Þjóðviljinn - 21.02.1979, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 21.02.1979, Blaðsíða 5
Miövikudagur 21. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Iönnemasambandiö: Frumvarpsdrögin tilrœöi viö afkomu launafólks Stjórn Iðnnemasam- bandsins telur að ákvæði um kjaramál i efnahags- málafrumvarpi forsætis- ráðherra séu tilræði við af- komu launafólks og stefnt sé i stórfellt atvinnuleysi verði það að lögum. Sam- bandsstjórnin hélt fund 17. febrúar sl. og samþykkti eftirfarandi ályktun vegna þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað vegna fyrir- hugaðra efnahagsráðstaf- ana: Sambandsstjórnin mótmælir haróiega öllum tilhneigingum i þá átt að skerða umsamin kjör launafólks. Telur stjórnin að þau ákvæði frumvarpsdraga forsætis- ráðherra er kjaramál snerta séu beint tilræði við afkomu launa- fólks, og einnig verði m.a. stefnt i stórfellt atvinnuleysi verði frum- varpsdrögin að lögum. Bókasafn Kópavogs lánar 6,7 bœkur á íbúa_ Þrengsli há starfseminni „Mikil þrengsli eru í safninu, hillurými er fyrir löngu orðið alit of litið og starfsaðstaða er slæm. Mjög aðkallandi er að safnið fái stærri og hent- ugri húsakynni, svo hægt Arnes- Arnesingamótið 1979 verð- ur haldið i Félagsheimili Fóstbræðra laugardaginn 10. mars n.k., Heiðursgestir mótsins veröa hjónin Kristin óiafsdóttir og Dr. Haraldur Matthiasson, menntaskóla- kennari á Laugarvatni. Til skemmtunar verða ein- söngur, leikþáttur, eftir- hermur og fleira. Að lokum verður dansaö. Félagið hefur haldið eina skemmtun það sem af er árinu, sem þótti takast með ágætum. For- maður féiagsins er Arin- björn Kolbeinsson , læknir. Arnesingakórinn æfir nú af kappi undir stjórn Jóns Kristins Cortes. Stefnir kór- inn að þvi að halda skemmt- anir meö létrri dagskrá, bæði austan f jalls og á höfuö- borgarsvæðinu meö vorinu. Formaður kórsins er Asta Guðmundsdóttir. Askorun frá Noröurlöndum nki 1 Utanríkisráðberrar Norðurlandanna hafa sent frá sér eftirfarandí yfiriýs- ingu; Rikisstjórnir Norðurland- anna hafa aö undanförmi' fylgst áhyggjufullar meö þróun mála i Suðaustur- Asiu. Þær skora á alla málsaðila að haga gjörðum sínum á þann veg, aö friður megi á nýjan leik rikja á -þessu svæöi. Rikisstjórnir Noröurland- anna heita þvi að veita fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og öryggisráöi þess fyllsta stuöning i viö- . leitni þeirra til að tryggja frið og öryggi i heiminum. verði að veita þá þjónustu, sem bókasafni í svo stórum bæ er skylt. Bráða- birgðahúsnæði hefur nú fengist í Fannborg ... og er óskandi að ekki dragist úr hömlu, að þetta húsnæði verði innréttaðí' Þannig var lýst ástandinu i Bókasafni Kópavogs 1976-77 og eiga þau orð ekki siöur við nú, segir I skýrslu um starfsemina á sl. ári, — þar sem húsnæöið er enn hiö sama þótt starfsemin hafi aukistum helming á tveim árum. Samtals voru lánaðar af safninu 87.632 bækur (þar af 748 til eldri bæjarbúa i Hamraborg 1), sem þýðir að hver Kópavogs- búi hafi að jafnaöi fengið 6.7 bækur að láni. Arið á undan voru útlán 70.530, aukning