Þjóðviljinn - 20.01.1979, Page 4

Þjóðviljinn - 20.01.1979, Page 4
4SIÐA—ÞJÓÐVILJINN— Laugardagur 20. janúar 1979. DJODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis tJtgefandi: Otgáfufélag Þjó&viljans Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Haróardóttir Rekstrarstjóri: Olfar Þormóbsson Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Afgreióslustjóri; Filip W. Franksson Blaóamenn: Alfheibur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig- urBardóttir, GuBjón FriBriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson. Magnds H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. lþrótta- fréttamaöur: Ingólfur Hannesson ÞingfréttamaBur: SigurBur G. Tómasson Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. Otlit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur, Blaöaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. SafnvörBur: Eyjólfur Arnason. Augiýsingar: Rúnar SkarphéBinsson, SigrlBur Hanna Sigurbjörnsdótt)ir. Skrifstofa: GuBrún GuBvarBardóttir, Jón Asgeir SigurBsson. Afgreiösla: GuBmundur Steinsson. Kristln Pétursdóttir. Slmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, SigrlBur Kristjánsdóttir. Bllstjóri: Sigrún BárBardóttir. Htismóöir: Jóna Siguröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýslngar: Siöumdla 6. Reykjavlk, slmi 81333 Prentun: Blaöaprent h.f. Verðhjöðnun • Núverandi ríkisstjórn verður ekki metin af sam- starfsóróleikanum sem hún á við að stríða heldur árangrinum sem hún nær í verkef num sínum. I því verk- efni sínu að draga úr verðbólgu hefur hún þegar náð umtalsverðum árangri. Horf ur eru á því að henni takist á hálf u ári — frá september 1978 til febrúar 1979 — að ná verðbólgunni niður um 14 prósentustig, úr 51,7% í 38%. Og þetta hefur tekist þrátt fyrir að fyrstu ráðstafanir stjórnarinnar hafi miðast við að mæta hækkun land- búnaðarvara og draga úr áhrifum 15% gengisfellingar en hvorttveggja var arfur frá fyrri ríkisstjórn. • Þrátt fyrir að enn séu mikil verðhækkunartilefni sem eftirlegukindur í kerfinu bendir margt til þess að ýmsar aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar, svo sem niður- skurður á opinberum framlögum og f járfestingu, sam- dráttur i ríkisgeiranum og ný skattastefna, hafi þegar sannfært þjóðina um að ætlunin sé að leggja alvarlega til atlögu við verðbólguna. Þannig hefur jjegar slegið á væntingar verðbólguspekúlanta og dregið úr spennu. Ný atvinnustefna • Mikilvægt er að landsmenn átti sig á að ef nahags- og verðbólguvandinn felst ekki í vísitölukerfinu eða of háum kaupmætti launa. Vandinn felst heldur ekki í því aðfélagsleg þjónustaséof mikil á Islandi eða að mann- virkjagerð í þágu heilbrigðis- og menntakerfisins sé of mikil að vöxtum. Vandinn felst í því að atvinnuvegir landsmanna eru ekki í stakk búnir til þess að standa undir þeim lífskjörum sem allur almenningur krefst þess að eiga fulla hlutdeild að. I heild eru atvinnuveg- irnir illa reknir, gamaldags og óarðbærir, þótt einstök fyrirtæki séu undantekningin sem sannar regluna. • Með það í huga að beina sjónum landsmanna að þessu grundvallaratriði hafa á vegum Alþýðubanda- lagsins verið lagðar fram fyrstu tillögur um