Þjóðviljinn - 07.07.1979, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 07.07.1979, Qupperneq 14
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. júll 1979 Bœjarstjórn Keflavíkur samþykkir að auka Umsjón: Magnús H. Gíslasson Frá Neskaupstaö Lokauppgjör frá Neskaupstað Síldarvinnslan á Neskaup- staö, sem er langstærsti út- geröaraðili á staönum og gerir nú út eina 3 skuttogara og aö auki aflaskipið Börk, hélt aö- alfund sinn fyrir skömmu. Þar kom ma. fram að siöasta ár hefði verið félaginu hagstætt i flestum greinum, en brúttó- tekjur þess á siöaasta ári námu alls um 6,5 miljöröum kr. og hreinar tekjur af rekstr- inum voru nærri 40 miljónir og fimmhundruð þúsund. Framleiðsla frystihússins á siðasta ári nam alls 2.760 tonn- um en alls var unniö úr 8.189 tonnum og þar af öfluðu skip útgeröarinnar 6.493 tonn. Hagnaður varð á öllum skipum útgerðarinnar, nema Barða, og er það i fyrsta sinn sem hann er rekinn með tapi. Afli Barða á siðasta ári varð aðeins 1842 tonn en árið áður aflaði Barði alls 2357 tonn, en úthaldsdagar voru þónokkru færri siðasta ár vegna við- halds en árið áður. Bjartur aflaði á siðasta ári alls 2.499 tonn sem er riflega hundrað tonnum meira en árið á undan. Birtingur fékk 2.484 tonn. Börkur aflaði vel á loönu- vertiðinni og var auk þess á kolmunnaveiðum siðastliðið sumar en heildaraflamagn hans var 38.617 tonn sem er um fimm þúsund tonnum meira en árið á undan. Á sið- ustu vetrarvertið fékk Börkur alls 14.478 tonn af loönu. 1 skýrslu stjórnar Sildar- vinnslunnar kemur einnig fram að einungis hafi verið tap á saltfiskverkuninni af öll- um fra mleiösluþáttum vinnslunnar. Er ástæöan sögð sú, aö verð á saltfiski hefur ekki hækkað nærri eins mikið og verö á öðrum tegundum framleiðslu. Af öðru sem fram kom á aö- alfundinum má nefna að nú er verið að skipta um vél i Berki og setja i hann nýjar öflugar hliðarskrúfur. Þá var einnig sagt frá þvi að ákveöið hefur verið að selja Barða og kaupa annað nýrra og hentugra skip. Gerður hefur verið sölusamn- ingur og jafnframt hefur veriö að kaupa annað skip fjögurra ára gamalt sömu gerðar og Birtingur er. Ef við snúum okkur þá að aflatölum fyrir Neskaupstaö það sem af er þessu ári, kem- ur i ljós að heildaraflinn f jóra fyrstu mánuðina er nokkuð minni en á sama tima i fyrra. Nokkru minni afli barst á land i janúar og febrúar en ágætis veiði var aftur á móti i mars og april þrátt fyrir stoppið i kringum páskana. Bjartur varð aflahæstur togaranna-með nærri 1000 tonn en aðeins einu sinni landaöi Norðf jarðartogari erlendis en það var Barði sem seldi rúm 90 tonn i Grimsby seinni part febrúarmánaðar. Bátarnir öfluðu sæmilega.en annars varð aflaskiptingin þessi svo næst verður komist. Linu og netabátar FylkirNK Magnús NK Háborg NK Faldur ÞH Ýmsir bátar Skuttogarar Bjartur NK BirtingurNK Barði NK Klakkur VE róðrar afli 8 127 t 3 112,9 t 9 46,2 t 1 7,7 t 29 24,4 t veiöiferöir afli 11 997,5 t 10 869,3 t 11 931,0 t 1 24,2 t Heildaraflinn á vetrarvertiö- inni 1978 — 3.501 1979 — 3.334 Hátíðarskap, en aflalevsi Rœtt við Gísla S. Gíslason vigtarmann ,,Það er mjög tregt hjá smá- bátunum núna, annars eru þeir varla byrjaðir aö stunda veiðarnar eftir vertiðina. Þaö hefur vorað svo seint hér og kuldinn ennþá mikill”, sagði Gisli S. Gíslason vigtarmaöur á Neskaupstað i simtali við Þjóðviljann. „Isinn hamlaði okkur nokkuð hér i vetur og sjórinn er ennþá nokkuö kald- ur þannig að erfitt er aö finna fisk. Ef hann á annaðborð finnst þá er erfitt aö eiga við hann þar sem hann er allur á