Þjóðviljinn - 11.10.1978, Qupperneq 5
Miövikudagur 11. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Innanlandsflug Flugleiða
Vetraráætlun
gengin í gildi
Vetraráætiun innanlandsflugs
Flugleiöa hófst hinn 1. október og
er nú viðameiri en nokkru sinni.
Ólöf Haröardóttir og
Magnús Jónsson i hlutverk-
um sinum i Kálu ekkjunni.
Síðustu
sýningar
á Kátu
ekkjunni
Nú eru aðeins eftir þrjár
sýningar á hinni vinsælu
óperettu Þjóðleikhússins,
Kátu ckkjunni, sem sýnd
hefur verið nær 40 sinnum.
Næsta sýning er á miðviku-
dagskvöldið, næst siðasta
sýning á sunnudagskvöld og
siðasta sýning föstudaginn
20. október.
Sýningin á Kátu ekkjunni
er i hópi þeirra söngleikja-
sýninga, sem hvað mesta að-
sókn hafa fengið i leikhúsinu.
Sieglinde Kahmann og Sig-
urður Björnsson fara með
aðalhlutverkin, Hönnu Gla-
wari og Danilo greifa, en
með önnur stór hlutverk fara
Ólöf Harðardóttir, Magnús
Jónsson og Guðmundur
Jónsson.
Einnig má benda fólki á,
að draga ekki of lengi að sjá
sýninguna Mæður og syni á
Litla sviðinu, þvi að sýning-
um á þeim einþáttungum fer
senn að fækka. Sú sýning
hefur hlotið afbragðs dóma
og undirtektir en það eru þær
BrietHéðinsdóttir og Guðrún
Þ. Stephensen, sem fara þar
með aðalhlutverk.
Alls verða farin frá Reykjavik 82
flug á viku. Til samanburðar má
geta þess að brottfarir frá
Reykjavik voru 78 á viku sam-
kvæmt áætlun i fyrra. Áfanga-
staðir eru hinir sömu og áður,
þ.e.a.s. Reykjavik, Patreks-
fjörður, Þingeyri, ísafjörður,
Sauðárkrókur, Akureyri, Húsa-
vik, Egilsstaðir, Hornafjörður,
Fagurhólsmýri og Vestmanna-
eyjar.
Með þessari upptalningu er þó
aðeins hálf sagan sögð, þvi i
framhaldi af innanlandsfluginu
frá Reykjavik flýgur Flugfélag
Norðurlands til staða á Norður-
og Austurlandi og Flugfélag
Austurlands frá Egilsstöðum til
margra staða austanlands. Flug-
félag Norðurlands flýgur nú i
fyrsta sinn áætlunarflug milli
Akureyrar og Siglufjarðar en
aðrir áfangastaðir eru tsafjörður,
Grimsey, Húsavik, Kópasker,
Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopna-
fjörður og Egilsstaðir.
I sambandi við innanlandsflug
Flugleiða til Egilsstaða flýgur
Flugfélag Austurlands til sjö
áfangastaða. Nú er i fyrsta sinn
tekið upp áætlunarflug til Breið-
dalsvikur, en aðrir áætlunar-
staðir eru Bakkafjörður, Borgar-
fjörður eystri, Djúpivogur,
Vopnafjörður, Hornafjörður og
Norðfjörður.
Frá Reykjavik verður flogið
með Fokker Friendship skrúfu-
þotum Flugleiða, Flugfélag
Norðurlands flýgur Twin Otter
skrúfuþotum og Chieftain flugvél,
Flugfélag Austurlands flýgur
Piper Navajo og Islander flugvél.
Ferðir frá Reykjavik verða
sem hér segir: Til Akureyrar
verða fimm ferðir á föstudögum,
fjórar ferðir mánudaga, fimmtu-
daga og sunnudaga, en þrjár
ferðir aðra daga, samtals 26
ferðir i viku. Til Vestmannaeyja
verða tvær ferðir á dag, samtals
14 ferðir á viku. Til tsafjarðar
verða tvær ferðir á þriðjudögum,
fimmtudögum, föstudögum og
sunnudögum, en ein ferð aðra
daga. Samtals 11 feiðir á viku. Til
Egilsstaða verða tvær ferðir á
Framhald á 14. siöu
Háskóla-
fyrirlestur
Otmar Werner, prófessor i mál-
visindum við háskólann i Frei-
burg i Vestur-Þýskalandi, flytur
opinberan fyrirlestur I boði heim-
spekideildar fimmtudaginn 12.
oktöbcr 1978 kl. 20.00 i stofu 101' i
Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Saman-
burður á færeysku og islensku
máli” og verður fluttur á is-
lensku. öllum er heimill aðgang-
ur.