þvi 17.102 bækur. Útlánskerfi safnsins er löngu orðið úrelt og hafa verið geröar fyrirspurnir um möguleika á notkun tölvu við útlánaskráningu. Afnotagjöld voru óbreytt frá árinu 1977. Bókakostur Bókaeign safnsins er nú 31.417 bækur og bættust við á árinu 3640 bækur, þaraf 110 þýskar, gefnar af Martin Beheim Gesellschaft i Þýskalandi og um 30 gefnar af einstaklingum, ma. Jeff Wood- aard frá Ohio, USA. Kjalmerking hefur gengið vel og aðfangaskrá verið færð á spjöld. Margar bækur hafa verið bundnar inn svo og nokkur tima- rit. Samtals keyptu 2050 manns skirteini á árinu, þar af 1476 12 ára og eldri og 574 yngri. Lán- þegum fjölgaði um 340. Sögustundir Þrátt fyrir þrengsli og slæma aðstöðu var ákveðiö að taka upp sögustundir fyrir börn 3-6 ára á föstudögum kl. 11-12. Hafa þær Herbjört Pétursdóttir og Þórey Axelsdóttir séð um þær. Sagðar eru sögur, teiknaö, litaö og lesiö og er auöséð að yngstu bóka- safnsnotendurnir kunna vel að meta þessa starfsemi. 1 einni sögustund var leikin tónlist við söguna um Pétur og úlfinn og sýndar litglærur og i annað sinn kom barnabókahöfundurinn Anna K. Brynjúlfsdóttir I heimsókn og las úr verkum sinum. Margskonar önnur starfsemi er á safninu, ma. útlán i tengslum við félagsstarfsemi aldraðra i Hamraborg og lán til skóla- safnanna sem fá bækur að láni til l-2ja mánáða i senn. Aðalbóka- vörður er Hrafn Harðarson og starfa við safnið auk hans 5 fast- ráðnir og 5 lausráönir starfsmenn i fullu starfi eða hluta úr degi. —vh Bendir stjórnin á að veröbætur á laun eru samningsatriði milli verkalýðshreyfingarinnar og „vinnuveitenda” og hefur rikis- valdið engan siðferðilegan rétt til að breyta þvi samningsatriði, né hafa forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar neinn rétt til að samþykkja slikar breytingar nema meö samþykki til þess boð- aðra funda i verkalýðsfélögunum. Gagnrýnir stjórnin verkalýös- forystuna fyrir það að ljá máls á að til greina gæti komið, aö breyt- ing á viðskiptakjörum hafi áhrif á verðbætur á laun. Telur stjórnin að meö þvi sé veriö m.a. að festa i sessi , ,kökuskiptingaraðferðina ” við ákvörðun um laun verkafólks. Það er krafa stjórnarinnar að verðbótavisitalan mæli fyllilega hækkun framfærslukostnaðar og verðtryggi þannig umsamin laun. Stjórnin varar við þeim ákvæð- um frumvarpsdraganna sem sjá- anlega hafa i för meö sér stórfellt atvinnuleysi og bendir á aö það er hluti af grundvallar mannréttind- um hvers manns að hafa atvinnu. Aðeins verkalýðurinn sjálfur getur staðið vörð um hagsmuni sina og skorar þvi stjórnin á verkalýðshreyfinguna og forystu hennar, að standa fast á um- sömdum og lagalegum réttindum launþega og hrinda af fyllstu hörku öllum árásum á þessi rétt- indi.” Ellen Gunnarsdóttir og Eyjólfur Bjarnason I hlutverkum sinum í kvik- myndinni Lilju. Lilja á Norður- landamarkað Kvikmyndin Lilja, sem byggð er á samnefndir sögu Halldórs Lax- ness, hefur nú verið boðin til sýningar á Norðurlöndum, og fer eintak af myndinni á milli norrænu sjónvarpsstöðvanna. Norska sjónvarpið tók fyrst