Þjóðviljinn - 20.01.1979, Page 2

Þjóðviljinn - 20.01.1979, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. janúar 1979. Af barnaári Krakkar! Krakkar! Vitiði bara hvað? I ár er árið okkar. Barnaárið. Og það er ekki bara hérna/ heldur alls staðar, maður, alls staðar í heiminum. Hjá hvítum mönnum, mongólum, malæum, indíánum og blámönnum. Allir allan tímann að hugsa um okkur börnin. Algert æði. Sumir segja að þó búið sé að ákveða hvað eigi að gera, þá sé ekki alveg klárt ennþá, hvernig eigi að gera það, en auðvitað reddar f ullorðna fólkið því eins og öllu öðru. Það verður áreiðanlega alveg ofsalega gaman hjá okkur krökkunum, þegar sér- f ræðingarnir, sálf ræðingarnir, félags- fræðingarnir, uppeldisf ræðingarnir, barna- sálfræðingarnir, atferlisfræðingarnir, æsku- lýðsleiðtogarnir, íþróttafrömuðirnir, skáta- höfðingjarnir, umferðariögreglan, káeffú- emmararnir og káararnir, giftir foreldrar, ógiftir foreldrar, foreldrar í sambúð, einstæð- ir foreldrar — bara bókstaflega allt fullorðna fólkið —þegar allt þetta lið er endanlega búið að koma sér saman um það hvað eigi nú að gera fyrir okkur krakkana til að gera okkur hamingjusöm. Pabbi er einstætt foreldri (þegar mamma eða einhver önnur er ekki hjá honum), og hann er búinn að kaupa bók, sem heitir fslensk upp- eldisfræði. Hann ætlar áreiðanlega að læra í henni til þess að við krakkarnir verðum eins og við eigum að vera. Og þegar við erum orðin eins og við eigum að vera, þá erum við auðvit- að hamingjusöm. Égstalsttilaðkíkja íbókina, og greinin sem ég rakst á hét „íslenskar uppeldisaðferðir": Það á að strýkja strákaling, sting'onum oní kolabing, lok'ann útí landsynning og lát'ann hlaupa allt um kring. Það á að strýkja stelpuna, sting'enni oní mykjuna, lok'ana úti og lemj'ana, og láta bola ét'ana. Og svo kom um það hvernig á að svæfa börn: Sofðu nú svíníð þitt svartur i augum, farð'oní fúlan pytt fullan af draugum. Svo er líka sagt f rá því hvernig börn eru hugg- uð í Færeyjum: Vil ikki barnið tiga, (þegja) tak um legg, slá í vegg, svo skal barnið tiga. Já.það var sannarlega kominn tími til að hafa barnaár fyrir okkur krakkana. Það verð- ur þá að minnsta kosti kannski hægt að berja okkur. Hugsið ykkur bara. Það fyrsta sem gert er við okkur, þegar við komum útúr mömmu okkar, er að taka okkur upp á aftur- fótunum og berja okkur þangað til við förum að hágrenja. Svo er einhver prestur fenginn tilað reyna að drekkja okkur, svo er haidið áfram að berja okkur allan uppvöxtinn, og síðast erum við barin til bókar. Haldið þið það sé! Ég meina það. Heima þarf maður að horfa uppá pabba dauðadrukkinn draga mömmu á hárinu, en á meðan syngur mamma einsöng, með glóðar- auga á báðum, og gómurinn týndur, en Júlla frænka og Hávarður á manntalinu framá baði, og þau ætla sér greinilega að pissa bæði í einu. Svona er nú fullorðna fólkið. Og svo þegar maður kemur í skólann, þá er strax farið að kenna okkur að vera eins og f ullorðna fólkið. Krakkarnir sem verða fyrst eins og litlir kall- ar og litlar kellingar eru kallaðir „bestu börn- in". Það er nef nilega algert f rat að vera barn. Þegar maður er barn þá má maður ekki vera eins og maður er, heldur eins og maður á að vera. Alger skítalykt. Og þessvegna ákveða áreiðanlega fræðingarnir, sem ég taldi upp áðan, að það langbesta, sem hægt sé að gera fyrir börnin, sé að koma i veg fyrir að þau fæðist nokkurn tímann. Svo framleiða jáeir bara smokka, lykkjur, hettur, stauta, froður og sprei og eins og fræðingarnir sjálf ir segja, svo skringilega: „stuðla þannig að líkams- og sálarheill barns- ins á barnaári". Nú eru börn víst að mestu hætt að fæðast í Rússlandi, eða það var að minnsta kosti í fréttunum um daginn að Rússar ætluðu að fara að telja hvað þeir væru margir. Þarna sjáið þið bara. Rússar eru nefnilega betri við börn en aðrar þjóðir, hvað sem hver segir. Þeir eru bara hræddir um að þjóðin sé að deyja út