Þjóðviljinn - 20.01.1979, Blaðsíða 1
Iðnaðarráðuneytið.
UÚBVIUINN
Uppbygging
Landsmiöjunn
Laugardagur 20. janúar 1979. —16. tbl. —44. árg.
Samningar BSRB
Deilt um
samnings-
réttinn
Skiptar skoðanir komu fram, en
engin ákvörðun var tekin á fundi
samninganefndar BSEB sl.
fimmtudagskvöld. Fundinum var
frestað fram yfir helgi.
Eindregins stuðnings nýtur sú
meginkrafa, að einstök félög ann-
ist sérsamninga og hafi verkfalls-
rétt varðandi þá. Þessi krafa á
hinsvegar ekki hljómgrunn hjá
rikisstjórninni, að sögn Haraldar
Steinþórssonar hjá BSRB, og
voru á fundinum uppi ýms viðhorf
um hvaða leið skuli þá farin.
Hugmyndin um að aðalsamn-
inganefnd BSRB annist sérkröf-
ur, jafnframt því aö Kjaranefnd
sé lögö niður, átti fylgi að fagna á
fyrri fundi samninganefndar
BSRB, sagði Ágúst Geirsson for-
maður Félags islenskra
simamanna i samtali við Þjóð-
viljann i gær. Hinsvegar hölluðust
menn fremur aö óbreyttu ástandi
á fimmtudagsfundinum.
Ágúst sagði að slmamenn vildu
óbreytt ástand, þar sem Kjara-
nefnd fellir endanlegan úrskurð,
fremur en að afsala sér
samningsréttinum til aöal-
samninganefndar BSRB. „Það
færir líf i félögin að annast sjálf
sérsamninganna” sagði Agúst
Gélrsson. jás
Af hverju
er útvarps-
dagskrá
ekki rofin
vegna
storm-
aðvarana?
Sjá bls. 6
ar undirbúin
Skipaiðnaðarstöð á höfuðborgarsvæðinu er nauðsyn-
leg. — Sjá viðtal við Guðjón Jónsaon, formann Félags
járniðnaðarmanna, i opnu blaðsins.
Vinnuhópur á vegum iðnaðar-
ráðuneytisins undir stjórn Gunn-
ars Guttormssonar deildarstjóra
er nú að ganga frá frumtillögum
um hvernig leysa megi úr hús-
næðisvandræðum Landsmiðjunn-
ar og bæta aðbúnað hennar.
Blaðamenn hittu Gunnar að
máli I heimsókn I ráðuneytiö I gær
og sagöi hann það vera merkilegt
að Landsmiðjan héldi lifi. þvi aö
ýmist hefði verið stefnt að því aö
leggja hana niður eöa halda henni
gangandi, eftir þvi hvaða rikis-
stjórnir hafa verið við völd. Þetta
heföi að ýmsu leyti eyðilagt álit
hennar út á við. Gunnar sagði að
málmiðnaður væri frekar
vanþróaður I Reykjavík og sæti
Landsmiðjan þar við sama borö
og aðrar smiðjur höfuðborgarinn-
ar.
Þorsteinn ólafsson, aðstoðar-
maður iðnaðarráðherra, sagði
það vera stefnu ráðuneytisins að
halda áfram rekstri rikisfyrir-
tækja sem væru komin á legg og
skiluðu hagnaði og nefndi sér-
staklega i þvl sambandi Land-
smiðjuna og Slippstöðina á
Akureyri.
Þá upplýsti Hjörleifur Gutt-
ormsson ráðherra að annaöhvort
yrði keypt gott húsnæði undir
Landsmiðjuna eða reist ný
smiðja en hún þyrfti að vera sem
næst þurrkvl, sem kæmi I
Reykjavik, en henni hefur ekki
enn veriö ákveðinn staöur. A-
kvörðun um staösetningu nýrrar
Landsmiöju væri ekki hægt að
taka fyrr en vitað væri hvar þur -
kviin kæmi.
Þess skal aö lokum getið til
gamans að Gunnar Guttormsson
deildarstjóri I iðnaðarráðuneyt-
inu er járnsmiður að mennt og
lærði I Landsmiðjunni. —GFr
Lánasjódur námsmanna:
Brevttar reglur
Tillit tekid til fj ölskylduadstæöna
Stjórn Lánasjóðs Islenskra
námsmanna samþykkti I gær
breyttar úthlutunarreglur fyrir
sjóðinn og er meginatriði breyt-
inganna, að tekið verður tillit til
fjölskyldustærðar við mat á
framfærslukostnaði og reiknað
með framfærslu námsmannafjöl-
skyldunnar allt árið.
Ráðherra á eftir að staöfesta
þessar breytingar og verður þá
væntanlega sagt frá þeim ná-
kvæmar, en þetta kom fram er
Þjóöviljinn sneri sér til formanns
sjóðsstjórnarinnar, Þorsteins Vil-
hjálmssonar, I gær til aö spyrja
hvað liði endurskoöuninni.
