum eftir að leiðrétting Þjóðleikhússins birtist í Þjóðvilj- anum sótti undirritaður leiksýn- ingu i Þjóðleikhúsinu ognotaði þá tækifærið til að reyna aöstöðuna. Og þvi miður : torleiðið við Þjóö- leikhúsið er hið sama fyrir okkur hjólastólafólkið. Að visu lét dyra- vörður setja lausar skábrautir, sem smiðaðar höfðu verið i þeim tilgangi, yfir tröppur, sem liggja niður að Utidyrum til hægri hand- ar Ur forstofuleikhússins, en fyrir utan útidyrnar eru há þrep niður á götuna. Skábrautin er svo brött að þess er enginn kostur aö fólk I hjólastólum komist af eigin rammleikuppeðaniður. Afslíkri rennibraut gæti jafnvel stafaö meiri slysahætta en af tröppun- um, einkum á niðurleið. Það væri sanngjarnt að hönnuðir brautar- innar gerðu sjálfir tilraunir til að fara upp og niður i hjólastólum áður en hún er tekin til almennra nota. Hérer ekki um valkosti að ræöa fyrir fólk á hjólastólum, þvi ibáð- um tilvikum, stiganum og renni- brautinni, er það jafnmikið háð annarra hjálp. Enn biður það verkefni Ur- lausnar hvernig hægt er að veita fólki i hjólastólum jafnrétti til að sækja leikhús þjóöarinnar. Sjöunda dag frá Jafnréttis- göngu Sjálfsbjargar — félags fatlaðra i' Reykjavik. Sigursveinn D. Kristinsson jKortsnoj jsvaf yfir sig! Viktor Kortsnoj gaf i gær 27. ■ einvigisskákina án þess að tefla J frekar. Þegar taka átti til við Iskákina að nýju i gærmorgun var Kortsnoj ekki mættur á ■ keppnisstaðinn. Var klukka | hans þá sett i gang og fékk hún ■ að ganga óáreitt þar til Kortsnoj | hringdi á staöinn og sagöist hafa sofið yfir sig en að hann teldi frekari baráttu vonlausa og að hann gæfist upp. Karpov hefur þvi afgerandi forustu i einviginu með 5 gegn 2 vinningum Kortsnojs. 28. skákin verður væntanlega tefld i dag og hefur Karpov hvitt. Utf Hrönn Fleiri athvörf en Hallærisplanið 1 framhaldi af þeirri umræðu sem verið hefur um málefni ung- linga i Reykjavik og nágrenni að undanförnu langar okkur til að benda á eftirfarandi: Þráfaldlega hefur verið á það minnst i slikri umræöu að ekkert væri um skemmtanir fyrir unglinga i Reykjavik um helgar. 1 raun er það ekki alveg rétt sem almennt hefur verið haldið fram aö ekki værium neinar slikar skemmtan- ir að ræða, þvi um rúmlega tveggja mánaða skeið hafa verið vikulega diskótekskemmtanir i Reykjavik fyrir unglinga 16 ára og eldri. t fyrstu stóð Diskótekið Disa að þessum skemmtunum vikulega á laugardögum i Kaffiteriunni Glæsibæ. Núna stendur ungtemplara- félagiö Hrönn að slikum skemmt- unumvikulega með aðstoðDiskó- teksins Disu. Skemmtanir þessar eru á laugardagskvöldum kl. 9—1 i Templarahöllinni við Eiriksgötu. Af fyrstu undirtekt- um má sjá að skemmtanir þessar mælast vel fyrir, og þegar hafa nokkur hundruð unglinga komið og skemmt sér þar við bestu að- stæöur. Sér Diskótekið Disa um að velja og kynna vinsælustu popplögin ásámt þvi að stýra marglitum ljósum i takt við tón- ana. Markmiö með þessum diskótekkvöldum er að koma til móts við unglinga og skemmtanaþarfir þeirra þannig að „planið” margumrædda þurfi ekki að vera eina athvarf þeirra á helgarkvöldum. Þessmá geta, að Templarahöllin, sem IOGT lánar undir starfsemi þessa, tekur milli 200 og 300 manns. t ráði er að kanna möguleika á þvi að hafa einnig á boðstólum skemmtanir fyrir unglinga 13—15 ára á sama stað. Það má þvi ljóst vera, að ekki er um algjört aðstöðuleysi unglinga i Reykjavikaö ræða um helgar, en aðstandendur þessara skemmtana gera sér ljóst aö einn 200—300 manna staður dugar skammt og væri þvi æskilegt að sambærilegri aðstöðu yrði komiö upp viðar i borginni, þar sem unglingar geta skemmt sér á heilbrigðan hátt. UTFHrönn. „F ólkiö í Finnlandi” Dagskrá Wasa-leikhúss í Norræna húsinu 3. okt. „Dömufrí” Dúmbó og Steini meö nýja plötu (Jt er komin ný hljómplata frá hljómsveitinni Dúmbó ogSteina. Þetta er þeirra önnur breiöskifa en alls hafa þeir leikið inn á 4 hljómplötur. Tónlist Diimbó og Steina er létt og liflegt popp. A plötunni eru 12 lög og er helmingur þeirra af erlendum toga, en hinn helmingurinn er íslensk lög ár ýmsum áttum. Þar má kenna gamla slagara, jafnt sem ný og fersk stuðlög. Hljómsveitin Dúmbó er nú á ferð um landiö og leikur fyrir dansi. Næsta skemmtun þeirra verður nú um helgina 30/9 ’78 i Borgarnesbiói