Þjóðviljinn - 11.10.1978, Síða 6

Þjóðviljinn - 11.10.1978, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN ‘ Miövikudagur 11. október 1978 Við setningu 100. löggjafarþings íslendinga: Ekki átök heldur vinna „Sæll herra forsætisráöherra”, er nokkurnveginn öruggt aö Jón Sólnes hefur sagt á þessu hátiölega augnabliki f þingbyrjun, en á svipinn eru þeir eins og minningin um Vilmundarlausa þingsamvéru sé þeim efst i huga. (Ljósm. eik.) sagði Geir Gunnarsson alþingismaður um fjárlaga- frumvarpið sem verður mál málanna á Alþingi til að byrja með Blöö stjórnarandstöð- unnar hafa undanfarið hamrað mjög á þvi að mikil átök ættu sér stað i rikisstjórnarf lokkunum um fjárlagafrumvarpið. Við inntum þrjá þing- menn> einn úr hverjum rikisstjórnarf lokki, um þetta mál við setningu Alþingis í gær. Ekki átök heldur vinna „t>aö er ekki rétt aö einhver átök séu um gerö fjárlagafrum- varpsins, heldur er hér bara um mikla og timafreka vinnu aö ræða, sem viö nú vinnum að af kappi”, sagöi Geir Gunnarsson alþingismaöur, aöspuröur um málið. „Við fáum nauðsynlegar upp- lýsingar frá stofnunum i rikis- kerfinu, um þá liði sem segja má að séu fastir og óhjákvæmir liðir i frumvarpinu. Að öðru leyti er nú unnið aö breytingum sem verður að gera á þvi frum- varpi sem fyrir lá og þeim breytingum sem rikisstjórnar- flokkarnir telja að eigi að gera á þvi. Hitt er svo annað mál, að hér er aðeins um frumvarp að ræða, sem á eftir að breytast mikið i meðförum Alþingis”, sagöi Geir. Hann taldi liklegt að frum- varpið yrði ekki lagt fram fyrr en i byrjum nóvember en um þaö hvort frumvarpið yrði af- greitt fyrir áramót þorði hann ekkert að segja. Það væri Alþingi sem eitt hefði þaö á valdi sinu. Hvernig á að afla f jár- ins? „Þaö sem málið snýst um nú, við gerð þessa fjárlagafrum- varps er hvernig afla eigi þess fjár, sem vantar i rikiskass- ann”, sagöi Arni Gunnarsson alþingismaður er við ræddum við hann um gerö frumvarps- ins. „Menn standa frammi fyrir þeirri spurningu hvort skatt- leggja eigi almenning meira en orðið er, eða hvort skattleggja eigi þau fyrirtæki sem aflögufær eru. Ég er hlynntur þvi að settur veroi a lúxusskattur- þar á ég við að settur verði skattur á þær vörur, sem umfram eru það sem venjulegt alþýöuheimili i landinu þarfnast og notar. Það er alveg ljóst, að tekju- skatturinn er nú einungis launa- mannaskattur og ég er andvigur þvi að hækka hann, enda væri þá bara verið að sælast dýpra i vasa hins almenna launamanns. Eins standa menn frammi fyrir þvi hvað á að skera niður af opinberum framkvæmdum. A að fresta f járveitingu til vega- mála, á að fresta fram- kvæmdum við Borgarfjarðar- brúna, eða á að draga úr virkjunarframkvæmdum? Allt eru þetta spurningar sem svara þarf. Hitt er ljóst að frekari tekju- skattshækkun er ekki hægt að beita, það verður að finna aðrar leiðir.” Vil ekkert segja „Nei, ekki nefna fjárlaga- frumvarpið við mig, ég vil ekk- ert um það ræða á þessu stigi málsins, ekki orð”, sagöi Tómas Arnason, fjármálaráðherra er viö ætluðum að ræöa viö hann um gerð frumvarpsins. Og þar meö var hann á bak og burt. —S.dór Miklar breytingar á Alþingi Þær mestu síðan 1908 Fullyrða má, að aldrei í sögu Alþingis íslendinga, utan árið 1908, hafi átt sér stað jafn miklar breytingar á