fleygiferö I sjónum vegna kuldans, hlýtur að vera. Þeir hafa veriö aö fáann núna á togurunum aö mér skilst. Bjartur og Baröi eru á þorskveiöum en Birtingur er að fara i siglingu til Þýska- lands með karfa.” GIsli sagði að fullfrágengiö væri meö sölu á Bjarti og væri þvi von á nýlegum togara frá Frakklandi I staöinn. Annars væru menn komnir I hátiðar- skap vegna 50 ára afmælis bæjarins og létu fiskleysið ekki hafa áhrif á það. -Ig Hlutafé í Olíumöl hf. Bæjarstjórn Keflavlkur hefur fyrir nokkru samþykkt að auka hlutafé bæjarins i Oliumöl h.f. um allt að 10 milj. kr., að þvi til- skildu þó, aö önnur sveitarfélög séu einnig þátttakendur I upp- byggingu fyrirtækisins og að framtiö þessi veröi tryggð. A fundi bæjarstjórnar Kefla- vikur þann 12. júni s.l. var mál þetta tekiö til umræðu og af- greiöslu, að þvi er segir I Suður- nesjatiðindum. Ingólfur Fals- son, sem sæti á i stjórn Oliumal- ar h.f. fyrir hönd Keflavikur- kaupstaðar, kvað stöðu fyrir- tækisins vægast sagt bágborna. Samþykkt heföi verið að auka hlutafé þess um allt að 400 milj. kr. Þar af yröi sveitafélögum gefinn kostur á hlutabréfakaup- um fyrir helmingi upphæðar- innar, sem Framkvæmdasjóður lánaði þeim til þriggja ára með 26% vöxtum, Framkvæmda- sjóöi fyrir 100 milj. og verktök- um yrðu heimiluð hlutabréfa- kaup fyrir 100 milj., sem Olíu- möl h.f. lánaði þeim með sömu kjörum og Framkvæmdasjóöur sveitafélögunum. Næst gerðist það, aö Framkvæmdasjóður neitaði að leggja fram sinn hluta fyrr en sveitarfélögin hefðu staðið skil á sinum 200 milj. Sveitarfélög væru búin að lofa 137 milj. en 63 milj. vantaði upp á. Ingólfur áleit auðið að rétta fyrirtækið við en til þess þyrfti ráðrúm. Aðeis er beöið um 40 — 50 þús. tonn af oliumöl i ár en framleiöslan þyrfti að vera 80 — 90 þús. tonn svo afkoman yrði trygg. A s.l. ári var framleiðsl- an 75.693 tonn. Akveöiö hefur verið, sagöi Ingólfur, að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins verði hjá þvi i sumar. Þeir Karl Sigurbergsson og ólafur Björnsson lögðu til að hlutafjáraukning Keflavikur- kaupstaöar yröi bundin þvi skil- yrði, að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Oliumalar h.f. yrði þar ekki innanborðs til frambúðar. Guöfinnur Sigurvinsson taldi fyrirtækið mjög þarft og illt ef það legði upp laupana. Hilmar Pétursson og Guðjón Stéfánsson tóku i sama streng og mæltu meö hlutafjár- aukningu bæjarfélagsins. Tómas Tómasson sagði þaö sina skoöun, að þar sem skipu- lagsbreytingar væru fyrirhug- aðar hjá Oliumöl h.f. og fyrir- tækiö þarft, þá bæri að auka hlutabréfakaupin um 10 milj. kr. svo sem bæjarráð hefði lagt til, en afgreiðsla þess var þann- ig: „Bæjarráð leggur til að keypt verði aukin hlutabréf fyrir allt aö 10 milj. kr., enda taki önnur sveitarfélög þátt I uppbyggingu félagsins og framtið þess tryggð.” Karl Sigurbergsson og Ólafur Björnsson óskuðu aö bóka eftir- farandi: „Miðað við þær upplýsingar, sem hér hafa komið fram varð- andi breytingar á stjórn og stjórnun Oliumalar h.f. og i trausti þess að ekki komi til þess, að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri verði endurráð- inn I starfið, getum við samþykkt aukin hlutabréfa- kaup, einsogtillagaliggurfyrir um af hálfu bæjarráös”. Afgreiðsla bæjarráös var sið- an samþykkt i bæjarstjórn með 9 samhlj. atkv. —mhg . Sœnsku bœndasamtökin telja Fjölskyldubúin henta best Meðal sænskra bænda má nú merkja verulega breytta afstöðu til bústærðar og sérhæfingar I bú- skap, að þvi er segir i nýútkomn- um Frey. Nú er það fjölskyldubúskapur- inn, sem