Þjóðviljinn - 15.09.1979, Page 11
Laugardagur 15. september 1979 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir ^ íþróttir @ íþróttir
J ■ Umsjón: Ingólfur Hannesson ^ -»
Vinnubrögð
vekja furðu
landsliðsnefndar
Áhorfendum sem fylgst hafa með leikjum íslenska
landsliðsins í sumar dylst vart að við erum á leið i
mikinn öldudal og höfum dregist nokkuð afturúr. Sá
timi sem Youri llitchev og landsliðsnefnd hans hafa
verið með liðið er ein allsherjar sorgarsaga/ og bera
úrslit leikjanna því glöggt vitni. Annað mál er að tvi-
skinnungsháttur og mótsagnir þeirra manna, sem
ferðinni ráða# er með ólíkindum, og verður fjallað
nokkuð um þá hlið málsins hér á eftir.
Hringlandaháttur
með leikkerfi
Hringlandaháttur þjálfarans
meö leikkerfi er furöulegur.
Liðiö lék 4:4:2 gegn Sviss i vor
og aftur hér heima gegn Vestur-
Þjóðverjum 26. mai. Reyndar
var það nú þannig i þeim leik aö
strákarnir vissu vart sjálfir
hvaða hlutverk þeim var ætlað
á vellinum, t.a.m. átti
Guömundur Þorbjörnsson að
vera miðherji i'lok leiksins, en
hann hélt áfram að leika á miðj-
unni. Einnig var stórfuröulegt
aö sjá 4 „typiska" miðverði
inná undir lok leiksins. Hvað
um það, þá var skipt yfir i 4:3:3
i leiknum gegn Sviss hér heima.
Landsliöiö sem lék gegn Hoilendingum fyrir skömmu.
Sá kunni kappi, Skúli
Öskarsson, hefur lofaöj
landslýö heimsmeti áöur
en áriö er úti. E.t.v,
stendur hann viö stóru
orðin um helgina.
Helmsmet í
Eftir þann leik sagði landsliðs-
þjálfarinn: ,,Við reyndum að
leika 4:3:3, en að minu áliti er
islenska landsliðið ekki tilbúiö
að spila þá aöferð vegna þess að
það krefst ákaflega mikils að
hafa einungis 3 menn á miðj-
unni.” En voru allir á sama
máli? Jóhanns Eðvaldsson,
fyrirliði landsliðsins, sagöi:
„Við getum alveg leikið með 3
menn á miðjunni, eins og kom
berlega i ljós i fyrri hálfleiknum
þegar aö við pressuðum stift.”
Gegn Hollendingum var aftur
söðlað yfir og leikið 4:3:3, en þá
skeði það gegn Austur-Þjóð-
verjum að Ásgeir var látinn
leika þaö framarlega að hann er
i raun sem þriðji framherjinn og
þá erum við aftur komnir aö
4:3:3-kerfinu!!
Þreifingarnar meö leikkerfin
eru ekki eingöngu bundnar i
4:4:2 eða 4:3:3 kerfunum,
heldur hefur veriö hringlaö
fram og aftur með suma leik-
menn. Glöggt dæmi um þetta er
nú gegn Hollendingum þegar
Marteinn var látinn leika fyrir
framan miðverðina, sem svo-
kallaður „anker-man” og sást
vart i leiknum. Það er óskiljan-
legt hvað hefur gefið Youri til-
efni til þess að láta hann leika
þá stööu.
Föst leikatriði óæfð
Sinn litla undirbúningstima
viröist þjálfarinn ekki hafa not-
að til þess aö æfa föst leikatriði
s.s. hornspyrnur innköst og
aukaspyrnur, þvi framkvæmd
þeirra hefur veriö fumkennd
Þetta er ekki gert þrátt fyrir þá
staðreynd, að i könnun i
Englandi fyrir nokkrum árum
hafi veriö komist aö þeirri
niðurstööu að 40% allra marka
komi upp úr slikum föstum leik-
atriðum eða „set-plays”. Það
var þvi ekki að undra, að marg-
ir brostu i leiknum gegn A-Þjóö-
verjum þegar Guögeir var aö
taka innköst og aukaspyrnur og
Marteinn og Jóhannes brunuöu
upp. Þeir voru ekki alveg búnir
aö gleyma æfingunum hjá Tony
Knapp i gamla daga.