i Borgarnesi. Helgina 13. og 14. okt. verða þeir i Stapa, fyrra kvöldið og Borg i Grimsnesi, seinna kvöldiö. Aætlað er að þeir leiki viðar, en hljómsveitin mun aðeins starfa til loka októbermánaðar. Hljómplatan Dömufri er hrein stuö plata eins og vera ber og svi'fur hinn létti Dúmbó andi yfir henni. Leikarinn Osten Engström og píanóleikar- inn Guillermo Michel flytja dagskrá með Ijóðum ogsöngvum: „Medborgare i Finland" í Norræna hús- inu þriðjudagskvöldið 3. okt. kl. 20.30. Dagskrá þessi var sett saman i Wasa-leikhús- inu í Finnlandi í fyrra, sem liður í hátíðarhöldum í til- efni 60 ára sjálfstæðis finnsku þjóðarinnar. Kristin Olsoni leikhússtjóri stjórnaði dagskránni. A dagskránni eru sænsk/finnsk ljóð og söngvar eftir 19 höfunda, m.a. Elmer Diktonius, Solveig vonSchoultz, Lars Huldén, Bengt Ahlfors, Tove Jansson, og tón- skáldin Ernu Tauro og Kaj Chydenius. Dagskrá þessi fékk mjög góða dóma og viðtökur i Finnlandi. Bæði þótti hún hugvitsamlega sett saman og leikarinn Osten Engström þótti túlka ljóðin á lit- rikan og þróttmikinn hátt. Aðgangur er ókeypis, og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Olympíuskáksveitin Ingyar í staö Inga R. Ingi R. Jóhannsson, alþjóðl. skákmeistari, hefur tilkynnt stjórn Skáksambands tslands, að hann sjái sér ekki fært að taka sæti I ólympluskáksveitinni, sem eftir tæpan mánuð heldur til Ar- gentinu, til að tefla á 23. Ólympiu- skákmótinu. t stað Inga R. hefur Ingvar Asmundsson, skákmeist- ari, verið valinn til þátttöku. Olympiulið Islands i karlaflokki verður þvi þannig skipað: Frið- rik, Guðmundur, Helgi, Jón L., Margeir, Ingvar. Þær, sem skípa fyrstu óiympiuskáksveit kvenna, eru eins og áður, þær: Guðlaug, Ólöf, Birna og Svana. Fararstjóri verður Einar S. Einarsson, forseti Sí, sem jafn- framt mun sitja þing Alþjóða- skáksambandsins, bæði fyrir hönd islenzka og danska skák- sambandsins. Ný tilraun til að koma í veg fyrir slys á börnum HULL, 28/9 (Reuter) — 1 þessari viku mun umferarlögreglan f Hull reyna nýjar aðferðir tl að koma I veg fyrir slys á börnum i umferö- inni. Brúðum verður komið fyr- ir á leikvelli og lögreglubilar látnir aka yfir þær. Ahorfendur verða börn á aldrinum fimm til ellefu ára og eiga þau aö segja til um hvenær lögreglubilarnir þurfa aö hemla. Þetta er tilraun til að skerpa skyn barnanna á fjarlægð og hraða I umferðinni. Olíusamningur viö Sovétríkin Hinn 8. september s.l. var undirritaður f Moskvu samningur milli viðskiptaráðuneytisins og Sojuznefteexport um kaup á brennsluolium og benzini fyrir næsta ár. Samið var um kaup á 184.000 tonnum af gasoliu, 130.000 tonnum af fueloliu og 82.000 tonnum af benzini. Gasoliu- magnið er 16.000 tonnum minna en þessa árs samningur gerir ráð fyrir og bensinmagnið 8000 tonnum minna. Hins vegar er umsamiö fueloliumagn óbreytt frá þvi, sem það er i ár. Miðað við núgildandi verðlag og gengi er heildarverömæti samningsins um 14.700 milj. kr. Viðskiptaráðuneytið hefur framselt samninginn islensku oliufélögunum, sem hafa annast oliuviðskiptin við Sovétrikin siðan þau hófust 1953. Eigið þér mynd eftir Hallgrím Einarsson? Erfingjar Hallgrims heitins Einarssonar ljósmyndara gáfu og afhentu Akureyrarbæ ljósmynda- tæki hans og Ijósmyndaplötusafn fyrr á þessu ári með tilmælum um, aö efnt yrði til sýningar á ljósmyndum eftir hann i tilefni 100 ára afmælis hans hinn 20. febrúar 1978. Bæjarstjórn hefir þakkað gjöfina og kosið nefnd til að annast undirbúning sýningar- innar, sem er fyrirhuguð i nóvembermánuði n.k. Þvi vill nefndin nú beina þeim tilmælum til þeirra, sem eiga ljósmyndir eftir Hallgrim, að þeir láti af þvi vita sem allra fyrst, ef þeir vilja lána þær til sýningar- innar, og hafi sambund við Hár- ald Sigurgeirsson á skrifstofu Akureyrarbæjar, simi 21000, eða heima, simi 23915. Einkum hefir nefndin áhuga á að fá að láni stækkaðar myndir, hvort sem um er að ræða myndir af einstökum mönnum, fjölskyldu- eða hóp- myndir, myndir af mannvirkjum, menningarþáttum, atburöum, landslagi eða öðru. Þess er vænst, að þeir, sem vilja lána myndir, bregðist viö fljótt og vel, svo að sýningin geti orðið sem fjölbreytilegust og tek- ist sem best. Með þakklæti. Sýningarnefnd.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.