Þjóðviljinn - 15.09.1979, Side 7

Þjóðviljinn - 15.09.1979, Side 7
Laugardagur 15. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 um helgina Keramík Sveppir og háskóía- pólitík A morgun og á miövikudag heidurMorten Lange (1919), fyrr- verandi rektor llafnarháskóla, fyrirlestra i Norræna húsinu. Hann er fæddur i Odense og tók þar stúdentspróf, árið 1945 varb hann cand. mag. og 1952 dr. phil. frá Hafnarháskóla. Hann varö prófessor i grasafræði við sama skóla 1958 og sfðar rektor fram til 1979, mikill eldhugi i starfi. Mort- en Lange er mikils virtur og vel þekktur sveppafræðingur og hef- ur gefið út fjölda rita á þvl sviöi, bæði vísindaleg og fyrir almcnn- ing. Auk starfa sins við háskólann hefur hann tekið virkan þátt I dönsku stjórnmálalifi. Hann stóð að stofnun Socialistisk Folkepar- ti, og sat i miðstjórn og fram- kvæmdastjórn þess flokks I mörg ár. Varð þingmaður 1960, en lét af stjórnmálaafskiptum er hann varð rektor háskólans. A fyrirlestrunum i Norræna húsinu mun Morten Lange fjalla um tvö gjörólik efni, sem hann er fróðari um en flestir. Sunnudag- inn 16. september kl. 16:00 talar hann um sveppi, en miðvikudag- inn 19. sept. kl. 20:30.um háskóla- pólitik vorra tima. Steinnunn Þórarinsdóttir. Sýningu Steinunnar aö ljúka A sunnudag lýkur sýningu Steinunnar Þórarinsdóttur i Galleri Suðurgötu 7. Sýning- in verður opin frá kl. 2—10 alla helgina. Nýjar kirkju- klukkur A morgun, sunnudaginn 16. september, verða nýjar kirkju- klukkur teknar i notkun i Háteigs- kirkju við messu, er hefst kl. 11 árdegis. Verður þá flutt ávarp á- samt viöeigandi athöfn og söng. Siðan verður klukkunum sam- hringt. Kirkjuklukkurnar eru fjórar og voru þær steyptar af klukkugerð- armönnum Koninklijke Eijsbout i Asten á Hollandi, sem steypt hafa klukkur fyrir kirkjur viða um heim. Hérlendis eru klukkur Hallgrimskirkju i Reykjavik og Kristskirkju i Landakoti frá þess- ari klukkugerð. að Kjarvalsstööum Haustsýning FIM 1979 verður opnuð að Kjarvalsstöðum I dag. Þar eru sýnd 133 myndverk eftir 45 höfunda, þaraf eru 81 verk eftir 26 félaga i FIM, en 18 menn utan félags sýna 54 verk. Orn Þorsteinsson, formaður sýningarnefndar, sagði aö nefnd- inni hefðu borist 258 verk eftir 54 höfunda. Samkvæmt reglunum eiga félagsmenn sem senda verk á sýninguna rétt á þvi að a.m.k. eitt þeirra sé sett upp, en utanfé- lagsmenn eru alveg upp á náö nefndarinnar komnir. — Við erum ekki alveg nógu ánægð með þátttöku félags- manna, — sagði Orn, — og okkur finnst sýningin ekki gefa alveg nógu góöa heildarmynd af þvi sem er að gerast i myndlistinni hér.T.d. söknum viCkonseptlistar innar svonefndu. Að öðru leyti er- um við vissulega ánægð með sýn- inguna. — Annars hefur komið til tals að breyta þvi formi sem verið hefur á þessum haustsýningum frá upphafi. Þetta form hefur litið breyst i 20-30 ár. Upphaflega markmiðið var annarsvegar að gefa glögga mynd af þvi sem fé - lagar voru að vinna að hverju sinni og hinsvegar að gefa utan- félagsmönnum kost á að vera með. Nú finnst okkur i sýningar- nefndinni