þingmanna- liðinu og við kosningarnar i júlí sl. Af þeim 60 þingmönnum. sem sæti eiga á Alþingi, eru nýir þingmenn 21 og þar af 15, sem aldrei hafa áður setið á þingi. Frambjóðendur til þings i júni sl. voru alls 598. Þar af 449 karlar og 149 konur. Við kosningarnar voru i kjöri 54 þingmenn, sem höfðu setiö sem aðalmenn siðasta kjörtimabil. Af þessum fram- bjóðendum náöu aðeins 39 kjöri, annað hvort sem kjördæmakosnir eða uppbótarmenn. Þingmenn siðasta kjörtimabils, sem ekki voru i kjöri nú voru: Eggert G. Þorsteinsson, Guðlaugur Gislason, Ingólfur Jónsson. Jón Arnason, (sem lést 23. júli 1977), Jón Ármann Héðins- son, og Magnús Kjartansson. Þeir þingmenn sem buðu sig fram, en náðu ekki kjöri voru: Guðmundur H. Garðarsson, Gunnlaugur Finnsson, Halldór Asgrimsson, Ingi Tryggvason. Jón Skaftason, Karvel Pálmason, Magnús Torfi ölafsson, Pétur Sigurðsson, Sigurlaug Bjarna- sóttir, Steinþór Gestsson og Þórarinn Þórarinsson. Ennfremur Asgeir Bjarnason, Axel Jónsson, Gylfi Þ. Gislason, og Jóhann Hafstein, en þeir voru i neðsta eða næstneðsta sæti lista sinna við kosningarnar. Nýkosnu þingmennirnir eru: Alexander Stefánsson, Árni Framhald á 14. siðu . löggjafarþings Ávarp forseta Islands við setningu 1 Sama vegsemd og sami vandi Dr. Kristján Eldjárn, forseti tslands, flytur ræöu sina viö setningu þings I gær. Ljósm.eik. A þingsetningardegi hafa oft verið rifjuð upp frá þessum ræðustóli nokkur minnisverö ártöl, sem öðrum fremur gnæfa eins og vörður á vegi þjóöar- innar, eöa —ef beturþættiorðaö við setningu Alþingis — á vegi þessarar stofnunar um ár og aldir. En einu má raunar gilda hvort oröalagið er notaö, þvi aö saga Alþingis veröur ekki skilin frá sögu þjóðarinnar, störf þings. ins mótast hverju sinni af þörfum hennar og allt sem hér er gertskilar sér á einhvernhátt sem áhrifavaldur vlt i þjóðllfiö. Engin nauðsyn rekur til þess aö þylja sama lesturinn um merkisár Alþingis á hverju ári þegar þing er sett, en aö þessu sinni hlýöir að minnast þess, aö það þing sem nú hefur verið sett, er hið hundraöasta sem haldiö er siöan Alþingi fékk löggjafarvaldáriöl874.Svo mun mörgum sýnast sem ekki sé óviðeigandi að staldra ögn við svo stórhreinlega tölu og jafnvel láta hana veröa sér tilefni til nokkurra þarflegra hugleiö- inga. Ef að likum lætur munu margir gera það meö sjálfum sér, og ef til vill gera þaö hver og einn vor á meöal, þó að ég hafi þar ekki mörg orð um. En litum þó svipsinnis, I góðrar minningar skyni, til hins fyrsta fclenska löggjafarþings, sem sett var hér i sal lærða skólans hinn 1. júli 1875. í þeim boöskap, sem þá var lesinn f yrir höndþjóðhöföingjans.varsvo aö orði komist, aö framfarir íslands, gæfa þess og hagsæld, sé nú aö miklu leyti komin undir þeim fulltrúum þjóöarinnar sem hún hefur sjálf kosiö til setu á löggjafarþinginu. Þessi orö, sem hjómuöu við setningu hins fyrsta löggjafarþings, standa enn i góöu gildi við setningu hins hundraðasta. Sami vandi með sömu vegsemd hvilir nU sem þá á Alþingi sem stofnun og á hverjum einst(8ium alþingis- manni, og þó að þvi skapi meiri sem hlutur Alþingis i stjórnskipun vorri er meiri nú en þá var. Þetta stendur fast þó aðmargt skiptium svipeftir þvi sem timinn liöur, og þá meöal annars Alþingi andspænis þjóö- inni sem hefur kosið það. Það