Þjóðviljinn - 10.05.1979, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 10. mal 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
iþróttir fAl íþróttir í^) íþróttir
/ J ■umsióBiINGóLFUR HANNESSONI^0 J
Erfiður vetur —
en ánægjulegur
■ Siöastliöiun vetur hefurf senn
I verift okkur körfuknattleiks-
■ mönnum ánægjulegur og erfiö-
■ ur. A þaö bæöi viö leikmenn og
J okkur hina, sem vinnum viö
■ rekstur sambandsins og körfu-
■ knattleiksdeilda félaganna.
A tveimur sviöum hefur
I körfuknattleiknum einkum
■ fleygt fram: iþróttin er betri en
I áöur og áhugi áhorfenda hefur
- aukist aö mun. Fimmfalt fleiri
I áhorfendur komu aö horfa á
■ ieiki Islandsmótsins og bikar-
I keppninnar i ár en I fyrra. Þó
■ var keppnisáriö 1977—1978 met-
■ ár og i raun fyrsta áriö i sögu
I KKl, sem islandsmótiö var rek-
■ iö taplaust.
| SU mikla þensla sem endur-
■ speglaöist I Qölgun áhorfenda
I setti mark sitt á alla starfssemi
m KKÍ siöasta ár, þvf sambandiö
■ hefur ekki yfir nægum manna-
* afla aö ráöa til aö leysa öll
_ vandamá) samtimis.
■ Körfuboltinn fer eigin
I götur
■ Viö körfubloltamenn höfum
* upp á slökastið leitaö eftir öör-
Z um leiöum viö endurnýjun
I Iþróttar okkar, en tiökast hefur 1
■ öörum flokkaiþróttum.
| - — Viö fækkum liöum I efstu
■ deildunum I staö þess aö fjölga
■ þeim.
— Viö leggjum landsliö okkar
_ til hliöar og gefum mótum
| innanlands allan forgang.
■ — Viö flytjum leikmenn og
I þjálfara inn I landiö I staö þess
Z aö selja þá I atvinnumennsku
■ erlendis.
Þaö er vitaö, aö fylgst hefur
veriö meö tilraun okkar af
nokkurri forvitni og sá góöi
árangur, sem hefur náðst s.l.
vetur, veröur aö llkum hvati
fyrir aörar iþróttagreinar aö
fara hliðstæöar leiöir.
Innflutningur þjálfara
og leikmanna
Ef til vill hafa erlendu leik-
mennirnir, sem leikiö hafa meö
islenskum liöum siöustu tvö
keppnistimabil, vakiö meiri at-
hygli meöal almennings á körfu,
knattleik en aðrir þættir i starf-
semi okkar. Þvi veröur aö
minnsta kosti ekki á móti mælt,
að þeir hafa hleypt nýju blóöi I
körf ukna ttleikinn.
öllum félögum er heimilt aö
hafa einn erlendan leikmann i
meistaraflokki. Hann veröur
löglegur meö Islensku félagi
mánuöi eftir aö hann er til-
kynntur til KKl og leyfi hefur
veriö gefiö út. Engin ákvæöi eru
um búsettu.
Erlendu leikmennirnir eru
ekki atvinnumenn, heldur er
skilyröi fyrir aö keppnisleyfi sé
gefiö út i þeirra nafni, að þeir
leggi fram áhugamannaskir-
teini. Einnig er óheimilt aö
greiða þeim peninga fyrir aö
leika meö félögum sinum. Slikt
væri atvinnumennska og mundi
KKI afturkalla keppnisleyfi viö-
komandi leikmanna og senni-
lega áhugamannaréttindi hans
llka. Laun sin fá leikmennirnir
fyrir þjálfun eöa önnur störf.
,,We are the champi-
ons”
KR-ingar leika þetta
skemmtilega lag (Viö erum
meistararnir) meö hljómsveit-
inni Queen þegar þeir vinna til
verðlauna I körfuknattleik og
plötuspilari er nærri vellinum.
Tvisvar hljómaöi lagiö i
Laugardalshöll i vor, en vestur-
bæingarnir unnu þaö einstæöa
afrek, aö vinna bæöi Islands-
meistaratitil og bikarmeistara-
titil. Auk þess sigruöu
KR-stúlkurnar i 1. deild kvenna.
Þó þessi afrek gætu bent til
þess, aö keppni i Urvalsdeildinni
hafi veriö ójöfn, var ööru nær.
AUt fram á siöasta leikdag
höföu þrjú liö tækifæri á aö
vinna Islandsmeistaratitilinn.
Njarövikingar eru sterkir i
yngri flokkunum. Þeir sigruöu i
2. og 4. flokki karla. UMFN
vann einnig bikarkeppni 2.
flokks, en sú keppni var háö i
fyrsta sinn i vetur.
