Þjóðviljinn - 10.05.1979, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 10.05.1979, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. mal 1979 UOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis t'tgefandi. l'tgáfufélag Þjóöviljans Kramkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Harftardóttir l msjónarmaóur Sunnudagsblafts: Ingólfur Margeirsson Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson Klaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, GuÖjón F'riöriksson, Ir.gibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason. Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar. Safnvöröur: Eyjoifur Arnason Auglýsingar: SigríÖur Hanna Sigurbjörnsdóttir. Þorgeir ölafsson Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir. Jón Asgeir SigurÖsson. Afgreiösla: Guömundur Steinsson. Hermann P Jónasson. Kristín Pét- ursdóttir. Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir. Sigríöur Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir. Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdóttir. t'tkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6. Reykjavlk. sfmi 8 13 33. Prentun: Biaöaprent hf. Öbreytt ástand, óbreytt ráðleysi • Margir aðstandendur Sjálfstæðisflokksins höfðu hátt fyrir landsfund flokksins. Það stóð mikið til. Það átti að snúa baki við hentistefnu og málamiðlunum og taka hiklausa stefnu á hreinlegri kapítalíska búskapar- hætti, sem þeir nú kalla frjálshyggju í hverju orði. Það átti að bæta fyrir pólitískt ráðleysi með því að efla og breikka forystu flokksins og jafnvel breyta henni. • Nú er landsfundi lokið og djarf leg ummæli og fyrir- heit hafa reynst stormur í vatnsglasi. Forystan er óbreytt. Breikkun forystunnar gufaði uppásamtmeð því ritarastarfi sem ætlað var fyrrum borgarstjóra í Reykjavík og veit enginn hvað af því hef ur orðið. Albert Guðmundsson sýndi að hann hef ur nokkurt f ylgi, en ekki svo mikið að liði Geirs staf i minnsta hætta af. Geir Hall- grímsson er ótvíræður sigurvegari landsfundarins og þar með — óbreytt ástand. Það eina sem gerðist í for- ystumálum flokksins var það, að Davíð Oddsson kom með framboði sínu í veg fyrir að Gunnar Thoroddsen félli úr varaformannsstöðu og lýsti sjálfum sér í leiðinni sem þeim Davíð sem slæst við f leiri en einn Golíat — og mun þá væntanlega til ríkis kvaddur í fyllingu tímans eins og fyrirmyndin, • Svipað verður uppi á teningnum þegar skoðuð er stjórnmálayfirlýsing landsfundarins, sem sver sig mjög rækilega í ætt við hinn hefðbundna, landsföðurlega ósk- hyggjustíl, sem stærsti flokkur landsins hefur lengstaf iðkað. Yfirlýsingin hefst á upptalningu á ýmsu því sem kalla má íslenska velgengni og er sá listi gerður í anda þeirrar ógagnrýnu sjálfumgleði sem segir á þá leið að aldrei höfum við lifað betur — og mest er það Sjálf- stæðisflokknum að þakka. Er í því sambandi vísað til þess sem kallað er „farsæl forysta ríkisstjórnar undan- farið kjörtímabil". Það er ekki annað að sjá en að stuðningsmönnum f lokksformannsins hafi gengið vel að fá blessun landsfundarins yfir þá stjórnarforystu sem leiddi til mikilla ósigra f lokksins í fyrra — og reyndar er ekkert á ósigra minnst í yfirlýsingunni. Til dæmis um hinnánægða tón yf irlýsingarinnar má taka ummæli eins og þau, að „lifskjör eru nú betri og jafnari en áður". Ekki er Ijóst við hvaða tíma orðið „áður" er miðað, en ummæli af þessu tagi hljóma óneitanlega nokkuð annar- lega þegar við vitum, að einmitt í tíð síðustu ríkis- stjórnar hófst mikill landflótti ungs fólks, sem enn stendur, og aðþaðer einmitt óánægja með ójöfn lífskjör, sem er sterkasti þátturinn f stéttasviptingum síðastlið- inna mánaða. • Þess í stað reynir Sjálfstæðisflokkurinn að útmála vandann með almennum orðum sem einna helst láta að því liggja, að þjóðin sem heild sé fallin í synd. „Sundur- lyndi og