vegna getnaðarvarna og stjórnmála- skoðana. Og það get ég sagt ykkur, að við krakkarnir þurfum enga kynferðisfræðslu í skólunum. Við strákarnir gleypum bara smokk áður en við förum í geim, en stelpurnar leggja pilluna bara milli hnjánna á sér og halda henni þar á meðan þær standa í stórkeleríum. Og svo skal ég leyfa ykkur að heyra síðasta kaflann í kynfræðinni, sem afi lærði, en núna er búið að banna: Viljirðu ekki eiga börn, öruggt ráð ég þekki: Góð er talin getnaðarvörn að gera það bara ekki. Flosi OPIÐ BRÉF TTL STARFSBRÆÐRA Viö undirritaöir félagar I Rit- höfundasambandi tslands höfum fengiö bréf meö svofelldri kveöju: „Vonumst til þess aö heyra frá þér sem allra fyrst. Meö vinsemd og viröingu, Samtök herstöövanandstæö- inga” 1 bréfinu erum viö ávarpaöir: „Kæri félagi.” Og er bréfiö undir- ritaöaf sjöstarfsbræörum okkar i rithöfundasamtökunum. Um leiö og viölýsum því yfir, aö viö fögn- um því að eiga samleiö meö þess- um „félögum” okkar i faglegri baráttu islenskra rithöfunda i Rithöfundasambandi Islands og styöjum af alhug þaö markmiö samtakanna aö efla rithöfunda til aöbæta aöstööu þeirra i hvivetna, mótmælum viö þvi harölega, aö við séum ávarpaöir eins og viö ættum aöild aö Samtökum her- námsandstæöinga, og skiljum ekki, hvernig fyrrnefndum sjö starfsbræörum okkar i Rithöf- undasambandi tslands dettur i hug aö gera okkur aö eins konar taglhnýtingum þessara umdeildu samtaka. 1 bréfinu er þess fariö á leit við okkur, aö viö ieggjum fram skerf okkar til auglýsinga- messu herstöövaandstæöinga vegna 30 ára afmælis aöildar Is- lands að Atlantshafsbandalaginu, eða eins og komist er aö orði i bréfinu: „Nú viljum viö, kæri fé- lagi.fara þessá leit við þig, aöþú leggir hönd á plóginn...” Siöan er sagt i lokin, aö áriðandi sé, aö „þátttakendur láti heyra frá sér sem fyrst”. Til aö veröa viö þess- ari siöastnefndu áskorun höfum viö ritaö nöfn okkar undir yfirlýs- ingu þessa. Aö visu teljum viö aö allir aörir en herstöövaandstæðingar ættu aö halda upp á 30ára afmæli aöildar tslands aö Atlantshafsbandalag- inu, enda hafa samtökin ávallt barist hatrammlega gegn henni ognúverandi skipan öryggismála landsins i samstarfi viö vestræn- ar lýöræöisþjóöir, þ.á m. tvær Noröurlandaþjóöir. Aö sjálfsögöu erum viö and- stæöir heimsvaldastefnu og striðsrekstri, en teljum aö örygg- issamstarf lýöræöisþjóöanna i Evrópu hafi orðið til þess aö hefta útbreiöslu heimsvaldastefnu i álf- unni, án þess aö til átaka eöa styrjalda hafi komiö. Sovétrikin hafa framkvæmt heimsvalda- stefnu sina af meira kappi en nokkru sinni — og þá ekki slst á noröanveröu Atlantshafi eins og alkunna er. Við skorum á fslensku þjóöina aö vera vel á veröi og gefa þessari útþenslustefnu gaum. Atlantshafsbandalagiö var stofnaö eftir valdarán i Tékkósló- vakiu ogviöar og varnarliöiö kom hingaö meö samþykki mikils meirihluta Alþingis íslendinga vegna ófriöarástands i heimin- um. Hætta á styrjöld er þvi miöur enngeigvænlegogþvitelium viö, aö nauösynlegt sé aö vestræn- ar þjóöir slaki ekki á vörnum sinum heldur efli ölyggi sitt með nánu samstarfi eins og veriö hefur. En vonandi er núverandi hættuástand timabundiö. Vonumst viö til þess meö „félögum” okkar i Rithöfundasambandi íslands, aö sá timi komi sem fyrst, aö varn- arliöið geti fariö úr landi án þess að öryggi Islands verði þar meö teflt i tvisýnu. Sú stund er aö okk- ar mati þvi miöur ekki upp runn- in. Viö lýsum yfir stuöningi viö aöild Islands aö Atlantshafs- bandalaginu og teljum, aö sögu- leg þróun hafi sýnt, aö hún hafi veriö rétt ákvöröun á sinum tima. Auk þess sem viö teljum, aö dvöl varnarliðsins á Islandi nú sé „söguleg” nauösyn, meðan svo ófriölega horfir sem raun ber vitni. Viö styöjum þvi stefnu nú- verandi rikisstjórnar i öryggis- og utanrikismálum, en hún er einnig stefna stjórnarandstöðunnar, eins og kunnugt er. Viö skorum á listamenn i land- inuaö standa vörö um öryggi