Þjóðviljinn - 15.09.1979, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. september 1979
tJWÐVHMN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
Umsjónarmaður Sunnudagsblaös: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaðamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Guöjón
Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Kristfn Pétursdóttir.
Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavík, sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Málinu er ekki
lokið
• I fyrradag var tilkynnt veruleg hækkun á verði
búvara. Þessi hækkun hefur verið til umræðu i rik-
isstjórninni siðast liðnar tvær vikur eða frá þvi að
Alþýðubandalagið beitti sér fyrir þvi að tillögur
sexmannanefndarinnar yrðu teknar til sérstakrar
athugunar i rikisstjórninni, þar eð færi hækkunin ó-
breytt út i verðlagið myndi það leiða til nýrrar verð-
bólguskriðu.
• Ráðherrar Alþýðubandalagsins lögðu til að
bændur fengju sams konar hækkun launa sinna og
annað launafólk i landinu hefur fengið, en aðrir
þættir i verðlagsgrundvelli landbúnaðarvaranna
yrðu þegar i stað teknir upp i beinum samningum
milli rikis og bænda, en krafa um slika beina samn-
inga hefur lengi verið stefnumál Alþýðubandalags-
ins.
• í viðtali við Þjóðviljann i dag greinir Svavar
Gestsson, viðskiptaráðherra frá kjarnanum i tillög-
um Alþýðubandalagsins i rikisstjórninni. Þar segir
m.a.:
• ,, Við lögðum til að hækkunin yrði takmörkuð við
það sem dygði til þess að tryggja bændum sömu
grunnkaupshækkanir og visitölubætur sem aðrir
hafa fengið, en það sem er umfram, yrði sett i beina
samninga við bændur. Því var hafnað; annar
stjórnarflokkurinn hafnaði þessu vegna þess að
hann virtist reiðubúinn til að svipta bændum verð-
bótum á laun, hinn vegna þess að hann neitaði að
mæta vandanum með setningu sérstakra bráða-
birgðalaga eða með auknum niðurgreiðslum. Það
var þvi aðeins ein leið fær að sinni, — sú að staðfesta
hækkunina alla. Sú ákvörðun jafngildir 3,9% hækk-
un á visitölu framfærslukostnaðar. Tillögum Al-
þýðuflokksins um að synja alveg um nokkra hækk-
un var hafnað bæði af Alþýðubandalagi og Fram-
sóknarflokki, enda hefði það skapað tilfinnanlegt
vandamál fyrir bændastéttina til viðbótar við þann
vanda sem þar er fyrir vegna lélegs árferðis og
verðjöfnunargjalds.
• Hækkunin nú mun vafalaust hafa i för með sér
samdrátt i sölu landbúnaðarafurða og sérfræðingar
telja að sá samdráttur muni nema 8-10% á innan-
landsmarkaði. Það mun enn auka vanda bænda um
3-4 miljarða króna, sem annað hvort yrði bætt með
auknum útflutningsbótum eða með beinni kjara-
skerðingu.
• Mig undrar mest það skilningsleysi sumra for-
ystumanna bændasamtakanna á þessu augljósa
samhengi hlutanna, en málinu er ekki lokið.
• tferðlagning landbúnaðarafurða kemur til kasta
alþingis. Núverandi verðlagningarkerfi er óhafandi
með öllu og i staðinn þurfa að koma beinir samning-
ar með aðild allra þeirra er málið snertir, þar á
meðal sérstakra fulltrúa neytenda. Jafnframt stað-
festingu nýja verðsins i rikisstjórn var samþykkt að
gerð yrði sérstök athugun á verðákvörðun þessari i
tengslum við niðurgreiðslur og útflutningsuppbætur
og heildaraðgerðir i efnahagsmálum.
• Vonandi liggur það að baki þessarar samþykktar
að menn séu nú reiðubúnir til að breyta verðlagn-
ingarkerfi landbúnaðarafurða”, sagði Svavar
Gestsson. -
• Af þessu er ljóst að ráðherrar Alþýðubandalags-
ins reyndu að koma i veg fyrir þá hækkunaröldu
sem fylgir hækkun búvöruverðsins nú. Þvi miður
var þessari miðlunartillögu hafnað af ráðherrum
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Slik neitun
sýnir skort á framsýni og ábyrgð i baráttunni gegn
verðbólgunni. Sök þeirra er mikil.