f lokkadrættir eru nú meiri en oftast áður. öf und og rígur eru á milli starfsgreina, stétta og iandshluta." Ekki er gerð minnsta tilraun til að skoða f orsendur þessa syndafalls heils samfélags, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur reyndar mótað umfram aðra pólitíska flokka í krafti stæðrar og langvarandi stjórnarforystu. Þess í stað er farið með formúlu, sem flokkurinn reynir allt hvað hann getur til að sýna sem nýjan sannleika, jaf nvel þótt hún sé eldri en allir íslenskir flokkar samanlagðir. En það er sú formúla sem segir, að allt muni þá lagast ef dregið sé úr umsvif um ríkisins en þeim mun meira vald fært frá stofnunum, háðum vilja almennings, til þeirra sem f jármagn eiga. Þessi boðskapur hefur nú dunið a11- lengi í eyrum manna, sem fyrr segir, og heitfengustu talsmenn hans hafa jafnvel kallað hann uppreisn. En í yfirlýsingu landsfundar er sem einnig úr þessu hæpna fagnaðarerindi séu allar tennur dregnar, málflutning- urinn er allur ósköp kollhúfulegur og laus við sann- færingarkraft. • ( Sjálfstæðisflokknum hefur hið óbreytta ástand, hið óbreytta ráðleysi, sigrað á öllum sviðum. Það eina sem verður þeim flokki að liði eru mistök andstæðinganna. —áb Trúnaðarmaður Geirs Þaö þótti býsna kúnstugt i haust þegar hægri hönd Geirs Hallgrimssonar, stundum nefndur ,,Aðal-Geir”,gerðist rit- ari á rikisstjörnarfundum. Björn Bjarnason kom inn I for- sætisráðuneytið með Geir Hall- grimssyni, fyrst sem óformleg- ur aðstoöarmaöur, en siðan sem skrifstofustjóri. Hann starfaði þó alla tið hægri stjórnarinnar sem sérstakur aðstoðarráð- herra forsætisráðherra og fylgdi honum nánast hvert fót- mál. Meðal annars vegna hinna sérstöku pólitisku trilnaðar- starfa fyrir Geir Hallgrimsson formann Sjálfstæöisflokkksins var embættismaðurinn Björn Bjarnason spurður i haust að þvi hvort hann hygðist skipta um starf eftir stjórnarskiptin. 1 Þjóðviljanum 22. september sl. svárar hann heldur snúðugt: — „Hvers vegna aö spyrja mig um það frekar en aðra em- bættismenn? Þetta er mitt per- sónulega mál og ég hef minum skyldum að gegna sem em- bættism aður.” 1 i A CD í|/ A ísland úr NAl . MrnllVMHerinnburt o - liBHSl ) k™í=sMI^:is mttu : ffja | [ISHiíE ii Pessvagna var spurt um starfsskipti ;Hafði opinber af- I Embœttismaður og pólitíkus Þar sem „Aðal-Geir” svaraði i rauninni með spurningu þótti Þjóðviljanum sjálfsögð kurteisi að svara henni i blaðinu daginn eftir,23. september. Isvarinuer m.a. bent á að Björn Bjarnason hafi verið einn helsti sérfræð- ingur Sjálfstæðisflokksins i „ör- yggismálum” fyrir kosningarn- ar 1974 og voru þýöingar Björns upp úr NATÓ-skjölum þýðing- armikill liður I hræðsluáróðri Morgunblaðsins f „Varnar- málum” i kosningaslagnum. Að unnum kosningasigri gerö- ist Björn Bjarnason sérstakur trúnaðarmaður Geirs Hall- grimssonar forsætisráðherra og var nánast sem skugginn hans alla stjórnartið íhalds- og Framsóknar. Viö þetta bætist sú staðreynd að „embættismaöurinn” Björn Bjarnason, skrifstofustjóri for- sætisráöuneytisins,blandaði sér einnig f kosningabaráttuna fyrir alþingiskosningarnar 1978. Vikurnar fyrir þingkosning- arnar og eftir fall Reykjavikur gerði Morgunblaðið örvænting- arfulla tilraun þess að snúa at- hygli landsmanna frá kjara-og atvinnumálum að útþenslu- stefnu Sovétmanna og ágrein- ingsefnum i utanrikismálum. „Embættismaðurinn” Björn Bjamason veitti blaðinu liðsinni i þessum efnum og blandaði sér i pólitiskt hitamál undir for- merkjum Sjálfstæðisflokksins. Einkamál Aðal Geirs Það var þvi ærin ástæða til þess aö spyrja hvort manni meö sllka fortið væri teystandi til að gegna hlutverki þess embættis- manns sem er i nánastri snert- ingu við alla stefnumótun innan rikisstjórnarinnar. Nú kemur það og upp úr dúrnum aö sögn Visis og Dagblaðsins að Björn Bjamason muni senn gerast sérstakur ritstjórnarfulltrúi á