1976, I tið fyrri ríkisstjórnar,
voru sett lög um sjóðinn og nýjar
reglur um úthlutun, sem mættu
mikilli andstöðu námsmanna og
hafa stðar veriö dæmdar ólögleg-
ar I bæjarþingi. Þegar ný rlkis-
stjórn tók við sl. haust sögðu full-
trúar þeirrar fyrri sig úr stjórn
sjóösins og nýir voru skipaðir og
varð fyrsta verk sjóösstjórnar að
vinna að breytingum á úthlut-
unarreglunum l þá veru aö meira
tillit yrði tekið til fjölskylduað-
stæðna.
— Námsmenn töldu þurfa 200
miljónir króna til að laga þetta,
sagði Þorsteinn, en þeir peningar
fengust ekki á alþingi við fjár-
lagaafgreiðslu fyrir jólin, þannig
að fara varð þá leiö aö nýta betur
það fjármagn sem sjóðurinn
hefur til umráða, til aö tryggja
jafnrétti til náms, þannig að eng-
framhaid á bls. 18
Lúðvik Jósepsson form. Alþýðubandalagsins um efnahagstíllögur flokksins j
Auka má verðmætasköpun
um mfljarðatugi króna
og knýja fram stórfelldan sparnað í opinberum rekstri og einkarekstri
„Já, það er rétt að Alþýðubandalagið hefur gert
sínar f lokkslegu samþykktir varðandi tillögugerð um
stefnumótun í efnahagsmálum. Fulltrúi flokksins í
ráðherranefndinni lagði þær fyrir í dag", sagði Lúð-
vík Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins, í við-
tali við blaðið í gær.
„Þetta eru ýtarlegar tillögur um samræmdar að-
gerðir þar sem gripið er niður í efnahagskerfið á
mörgum sviðum. Þær miða við að verið sé að takast á
við efnahagsvandann til lengri tíma, eins eða tveggja
ára framkvæmdatímabil og ef til vill lengra.
Við leggjum höfuöáherslu á aö
auka framleiðsluverðmæti
• þjóðarbúsins með framkvæmd
nýrrar atvinnustefnu, aukinni
framleiðni og bættum vinnu-
brögðum. Við leggjum einnig á-
herslu á að spara þar sem illa er
fariö með fjármuni t.d. þar sem
fjármunum er sóaö i óþarfa milli-
liöastarfsemi, margfalt
dreifingarkerfi og alltof stórt
banka- og vátryggingakerfi. Við
viljum og nýta þau verömæti
sem við höfum aflað betur en nú
er gert.
Með framleiðniaukningu I at-
vinnuvegunum og stórfelldum
sparnaði I opinberum rekstri og
einkarekstri teljum viö að sú
verðmætaaukning sem til ráð-
stöfunar kemur i kjölfar slikra
aðgerða geti numið 40 til 60 mil-
jörðum króna á ári. Með aðgerð-
um af þessu tagi má bæta lífs-
kjaragrundvöll landsmanna og
veita varanlegt viðnám gegn
veröbólgu.”
A slðu 81 blaöinu I dag er viötal
við Lúðvik Jósepsson.og á slðu 9
eru birt höfuöatriðin úr efnahags-
tillögum Alþýöubandalagsins.
—ekh.
j Sjá vlðtal á síðu 8. Höfuðatriðin i efnahagstillögum Alþýðubandalagsins Sjá síðu 9 j
Þinglýsingar:
Svifasein
afgreiðsla
Talsvert hefur borið á óánægju
hjá mönnum sem skipt hafa við
fógetaembættin i Reykjavik og
Kópavogi vegna þinglýsinga á
skjölum. Um áramótin tóku gildi
ný lög sem taka til þinglýsinga,
og hafa þau valdið miklum töfum
og umstangi hjá fógetaembætt-
um.
Sigurður Sveinsson hjá borgar-
fógetaembættinu I Reykjavik
veitti Þjóöviljanum nánari upp-
lýsingar um áorönar breytingar á
þinglýsingu. Fram til áramóta
máttu menn biöa á staönum,
meöan þinglýsing á skjölum var
afgreidd. Þetta fyrirkomulag
hefur verið afnumiö. Nú þarf að
leggja skjöl til þinglýsingar inn
hjá fógetaembættum og fer þá
jafnframt fram frumathugun á
viðkomandi skjali. Afallandi
gjöld þurfa menn að greiöa fyrir-
fram viö afhendingu, en sú
greiðsla telst þó ekki endanlegt
gjald, heldur innborgun.
Fógetaembættið framkvæmir
siðan nánari athugun á skjölun-
um, sem oftast nær eru afsöl og
verðbréf, og fer afgreiðslutíminn
eftir aðstæðum hverju sinni.
Nýju lögin kveða á um vit-
undarvotta, og skulu þeir amk.
geta nafnnúmers á skjalinu.
Þegar um afsöl, veöbréf ofl. slik
skjöl ræöir, votta menn einnig að
kaupancfi sé íjárráða. Ekki mun
ijós ábyrgð vottanna i þessu við-
viki.
Siguröur sagði að hjá borgarfó-
geta i Reykjavlk væri þinglýst
uþb. 100 skjölum á dag. Af-
greiðslutimar eru óbreyttir frá
þvi sem verið hefur. Hinsvegar
hafa afgreiðslutimar hjá bæjar-
fógetanum I Kópavogi veriö stytt-
ir, og fer afgreiðsla nú fram milli
kl. 10 og 13.
jás