Þjóðviljinn - 15.10.1978, Blaðsíða 13
12 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 15. október 1978.
Sunnudagur 15. október 1978. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 13
Ég var kominn til Conne-
mara, það er vestast á ír-
landi, og hafði leigt mér
hjól. Loftið angaði af seltu
og heyi, asnar rumdu í
morgunsárið, bændur
gaufuðu við töðu sína með
kvíslum, kýr horfðu ró-
lyndum augum á vegfar-
andann. Þegarég þreyttist
fór ég niður að ströndinni
og deif tánum í sjóinn.
Eitt kvöldiö kem ég til Lettar-
franck, sem er litiö plás noröan
viö fjallaþyrpingu sem heitir
Pinnar tólf. Ég fékk inni hjá frú
Joyce, sem á þrjá stráka, mann
og traktor. Letterfrack eru nokk-
ur hús og krossgötur. Á einu horni
er litil búö meö krá. A ööru horni
Barinn hans Freddy. A þriöja
horni Skáldabarinn. Á hinu fjórða
var klaustur. Þetta var mjög
irskt. Nema hvaö klaustriö haföi
veriö lagt niöur fyrir nokkrum ár-
um, landiö upp af þvi og allt upp
á Demantshæö átti aö verða þjóö-
garöur en húsiö átti að nýta undir
elliheimili á vegum kirkjunnar.
Eða svo hélt einn málvinur minn
á Skáldabarnum.
Hann var skotinn
Um sjöleytið var oröiö margt
um manninn á kránum og á
Alit gengur I haginn þennan dag.
A hjóli
um
krossgötum þessum. Það var
talaö um hesta og Paddy
sem fór til Ameriku eöa
Liverpool, þvi Connemara
er landflóttahéraö. Allt i
einu kom löng bilalest akandi og
fór fyrst vagn með brúna likkistu.
Flestir tæmdu úr glösunum og
settust upp i bila og óku á eftir
lestinni. Hvern er verið aö jaröa?
spuröi ég. Strákinn sem var skot-
inn i gær, svaraöi stúlkan á barn-
um. Hann haföi veriö aö vinna á
Englandi og kom heim i leyfi.
Þeir fóru saman út nokkrir vinir
aö fagna hans heimkomu. Þá rifj-
abist upp einhver misklið, ætli
þaö hafi ekki verið út af stelpu.
Og hann var skotinn.
Rauöbirkinn rumur stóö viö
barinn og haföi tekiö kvöldiö
snemma. Þaö vareinhver útlend-
ingur að spyrja mig áöan, sagöi
hann, hvort þetta hefði verið ein-
hver merkismaöur. Erum við
ekki allir merkisfólk? svaraöiég.
Hann hló og drakk úr glasinu.
Það var ansi brátt um hann
þennan, sagði ungur prestur og
hellti sér i glas. Enginn timi til aö
veita honum aflausn.
Beikon og egg
Morgunmat fengum við inni i
stofu frú Joyce, i henni var sjón-
varp og stór mynd af Jesú meö
hartað utan á brjóstinu. Frönsk
hjón voru aö fara, þau voru hissa
á þvi, hve krökkt var orðið af
túristum á trlandi. Meira aö
segja Frökkum, sögöu þau. Þið
vitiö hvernig það er, sagði ég.
Helviti — það eru hinir túristarn-
ir. Viö sjálf erum ágæt, og hverj-
um heimamanni skemmtan að
hafa svo gott fólk. En allir hinir
þvælast fyrir.
Ég sat til borös með Thomas
McCusker frá Derry á Norður-lr-
landi, og hans fólki. Fjölskyld-
unni fannst gott að feröast um
Lýöveldiö, þar var allt svo rólegt.
Kannski lagast þetta allt með
tímanum fyrir norðan, sagði
Thomas. Þaö er atvinna og hús-
næöi sem spurt er um,sagði hann,
ef aö kaþólskir menn fá jafnrétti i
þeim efnum þá sjatnar þetta allt.
Ég hafði setið á krá með Sinn
Fein-mönnum i Dublin og hafði
heyrt aörar röksemdir. En ég
nennti ekki að taka þau mál upp á
sólskinsmorgni. Thomas, sem
rekur útfararfyrirtæki, bauö mér
heim til sin sem allra fyrst.
Gaman að lifa
Kylemore heitir staður sem er
öbrum fegurri, nafniö þýöir Stóri
skógur á irsku, Coil Mór. Þar er
silungsvatn spegilslétt, brattar
hliöar og skógur, og undir fjallinu
ris mikill kastali. Hann reisti
enskur auðkýfingur i nafni ofur-
ástar á konu sinni irskri, nú er
þar nunnuklaustur. Sólin skein á
Kristmynd stóra hátt uppi i fjalli.