timi til kominn að breyta þessu formi, en hvernig það verður er ekki timabært að tala um ennþá, máliö er á um- ræðustigi. — Er annars eitthvað nýtt að frétta af FIM? — Já, nú erum við að koma á fót styrktarmannakerfi. Við höfum aldrei reynt þetta áður, en fjárhagur féiagsins er i þannig ástandi núna að okkur finnst vert að reyna þetta. Ahugamönnum um myndlist er semsé boðið að gerast styrktarfélagar FIM og munu nöfn þeirra verða birt i sýn- ingarskrá haustsýningar fram- Framhald á 14. siðu á munum eftir listamennina Guðnýju Magnúsdóttur, Sigrúnu Guðjónsdóttur og Gest Þorgrimsson. Sýning á leirmunum eftir þessa listamenn verður opnuð kl. 10 laugardaginn 15. sept. i húsnæði verslunarinnar Epal, Siðumúla 20, Reykjavik. Sýningin verður opin frá kl. 10-18 alla virka daga nema þriðjudaga og föstudaga frá kl. 10-22 næstu þrjár vikur. Auglýsið í Þjóðviljanum CpCll hf. | Síðumúla 20 — 105 Reykjavik — simi 91-36677 Sýning Nokkrir úr sýninganefnd FtM stilltu sér upp fyrir Leif Ijósmyndara. Taliö f.v.: Gunnar örn Gunnars- son, Jónina Guðnadóttir, örn Þorsteinsson, Gunnlaugur Stefán Gislason, Hringur Jóhannesson, Guð- bergur Auðunsson og Magnds Kjartansson. Haustsýning FÍM t dag kl. 10 árdegis verður opn- uð sýning á leirmunum eftir Guð- nýju Magnúsdóttur, Sigrúnu Guð- jónsdóttur og Gest Þorgrimsson i húsnæði versiunarinnar Epal, Siðumúla 20 i Reykjavik. Sýningin verður opin frá kl. 10 til 18 alla virka daga nema þriðju- daga og föstudaga frá 10—22 næstu þrjár vikur. Epal verslar með sérhannaðan húsbúnað af margvislegu tagi, og er sýningin haldin i tilefni þess að tvö ár eru nú liðin frá þvi að verslunin tók til starfa. Ætlunin er að listsýningar af ýmsu tagi verði i framtiðinni fastur liður i starfsemi Epal. — ih. Þau voru að hengja upp myndir sinar i Norræna húsinu þegar Leif ljósmyndara bar það ar. Fremri röð frá vinstri: Ragnheiður, Edda og Sigrid. Aftari röð f.v.: Valgerður, Jónina, Ingunn, Richard og Þórður. Afmælissýning í Norræna húsinu 1 dag opnar félagið tslensk grafik afmælissýningu i Norræna húsinu, en félagið er tiu ára um þessar mundir. Samskonar sýn- ing hefur verið sett upp i Norræna myndlistasetrinu I Sveaborg, skammt fyrir utan Helsinki I Finnlandi. Norræna félagið hefur verið tslenskri grafik innan hand- ar við dreifingu sýningarinnar á Noröurlöndum, og er ætlunin aö setja hana upp i 12 borgum á öll- um Norðurlöndum. Hringferðinni lýkur i Danmörku I lok ársins 1980. A sýningunni eru 112 grafik- myndir eftir 17 listamenn. Þeir eru: Björg Þorsteinsdóttir, Edda Jónsdóttir, Ingiberg Magnússon, Ingunn Eydal, Jenný E. Guö- mundsdóttir, Jóhanna Bogadótt- ir, Jónina Lára Einarsdóttir, Jón Reykdal, Kjartan Guðjónsson, Lisa K. Guðjónsdóttir, Ragnheið- ur Jónsdóttir, Richard Valtingoj- er, Sigrid Valtingojer, Sigrún Eldjárn, Valgerður Bergsdóttir, Vignir Jóhannsson og Þóröur Hall. Gefin hefur verið út vegleg sýn- ingarskrá á þremur Norður- landamálum, og mun hún fylgja Framhald á 14. siðu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.