(Frétt frá Háskóla Islands)
SÍLDARtJTVEGSNEFND:
Athyglisverö skýring
á undirboðum
Kanadamanna
Síldarverðið þar á s.L ári aðeins
fjórðungur af íslenska meðalverðinu
1 sambandi við undirboð Kan-
adamanna á saltsildarmörkuðun-
um i Evrópu og Bandarikjunum,
hefir Sildarútvegsnefnd gert
ýmsar kannanir á þvi hvernig
Kanadamönnum sé mögulegt að
selja saltsildina á svo lágu verði
sem raun ber vitni.
Endanlegar niðurstöður liggja
enn ekki fyrir varðandi nokkur
atriði, en ljóst er þó, að meginá-
stæðuna má rekja til hins óeðli-
lega lága verðs, sem kanadiskar
söltunarstöðvar greiða fyrir
fersksildina.
Samkvæmt samanburði, sem
SÚN og fulltrúar stjórnvalda á
Nýfundnalandi hafa nýlega gert,
greiddu vinnslustöðvarnar vestra
á s.l. ári aðeins rúml. fjórðung
þess verðsfyrir fersksildina, sem
söltunarstöðvarnar hér greiddu.
Við þann samanburð var tekið til-
lit til útflutningsgjalda á Islandi,
en ekki framleiðslustyrkja Kan-
adamanna, þannig að hinn raun-
verulegi mismunur er enn meiri.
Einn liðurinn i könnun Sildarút-
vegsnefndar var sá að bera sam-
an verð á þorski og sild á árinu
1977 i Kanada og nokkrum
Evrópulöndum, þ.á.m. Islandi.
Niðurstöður af þeirri könnun
leiddu m.a. eftirfarandi i ljós:
1. Samkvæmt skýrslum Fiskifé-
lags Islands um aflaverðmæti
árið 1977. var meðalverð á
fersksild hérlendis kr. 68/89 pr.
kg., en á þorski (miðað við
óslægðan fisk) kr. 71/36 eða
3,59% hærra en á sild. (Ath. :
Útflutningsgjöld, sem i raun-
inni eru hluti fiskverðsins, eru i
hvorugu tilfellingu meðtalin.
Aftur á móti eru greiðslur til
stofnfjársjóðs fiskiskipa með-
taldar I báðum tilfellum.t
2. I Danmörku var meðalverð á
fersksíld sama ár d. kr. 2/76 pr.
kg (isl. kr. 91/38) og á óslægð-
um þorski d.kr. 3/64 (isl. kr.
120/52) eða 31,89% hærra en á
sild.
3. I Hollandi var meðalverð á
fersksildárið 1977 h. fl.0/92pr.
kg (isl. kr. 74/61) og á óslægð-
um þorski h.fl. 1/86 (isl. kr.
150/85) eða 102,18% hærra en á
fersksild.
4. Á austurströnd Kanada var á
s.l. ári hæst greitt fyrir fersk-
sildina á Nýfundnalandi eða 5
kanadisk sent pr. lb. (isl. kr.
20/63 pr. kg ). A sama ári var
greitt þar fyrir óslægðan
togaraþorsk 12 1/2 sent (isl. kr.
51/59 pr. kg ) eða 150% hærra
verð en íyrir fersksildina.
t öllum framangreindum tölum
er meðalgengi ársins 1977 lagt til
grundvallar.
f vrstur á slysstað
hvað gcrir þú?
Getur þú hafist handa og veitt fyrstu hjálp af kunnáttu og
öryggi? Hjálp í viölögum getur þú lært í Bréfaskólanum.
Þú færö kennslubók Jóns Oddgeirs og sex kennslubréf.
II • - i__• X _ I . I
______ 5L> " ‘
og allar helstu nýjungar sem fram hafa
komið á þessu sviöi undanfarió.
Bréfaskóiinn
Suóurlandsbraut 32. 105 Reykjavik. Simi 812 55