nýja at- vinnustef nu og samræmda hagstjórn. Hér er um ítarlega tillögugerðað ræða í tólf köflum með um 70 til 80 stefnu- atriðum. Alþýðubandalagið leggur til að blaðinu verði snúið við í efnahagsmálum þjóðarinnar og vaxtar- broddum efnahagslífsins verði þegar í stað búin stórbætt skilyrði. Fyrsta meginverkefnið á þessu sviði verði að vinna að framleiðniaukningu í sjávarútvegi og almenn- um iðnaði sem nemi 10 til 15% á tveimur árum. Samhliða slíkri tækni- og hagræðingarsókn í f iskiðnaði og almenn- um iðnaði verði farin róttæk sparnaðarherferð í hag- kerfinu bæði hjá opinberum aðilum og einkaaðilum, og yfirbyggingarkostnaður þjóðfélagsins minnkaður að mun. • Verulegur árangur í baráttunni við verðbólguna næst því aðeins að í atvinnulffinu skapist svigrúm fyrir raunhæfar kjarabætur og félagslegar framfarir. Aukin framleiðniog róttæk endurskipulagning atvinnuveganna er eina varanlega viðnámiö gegn verðbólgu. Slíka sókn vill Alþýðubandalagið hefja undir merkjum nýrrar at- vinnustefnu. Samræmd hagstjóm • Stjórntæki íslensks efnahagslífs eru ofvaxin, ómarkviss og úr sér gengin. Það er ekki nóg að hafa markmið ef þau klúðrast í framkvæmdinni. Þessvegna hefur Alþýðubandalagið nú lagt fram hugmyndir sínar um hvernig koma megi á samræmdri hagstjórn í landinu. Þar er um að ræða margþætta tillögugerð sem lýtur að f járfestingarstjórn, markvissri áætlanagerð, framkvæmd áætlana og hagræðingarverkefna og fleiri þátta. • Samræmd hagstjórn þarf einnig að vera trygging fyrir því að árangur náist í endurbótum, hagkvæmni og sparnaði í þeim flóknu kerfum sem hér hafa þróast í milliliðastarfsemi, innflutningsverslun, verðlags- málum, stjórn peningamála, bankakerfi og í rekstri opinberra fyrirtækja. Að þessu marki er stef nt í tillögum Alþýðubandalagsins um samræmda hagstjórn í þeirri von að samstarfsf lokkarnir í ríkisstjórn fáist til þess að hefja þann uppskurð á efnahagskerfinu íslenska sem svo mjög hef ur verið rætt um út frá ólíkum forsendum. —ekh Efnahagsstefna eða prentvilla? Bjarni P. Magnússon kvartar Iyfir þvi i Alþýöublaöinu i fyrra- dag aö ritstjóri Þjóöviljans hafi fariö heldur frjáislega meö , kynningu á frumvarpi til laga Ium jafnvægisstefnu I efnahags- málum o.s.frv. i ritstjórnar- grein. Finnst honum óviturlega , staöiö aö þessari kynningu á Ihugarfóstri kratanna 1 Þjóö- viljanum. Aö sjálfsögöu vill klippari leggja sig fram viö , kynningu þessa merka plaggs. ISérstaklega er honum annt aö koma á framfæri þeim atriöum i efnahagsstefnu Alþýöuflokks- , ins sem alfariö byggja á prent- Ivillum. Um þaö hafa nefnilega staöiö deiiur i Alþýöuflokknum hvort eitt veigamikiö atriöi i frum- Ivarpinu sé efnahagsstefna flokksins eöa prentvilla. Enn sem komiö er hefur sáarmurinn oröiö ofaná sem heldur þvi fram Iaö prentvillan sé efnahags- stefna, og þvi til áherslu hefur Vilmundur Gylfason látiö prenta frumvarpiö þrisvarsinn- Ium meö þessari kórvillu. Er þaö gert siöast i Alþýöublaöinu 17. janúar „vegna fjöida áskor- ana”. I* 1 annarri grein frumvarpsins er lagt til aö I lánsfjáráætlun 1979 skuli miöa viö „aö dregiö veröi úr opinberri fjárfestingu J sem svarar tiu af hundraöi frá I þvi sem gilti I fjárfestinga- I heimildum rikis og rikisstofn- • ana á árinu 1979.” 