Sterkasta liðið og Teitur
Landsliösnefndarmenn hafa
margsinnis klifaö á þvi aö ætiö
eigi aö tefla fram sterkasta liö-
inu, sem völ sé á hverju sinni.
Þaö kom þvi mörgum spánskt
fyrir sjónir aö sjá Guðmund
Þorbjörnsson ekki i upphaflega
hópnum sem var tilkynntur
fyrir leikinn gegn A-Þjóöverj-
um. Ástæðan var vist sú að hann
gæti ekki farið með liöinu til
Póllands i næsta mánuði. Hvað
á svona lagað að þýða? Hefur
landsliðsnefndin gengið úr
skugga um að allir þeir sem
léku umræddan leik geti verið
með i Póllandi?
Þá er það fiflagangur lands-
liðsnefndarinnar i kringum Teit
Þórðarson. Fyrir leikinn
gegn Sviss úti var gefiö i skyn aö
hann félli ekki inn i leikaðferð
liösins og þvi væri hann ekki
meö. Nokkru siöar, eða gegn
Sviss hér heima, var hann allt i
einu fallinn inn i leikaðferðina.
Teitur datt siðan aftur út úr
myndinni fyrir leikinn gegn
Hollendingum, en viku siðar var
hann enn kominn inn i leikaö-
ferðina. Þá sagði Teitur hingaö
og ekki lengra, og lái honum
hver sem vill. Og á meðan eiga
sænsku blöðin vart til nógu stór
lýsingarorð til þess aö lýsa
hæfni Teits, mannsins sem
stundum er nógu góður fyrir
islenska landsliðiö.
Höfðu ekki séð hann leika
i nokkur ár
Hringlandahátturinn meö
leikmenn er öllu meiri en þetta,
þvi 25 — 30 leikmenn hafa verið
með i þeim leikjum sem af eru
þessu ári. Þorsteinn Bjarnason
er nógu góöur þegar keppnis-
timabil hans er aö byrja, en ekki
þegar það er að enda. Guðgeir
Leifsson er valinn i liðið án þess
að hafa leikið 90 min. leik i meir
en mánuð og enginn úr lands-
liösnefndinni hefur séð hann
leika i nokkur ár. Sigurlás Þor-
leifsson er tekinn framfyrir
Tómas Pálsson þegar Youri
segist þurfa „hard-worker” eða
vinnuhest i framlinuna. Viku
siðar er Tómas ekki nógu góður
til þess að sitja á varamanna-
bekknum og Pétur Ormslev
fenginn i hans stað. Svona mætti
lengi halda áfram.
Ýmsar ákvarðanir landsliös-
nefndar hafa verið mjög um-
deildar og er þaö ekki undar-
legt, þvi skoöanir manna á
knattspyrnu fara sjaldnast
alveg I sama farveginn. En á
greiningurinn hefur verið ó
venju mikill i sumar og ljóst að
einhvers staöar er brotalöm
sem veröur að lagfæra.
Veilan vinstra megin
I landsleiknum gegn Austur
Þjóðverjum, þegar Þjóöverj
arnir voru aö ryðjast i gegn um
islensku vörnina vinstra megin
hvað eftir annað, varð undirrit
uðum hugsað til ummæla Helga
Danielssonar eftir landsleikinn
gegn Svissurum úti i vor. Þau
voru þannig: „Það komu fram
vissar varnarveilur, sem má
segja að hafi orðið okkur a
falli i leiknum og einkanlega va
þetta slæmt vinstra megin.”
—IngH
Höllinni?
Um þessa helgi verður haldið Noröurlandamót I kraftlyftingum f
Laugardalshöllinni og hefst keppnin báöa dagana ki. 13. Fyrri daginn
verður keppt I þyngdarflokkunum 52, 56, 60, 67.5 og 75 kg. og seinni dag-
innf þyngdarflokkunum 82.5,90, 100,110 og 110kg. og þar yfir.
