Þjóðviljinn - 13.05.1979, Síða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. mai 1979
TJALLAMOLAR
Tæknin ryöst fram í
þessu landi sem öörum.
Nýjasta tæknispáin er sú,
að um miðjan næsta ára-
tug verði matargerð i nú-
verandi formi úr sögunni.
Því er spáð að níundi ára-
tugurinn verði áratugur
tilbúnu réttanna, þeir
verði vandaðir, franskir,
ítalskir og kínverskir að
uppruna, frosnir og til-
búnirtil neyslu á fáeinum
minútum. Þetta er að
sjálfsögðu ekkert nýtt,
hið nýja er að því er spáð
að þetta matarneyslu-
form verði orðið nánast
allsráðandi innan ára-
tugs.
Eldhúsið verði þá fyrst
og fremst dreifingarmið-
stöð fyrir hinn tilbúna
mat, og því verði margt
þeirra áhalda sem nú eru
notuð í hinu forna must-
eri eiginkonunnar úrelt.
Slátrarinn á horninu, sem viö
Islendingar útrýmdum nánast
um leið og hann varð til, er
dæmdur til að hverfa úr borgar-
lifinu, eða aölaga sig breyttum
aðstæðum og setja upp kjörbúð
með tilbúinn frosinn og niður-
soðinn mat.
Og matur „húsmóðurinnar”
verður þá ekki metinn eftir þvi
hve vel hún hefur matreitt hann,
heldur eftir þvf hve gott vöru-
merki hún hefur keypt.
Pískum liðið
En ekki eru allir svona fram-
farasinnaðir i þvi góða Eng-
landi. Á þingi skólameistara og
þingi kvenkennara var greini-
legur meirihluti þeirrar skoðun-
ar að nauðsynlegt væri, að
kennarar hefðu heimild til að
piska nemendur til aö halda
uppi aga. Þeir virtust þeirrar
skoðunar að líkamlegar refsing-
ar af þessu tagi væru til þess
fallnar að bæta aga i skólum,
einkum þar sem vandamálin
eru af það alvarlegu tagi að
kennarar hafa orðið fyrir til-
raunum til nauðgunar.
Rökstuðningurinn var m.a.:
„Við höfum ekki ánægju af lfk-
amsrefsingum, en þær eru
nauðsynlegar til að halda uppi
aga”, og „Engin nothæf aðferð
hefur verið fundin upp sem
komið getur i staðinn fyrir pfsk-
inn”.
En að sjálfsögðu voru ekki
allir meðmæltir notkun pisks-
ins, og á þingi aöalkennarasam-
takanna hefði megintónninn lfk-
lega verið af allt ööru tagi, ef
málið hefði yfirhöfuð komið þar
til umræðu. En skólastjórar og
kvenkennarar virðast margir
enn halda f gamlan draum.
Húsagi forn
En þeir eru fleiri sem vilja
halda uppi aga og hafa ná-
kvæma stjórn á börnum sinum
til að vernda þau fyrir umheim-
inum vonda.
Fyrir fáeinum dögum fjar-
lægðu félagsráögjafar sjö af níu
börnum hr. Boris Taylor og
konu hans. Börnin sem fjarlægð
voru eru á aldrinum 6 til 16 ára.
Börnin tvö sem eftir voru skilin
eru yfir barnaverndunaraldri,
17 og 19 ára.
Og hver var svo glæpur hr.
Taylors?
Fyrir 16 árum var hann rek-
inn úr starfi sem vísindamaður
hjá þáverandi orkumálaráðu-
neyti. Hann hefur ekki unnið
siðan, en hefur þess i stað ein-
beittséraö uppeldi barna sinna.
viðræður deiluaðila fóru út úm
þúfur ekki alls fyrir löngu.
Fyrir milligöngu atvinnu-
málaráðherrans höfðu deiluað-
ilar tekiö upp viðræður að nýju
með það fyrir augum, að útgáfa
blaðsins gæti hafist að nýju
þann 17. apríl. Sú von er fyrir bi.
Eigandi Times, Lord Thomp-
son, sem býr i Kanada, mun nú
vera farinn að hugsa alvarlega
um að losa sig við blaðið.
Sá möguleiki sem nú virðist
nærtækastur er að tilraun-
ir verði gerðar til að prenta
blaðið á meginlandinu. Hinir
nýju eigendur gætu þá samið við
samtök prentara á sama grund-
velli og önnur blöð i Fleet Street
hafa gert. The Times hefur
nefnilega viljað ganga lengra en
hin blöðin i þvi að segja upp
prenturum og ráða ófaglært fólk
til starfa. öll önnur meiriháttar
blöð hafa náð samkomulagi við
prentarana um að þeir annist
setjaravinnuna að mestu leyti i
hinum nýju tölvustýrðu setjara-
tækjum.
