Þjóðviljinn - 07.07.1979, Síða 16

Þjóðviljinn - 07.07.1979, Síða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. júll 1979 Bœjarstjórn Keflavíkur samþykkir að auka Umsjón: Magnús H. Gíslasson * Frá Neskaupstað Lokauppgjör frá Neskaupstaö Síldarvinnslan á Neskaup- stað, sem er langstærsti út- geröaraöili á staðnum og gerir nú út eina 3 skuttogara og aö auki aflaskipiö Börk, hélt aö- alfund sinn fyrir skömmu. bar kom ma. fram aö siöasta ár heföi veriö félaginu hagstætt i flestum greinum, en brúttó- tekjur þess á siðaasta ári námu alls um 6,5 miljöröum kr. og hreinar tekjur af rekstr- inum voru nærri 40 miljónir og fimmhundruð þúsund. Framleiösla frystihússins á siðasta ári nam alls 2.760 tonn- um en alls var unniö úr 8.189 tonnum og þar af öfluðu skip útgeröarinnar 6.493 tonn. Hagnaður varð á öllum skipum útgeröarinnar, nema Barða, og er það i fyrsta sinn sem hann er rekinn með tapi. Afli Barða á siöasta ári varö aðeins 1842 tonn en árið áöur aflaöi Baröi alls 2357 tonn, en úthaldsdagar voru þónokkru færri siðasta ár vegna við- halds en árið áöur. Bjartur aflaöi á siöasta ári alls 2.499 tonn sem er riflega hundrað tonnum meira en áriö á undan. Birtingur fékk 2.484 tonn. Börkur aflaði vel á loönu- vertiðinni og var auk þess á kolmunnaveiðum siðastliöiö sumar en heildaraflamagn hans var 38.617 tonn sem er um fimm þúsund tonnum meira en áriö á undan. Á sið- ustu vetrarvertið fékk Börkur alls 14.478 tonn af loönu. 1 skýrslu stjórnar Sildar- vinnslunnar kemur einnig fram að einungis hafi verið tap á saltfiskverkuninni af öll- um framleiösluþáttum vinnslunnar. Er ástæðan sögð sú, að verö á saltfiski hefur ekki hækkað nærri eins mikiö og verð á öðrum tegundum framleiðslu. Af öðru sem fram kom á aö- alfundinum má nefna að nú er verið að skipta um vél i Berki og setja i hann nýjar öflugar hliöarskrúfur. Þá var einnig sagt frá þvi að ákveðið hefur verið að selja Barða og kaupa annað nýrra og hentugra skip. Gerður hefur verið sölusamn- ingur og jafnframt hefur verið að kaupa annað skip fjögurra ára gamalt sömu gerðar og Birtingur er. Ef við snúum okkur þá að aflatölum fyrir Neskaupstað það sem af er þessu ári, kem- ur i ljós að heildaraflinn f jóra fyrstu mánuðina er nokkuð minni en á sama tima i fyrra. Nokkru minni afli barst á land i janúar og febrúar en ágætis veiði var aftur á móti i mars og april þrátt fyrir stoppið i kringum páskana. Bjartur varð aflahæstur togarannameð nærri 1000 tonn en aöeins einu sinni landaði Noröf jaröartogari erlendis en þaö var Baröi sem seldi rúm 90 tonn i Grimsby seinni part febrúarmánaðar. Bátarnir öfluðu sæmilega.en annars varð aflaskiptingin þessi svo næst verður komist. Linu og netabátar róðrar afli FylkirNK Magnús NK Háborg NK Faldur ÞH Ýmsir bátar 8 127 t 3 112,9 t 9 46,2 t 1 7,7 t 29 24,4 t Skuttogarar Bjartur NK Birtingur NK Baröi NK . Klakkur VE veiðiferðir afli 11 997,5 t 10 869,3 t 11 931,0 t 1 24,2 t Heildaraflinn á vetrarvertiö- inni 1978 — 3.501 1979 — 3.334 Hátíðarskap, en aflaleysi Rœtt viö Gísla S. Gislason vigtarmann . „Það er mjög tregt hjá smá- bátunum núna, annars eru þeir varla byrjaöir að stunda veiðarnar eftir vertiðina. Þaö hefur vorað svo seint hér og kuldinn ennþá mikill”, sagði Gisli S. Gislason vigtarmaður á Neskaupstað i simtali viö Þjóðviljann. „Isinn hamlaöi okkur nokkuð hér i vetur og sjórinn er ennþá nokkuð kald- ur þannig að erfitt er aö finna fisk. Ef hann á annaöborð finnst þá er erfitt að eiga við hann þar sem hann er allur á fleygiferð i sjónum vegna