IR sigraði i bikarkeppni
kvennaog3. flokki karla. Þaö er
e.t.v. nokkuö dæmigert fyrir
þetta keppnistímabil, aö ekki er
enn ljóst hvort IR eöa UMF
Reykholtsskóla er meistari I 2.
flokki kvenna, þvi úrslit leiks
þessara félaga voru kærö. Ekki
hefur enn verið dæmt i málinu
heima I héraöi (Borgarfiröi), en
slikt kemur ekki á óvart. Dóm-
stólar einstakra héraössam-
banda hafa tafiö kærumál, sem
komiöhafa uppf vetur, óhóflega
mikiö.
I 1. flokki sigraöi KR, en þeir
eru nánast áskrifendur aö ts-
Njarövikingar hafa misst af flestum titlum f meistaraflokknum undanfarfn ár, en þeir eiga mjög öflug
um yngri flokkum á aö skipa svo aö framtiöin er björt.
1
Stefán
Ingólfsson Jf
form. KKÍ
skrifar
landsmeistaratitli i þeim flokki Mnanlpilríir rinfranna
og hafa unnið svo íengi sem MOguieiKar ueirauna
eistu menn muna. starfseminnar
Landsliðið og leikir við
erlend félög
tslensk félagsliö léku nokkra
leiki viö erlend félagsliö. Ef
marka má árangur þeirra
leikja, sýnir hann ótvirætt, aö
okkur hefur vaxiö fiskur um
hrygg.
Raunhæfur mælikvaröi, á
getu okkar á alþjóöamæli-
kvaröa fæst þó ekki nema i
landsleikjum. Verkefni lands-
liösins voru sárafá siöasta ár og
kom þar hvort tveggja til, aö
sambandiö hafði ekki samninga
um neina leiki I júni i fyrra, þeg-
ar stjórnarskipti uröu, auk þess
aö ekki þótti ráölegt aö setja
upp landsleikjaplan sem rækist
e.t.v. á keppni úrvalsdeildar.
Þó fór landsliðiö eina keppnis-
ferö til Skotlands o g Da nmerkur
og voru leiknir fjórir leikir,
tveir viö Skota og tveir viö Dani.
Tveir leikjanna unnust: Skotar
8&— 76 og Danir 90—69. Tveir
töpuöust: Skotar 74—75 og Dan-
ir 83—99.
Aö minu mati gefa þessir leik-
ir ekki nógu góöa mynd af getu
landsliösins. Timitilæfinga fyr-
ir ferðina var ákaflega litill og
þjálfarinn var nánast aö þreifa
sig áfram i' feröinni. A þvi er þó
enginn vafi, aö meö meiri tfma
og betri samæfingu heföum viö
unniö bæöi þessi liö öruggléga.
Ég er einnig þeirrar skoöunar,
aö sá hópur, sem myndaði
landsliöiö I feröinni, muni
mynda sterkan kjarna lands-
liöshóps næsta vetrar.
Ég hef stundum velt þvi fyrir
mér hversu auövelt gæti veriö
aö reka samband eins og KKI og
hve mikið væri hægt aö fram-
kvæma af þeim verkefnum, sem
nú biöa úrlausnar, ef ÍSI notaði
þær fjáröflunarleiöir, sem þaö
hefur, eða veitti sérsamböndun-
um hlutdeild I þeim.
Ég er þeirrar skoöunar, aö ef
Getraunir væru betur reknar og
allir möguleikar sem starfsemi
þeirra býður upp á nýttir væri
unnt aö fá nokkur hundruö milj.
kr. i hagnaö af getraunastarf-
seminni. Viö körfuboltamenn
ættum þá aö fá 5—10 milj ár-
lega í síyrki staö tæpra tveggja
nú. Þetta væri hægt meö nýt-
ingu allra möguleika getraun-
anna, en þeir eru talsvert fleiri
en einungis knattspyrnu-
getraunir.
Lokaorð
Körfuknattleikssamband ís-
lands mun leggja kapp á aö
halda áfram starfinu næsta
starfsár ásömu braut og siöasta
vetur.
Viö viljum gefa áhorfendum
kost á aö horfa á góöan og
spennandi körfuknattleik. Þvi
munum viö leitast viö afla
landsliöinu veröugra verkefna
ogsteftium aö bættum árangri i
keppni viö landsliö annarra
þjóöa. Þó munum viö aldrei
fórna Islandsmóti eöa bikar-
keppniá altariframaá alþjóöa-
vettvangi.
Stefán Ingólfsson,
formaöur KKt.