79 eða 78? Lánsfjáráætlun fyrir 1979 er ekki búiö aö samþykkja enn. Eins og margbent var á i al- þingisumræöum hlýtur þvi aö vera átt viö I þessari grein aö skera eigi niöur raungildi fram- laga og útlána á árinu ’79 um 10% miöað viö 1978. „Nei, nei,” sagöi Vilmundur I umræöunum „79,79” Þar meö vildi hann fá Alþingi til þess aö samþykkja aö skoriö væri niöur um 10% þaö sem ekki var búiö aö sam- þykkja. Samkvæmt þessu áttu flokkarnir nú i janúar aö sam- þykkja lánsfjáráætlun og skera hana svo niöur um 10%. Vinnu- hagræöing þaö!!! Ágúst Einarsson alþingis-' maöur bjargaöi krötunum út úr þessari vitleysu meö þvi að viöurkenna viö umræöur i efri deild um jafnvægisfrumvarp Alþýöuflokksins aö hér væri um prentvillu aö ræöa. Artaliö og viömiöunin i lok 2. greinar væri 1978. Þrátt fyrir þessa viöur- kenningu lætur Vilmundur sér ekki segjast og boöar prentvill- una af miklum móöi sem efna- hagsstefnu flokksins. Þaö er ekki nema von aö fáir kratar treysti sér til annars en aö fara almennum oröum um „heildstæöa efnahagsstefnu til tveggja ára”þegar þeir tala um jafnvægisfrumvarpiö sitt. Þeir geta alveg eins átt von á þvi aö efnahagsstefnan sé eintómar prentvillur meöan Vilmundur ræöur feröinni. Aö lokum skal hér skoraö á Vilmund og Bjarna P. aö birta prentvillufrumvarp- iö i fjóröa sinn. Sjaldan er góö visa of oft kveöin. ; Stutt komið hjá stjórninni Nú eru aöeins tiu dagar þang- að til næsti fyrirvari sand- spyrnuliösins I krataflokknum ; fellur I eindaga. Ráöherra- nefndin i efnahagsmálum, sem I eiga sæti Kjartan Jóhannsson, Ragnar Arnalds og Tómas Skðpum heilbrigt efnahagshf ” halda haildaflat pjm Jafnvægisstefna í efnahagsmálum llm þeaiar mundir stendur yflr fumdaberferö AlþyBuflokksliis. AlþvBu- flokkurlan er aö kynns sfstööu slaa U1 efnahagsmAU þar sem Ugður er Rrundvollur aö heiibrigöu efaahagsllfi I baráttonnl gegn ööaveröbdlg- n fram hefur komiö I frétlum Ugöi Alþi’öufiokkurlnn fram ■p Ul þess aö sporna gegn Alþýöuílokkurlnn Arnason, hefur komiö saman nokkrum sinnum, en enn eru mál þar á almennu umræöu- stigi, og ekki komiö aö þeim átakspunktum sem þó er vitaö aö fyrir hendi eru. Þjóöhagsstofnun hefur ekki sparaö pappirsflóöiö viö ráö- herranefndina og meöal annars gertkönnun á atvinnuhorfum og fjárfestingarsjóöakerfinu.. Fyrri skýrslan er mikiívæg i sambandi viö háværar kröfur krata um enn frekari niður- skurö á opinberum fram- kvæmdum. Niðurstaöa Þjóö- hagsstofnunar mun vera aö ástandiö i atvinnumálum sé ekki til muna verra en oft er á þessum árstima aö ööru óbreyttu. Þessi niðurstaða tekur ekki tillit til áhrifa af þeim aö- haldsaögeröum sem þegar hef- ur veriö gripiö til og mat á þeim áhrifum sem fram eru komin eöa koma á næstunni skiptir miklu varöandi afstööu til þessa atriöis. 