Elton John
hjá Bréshnev
En það er ekki bara The
Times sem virðist á leiðinni upp
á meginland Evrópu. Popp-
söngvarinn Elton John mun i
næsta mánuði leggja leið sina
alla leið austur i Rússaveldi að
skemmta helvitis kommunum.
Þar mun hann halda 8 hljóm-
leika og verður allt klabbið tekið
upp af myndsmiðum BBC til út-
sendingar i Englandi.
Aður hafa Cliff Richard og
Boney M skemmt Rússum með
„úrkynjaðri” vestrænni popp-
tónlist. Hvar .endar þetta eigin-
lega?
Hess er ekki Hess?
En liklega eru Rússarnir ekki
alveg jafn hrifnir af annarri
frétt sem þeim berst einnig héð-
an frá Englandi. Læknir einn i
breska hernum, sem var læknir
Rudolf Hess i Spandaufangels-
inu I Berlin og skoðaði fangann
þar oftar en einu sinni, heldur
þvi fram að fanginn sem sitji
þar sé alls ekki Hess. Byggir
hann þetta á þvi, að Hess hafi
særst mjög alvarlega i fyrri
heimsstyrjöldinni af skotsárum,
en fangi sá sem nú sitji i
Spandau hafi aldrei fengið svo
mikið sem hagl I skrokkinn á
sér.
Yfirleitt afneita yfirvöld þess-
um fullyrðingum læknisins sem
fjarstæðu, en þó hafa allmargir
þingmenn lagt til að málið verði
rannsakað nánar. Það sem
veldur þvi, að þessi fullyrðing er
að einhverju leyti tekin alvar-
lega er fyrst og fremst sú stað-
reynd, að virtur læknir setur
hana fram, maður sem skoöaði
Hess mjög vandlega. Auk þess
er viðkomandi læknir sérfræð-
ingur i meöferð skotsára og
álika hernaðarlegra meiðsla.
Vonandi hefur hann rétt fyrir
sér. Það er svo sjaldan að dag-
lega lífið býður upp á brandara
svo stóra i sniðum! Hersveitir
fjögurra rikja eyða 30 árum i að
gæta einhvers sem er alls ekki
Rudolf Hess.
Kaup þingmanna
og þjófnaðir
embættismanna
Þótt stjórnmálaflokkarnir rif-
ist um allt og séu ekki sammála
um neitt, svona i miðri kosn-
ingabaráttunni, er eitt mál þar
undanskilið. Nýverið var lagt
fram nefndarálit um kaup þing-
manna og þar lagt til að laun
þeirra verði strax að loknum
Undanfarin ár hefur fjölskyldan
lifað á 28 pundum á viku i fjöl-
skyldubætur (tæpar 20 þúsund
krónur), auk þess sem góð-
gerðasamtök hafa hjálpað þeim
með fóðrun hinna fjögurra katta
fjölskyldunnar.
En það eru uppeldisaðferðir
Taylors sem hafa valdið þvi, að
börnin eru nú frá honum tekin.
Ekkert barnanna hefur
nokkru sinni farið i skóla. Hann
hefur algjörlega annast mennt-
un þeirra sjálfur. Það hefur
hann hinsvegar gert með ágæt-
um, þannig aö hin eldri geta les-
ið allt aö átta tungumál, þau
geta leikið klassiska tóniist á
ýmis hljóðfæri, enda er hann
hámenntaður og með reynslu
sem kennari.
En varla er það glæpur að
mennta börnin sin vel? Hr.
Taylor gekk hinsvegar heldur
lengra en þetta. Hann einangr-
aði börn sin með öllu frá sam-
neyti við aðra. Þau fengu aldrei
aðfaraútá daginn. Alla likams-
hreyfingu fengu þau i bakgarð-
inum við hús fjölskyldunnar
undir eftirliti Taylors. Þar er
sundlaug sem notuð var til
þjálfunar, og þar hlupu börnin i
hringi til að fá hreyfingu. Að
sögn nágrannanna sást öll hala-
rófan úti á götunni eftir að
dimmt var orðið og þá hlupu
börnin meðan faðir þeirra tók
timann á hlaupahraða þeirra
með skeiðklukku. Ekkert þeirra
hefur komið i kvikmyndahús og
þau fá aðeins að horfa á valið
sjónvarpsefni.