við myndinni og hefur þaö ákveðið að taka Lilju til sýningar. Leiklistardeild Norska sjónvarpsins fékk myndina til umsagnar og segir I áliti hennar: „Deildin hefur skoðað kvikmyndina Lilju og er þaö samdóma álit okkar að hér sé á ferðinni góð og fagmannlega unnin kvikmynd sem bæði Laxness, leikstjórinn og aðrir aðstandendur eiga allan heiður skilið fyrir.” Leikstjóri Lilju er Hrafn Gunnlaugsson og samdi hann handrit myndarinnar i samvinnu við Snorra Þórisson kvikmyndatökumann, sem var myndatökumaður. Texti myndarinnar hefur nýlega veriö þýddur á ensku og veröur myndin nú kynnt á markaöi utan Norðurlanda á vegum Global Tele- vision Services. Lilja er 29 minútna löng og tekin i lit i Reykjavik og nágrenni árið 1977 og 78. Hljóðupptaka var I höndum Jóns Þórs Hannessonar en aðstoðarleikstjóri var Guðný Halldórsdóttir. Framleiðandi myndar- innar er N.N. s/f. Kvikmyndastyrkur Menningarsjóðs var á sinum tima veittur til Lilju. Gjafaféð afhent. Frá vinstri: Páll Asgeirsson, yfirlæknir, ómar Einarsson, ftr., Guðni Garðarsson, form. Umsjónarfélags einhverfra barna, Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður, ómar Valdimarsson blm. og Jón ólafsson, forstjóri. 1.2 miljón kr. ágóði af jólakonsert ’78 i Meðferðarheimilissjóð fyrir einhverf börn Aöstandendur Jólakonserts ’78, sem haldinn var til styrktar Með- ferðarheimilissjóöi fyrir geðveik (einhverf) börn, afhentu fyrir helgina ágóðann af tónleikunum, — 1.211.644 krónur. Fram kom við afhendinguna, að stór hópur fólks vann þrotlaust að undirbúningi tónleikanna i þrjár vikur og fleiri lögðu nótt við dag á lokastigi undirbúningsins. Alls gáfu eitt hundrað manns vinnu sina til málefnisins. Ekki var i upphafi útlit fyrir, að framlagið gæti orðið jafn hátt og raun er á, en þetta náðist fyrir fórnfýsi og örlæti margra, sem samstarfsnefndin um hljómleika- haldið óskar að færa þakkir sinar, og fyrir skilning opinberra aðila. I fjárhagsyfirliti kemur fram, að tekjur urðu alls kr. 2.827.617, en útgjöld kr. 1.615.953 og var þyngsti bagginn húsaleiga I Há- skólabió, kr. 1.100.000, sem engar skýringar eða skilgreining á út- reikningi verðlagsgrundvallar hafa fengist á, segir i tilkynningu samstarfsnefndarinnar. —vh UTBOO Framkvæmdanefnd um byggingu leigu- og söluibúða, Patreksfirði óskar eftir tilboðum i byggingu 8 ibúða fjölbýlishúss. Húsið á að risa við Sigtun á Patreksfirði og er boðið út sem ein heild. Skila á húsinu fullfrágengnu eigi siðar en 1. april 1980. Útboðsgögn verða til afhendingar á sveitarstjórnarskrifstofu Pat- reksfjarðar og hjá tæknideild Húsnæðismálastofnunar rikisins frá þriðjudeginum 20. febrúar 1979. Gegn kr. 30.000.- skilatryggingu. Tilboðum á að skila til Gunnars Péturssonar, skrifstofu Patreks- hrepps, Aðalstræti63, eða tæknideildar Húsnæðismálastofnunar rik- isins eigi siðar en föstudaginn 9. mars 1979 kl. 14:00 og verða þau opnuð að viðstöddum bjóðendum. f.h. Framkvæmdanefndar um byggingu leigu- og söluíbúða Patreksfirði Gunnar Pétursson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.