hefur meðbyr en and- stöðu gætir I garö sérhæfðra stór- búa og verksmiðjubúskapurinn, sem á siðasta áratug var talinn allra meina bót,á ekki lengur ipp á pallborðiö hjá Svium. Sænsku bændasamtökin hafa nú kveöið upp úr með þetta. For- maður þeirra, Erik Jönsson, skrifaöi nýlega um þetta grein i sænska stórblaðiö Dagens Nyhet- er i Stokkhólmi. Þar kveður hann upp úr meö það, að þetta sé stefna stjórnar sænsku bændasamtak- anna, enda hafi þau þráfaldlega aö undanförnu farið þess á leit, aö reglur veröi settar um eftirlit með stofnun verksmiðjubúa til búfjárframleiöslu. Erik Jönsson segir ástæðu fyrir þessari afstöðu sænsku bænda- samtakana vera þá, að eftir ná- kvæma yfirvegun hafi þau sann- færst um, aö fjölskyldubúin henti betur sænskum landbúnaði en önnur rekstrarform. Og svo er komið, segir hann, að stjórnvöld hafa áttað sig á þessu og breytt afstöðu sinni I samræmi við þaö. Sem þýðingarmikið dæmi um þessa stefnubreytingu nefnir Erik Jönsson, aö nú hafi það fengist viðurkennt, að einyrkjabændur þurfi að eiga þess kost, aö taka sér fri frá daglegum störfum. Þvi hafi verið komiö á afleysinga- þjónustu með liku sniði og norskir bændur hafi átt kost á undanfarin ár. I annan staö nefnir hann, aö komiö hafi verið á samræmdu tryggingakerfi fyrir bændur. Þeir eiga nú kost alhliða trygginga, sem tryggja fjárhagsafkomu þeirra lit og á sér stað hjá iön- verkafólki. Siöan 1977 hefur um það bil 1/4 af þeim tekjuauka, sem bænda- samtökin hafa náð fram i samn- ingum sinum við rikið, gengið til þess aö bæta félagslega aöstöðu bænda. Með þvi að efla fjölskyldubú- skapog beina þróuninni frá stór- rekstri telja sænsku bændasam- tökin að sænskur landbúnaður geti best þjónað hlutverki slnu. Þannig megi beita nútima tækni við búskapinn án þess að koll- varpa vistfræðilegu jafnvægi. Með þeim hætti verði bændum best tryggð viöunandi kjör. — mhg Vegagerð í Mánárskriðum Miklar framkvæmdir eru fyrir- hugaöar á Siglufjarðarvegi nú á næstu árum, eftir þvi, sem frá er greint i hinni nýju vegaáætlun. A næsta ári er meiningin aö vinna fyrir 28 milj. kr. i veginum á Höföaströnd, beggja megin við Hofsós. og fara þeir fjármunir einkum i það, aö lagfæra snjó- þunga kafla. Þá er og veriö að byggja nýja brú á Grafará. Gamla brúin var niöri i gilinu hjá Artúnum en hin nýja er allnokkru ofar þvl ætlunin er að vegurinn komi til með að liggja um móana ofan við Hofsós. Megin-átakiö er þó i þvi fólgið, aö fúllgera veg um Mánárs'krið- ur. Gert er ráð fyrir að fullgerður kosti sá vegur 200-300 milj. kr. en vegalengdin er um 2,3 km. Vafa- laust verður aö gripa þarna til mikilla og kostnaðarsamra efnis- flutninga til þess aö breikka veg- inn nægilega þar, sem brattinn er mestur. Til rannsókna og undir- búnings þessa verks eru I ár áætl- aöar 15 milj, kr. A næsta ári eru 100 milj. kr. ætlaöar til vegarins og 115 milj. kr. á árinu 1981. Ekki skal um þaö f ullyrt hvenær vegur þessi veröur fær oröinn fyrir vetr- arumferðen þeir, sem bjartsýnir eru, telja að það geti jafnvel orðið haustiö 1980. Þá er áformað aö leggja tölu- veröa fjármuni I Út-Blönduhlið- arveg en hann hefur verið hálf- gert olnbogabarn i herrans mörg ár. Endurbygging hans hefur töluverða þýðingu fyrir Siglfirð- inga þvi þaö styttir leiðina fyrir þá milli Siglufjarðar og Reykja- vlkur, — og Siglufjaröar og Akur- eyrar einnig þann drjúga hluta ársins, sem vegurinn um Lág- heiði er ófær, — að fara um Út-BlönduhUö I stað þess að þurfa um Sauðárkrók. — mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.