ís- lands og sjálfstæöi. Meö fullri viröingu fyrir pólitiskum skoöun- um „félaga” okkar I Rithöfunda- sambandi Islands og sjálfs- ákvörðunarrétti þeirra óskum viö þess, aö þeir unni okkur hins sama og hvetji einnig skoöana- bræöur sina til þess aö leyfa okk- ur I friöi og án þrýstings aö ákveða, hvaöa samtökum viö fylgjum. En um þaö eigum viö ekki viö aöra en sannfæringu okk- ar og samvisku. Viö sendum kúguöum starfs- bræörum okkar, rithöfundum i fangelsum, geöveikrahælum og þrælabúðum, baráttukveöjur og heitum á alla góöa Islendinga aö leiöa hugann aö örlögum þeirra og allra annarra sem hafa oröið ófrelsi og einræöi aö bráö. Davið Oddsson, fyrrv. form. framkvæmdastj. Listahátiöar. Guömundur Danielsson, fyrrv. form. Fél. isl. rithöfunda Indriöi G. Þorsteinsson, fyrrv. form. Fél.Isl. rithöfunda og Rithöfunda- ráös tslands. Jónas Guömundsson, fyrrv. form. Fél. Isl. rithöfunda Matthias Johannessen, fyrrv. form. Fél. isl. rithöfunda, RithiXundasambands Islands og Rithöfundaráös Islands. Heilsu- vernd <jt er komiö 6. hefti 33. árg. Heilsuverndar, rits Náttúru- lækningafélags tslands. Ritiö hefst á þætti úr endur- minningum Jónasar Kristjáns- sonar, læknis. Sr. Kristján Róbertsson ritar jólahugleiöingu. Kröpp voru lifskjör sjómanna, nefnist grein eftir Valgarö L. Jónsson. Birt er erindi, sem Guö- finnur Jakobsson garöyrkju- stjóri flutti á ■ náttúrulækninga- degi 24. sept. sl.: Biodynamisk ræktun grundvöllur hollrar fæöu. Egill Ferdinandsson segir frá Náttúrulækningadeginum 1978. Marinó L. Stefánsson greinir frá Matreiöslunámskeiöi NLFR 1978. Sagt er frá fundum I félaginu og birtar mararuppskriftir eftir Pálinu R. Kjartansdóttur, hús- mæörakennara. Loks er þáttur- inn A viö og dreif. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur Heilsuverndar er Björn L. Jóns- son, læknir. —mhg Stárfshópur um „stoma’-aðgerðir Hér á landi er ailstór hópur fólks á ýmsum aidri, sem þurft hefur^aö gangast undir svo- nefndar „colostomy ”, „ileo- stomy” og „urostomy” skuröaö- geröir vegna sjúkdóma 1 melt- ingarfærum og þvagfærum. Nokkrir einstaklingar, sem eiga beinna hagsmuna aö gæta i þessu sambandi, eöa viija stuöla aö vel- ferö þessa fólks, mynduöu starfs- hóp f Reykjavik haustiö 1977. Sföastiiöinn vetur voru haldnir samtals sex umræöufundir og naut hópurinn góös stuönings ýmissa aöila úr heiibrigöis- stéttunum. Aöstööu til funda- halda hefur Krabbameinsfélag Isiands látiÖ i té. Starfsemin hófst aftur i haust og er ráögert aö halda henni áfram. Nokkrir úr hópnum hafa á liönu ári setiö fundi um ýmis hagsmunamál I Trygginga- stofnun rikisins, Lyfjaverslun rikisins og Heilbrigöis- og tryggingamálaráöuneytinu. Lögö hefur veriö sérstök áhersla á aö tryggö veröi og auövelduð útvegun þeirra hjálpartækja, sem þessu fólki eru nauðsynleg, en þar er verulegra úrbóta þörf. Auk þess er leitast viö aö dreifa upplýsingum um þessi efni i samráöi viö starfsf. heilbrigöis- mála, en mikill skortur er á fræöslustarfsemi á þessu sviöi. Hópurinn hefur smám saman veriö aö eflast, og stööugt bætist nýtt fólk i hann. Er taliö aö starf- semin hafi sannað gildi sitt, en viö skipulagningu hennar er nauðsynlegt aö komast i samband viö sem flesta, er hafa gengist undir ofangreindar aögeröir, bæöi hér á landi og á erlendum spltölum, eöa aðstandendur, t.d. þegar um böjrn eöa lasburöa fólk er aö ræöa. Þeir, sem áhuga hafa á þessari starfsemi,eru vinsam- legast beönir aö gefa sig fram skriflega, þ.e.a.s. senda nafn, heimilisfang og simanúmer og geta um tegund aögeröar. Utaná- skriftin er: Starfshópur CIU (trúnaöar- mál) Pósthóif 523 121 Reykjavik Þá er sérstaklega vakin athygli á aö þriöji umræöufundur vetrar- ins veröur haldinn fimmtudaginn 25. janúar 1979 kl. 5 siödegis (17.00) aö Suöurgötu 22 i Reykjavtk. Siguröur Bjömsson læknir mun mæta á fundinum og er allt áhugafólk velkomiö.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.