Betrum bæt
Kollegar klipparans, stan
■ andi á rikisútvarpinu, urðu súr-
I ir og reiðir þegar þeir höföu les-
\ ið Klippiö i gær. Sögðu að það
I væri ekki sæmandi sósialista að
■ ráðast að rikisstofnun og taka
I þannig undir söng frjálshyggju-
■ manna og rikisrekstrarfjenda
■ um ómögulegheit þess rikis-
■ rekna.
Þaö er dulitið til i þessu.
Þó er það nú svo, að frjáls-
■ hyggjumennirnir hafa komið
| sér fyrir hjá rikisútvarpinu og
■ sitja þar i ýmsum stólum og
I stöðum og trúlega það leiöar-
m ljósið ekki langt undan þeim, að
■ illt skuli það allt vera sem frá
* rikinu sé komið. Þær starfsregl-
í ur, sem þessir yfirmenn kollega
I klipparans, fréttamannanna,
■ setja þeim, eru þess lags, að
I klippari getur viðstööulaust viö-
■ urkennt að þeir eigi mikla sök á
| þeirri eymdarfréttamennsku,
1 sem einkennir rikisfjölmiðlana
m um of; þeim er ekki ætlað, þeim
I er ekki leyft, og þess vegna
J gera þeir litið sem ekkert að
| eigin frumkvæöi; þess vegna
m leita þeir sjaldnast að ástæðu
1 fyrir fréttum, aö fréttinni að
2 baki fréttarinnar.
Þetta er ef til vill litið betri
■ einkunn en gefin var hér i Klipp-
1 inu i gær, en ýtarlegri. Að nefna
m nöfn þeirra sem i eymdinni
■ hima niður við Skúlagötu og inni
" á Laugavegi til þess að skilja
2 hafrana frá sauðunum verður
I ekki gert hér; það veit ég að
* þeir skilja kollegar minir, sem i
| vinnutima og fristundum skrifa
■ nafnlausar slúðurgreinar fyrir
■ siödegisblöö og helgarpósta. En
“ láti útvarpsráð verða af hljóð-
■ látri könnun likri þeirri sem hér
1 var tæpt á i gær, sortérast
2 hafrarnir sjálfkrafa frá og ætt-
| arböndin skýrast.
■ Hitt er hægt aö fallast á, að
I söngur frjálshyggjumannanna
B um ómögulegheit rikisútvarps
■ vegna þess eins er órökstuddur
* og ósannur; ástæðan er sú aö i
Z embættum hjá útvarpi-sjón-
I varpi sitja frjálshyggjumenn-
■ irnir syngjandi sönginn þann
I sem þeir ætla að eyðileggja
■ megi rikisútvarpið eins og ann-
■ að þaö, sem i rikiseign er.
i Kona í
i mannsstað
Strax i gær varð ljós ástæöan
I fyrir þvi, að Jón Baldvin valdi
■ sér ekki að vinna að eyðilegg-
| ingu rikisútvarpsins með þvi aö
■ fá sér vinnu þar hjá félögum
■ sinum i frjálshyggjukórnum;
* konan hans hafði nefnilega sótt
" um vinnu hjá stofnuninni og þaö
1 hefði getaö verið óþægilegt fyrir
■ máginn hans Jóns að greiöa
| þeim hjónum atkvæði sitt báö-
■ um i senn. En sjá!
Bryndis Schram, eiginkona
2 Jóns Baldvins, var að sjálf-
■ sögöu ráöin til útvarps-sjón-
I varps, og með atkvæöi bróður
■ sins, útvarpsráðsmannsins Ell-
| erts Schram, alþingismanns,
■ frjálshyggjusöngvara og ,,tog-
I arajaxls.”
■ Þau eru flókin islensku ættar-
| böndin!
I Sljóleikinn
Og meðan við erum enn við-
■ loðandi „rikisfyrirtækin” væri
■ ekki úr vegi aö benda á nokkrar
J alvarlegar hliöar á hinu annars
■ stórskemmtilega uppátæki
I Seðlabankans að gefa út spari-
■ sklrteini fyrir rikissjóö meö
| undirskrift Matthiasar Á.
■ Mathiesen.
R..
Fyrir rúmu ári var Matthias
þessi leystur frá ráöherradómi.
Það fór ekkert sérlega leynt.