Fjármálin
Gjaldkeri KKI og fram-
kvæmdastjóri þess hafa i sam-
einingu náö undraveröum
árangri meö fjárhagslegan
rekstur sambandsins.
Rekstrarafgangur fráfarandi
stiórnar nam náíægt 1800 'þús.
krónum, þó aö á reikningum
komi aöeins fram um 600 þús.
Bókhaldstölur segia reyndar
aöeins litinn hluta af sögunni þvi
aö KKl á útistandandi 3.5 miíj.
kr. hjá einstökum félögum og
öörum aöilum.
STALDR-
AÐ VIÐ
Frábær skriðsimdsárangur
Reykjavikurmót fyrir fatlaöa i t
þróttum var haldiö um siöustu
helgi og varö spennandi og
skemmtileg keppni i öllum grein-
um. Mesta athygli vakti þó
árangur Jónasar óskarssonar i 25
m skriösundi (frjáls aöferö) er
hann synti á 15.2 sek.
Sundkeppnin fór fram i Arbæj-
arlauginni og voru þátttakendur
20 talsins. Keppt var i 25 m
frjáisri aöferö I karla og kvenna-
flokki. tJrslit uröu þessi:
Karlar:
1. Jónas óskarsson 15.2 sek.
2. Pétur Kr. Jónsson 18.0 sek.
3. Óskar Konráösson 22.3 sek.
Konur:
1. Edda Bergmann 29.9 sek.
2. Sunneva Þráinsdóttir 40.6 sek.
3. Guörún ólafsdóttir 41.0 sek.
I inniiþróttunum var keppt i
Hagaskólanum og þar féllu Is-
landsmetin f lyftingum hvert af
ööru.
Þyngri fl. (yfir 67.5 kg):
1. Sigmar ó. Mariusson 114 kg.
(tslm.)
Framhald á 14. siöu
Alan Simonsen og félagar i
Gladbach eru svo gott sem
öruggir i úrslitin i UEFA—
keppninni eftir jafntefliö i
gær.
Borussia Mönchengladbach
tókst aö ná jafntefli i fyrri leik
sinum gegn Red Star I undanúr-
slitum UEFA-bikarsins, en
leikurinn fór fram I gærkvöldi.
Sestic skoraöi fyrir Red Star á 21.
min, en á 60. mfn fékk Gladbach
ódýrt mark þegar Ivan Jurisic
skoraöi sjálfsmark, 1-l.og þar viö
sat.
Gladbach
í úrslitin?
I gærkvöldi sigruöu Portúgalar
Norömenn 1-0 I Evrópukeppni
landsliöa, en leikurinn fór fram
I Osló. Norömenn sóttu mun
meira allan leikinn og fengu m.a.
10 hornspyrnur I seinni hálfleik.
1 ensku 1. deildinni sigraöi
Nottingham Forest Manchester
City meö 3 mörkum gegn 1, og i 2.
deild vann Blackburn Fulham 2-1.
Úr enska boltanum er þaö helst
að frátta, aö Gordon McQueen,
Man. Utd. er kominn á nýjan leik
i skoska landsliöshópinn, en þar
þarf hann að berjast um miövarö-
arstööuna viö Martin Buchan og
Alan Hansen. Skotar hafa til-
kynnt 22 manna hóp fyrir lands-
leiki gegn Argentinu og Noregi,
sem fram fara i byrjun júni. Þeir
kunna til verka i þessum efnum
Skotarnir, og mættum viö af þeim
læra.
—IngH
Skagamenn töpuðu
Akurnesingum tókst ekki aö
sigra I alþjóölegu knattspyrn-
unni á Indónesiu, en i úrslita-
leiknum I gær töpuöu þeir
fyrir landsliöi Burma I vita-
spyrnukeppni eftir fram-
lengdan leik.
Aö venjulegum leiktima
loknum var staöan 1-1 og skor-
aöi Sveinbjörn Hákonarson
mark 1A. Raunar skoraöi
Sveinbjörn annaö mark, sem
var dæmt af og var þaö furöu-
legur dómur aö sögn Skaga-
mannanna. Síöan var fram-
lengt i 2x15 min. og aö þvi
loknu var enn jafnt. Þá varö
vitaspyrnukeppni aö ráöa úr-
slitum og van skotiö til skiptis.
Akurnesingarnir misnotuöu
tvær þeirra og Burmabúar
fögnuöu sigri. Hvaö um þaö,
þá er árangurinn glæsilegur.
Eftir leikinn fengu strák-
arnir bikar og 1250 dollara i
verölaun. Einnig var þeim
boðiö aö koma aftur næsta ár
meö sömu kjörum og nú
þ.e.a.s. friar feröir og uppi-
hald.