1 annarri þykkri luntu frá Þjóöhagsstofnun er greint frá málefnum fjárfestingarsjóð- anna og kemur þar fram aö út- lán úr þeim eru ekki eins sjálf- virk eins og kratar vilja vera láta i sinu jafnvægisfrumvarpi. Hitt er meiri spurning hvernig hægt er aö haga heildarstjórn á fjárfestingu og þvi flókna út- lánakerfi sem i gangi er. Ymislegt kúnstugt Þá liggur fyrir álit frá Seöla- bankanum varöandi kröfu krat- anna um aö bundinn veröi I lög hundraöshluti aukningar peningamagns I umferö árin 1979 og 1980, 24% skal hún vera I ár og milli 18 og 20% næsta ár. Þykir Seðlabankamönnum þetta heidur kúnstugt og visa til þess aö hvergi á byggöu bóli séu slik markmið fest i lög, enda fullkomlega óraunhæft. Enda þótt mikiö sé rætt um fjárfestingarstjórn viröast hug- myndir krata og Framsóknar- rnanna um framkvæmdina þegar til kastanna kemur vera mjög á reiki. Sérstök fjár- festingarnefnd hefur starfaö á vegum stjórnarflokkanna og skilaö samhljóöa áliti um form- iö á fjárfestingarstjórninni. Hinsvegar viröist engin sam- staöa I rikisstjórninni um þetta atriöi og ekkert samráö veriö haft milli fulltrúa Framsóknar og krata I nefndinni og ráöherra viökomandi flokka um niöur- stööuna. Ráöherrarnir eru samsagt ekki reiöubúnir tii þess aö sam- þykkja þaö sem samflokksmenn þeirra hafa skrifaö uppá i undir- nefndinni. Þar kemur einkum viö sögu hvort meö hagræðing- um á Framkvæmdastofnun skuli stofna sérstaka deild fyrir fjárfestinga- og áætlanagerö eöa hvort fjármálaráöuneytiö skuli annast þennan þátt. 1 ööru lagi eru um þaö áhöld hvort stefna skuli aö raunverulegum fjárfestingaráætlunum eöa ein- vöröungu spásögnum um fram- vinduna á þessu sviöi einsog tiökast hefur til þessa. Lagaþráhyggjan Vilmundur Gylfason hefur fagnað þvi mjög aö I tillögum þeim sem Framsóknarflokkur- inn hefur lagt fyrir ráöherra- nefndina eru nefndar sömu tölur og Alþýöuflokkurinn hefur veriö meö varö&ndi hámarksfjárfest- ingu og hlutfall rikistekna af þjóöartekjum, 24.6% I fyrra til- fellinu og 30% i þvi slðara. At- hyglisvert er aö heildar fjár- festing er ekki talin veröa nema 24.6% á árinu 1979 af þjóöar- framleiöslu og hlutur rikisins af þjóðartekjum samkvæmt fjár- lögum og lánsfjáráætlun i bún- ingi Tómasar Árnasonar um 28%. Aö sjálfsögöu vilja kratarnir binda þessar prósentur i lög eins og allt annað. Þessar tölur eru þó ekki komnar á blaö fyrir guö- lega forsjón og markmiö af þessu tagi hljóta aö vera breyti- leg eftir aöstæöum. Þaö yröi til aö mynda býsna hlægileg ríkis- stjórn sem stæði allt I einu uppi meö ólögleg fjárlög vegna skyndilegra og ófyrirsjáanlegra sveiflna i þjóöhagsstæröum, svo sem þjóöarframleiöslu og þjóöartekjum. Loks er þaö svo enn aö böggl- ast fyrir brjóstinu á krötum og Framsóknarmönnum hvort ekki sé enn hægt aö vega i sama knérunn og knýja fram frekari kjaraskeröingu. Þar er kaup- binding kratanna enn á feröinni og hugmyndir um breytingar á visitölukerfinu. Upphafstillögur flokkanna i efnahagsmálum liggja nú fyrir ráðherranefndinni og eins og fram gengur af þvi sem á undan er ritaö er samræmingarstarfiö rétt aö hefjast . Samráöiö við verkalýöshreyfinguna er allt eftir. Allt bendir þvi til þess, aö enn ein lotan sé aö hefjast, og býsna hraösoðinn veröir kokkt- eillinn ef hann á aö veröa full- hristur 1. febrúar. Ætli rikis- stjórnin aö tryggja sér vega- bréfsáritun frá verkalýðshreyf- ingunni til áframhaldandi veg- ferðar mætti segja klippara þessa þáttar aö kratar veröi enn aö framlengja stjórnarvixilinn i nokkra daga. —e.k.h.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.