Þjóðviljinn - 10.02.1979, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 10.02.1979, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. febrúar 1979. UOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs hreyfingar og þjóðfrelsis l iKefundi: Utgcifufélag l»jóftviljans hramkvæmdahtjórí Kiftur BerRmann Kithtjórur Arni Bergmann.. Kinar Karl Haraldsson. Kréltastjóri: VilborR Harftardóttir Kekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreióslustjóri: Filip W. Franksson Blaftamenn: Alfheiftur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson. Erla Sigurft- ardóttir, Guftjón Friftriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Mar- geirsson, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. lþróttafrétta- maftur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaftur: Sigurftur G Tómasson I.jósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson Otlit og hönnun: Guftjón Sveinbjörnsson, Sævar Guftbjörnsson. llandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir. Ellas Mar. Safnvörftur: Eyjólfur Arnason Auglysingar: Sigríftur Hanna Sigurbjörnsdótti»-, Þorgeir Olafsson Skrifstofa: Guftrún Guftvarftardóttir. Jón Asgeir Sigurftsson. Afgreiftsla : Guftmundur Steinsson, Hermann P. Jónasson. Kristin Pét- ursdóttir Sfmavarsla: ölöí Halldórsdóttir, Sigriftur Kristjánsdóttir Bflstjóri: Sigrún Bárftardóttir Húsmóftir: Jóna Sigurftardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóltir. Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guftmundsson. Kitstjórn, afgreiftsla og auglýsingar: Slftumúla 6. Reykjavlk. sfml 8 13 33. Prentun: Blaftaprent hf. Flóðgáttir Moggans og árangur stjórnarinnar % Morgunblaðið blæs mikinn i forystugrein i gær og segir að þær tölur sem Þjóðviljinn hefur verið að birta siðustu daga um þróun framfærsluvisitölunn- ar séu ómark vegna þess að einungis sé setið á verð- hækkununum. Verið sé að safna i verðhækkunarlón- ið og fyrr eða síðar hljóti stiflan að bresta og flaum- ur verðhækkana að skella yfir. Þau eru súr, sagði refurinn þegar hann náði ekki i vinberin i trénu. Sannleikurinn er sá að núverandi rikisstjórn hefur tekist það sem rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar tókst ekki á f jórum árum enda þótt hún hefði uppi áform um að koma verðbólgu niður i 15% á ári. • Það vill svo til að tölurnar tala sinu máli i þessu tilfelli. Frá þvi að rikisstjórn ólafs Jóhannessonar tók við, eða frá 1. ágúst til 1. febrúar sl. hefur visi- tala framfærsiukostnaðar hækkað um 11 til 12%. Þessi hækkun samsvarar um 24% hækkun fram- færsluvisitölunnar á ári. Fróðlegt er að bera þessar tölur saman við siðasta hálfa árið á valdatima Geirs Hallgrimssonar. Frá 1. febrúar 1978 til 1. ágúst sl. hækkaði visitala framfærslukostnaðar um 24.1% eða sem svarar 54% á ári. Þessar tölur tala skýru máli um það að núverandi rikisstjórn hefur þegar náð verulegum árangri í baráttunni við verð- bólguna. • Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun framfærsluvisitalan 1. febrúar hækka um 5.5%, en liklegt er þó að hækkunin verði innan þeirra marka við endanlegan visitöluútreikning. Blaðið heldur þvi hins vegar fram að framfærsluvisitalan fyrir sið- asta þriggja mánaða reikningstimabil ætti að hækka um 10% ef allt væri með felldu. Þessi firra byggir á þeirri forsendu að verðlagsnefnd og rikis- stjórn hefðu átt að verða 100% við öllum hækkun- arbeiðnum á timabilinu. Með öðrum orðum að gefa öllum aðilum, bæði einkaaðilum og opinberum stofnunum, algjörlega lausan tauminn. Fyrir rikis- stjórninni lágu til að mynda beiðnir um hækkanir hjá Pösti og sima, Hitaveitu, Rafmagnsveitu og Strætisvögnum upp á um það bil 2.7% i verðbóta- visitölu. Gjaldskrárnefnd skar þessar beiðnir niður i sem svarar 1. 