Þjóðviljinn - 11.10.1978, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. október 1978
FRÁ SÖNGSKÓLANUM í REYKJAVÍK:
Skólastjóri Söngskólans, Garöar Cortes, lengst til hægri, og nokkrir kennaranna. Mynd: Leifur.
„Þar, sem
söngur
sali fyllir”
— Það hafði löngum verið
áhugamái söngvara að komast
undir eittogsama þakið og geta á
þann hátt samræmt alla þætti
varðandi kennslu I söng, þannig
að ekki væri ástæða til að skil-
greina á milli söngvara og ann-
arra tónlistarmanna, eins og
alltaf var gert.
Þannig fórust Garðari Cortes,
skólastjóra Söngskólans i
Reykjavik-orð á fundi, sem hann,
kennarar við skóiann og
nemendur héldu meö frétta-
mönnum i hinum nýju húsa-
kynnum skólans sl. föstudag.
Söngskólinn tók til starfa i sept.
1973 og var stofnaður samkvæmt
þágildandi lögum um tónlistar-
skóla og hlaut strax viður-
kenningu yfirvalda menntamála.
Frá upphafi hefur allt, sem
viðkemur söng, verið kennt við
skólann: nótnalestur, tónheyrn,
tónfræði, hljómfræði, tónlistar-
saga og hljóðfæraleikur.
Nemendur hafa, undir hand-
leiðslu Þuriðar Pálsdóttur,
skrifað islenska tónlistarsögu,
sem notuð er til kennslu við
skólann.
Próf frá skólanum eru tekin i
tengslum við The Assosiated
Board of the Royal Schools of
Music, sem sendir, þegar skólinn
æskir þess, prófdómara til þess
að dæma um árangur kennslu i
öllum námsgreinum skólans.
Söngskólinn er eini tónlistar-
skólinn á íslandi, sem veitir próf,
sem eru ótvirætt viðurkennd um
allan heim, þar sem farið er eftir
alþjóðlega viðurkenndu pröfkerfi.
Sl. ár luku 16 nemendur
áfanga, sem kaliast 8. stig og
veitir inngöngu i væntanlega
kennaradeild skólans.
Fyrsti prófdómari við skólann
var Michael Head, frægt tón-
skáld, planóleikari og söngvari,
nú látinn: Hann dæmdi V. stig i
söng, nemendur 19, 16 náðu prófi.
Annar prófdómari var Robin
Gritton organleikari, kór og
hljómsveitarstjóri. Hann dæmdi
V. stig i söng, nemendur 19, 15
náðu prófi, og einnig VI. stig i
söng, nemendur 17, -15 náðu prófi.
Þriðji prófdómari var Alex
Kelly, frægur undirleikari og
söngkennari. Hann dæmdi:
IV. stig i söng, 4 nemendur,
allir náðu prófi. V. stig i söng, 10
nemendur, allir náðu prófi. VI.
stig i söng, 12 nemehdur, allir
náðu prófi.
VII. stig i söng, 16 nemendur,
allir náðu prófi.
VIII. stig i söng, 2 nemendur,
báöir náðu prófi.
Fjórði prófdómarinn var John
Streets, yfirmaður óperudeildar
Konunglega tónlistarskólans i
London. Hann dæmdi:
IV. stig i söng, 8 nemendur, 6
náðu prófi. V. stig i söng, 12
nemendur, llnáðuprófi. VI. stig i
söng, 8 nemendur, 7 náðu prófi.
VII. stig I söng, 11 nemendur, 10
náðu prófi. VIII. stig I söng, 13
nemendur, 12 náðu prófi.
Sá nemandi, sem ekki náði
VIII. stiginu hjá John Street, fór
slðar til London og stóðst þar
prófið með ágætum.
Að loknu 8. stigi er stórum
áfanganáð. Þaðgefurnemendum
rétt til setu I nýstofnaðir kennara-
og einsöngvaradeild en frá
stofnun skólans hefur það verið
markmið hans að veita
nemendum sinum þá menntun,
sem þarf til þess að Utskrifast
með viðurkennt próf. Nám i þeim
deildum tekur tvö ár.