kuldans, hlýtur að vera. beir hafa verið að fá'ann núna á togurunum aö mér skilst. Bjartur og Barði eru á þorskveiöum en Birtingur er að fara í siglingu til Þýska- lands með karfa.” GIsli sagöi aö fullfrágengið væri með sölu á Bjarti og væri þvi von á nýlegum togara frá Frakklandi I staöinn. Annars væru menn komnir I hátiöar- skap vegna 50 ára afmælis bæjarins og létu fiskleysið ekki hafa áhrif á það. -Ig Hlutafé í Olíumöl hf. Bæjarstjórn Keflavikur hefur fyrir nokkru samþykkt að auka hlutafé bæjarins I Ollumöl h.f. um allt að 10 milj. kr., aö þvi til- skildu þó, að önnur sveitarfélög séu einnig þátttakendur i upp- byggingu fyrirtækisins og að framtið þessi veröi tryggð. A fundi bæjarstjórnar Kefla- vikur þann 12. júni s.l. var mál þetta tekiö til umræöu og af- greiðslu, aö þvi er segir i Suður- nesjatiðindum. Ingólfur Fals- son, sem sæti á i stjórn Oliumal- ar h.f. fyrir hönd Keflavikur- kaupstaðar, kvað stööu fyrir- tækisins vægast sagt bágborna. Samþykkt hefði veriö að auka hlutafé þess um allt að 400 milj. kr. Þar af yröi sveitafélögum gefinn kostur á hlutabréfakaup- um fyrir helmingi upphæðar- innar, sem Framkvæmdasjóður lánaöi þeim til þriggja ára með 26% vöxtum, Framkvæmda- sjóöi fyrir 100 milj. og verktök- um yrðu heimiluð hlutabréfa- kaup fyrir 100 milj., sem Olíu- möl h.f. lánaði þeim með sömu kjörum og Framkvæmdasjóður sveitafélögunum. Næst gerðist það, að Framkvæmdasjóöur neitaði að leggja fram sinn hluta fyrr en sveitarfélögin hefðu staðið skil á sinum 200 milj. Sveitarfélög væru búin að lofa I37milj.en 63 milj. vantaöi upp á. Ingólfur áleit auöið að rétta fyrirtækið viö en til þess þyrfti ráðrúm. Aðeis er beðið um 40 — 50 þús. tonn af olíumöl í ár en framleiðslanþyrfti að vera 80 — 90 þús. tonn svo afkoman yrði trygg. A s.l. ári var framleiösl- an 75.693 tonn. Akveðið hefur verið, sagöi Ingólfur, að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins verði hjá þvi I sumar. Þeir Karl Sigurbergsson og Ólafur Björnsson lögöu til að hlutafjáraukning Keflavikur- kaupstaðar yrði bundin þvi skil- yrði, að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Oliumalar h.f. yröi þar ekki innanborös til frambúðar. Guöfinnur Sigurvinsson taldi fyrirtækið mjög þarft og illt ef þaö legði upp laupana. Hilmar Pétursson og Guðjón Stefánsson tóku i sama streng og mæltu með hlutafjár- aukningu bæjarfélagsins. Tómas Tómasson sagöi það sina skoðun, að þar sem skipu- lagsbreytingar væru fyrirhug- aðar hjá Oliumöl h.f. og fýrir- tækið þarft, þá bæri að auka hlutabréfakaupin um 10 milj. kr. svo sem bæjarráð hefði lagt til, en afgreiðsla þess var þann- ig: „Bæjarráð leggur til að keypt verði aukin hlutabréf fyrir allt aö 10 milj. kr„ enda taki önnur sveitarfélög þátt i uppbyggingu félagsins og framtið þess tryggð.” Karl Sigurbergsson og Ólafur Björnsson óskuöu að bóka eftir- farandi: „Miðað við þær upplýsingar, sem hér hafa komið fram varð- andi breytingar á stjórn og stjórnun Oliumalar h.f. og i trausti þess að ekki komi til þess, að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri veröi endurráð- inn i starfiö, getum við samþykkt aukin hlutabréfa- kaup, eins ogtillaga liggur fyrir um af hálfu bæjarráðs”. Afgreiösla bæjarráðs var sið- an samþykkt I bæjarstjórn með 9 samhlj. atkv. —mhg Sœnsku bœndasamtökin telja Fjölskyldubúin henta best Meöal sænskra bænda má nú merkja verulega breytta afstöðu til bústæröar og sérhæfingar í bú- skap, að þvi er segir i nýútkomn- um Frey. Nú er þaö fjölskyldubúskapur- inn, sem