12% i verðbótavisitölu. Þá virðist Morgunblaðið taka inn i þessa mynd fyllstu hækk- unarkröfur einkaaðila sem nú liggja hjá verðlags- nefnd. Meðal þeirra eru kröfur upp á 80% hækkun ákveðinnar þjónustu. • Ekki er minnsti vafi á þvi af reynslu undanfar- inna ára og með tilliti til pólitiskra viðhorfa Sjálf- stæðisflokksins að hann hefði samþykkt allar þess- ar hækkanir og siðan skorið kaupið niður á eftir. Núverandi rikisstjórn hefur tekið sér fyrir hendur . að leggja af alvöru til atlögu við verðbólguna og ætl- ast til að opinberar stofnanir og einkaaðilar leggi að sér til þess að þvi marki verði náð. Þegar sér þess ljósan vott i þjóðfélaginu i dag að hvarvetna trúa menn þvi að nú sé alvara i hlutunum. Það eru helst Alþýðuflokksmenn sem átta sig ekki enn á þeim ár- angri sem þeir hafa náð með þvi að taka þátt i „stuttu skrefum” stjórnarinnar á siðasta hálfu ári. Þeir vilja halda áfram að skera niður og kreista hagkerfið saman, enda þótt samdráttareinkennin séu þegar orðin áberandi. • Það er vert að öll þjóðin átti sig á þeirri stað- reynd að á hálfu ári hefur núverandi rikisstjóm náð meiri árangri i verðbólgubaráttunni en rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar á fjórum árum. Á fjórum ár- um tókst Geir Hallgrimssyni að koma 15% mark- miðinu i 52% verðbólgu i reynd. Á hálfu ári hefur núverandi rikisstjórn tekist að koma dýrtiðinni nið- ur i það mark að verðlagshækkanir hafa aldrei ver- ið minni en siðan 1973. -ekh I ■ I Lofsvert framtak Pólitikin er ekki alltof Iskemmtileg á dögum viönáms, varúöar og hjöönunar. Þaö er þvl guösþakkarvert aö þing- , menn leggi lykkju á leiö slna Imilli nefndafunda til aö skip- stæla hver annan. Þetta gerist I Alþýöublaöinu I gær: Þar er birt , frumvarp um landbúnaöarmál, Isamiö I oröastaö Lúövlks Jósepssonar og Olafs Ragnars Grlmssonar. I Alþýöublaöinu er ■ ekki getiö um höfund frum- Ivarpsins, einhverra hluta vegna, en Timinn kemur upp um þennan óttalega leyndar- ■ dóm — höfundurinn er Sighvat- I ur Björgvinsson. 5.gr. Frá og meö gildistöku laga þessara telst vandi landbúnaöar á lslandi leystur og veröbólga afnumin aö viölagöri aöför aö lögum. Sérstök þriggja manna nefnd skipuö af viöskiptaráö- herra án umsagnar skal sjá um, aö svo veröi.” í greinagerö fyrir þessu ágæta frumvarpi segir meöal annars: „Sem næsta skref mætti t.d. hugsa sér aö dreifa landbúnaö- arvörum án endurgjalds, þ.e.a.s. ókeypis, aö þvl tilskyldu aö þær væru étnar á staönum undir opinberu eftirliti til þess aö foröast brask og braskgróöa. Sem þriöja og slöasta áfanga mætti hugsa sér át landbúnaö- arafuröa á félagslegum grund- velli meö meögjöf úr rlkissjóöi og yröi þá veröbólga oröin aö veröhjöönun og offramleiöslu- Páll Grín eða alvara! Alþýðublaðinu barst frumvarp til laga um lausn á efnahagsvanda þjóðarinnar. Er þar m.a. lagt til ai hver landsmaður éti helmingi meira af landbúnaðarafurðum en hann hingað til hefur gert. Sjá nánar á Ms. 3 ao logum Frumvarpiö er hiö skemmti- skortur I landbúnaöi, þ.e.a.s. legasta. Þar segir sem svo: . vöntun á meiru til aö éta.” I Etum meira l.gr. » „Sérhver þjóöfélagsþegn skal Iéta helmingi meira af landbún- aöarvörum hér eftir en hingaö til. a I2.gr. Svo markmiöum l.gr. veröi , náö skal leggja á alla neitendur Ilandbúnaöarafuröa skatt, sem svarar þeirri upphæö, sem neit- andi og fjölskylda hans hefur , variö til kaupa á landbúnaöar- Ivörum fyrir gildistöku laga þessara. Skatturinn skal renna I rlkissjóö. I3.gr. Skatttekjum skv. 2.gr. skal ■ rlkisstjórnin verja til þess aö Igreiöa niöur verö á landbúnaö- arafuröum innanlands þannig aö sérhver landsmaöur geti eft- , ir gildistöku laganna étiö helm- Iingi meira af landbúnaöaraf- uröum en hann áöur geröi, en fyrir sama