í klausturkirkjunni sat ég á tali
við Mariu mina og þakkabi henni
hlutdeild hennar i irsku hjarta-
lagi.
Allt gekk mér i haginn þennan
dag. Þú verður aö visu svolitið
undarlegur af þvi aö vera einn
meö náttúrunni dögum saman.
Þú ferö að tala viö sjálfan þig. En
hvaö gerir það til — þaö er alltaf
gott að tala við einhvern sem
maður þekkir. Þú syngur blygö-
unarlaust á leibinni yfir heiöina
með gráleita pýramiöa Tólf
Pinna sitt til hvorrar handar:
The sea o the sea, a ghradh
gheal mochroi
long may it roll between
England and me
It’s sure garantee that some
hour we”ll be free
Thank god we’re surrounded
by water...
Inn í kirkjugarð
Verstur andskotinn, aö alltof
viða liggja garbar og minna á
einkaeignarrétt á landi. Saga tr-
lands er eiliföarglima um jarð-
næðúsatt er það. En hvar á ég aö
komast upp á fjalliö? Er sektab
fyrir að hoppa yfir giröingar? Viö
Lough Inagh er stórt skilti, Pri-
vate Property, einkaeign.
Skammt frá reisulegu setri er
langferöabill meö Þjóöverja, þeir
hafa keypt sér leyfi til að dorga i
vatninu i tvo tima.
Of mikiö af öliu má þó gera,
lika af sólskini. Húöin mun
áreiðanlega flagna af skallanum i
dag og rassinn er heitur og sár.
Þá kem ég að notalegri ársprænu,
sem rennur fram hjá gömlum
kirkjugarði. Ég snara mér úr föt-
unum og sest f straumvatniö til að
kæla mig. Þarna sit ég meö engil-
hreina samvisku og hefi ekki séö
krá eina tuttugu kilómetra. Þaö
er engin sála á ferðinni — ég grip
föggur minar og hleyp inn i
kirkjugarö. Viö vorum ein þarna
á hreyfingu golan og ég. Burkn-
arnir höfðu fyrir löngu lagt undir
sig grafirnar, en upp úr stóöu
nokkrir keltneskir krossar, sem
sameina hjól sólarinnar og
pislartól Rómverska heimsveld-
isins.
Hugurinn reikar viða i friðsam-
legri sambúö við burtsofnaða.
Á slóðum írskrar
tungu
Ég var á þeim slóðum á vestur-
strönd Irlands, þar sem enn er
Sjá næstu síðu
Heyskapur á rýru landi, og móhraukur er alltaf tU taks.
Krár á þrjá vegu,en yfirgefiö klaustur á fjóröa horninu — og Demntashæö f baksýn
Sigling og sæla
Fyrri hosturinn er 14 daga shemmtireisa um
Miðjarðarhafið. í þessari draumasiglingu er homið
við í mörgum aðUggjandi löndum, litast um og
uppUfað.
Þú reihar miltí œvafomra helgistaða, berð
augum furðuverh byggingarlistarinnar og skoðar
ólíkustu fomsöguleg fyrirbrigði og verðmœti.
Þess í milli nýtur þú cdls þess sem í boði er um
borð í 8kipinu, s.s. sundlaugar, kvöldskemmtana,
dýrlegs matar og dryhkjar.
Þútífir sœlu sem aðeins er aðfinnaásiglinguog
ógleymanlega stemmningu í alþjóðlegum hópi.
■vintýraferð um eitt
íenýa. Hér erumaðræða
m er einkennilegt
* reynslu, dulúðar og
landi Afríku.
vt 8érheimur án htíðstœðu.
dýra sem mörg eiga á
r myndavétína til taks því
•r óþrjótandi. Hvíti nashymingurinn og
pan eru í sjónmáli.
Ferðagetraun Vísis endar á toppnum.
25. október verður dreginn út lokavinningurinn í
áskrifendaleiknum góða.
Vinningurinn á vœntanlega eftir að standa í
þeim sem hann hlýtur því um er að rœða tvo kosti
sem báðir eru jafnótrúlegir.
Þú byrjar samtáþví að veljaþérferðafélagaþví
vinningurinn gildir fyrir tvo. Vísir leggur til I
gjaldeyri. Útsýn sér um allan
undirbúning.
Dregiö 25. október
INýir áskrifendur
geta líka verió með!
Þegar kvöldar nýtur þú ma
nýtísku hótelum við nútíma ~
með dansi innfœddra í
Að morgni vaknar þú
Afríku vakna á ný.
Sú reynsla ein gerir ferðina
Síminn er 86611