eru slikar tfmabundnar breytingar á afstöðu milli þings og þjóðar sem valda þvbað oft, og að minni hyggju mjög um of, talaö um þverrandi veg Alþingis I augum almennings og áhuga- leysi um athafnir þess. En það sem talað er á hverri tið er eins og bárur á vatni, mismunandi eftir þvi hvaðan og hve mjög vindurinn blæs. Hið rétta er að islenska þjóðin veit enn sem fyrr harla veltilhvershún hefur kosið Alþingi, virðir starf þess ogskilurhvaðhúnáundirþví og þeirri rikisstjórn sem ábyrgð bar fyrir þvi. Svo er fyrir að þakka, þvi að þá væri komið i illt efni, ef þjóöin léti sér I léttu rúmi liggja hvernig bessum stofnunum tekst til um forustu og úrræöi i málefnum vorum. Aö þessu sinni býð ég velkomna til starfs nýkjörna alþingismenn og nýlega skipaða rlkisstjórn, um leið og ég færi fram þakkir fyrir störf- fyrra þingliös og fyrri rikisstjórnar Ég hef veitt þvi athygli að á þessu nýja þingi má skipta þingmönnum I þrjá nokkurn veginn jafnfjölmenna hópa. Fyrst skal nefna þá sem þegar höfðu setið lengur eöa skemur á Alþingi þegar ég stóð hér fyrst i þessum sporum fyrir réttum tiu árum Þá koma þeir þingmenn sem bæst hafa i hópinn siðan og fram til siðustu kosninga. Og loks þeir sem nú koma til þings i fyrsta sinn, og liklega er sá hópurinn ivið fjölmennastur. Orð er á þvi gert að aldrei hafi eins margir nýliöar komið til þings og eftir siðustu alþingis- kosningar og margir hverjir ungir að árum. Þetta er spegil- mynd þess að timinn llöur og allt er breytingum háö. Endurnýjun er óhjákvæmileg og nauðsynleg, þótt enginn geti um það fullyrt, hversu ör hún ætti helst að vera. En svo munu margir mæla að gott sé gamalli og gróinni stofnun aö um saii hennar berist lifgandi andvari sem oft fylgir nýjum mönnum. Og ekki þarf að draga I efa aö það sé ungum mönnum fagnaðarefni og eggjun aö hafa hlotið traust samborgara sinna til aötaka sæti á Alþingi, þvi aö ekki er auðséð hvar i þjóöfélagi voru annað eins tækifæri býðst til að neyta óþreyttra krafta sinna til góðs fyrir land og lýð. Ég tel mig vita fyrir vist að með þvi hugarfari gengur hver þingmaöur inn i þetta gamla hús. Þess vegna er mér fjarri, nú sem endranær, að flytja einhvers konar húskarlahvöt eða bjarkamál yfir islenskum alþingismönnum,en góöar óskir er mér ljúft að bera fram. A Alþingi tslendinga verður að fara saman stöðugleiki og endurnýjun. Kjölfesta veröur að vera traust, og einnig verður að vera liflegur byr og segl til að fanga hann. Á þingbekkjum sitja nú eins og löngum áöur margir þingmenn með langa og dýrmæta þingreynslu að baki, og viö hlið þeirra hinir, sem nú eru hér i fýrsta sinn. Vel er séð fyrir hvoru tveggja, stöðug- leikanum og endurnýjuninni. En hvort sem eru eldri eöa yngri, hefur þjóð yðar, góðir alþingismenn, kjöriö yður til að standa vörð um frelsi og viröingu landsins og hafa forustu um veigamestu málefni sin. Allir góöir menn óska yöur þess að þér berið gæfu til að ná samstöðuum úrræðisem endast mega til að sigrast á þeim örðugleikum sem einmitt nú er við að etja. Ég óska yöur góös farnaðar og læt þá von i ljós að störf þessa þings i þágu þjóðar vorrar megi veröa gifturik. Að svo mæltu bið ég alþingis- menn að minnast fósturjarðar. innar með þvi aö rfca úr sætum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.