hefur meðbyr en and- stööu gætir í garð sérhæföra stór- búa og verksmiöjubúskapurinn, sem á siðasta áratug var talinn allra meina bót,á ekki lengur ipp á pallborðið hjá Svlum. Sænsku bændasamtökin hafa nú kveöið upp úr meö þetta. For- maður þeirra, Erik Jönsson, skrifaöi nýlega um þetta grein i sænska stórblaöiö Dagens Nyhet- er I Stokkhólmi. Þar kveður hann upp úr meö það, að þetta sé stefna stjórnar sænsku bændasamtak- anna, enda hafi þau þráfaldlega aö undanförnu farið þess á leit, aö reglur verði settar um eftirlit með stofnun verksmiðjubúa til búfjárframleiðslu. Erik Jönsson segir ástæöu fyrir þessari afstööu sænsku bænda- samtakana vera þá, aö eftir ná- kvæma yfirvegun hafi þau sann- færst um, að fjölskyldubúin henti betur sænskum landbúnaði en önnur rekstrarform. Og svo er komið, segir hann, að stjórnvöld hafa áttað sig á þessu og breytt afstöðu sinni í samræmi við það. Sem þýðingarmikiö dæmi um þessa stefnubreytingu nefnir Erik Jönsson, að nú hafi það fengist viðurkennt, að einyrkjabændur þurfi að eiga þess kost, að taka sér fri frá daglegum störfum. Þvi hafi verið komiö á afleysinga- þjónustu með liku sniöi ognorskir bændur hafi átt kost á undanfarin ár. 1 annan staö nefnir hann, að komiö hafi verið á samræmdu tryggingakerfi fyrir bændur. Þeir eiga nú kost alhliöa trygginga, sem tryggja fjárhagsafkomu þeirra likt og á sér stað hjá iðn- verkafólki. Siðan 1977 hefur um það bil 1/4 af þeim tekjuauka, sem bænda- samtökin hafa náð fram i samn- ingum sinum viö rikið, gengið til þess að bæta félagslega aðstöðu bænda. Með þvi að efla fjölskyldubú- skapog beina þróuninni frá stór- rekstri telja sænsku bændasam- tökin að sænskur landbúnaður geti best þjónað hlutverki sinu. Þannig megi beita nútima tækni viö búskapinn án þess að koll- varpa vistfræðilegu jafnvægi. Með þeim hætti verði bændum best tryggð viöunandi kjör. — mhg Vegagerð í Mánárskriðum Miklar framkvæmdir eru fyrir- hugaöar á Siglufjaröarvegi nú á næstu árum, eftir þvi, sem frá er greint I hinni nýju vegaáætlun. A næsta ári er meiningin að vinna fyrir 28 milj. kr. I veginum á Höföaströnd, beggja megin við Hofsós. og fara þeir fjármunir einkum i þaö, að lagfæra snjó- þunga kafla. Þá er og veriö að byggja nýja brú á Grafará. Gamla brúin var niðri I gilinu hjá Artúnum en hin nýja er allnokkru ofar þvl ætlunin er að vegurinn komi til meö að liggja um móana ofan við Hofsós. Megin-átakið er þó I þvi fólgið, aö fullgera veg um Mánárskrið- ur. Gert er ráð fyrir að fullgerður kosti sá vegur 200-300 milj. kr. en vegalengdin er um 2,3 km. Vafa- laust verður að gripa þarna til mikilla og kostnaðarsamra efais- flutninga til þess að breikka veg- inn nægilega þar, sem brattinn er mestur. Til rannsókna og undir- búnings þessa verks eru I ár áætl- aöar 15 milj, kr. A næsta ári eru 100 milj. kr. ætlaðar til vegarins og 115 milj. kr. á árinu 1981. Ekki skal um þaðfullyrt hvenær vegur þessi veröurfær orðinn fyrir vetr- arumferð en þeir, sem bjartsýnir eru, telja að það geti jafnvel orðið haustið 1980. Þá er áformaö að leggja tölu- verða fjármuni I tit-Blönduhliö- arveg en hann hefur verið hálf- gert olnbogabarn i herrans mörg ár. Endurbygging hans hefur töluverða þýöingu fyrir Siglfirð- inga þvi það styttir leiðina fyrir þá milli Siglufjarðar og Reykja- vikur, — og Sigluf jaröar og Akur- eyrar einnig þann drjúga hluta ársins, sem vegurinn um Lág- heiði er ófær, — aö fara um Út-Blönduhliði stað þess aö þurfa um Sauðárkrók. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.