verö. Áfram meö smjörið Eins og hver maöur sér er frumvarp þetta hiö snjallasta, og liggur beint viö aö fylgja þessum framsæknu hugmynd- um eftir meö lagasetningu. Þvi eins og séra Jónatan Swift sann- aöi fyrir nokkrum öldum meö sögum slnum af Gúlllver I Puta- landi og Risalandi, þá fela heimsádeilubókmenntir á viö þetta frumvarp oft I sér fleiri sannleikskorn en sú alvarlega oröræöa sem menn eru aö kreista upp úr sér án dularbún- ings. Væri nu rétt og mátulegt aö aörir þingmenn tækju viö bolt- anum og semdu frumvarp um lágmarkstrimmskyldu og hita- einingabrennslu þegnanna til aö vega upp á móti þjóöhollu ofáti af völdum fyrrgreindra laga um hjöönun smjörfjalls og verö- bólgukýlis. Hæfist þá mikiö rit- fjör á Alþingi. Kannski endaöi þaö meö þvi aö jafnvel Geir MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚ. Ragnhildur Helgadóttir; Mannréttindi • klippt og skorin ! h já Þ jóð viljanum i I4.gr. Hallgrimsson semdi ljóöabók- Vegna augljósra kjarabóta ina sem viö spáöum honum , sem af ákvæöum 2. og 3.gr. leiö- þann fyrsta april I fyrra. Iir, skal kaupgreiösluvlsitala lækkuö sem þvl nemur og þurfa þykir eftir ástæöum. I Hver sefur hjá hverjum? Nokkrar hnippingar hafa orö- iö I blööum út af hugmyndum sem Ragnhildur Helgadóttir reifaöi I frumvarpi sem hún stefnir m.a. gegn félagsfræöing- um og sálfræöilegum rannsókn- um á högum skólabarna. Eins og fram kom I Morgunblaöinu var tilefniö ekki sist rannsókn þar sem spurt var meöal annars um kynferöislega reynslu barna. Nú má mörgum undarlegt finnast aö hávaöi sé út af slikum könnunum geröur og liggur þá beinast viö aö visa til þess aö þær eru stundaöar austan og vestan Atlantsála og þykir eng- um mikiö. Ekki slst þar sem viö vitum ekki betur en aö hér heima séu á ferö fræöimenn sem gefa fyrirheit um nafn- leynd og annaö sem til þarf — þetta eru t.d. ekki einkaaöilar eins og vikublöö sem oft efna til hliöstæöra einkamálarann- sókna I gróöaskyni (Stern I Vestur-Þýskalandi, svo þekkt dæmi sé nefnt). Þaö eru aö vlsu til lönd þar sem aldrei er spurt um svo dónalega hluti sem kyn- feröisreynslu I skólum, og eru Sovétrikin eitt þeirra, hvort sem Ragnhildi llkar þaö betur eöa verr. Þaö sem aumum leikmanni finnst hinsvegar undarlegt er þaö, aö menn viröast almennt gera ráö fyrir því, aö börn segi satt og rétt frá þegar spurt er um einkamál eins og þau, hver hafi sofiö hjá hverjum og hver ekki. Þaö væri gaman aö vita, hvort sálfræöingar hafa ekki rannsakaö þaö viönám gegn slikri forvitni sem kæmi fram I þvi, aö þeir sem spuröir eru hafa sanna ánægju af aö ljúga rannsóknastjóra fulla. Vandrœöi bíóstjóra I kvikmyndahugleiöingum Dagblaösins er um þaö rætt I gær, aö Bandarlkjamenn fram- leiöi nú færri kvikmyndir meö hverju ári sem liöur vegna vax- andi kostnaöar (og ábatavonar) viö gerö fáeinna stórmynda. Þessu næst segir m.a.: „Fækkun bandarlskra kvik- myndahúsa setur Islensku kvik- myndahúsin óneitanlega I nokk- urn vanda. Umdanfarin ár hafa kvikmyndahúsin I siauknum mæli oröiö aö leita á önnur miö meö myndir. Þaö eru þá helst franskar og Italskar myndir sem komiö hafa og veriö mjög misjafnar aö gæöum svo vægt sé til oröa tekiö”. Nú skiljum viö ekki. Ekki minnumst viö þess aö hafa séö þaö á skýrslum aö kvikmynda- húsamenn hafi „oröiö” aö leita á önnur miö — þeim hefur hing- aö til ekki oröiö skotaskuld úr þvi aö fylla dagskrárnar af bandarlskum myndum, helst er aö hlutur þeirra hafi fariö vax- andi en hitt. Og þaö hefur aldrei heyrst aö þeir hafi haft miklar andvökur af þvl þótt hinar bandarisku myndir hafi veriö „vægast sagt misjafnar” — eins og ku vera þegar einni og einni mynd skolar á land frá menn- ingarströndum rómanskra þjóöa. — áb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.