Léttur sigur KR
t landsliði fslands eru eftirtald-
ir keppendur: GIsli Valur Einarsson, KR
Daniel Olsen, KR
Kristján Kristjánsson, ÍBV
HörðurMarkan, A
Skúli óskarsson, UIA
Sverrir Hjaltason KR
Gunnar Steingrimsson, IBV
Hörður Magnússon, KR
óskarSigurpálsson, IBV
Jón Páll Sigmarsson, KR
Keppendur frá Noregi, Sviþjóð
og Finnlandi koma til mótsins. I
þeim hópi eru 5 núverandi Ev-
rópumeistarar og tveir heims-
methafar. Evrópumeistararnir
eru Yrjö Haatanen, Fi., Unto
Honkonen, Fi., Ray Yvander, Sv.,
Hannu Saarelainen, Fi. og Lars
Backlund, Sviþjóð, en hann mun
keppa i sama flokki og Skúli Osk-
arsson.
Heimsmethafarnir eru Raimo
Valineva, sem á heimsmet í rétt-
stöðulyftu i 67,5 kg. fl. 287,5 kg. og
Lars Hedlund, Sviþjóð, sem kepp-
ir í þyngsta flokki og hefur press-
að mest manna I heiminum i
bekkpressu 278 kg.
Sérstakur gestur L.S.t á mótinu
er forseti Alþjóöasambands
kraftlyftingamanna, Englend-
ingurinn Vic Mercer. Hann mun á
föstudagskvöldið standa fyrir
dómaraprófi, sem gefur alþjóöleg
réttindi', en einungis einn tslend-
ingur hefur þau nú, Ölafur Sigur-
geirsson.
Bikarmeistarar Fram uröu lif-
legum KR-ingum auöveld bráö
þegar liöin mættust i gærkvöldi.
Meö sigrinum hefur KR skotist i
efsta sæti deildarinnar, en hætt er
viö að það veröi skammgóður
vermir þvi 4 leikir fara fram um
helgina.
Leikurinn i gærkvöldi var nokk-
uö jafn framanaf, en brátt náöi
KR undirtökunum, sem þeir
slepptu ekki. A 26. min. skoraði
Jón Oddsson mark, sem var
dæmt ólöglegt af einhverjum ó-
skiljanlegum orsökum. Jón undi
þvi illa og á 37. min. skoraöi hann
löglegt mark af stuttu færi.
I seinni hálfleiknum áttu Vest-
urbæingarnir oft laglegar sóknar-
rispur og úr einni slikri skoraði
Jón Oddsson sitt annaö mark eftir
aö hafa fengiö stungusendingu frá
Eliasi, 2-0.
I liði Fram stóö enginn uppúr
meðalmennskunni, en segja má
bað þeim til vorkunnar að þeir
höföu aö litlu aö keppa.
Stefán, Sæbjörn, Ottó, Elias og
Jón voru friskastir i annars jöfnu
liði KR.
1 lokin má geta þess aö tslend-
KNATTSPYRNA
Orslitin i 1. deildarkeppninni
ráðast um þessa helgi þegar
leikin verður 18. og siðasta um-
ferö íslandsmótsins.
I dag kl. 14 leikur efsta liðiö,
IBV, gegn Vikingum á laugar-
dalsvelli og kl. 16 leika IBK og
Haukar i Keflavik. A morgun,
sunnudag leiða saman hesta sina
ingar sigruðu Færeyinga i ung-
lingalandsleik i gær meö 3 mörk-
um gegn 1. Fyrir Færeyjar skor-
aði Birgir Sondrum, en fyrir ts-
land skoruöu Ragnar Margeirs-
son, Sigurður Grétarsson og Lár-
us Guðmundsson.
á Laugardalsvelli Þróttur og ÍA
og á sama tima keppa Valsmenn
viö KA noröur á Akureyri.
LYFTINGAR
Noröurlandameistaramót i
kraftlyftingum veröur I Höllinni i
dag og á morgun, og er allt eins
liklegt aö nýtt heimsmet liti þar
dagsins ljós (sjá nánar hér á sið-
unni).
— IngH.
íþróttir um helgina