Morgunblaöinu. Vitneskjan sem „embættismaðurinn” hefur afl- að sér á rikisstjórnarfundum i vetur mun án efa reynast hon- um drjúgt vegarnesti i pólitisk- urri skrifum fyrir Morgunblaðið. En enn sem fyrr svarar Björn Bjarnason þvi til að hvaö hann starfi sé „sitt einkamál”— (sjá Dagblaðiö). Aðal-Geir víki úr stjórn Einkamál „Aðal-Geirs” koma þó ýmsum öðrum viö en honum sjálfum aö þvi er snertir starfs- val hans og þá aðstöðu sem hann hefur haft að undanförnu. Þaðer nefnilega mikil spurning hvort meta eigi hann sem tákn um samhengið i islenskum stjórnmálum, eða pólitískan njósnara Sjálfstæðisflokksins innan núverandi rikisstjórnar. Annarsstaðar með þjóðum myndu „einkamál Björns Bjarnasonar” vera talin póli- tiskt siðleysi og gerö krafa um að pólitískur rétttrúnaðarmað- ur héldi sig við sina trú, en gerði sér ekki far um aö leika hlut- verk guöleysingja i pólitikinni. „Aðal-Geir”heffii verið meiri maður að ef hann hefði viður- kehnt þetta sjónarmið i haust. En úr þvi sem komið er hlýtur þaö að vera skýlaus krafa að væntanlegur ritstjórnarfulltrúi Morgunblaösins verði ekki lát- inn sitja rikisstjórnarfundi framvegis. Sigruðu sjálfan sig Málgögn Sjálfstæðisflokksins Vfsir, Dagblaðiö og Morgun- blaðið hafa gefið út þá sam- ræmdu skoðun að allir hafi sigr- að á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins. Meira aö segja menn eins og Birgir tsleifur sem alls ekki var I framboði eru sagöir hafa unnið stóra persónulega sigra. Þessi krufning á niöurstöðu landsfundarins sýnir fyrst og fremsthversu óskhyggjan getur leitt menn langt. Flokkurinn klofnaði ekki I heröar niður, en allt sem Sjálfstæðismenn hafa verið a hnotabitast útaf á liðn- um árum stendur enn i fullu gildi. Forystan er veik og sund- urlynd, engar skipulagsbreyt- ingar til breikkunar á foryst- imni voru samþykktar, og sömu gömlu mennirnir sitja 1 sömu embættunum og áður. En ihaldsmálgögnin hafa sumsé sameinast um að fanga þvi óbreytta ástandi sem aðeins fyrir nokkrum vikum var af þeirra hálfu taliö óviöunandi. Litlu verður Vöggur feginn. Mótleikur Alberts og Gunnars Meginniðurstaðan er þó sú að fyrir landsfundinn var ljóst að Geirsarmurinn taldi sig hafa I fullu tré við Gunnar Thorodd- sen, og nú skyldu áralangar væringar leiddar til lykta meö þvi að fella hann frá varafor- mennskunni. Framboð Alberts var mótleikur til þess að rugla spilunum og sýna meirihluta flokksins fram á að ef hann hygöist beita meirihlutavaldi sinu til fúlls væri stór hluti flokksmannatilbúinn til þess að segja far vel. Þessi mótleikur heppnaðist, enda þótt segja megi aö fram- boð Daviðs Oddssonar gegn Goliötunum Gunnari og Matthiasi hafi teflt honum i tvi- sýnu. Liklegt er talið að fylgi Daviðs heföi dreifst á varafor- mannsframbjóðendurna tvo, en ýmsir harðir landsbyggðar- menn og/eöa andstæðingar dr. Gunnars telja þó að Davið hafi bjargað Gunnari frá falli, og tryggt óbreytt ástand i flokkn- um. Sömu flokka- drœttirnir Meðal almennra flokksmanna i Sjálfstæðisflokknum eru mikl- ar umræður um landsfundar- málin og sýnist sitt hverjum. Enda þótt kyrrt verði látið um sinn eru allir hinir sömu flokka- drættir og áöur fyrir hendi og úr engu ágreiningsmáli innan flokksins skorið. Mörgum finnst þaö pólitiskur heigulsháttur af Birgi Isleifi að hafa ekki tekið opinbera afstöðu f formanns- kjörinu, en honum til málsbóta má segja að Goliatarnir gerast . nú gamlaðir og á næsta lands- fundi er hugsanlega pláss fyrir Birgi Isleif i varaformennskuna og eins gott að hafa alla góöa þangað til. En dæmigert fyrir afrek Birgis Isleifs er það að i allan vetur hefur hann setið með I sveittan skallann i Valhöll við Bolholt og lagt drög að skipu- ' lagsbreytingum innan flokks- ins. A landsfundinum var öllu hans verki fleygt á haugana til þess að tryggja óbreytt ástand. •ekh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.