Aldurstakmark til inngöngu i
skólann er bundið við 18 ár.
Ekkert fornám þarf til inngöngu
því byrjað er á undirstöðu-
atriðum. I haust er gitarkennsla
tekin upp við skólann. Kennarar
eru nú 23.
Nú hafa, með tvennum hætti,
orðið þáttaskil i sögu skólans.
Hann hefur flutt i eigið húsnæði,
norska sendiráðshúsið við
Hverfisgötu 45 og rýmist þannig
mjög um starfsemina. Jafnframt
var hinn 28. sept. sl. stofnað
„Styrktarfélag Söngskólans 1
Reykjavik”. Það tekur nú við
rekstri skólans og rekur hann
sem sjálfseignarstofnun, en
hingað til hefur hann veriðrekinn
á eigin ábyrgð skólastjórans,
Garðars Cortes. Að stryrktar-
félaginustanda skólastjóri, kenn-
arar, nemendur og þeir aðrir,
sem greiða 25 þús. kr. árgjald.
Eru þeir þá jafnframt orðnir
aðilar að listaklúbbi þeim, sem
getið var um hér i blaðinu á
laugardaginn. Stjórn Styrktar-
félagsins skipa nú: Garðar
Cortes, Þuriður Pálsdóttir og Jón
Asgeirsson en varastjórn Ólöf
Harðardóttir, Margrét Eggerts-
dóttir og Guðmundur Jónsson.
Skólanefnd er skipuð tveim full-
trúum frá Styrktarfélaginu,
einum kennara, einum nemanda
og einum fulltrúa frá
Reykjavikurborg.
t mikið stórvirki er ráðist með
húsakaupunum. En mikill sam-
hugur hefur rikt meðal kennara
og nemenda og hefur það leitt til
þess að skólinn hefur eflst að
styrk og samstöðu með hverju
ári. Treystir Styrktarfélagið þvi
að stjórnvöld og áhugamenn um
tðniist veiti liðsinni sitt og þess er
vert að geta, að kennarar skólans
hafa gefiö til húsakaupanna
upphæð, sem svarar mánaðar-
launum hvers og eins. „Þykir
okkur vel við hæfi”, sagði Garðar
Cortes, ,,að nýr kapituli i sögu
skólans hefjist i nýju og glæsi-
legu húsnæði”.
— Fyrir daga Söngskólans
fékkst kennsla I raddbeitingu
einkum með þátttöku i kórsöng og
með þvi að sækja einkatima,
sagði Jón Asgeirsson. Það veitti
þó aðeins undirstöðu, sem eftir
var að byggja ofan á. Þeir, sem
meira vildu læra, urðu að sækja
þaðnámúrlandi. — Og, bætti Jón
við, —■ frá sjónarhóli tónlistar-
manns hefur Söngskólinn leyst
þann hnút, sem söngkennarar
hafa oftast hnotuð um; með þvi
að byggja kennsluna upp frá
grunni. Eftir nokkur ár, er öll
námsstig skólans hafa verið út-
færð, mun gefast tækifæri til að
endurmeta stöðu skólans og skil-
greina markmið hans betur.
— Eitt af þvi, sem hefur gagn-
tekið mig I samstarfi kennara og
nemenda er eldlegur áhugi
þeirra, sem fyrir mig er marktæk
sönnun þess, að Söngskólinn komi
i raun og veru til móts við djúp-
stæða þörf manna fyrir söng,
sagöi Jón Asgeirsson. — mhg
±k
Kór Söngskólans framan við húsið að Hverfisgötu 45, en á þvi hefur skólinn nú fest kaup
fyrir 40 miljónirkr. 1 húsi þvieru „margar vistarverur” eða ekkifærri en 18.
Mynd: Leifur.
Garðar Cortes og Þuriður Pálsdóttir. Garðar bendir blaðamönnum (sem auðvitað
mynda ekki hver annan ef hjá verður komist) — á mannvirki það, sem hann nefnir:
„Sálina I húsinu”, en hún er hér i liki mikilúðlegs> miðstöðvarketils i einu herberginu i
kjaliara hússins.
Mynd: Leifur.