Þjóðviljinn - 07.07.1979, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 07.07.1979, Blaðsíða 20
uúðviuinnX Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfs- S1W Kvöldsimi 81348 Laugardagur 7. júli 1979 menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, afgreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. TUGIR HÚSA OLÍUKYNT í REYKJAVlK Olían sexfalt dýrari en heita vatnið I Reykjavík eru nokkrir tugir húsa, sem kynt eru með oliu og með tilliti til sí- hækkandi olíuverðs hefur borgarráð falið borgar- verkfræðingi að gera ýtar- iega könnun á möguleikum þess að taka upp rafhitun eða hitaveitu i þeim. Flest þessara húsa eða öll voru byggð í óleyf i á sínum tíma og standa þau á svæð- um, sem skv. skipulagi eiga ekki að vera íbúðar- svæði. Húsin fremst á myndinni eru oliukynt, en þau voru á slnum tima reist I óleyfi og skv. skipulagi eiga þau aö vikja fyrir útivistarsvæöi Reykvik- inga. Ljósm. — eik. Hérerum aðræða ca. 20 hús of- an við Blesugrófina i suðurhliðum Elliðaárdals, sem skv. skipulagi á að verða útivistarsvæði Reyk- vikinga. Hefur borgin jafnan nýtt sér forkaupsrétt að þessum hús- um ef þau eru föl. Þá eru húsin i Smálöndunum kynt með oliu og ennfremur ca. 10 hús i Laugar- nesi, sem borgarráð hefur ákveð- ið að leggja skuli i hitaveitulögn til bráðabirgða. Að sögn Jóhannesar Zöega, hitaveitustjóra borgar stofnlögn hitaveitu sig á 5-20 árum fyrir Hitaveitu Reykjavikur, allt eftir aðstæðum. öðru máli gegnir með hús eigendur, þar sem olian er nú sexfalt dýrari en heita vatnið. Fyrir 10 árum var hitaveituverð Reykjavik 60-70% af oliuverði, en vegna sihækkandi oliuverðs er hitaveitan nú aðeins 15% af oliu- verði. „Þetta borgar sig þvi æöi fljótt fyrir húseigendur,” sagði Jó- hannes, ,,og 'er auðvitað þjóð- hagslega hagkvæmt.” Fjárhagur Hitaveitunnar leyfir þó ekki miklar tilfæringar i þessa átteins og nú stendur, að sögn Jó- hannesar, þvi á þessu ári varð að velja milli þess að bora fyrir 2- 300 miljónir króna eða sinna nauðsynlegum stækkunarþörfum kerfisins. Voru boranirnar látnar biða þar sem útlit er fyrir nægi- legt heitt vatn næsta vetui; en að sögn Jóhanesar mun koma til þess bráðlega að Hitaveitan geti ekki sinnt stækkunarþörfum nema stjórnvöld sööli um i verö- lagsmálum. Visitala hitunarkostnaðar mið- ast eingöngu við hitaveituverð i Reykjavik en ekki við landið allt og þvi hafa hækkanir á útsölu- verði hennar áhrif á visitöluna þó hækkanir á oliu og hækkanir á hitaveitu á öðrum stöðum á land- inu breyti þar engu um. „Visital- an er orðin aðalstjórntæki þessa lands,” sagði hitaveitustjóri, „og hefurstjórnað gerðum allra rikis- stjórna hér undanfarin ár.”AI Kælisalur BtJR, sem tekinn veröur i notkun á mánudagin;:. Ljósm. —eik. Fiskmóttaka BIJR: Kæliútbúnaður tekinn í notkun Stórt framfara- spor, segir Krist- vin Kristinsson verkstjóri Fiskmóttaka Bæjarút- gerðar Reykjavíkur í Bakkaskemmu á Grandan- um hef ur nú verið einangr- uð og sett í hana kæliútbún- aður sem heldur hitastig- inu við f rostmark. Kristvin Kristinsson verkstjóri í Bakkaskemmu sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að þetta ætti að skila sér margfalt í betri nýt- ingu á fiskinum og því stórt framfaraspor í BÚR. Byrjað var að taka á móti fisk- inum i Bakkaskemmu i fyrra- sumar en þá var oft svo hlýtt i henni að isa varð fiskinn marg- sinnis til þess að hann eyðilegðist ekki. Búið er að kassavæða alla togara BÚR en á mánudag verður fyrsti fiskurinn tekinn inn i kælda móttöku. —GFr World Oven skákmótiö: Haukur vann Haukur Angantýsson varð efstur á World Open skákmótinu i Bandarikjunum ásamt sex öðrum. Haukur náði þessum áfanga eftir að hafa gert jafn- tefli við rúmenska stórmeistarann Gheorghiu, og hlaut átta vinninga sem nægði honum til fyrsta sæt- isins. Þeir sem deildu sætinu með Hauki voru Gheorghiu, enski stórmeistarinn Miles, amerisku stórmeistararnir Browne og Bis- guier auk alþjóðlegu meistaranna Zuckerman og Fedorovic. Margeir Pétursson hlaut 7,5 vinninga og var i 8.-14. sæti, en Sævar Bjarnason hlaut 6.5 vinn- inga. Haukur Angantýsson Tannréttingar inn í tryggingakerfið Nýlega náðist samkomuiag milli Tryggingastofnunar Rikis- ins og tannlækna sem annast tannréttingar og tekur Tryggingastofnunin nú þátt i greiðsluin á tannréttingum á sama hátt og við aðrar tannvið- gerðir. Samkvæmt lögum njóta börn og unglingar ókeypis tannlækna- þjónustu til 16 ára aldurs. Elli- og örorkulifeyrisþegar greiða tannlækni að fullu en fá siðan helming endurgreiddan hjá Tryggingastofnun. Það eru að sjálfsögðu börn og Þess má geta að á World Open mótinu i fyrra gerði Ingvar As- mundsson sér litið fyrir og sigr- aði, raunar einnig með sex öðr- um. — ÖS unglingar sem mest þurfa á tann- réttingum að halda og er hér um verulega réttarbót að ræða þvi hingað til hafa tannréttingar verið mjög kostnaðarsamar. —ká Embætta- veitingar a dotinni Mikið hefur veriö makkað bak við tjöldin varðandi embættaveitingar þær sem nú hvila á herðum dóms- málaráðherra i stöðu hæsta- réttardómara og yfirborgar- fógeta i Reykjavik. Mun væntanlega verða fró þeim gengið n.k. mánudag og er spá manna sú að Unn- steini Beck verði veitt yfir- borgarfógetaembættið en Sigurgeiri Jónssyni, fógeta i Kópavogi embætti hæsta- réttardómara. Þá losnar embætti hans i Kópavogi, en til þess mun leikurinn einmitt gerður að það verði veitt Jóni Skafta- syni deildarstjóra i við- skiptaráðuneytinu. Þá mun Gunnari G. Schram liklega verða úthlut- að embætti prófessors i stjórnskipunarrétti, en bráð- ræði hans vegna rektors- kjörsins I vor mun hafa seinkað þeirri ákvörðun nokkuð. — ÖS’

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.