Það hefur meira að segja veriö
skýrt frá því bæði i útvarpi og
sjónvarpi. Samt höföu þeir ekki
fengiö fregnir af þessu ennþá
mennirnir i Seðlabankanum.
Ætli þetta flokkist undir sljó-
leika? Eða héldu þeir þegar þeir
sendu bréfin i prentun, að
Matthias yrði snúinn aftur i ráð-
herrastól þegar þau kæmu úr
prentun?
Eöa það sem verst er nú fyrir
rikisstjórnarstefnuna — hefur
fjármálastjórn rikisins ekki
breyst um nokkurra þá agnar-
ögn að starfsmenn helsta fjár-
málastjórnunartækis landsins,
Seölabankans, hafi þess vegna i
góðri og einlægri trú haldið að
Matthias sæti enn sem fastast?
Ja, ljótt er það, Tómas minn
góður!
Glaðir
vinnukaupendur
Þeir eru kátir mennirnir hjá
Vinnuveitendasambandi ís-
lands þessa dagana. Málgagnið
Bróðirinn
þeirra, Morgunblaðið, gat held-
ur ekki hamið þessa gleöi sina I
gær aö afloknu verkfallsskip-
broti Grafiska sveinafélagsins.
Það hlýtur aö vera vérulegt á-
hyggjuefni innan verkalýös-
hreyfingarinnar þessa dagana
hvernig einstök félög launa-
manna, — sumra að visu býsna
vel launaðra — hafa gengið und-
ir atvinnurekendasambandið I
vor og sumar og fengið þeim
vopn I hendur. Vanhugsaðar
verkfallsaðgerðir, upphlaup fá-
mennra starfshópa, sem ekki
geta talist á vonarvöl, undir
kjörorðunum „hver fyrir sig”,
hljóta að verða til þess eins að
slæva vopn verkalýðshreyfing-
arinnar, en brýna vopnin hjá
fjendum hennar þess i stað.
Verði hér ekki rönd við reist á
allra næstu vikum eða mánuö-
um, getur islenskur verkalýður
búið sig undir þrengri tima en
nokkru sinni, þvi vinnubrögðin
siðustu vikur og mánuði munu
verða til þess að söngur auð-
valdsins og frjálshyggjunnar
um „sterka manninn” i stjórn-
arsess mun frá kröftugri undir-
tektir og betri hljómgrunn en
menn gæti órað fyrir.
Tvístolið
Helgarpósturinn kom út i gær
meö stolna frétt úr verkfallsút-
gáfu Þjóðviljamanna, Notuðu
og nýju, sem frá var skýrt i
Klippinu I gær. Viö klippum það
út og telst það ekki þjófnaöur,
heldur heimfærsla.
Barn ársins
Þannig hljóðaði það nú:
Guðrún Heigadóttir borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins og
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir.borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins hafa
löngum eldað grátt silfur sam-
an, svo sem varla hefur farið
fram hjá neinum. Nú er sagt að
Guðrún Helgadóttir hafi lagt
það til að Sjöfn verði kjörin
„barn ársins”. Alltaf batnar
það!....
Lúðvík Barði
Kjartan
Loks er hér ein frétt úr Dag-
blaðinu:
Noröfiröingar telja sér mikla
þörf að festa kaup á nýjum skut-
togara. Ætla þeir jafnframt að
selja nótaveiðiskipið Barðann.
Kjartan Jóhannsson sjávarút-
vegsráöherra hefur þó veriðj,
tregur til og neitar algjörlega að
veita Noröfirðingum heimild til
togarakaupanna.
Þeir hafa brugðist illa við
þessu uppátæki Kjartans og eru
alls ekkert á þvi að hætta við.
Sögur aö austan herma aö Norð
firðingar hafi að sjálfsögðu leit-
aö ásjár hjá þingmanni sinum,
Lúðvik Jósefpssyni.Vill hann allt
gera til að togarinn komi sveit-
ungum slnum til halds og
trausts, hvað sem ráðherrann
úr Hafnarfirði segir.
Búið er að velja nafn á nýja
skuttogarann. A hann að sögn
að bera nafn Baröans, sem seld-
ur verður og auk þess nöfn
þeirra Lúðviks og Kjartans.
Veröur það þá Lúðvik Barði
Kjartan?
— úþ.