Félagsráögjafarnir hafa sagt
að skólakunnáttu barnanna sé
ekkert áfátt og að þau hafi ekki
búið við likamlegt harðræði.
Akvörðunin um að fjarlægja
þau sé eingöngu byggð á þvi, aö
hér sé um mjög óeðlilegt lif að
ræða fyrir ungt fólk, börnin nái
ekki að þroskast sem manneskj-
ur við þessar aðstæður, þar sem
þau þekkja t.d. ekki muninn á
körlum og konum. Þau
ekki séð aðra manneskju nakta.
Þannig er um fleiri svið, þar eru
þau vanþroska, þrátt fyrir af-
burða skólakunnáttu. Og
popptónlist • hafa þau aldrei
heyrt nefnda.
The Times
Likurnar á sáttum i vinnu-
deilunni sem hindrað hefur út-
gáfu The Times i rúma tvo mán-
uði fóru mjög minnkandi þegar
kosningum hækkuð um þvf sem
næst 100%. Almennir þingmenn
úr öllum flokkum hafa lýst yfir
stuðningi við máliö, og foringj-
arnir samþykkja með þögninni.
En þá er þess náttúrlega að
geta að breskir þingmenn eru
einhverjir þeir lægst launuðu i
allri Evrópu. Þannig hafa þýsk-
ir, franskir og belgfskir
þingmenn þreföld laun breskra
kollega sinna.
Ef af hækkuninni verður
munu laun breskra þingmanna
fara upp f 12500 sterlingspund á
ári.sem samsvarar um niu milj*
ónum islenskum. En þá verður
að taka til greina muninn á
verðlagi, þannig að f raun sam-
svarar þetta nær 15 miljónum
króna á ári. Þess utan greiöir
rikið laun ritara fyrir sérhvern
þingmann.
En meðan þingmenn hafa
þolinmóðir beðið eftir lögmætri
launahækkun, hafa embættis-
menn drýgt tekjur sinar með
hnupli og undandrætti af ýmsu
tagi. A rúmu ári hafa 11 hátt-
settir embættismenn verið
ákærðir fyrir svindi og misnotk-
un opinbers fjár, og fjársvika-
deild lögreglunnar segir að
þetta sé aöeins toppurinn á is-
jakanum. Að mati lögreglunnar
nemur svindl opinberra starfs-
manna mörgum miljónum
punda á ári hverju.
Þrjár meginaðferðir eru not-
aðar til að hafa fé af hinu opin-
bera:
1. „Dauðs manns kerfið”,
sem er fólgið i þvi að gera reikn-
ing fyrir mun fleiri menn en i
raun eru notaðir við ákveðið
verkefni og stinga síöan fénu i
eigin vasa, eða deila þvf með
samsekum.
2. Að stela ,,antik”-gripum f
eigu rikisins og selja þá á frjáls-
um markaði. 1 sumum tilfellum
skipta menn á antik-hlutunum
og öðrum ódýrari sem rikið fær
■þá i staðinn. Þannig hefur antik-
skrifborðum i eigu rikisins
fækkað verulega, en ódýr skrif-
borð komið i staðinn.
3. Kaup á teppum, borðum og
öðrum útbúnaði fyrir skrifstof-
ur, sem aldrei kemur inn á
skrifstofurnar.
Eitt frægasta dæmið um að-
ferð nr. 2 var þegar sæti forseta
neðri málstofu breska þingsins
(Speakers State Bed) forngrip-
ur frá 16 öld fannst á heimili i
Wales. Eigendurnir höfðu keypt
gripinn fyrir nokkur hundruð
pund á uppboði og notuðu sem
hjónarúm.
Lögreglan hefúr kvartað und-
an þvi hve erfitt er aö rannsaka
þessi mál: „Um leið og lög-
reglumaður fer að spyrja um þá
sem hærra eru settir (margir
lægra settir embættismenn hafa
verið ákærðir. Innsk. eng) verð-
ur fyrir honum þagnarmúr, hót-
anir um refsingar vegna aga-
brota og alls engin aðstoð er
veitt”. — „Um leiö og einhver er
handtekinn hefur afgangurinn
hægtum sig um skeið, en heldur
siðan áfram sem fyrr. Við höf-
um jafnvel dæmi þess að sak-
felldur embættismaður hafi
fengið sitt gamla starf aftur”,
kvartar fjársvikadeild lögregl-
unnar. Skyldi ástandið vera
eitthvað álika heima á Fróni?