Þjóðviljinn - 24.10.1979, Page 5

Þjóðviljinn - 24.10.1979, Page 5
Miövikudagur 24. október 1979 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5 Vaclav Havel. Krafist þyngstu dóma í Prag Prag (Reuter) Ákæruvaldiö krafðist þungra dóma yfir þrem af sex tékknesk- umandófsmönnum, sem réttað var yfir í gær, og ákærðir eru um undirróöursstarfsemi, segja áreiðanlegar heimildir I Prag. Krafist var þyngstu dóma yfir VaclavHavei, leikritahöfundi, Petr Uhl, verkfræðingi, og Vaclav Benda, tölvufræðingi. Munu þeir sitja sex og hálft ár i fangelsi, ef dómstóllinn fellst á röksemdir ákærandans. Þá kraföist ákærandinn eitthvað vægari dóma yfir blaðamönnunum Jiri Dienstbier og Otata Bednarova, og tveggja ára skilorðsbundins dóms yfir Dönu Nemcova sál- fræðingi, sem er sjö barna móðir. Kynning ákærandans á sönn- unargögnum var stuttaraleg, hann lagði einungis fram lista yfir ritverk sem höfðu veriö gerð upptæk, án þess að skýra frá þvi hversvegna þar væri um undir- róður að ræða. öllum spurningum hinna ákærðu og lögfræöinga þeirra var visað frá af dómurun- um þrem, og ekki leyft að færa þær i dómsskjöl. Ósk um aö kall- aður yrði til vitnis Ladislav Lis, sem verið hefur í haldi án dóms- úrskuröar frá mal s.l., var einnig vlsað frá. Sexmenningarnir eru allir meðlimir Varnarnefndar þeirra sem sætt hafa óréttmætum ákær- um (VONS), og segir I ákæru- skjalinu að yfirlýsingar nefndar- innar hafi verið notaðar af fjöl- miðlum erlendis til að rægja Lýðveldið Tékkóslóvaklu og stofnanir þar. Þá er sagt að fjöl- miðlaherferðin hafi lotið stjórn og verið fjármögnuð af Bandarlsku leyniþjónustunni (CIA). Ekkert hefur frést af 25 stuön- ingsmönnum sexmenninganna, sem voru handteknir fyrir utan dómshúsið s.l. mánudag og fluttir á brott á lögreglubílum. DÖNSKU ÞINGKOSNINGARNAR í GÆR: VINSTRI SIGUR Mikið tap kommúnista og Glistrups Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara Þjóðviljans I Kaupmannahöfn i gærkvöldi. Tölvuspár, sem byggjast á fyrstu tölum úr dönsku þingkosn- ingunum, sem fram fóru i gær, gefa til kynna að sósialdemókrat- ar haldi stöðu sinni, sósialísku flokkarnir og Radikale venstre vinni á en hægri flokkarnir tapi. Nánar tiltekið hefur Sósialiski þjóðarflokkurinn tvöfaldað fylgi sitt, Ihaldsflokkurinn bætt við sig 50% en Radikele venstre og Vinstri sósialistar aukið fylgi sitt um þriðjung. Miðdemókratar og kommúnist- ------------------------>- Anker Jörgensen áfram við stjórnvölinn. ar tapa nær helmingi fylgis sins og Framfaraflokkur Glistrups tapar einnig miklu. Breytingar á fylgi annarra flokka eru minni. Þessar tölur benda til þess aö sósialdemókratar muni veita næstu rikisstjórn forystu. Skoðanakönnun Gallups I gær benti einnig til, ai fólk vilji fá rikisstjórn undir forystu Anker Jörgensens. Samkvæmt fyrstu spám auka sósialdemókratar og sósiallsku flokkarnir samanlagt fylgi sitt úr 46.9% irúm 50%. BRETLAND: íhaldsstjórnin afnemur eftirlit með gjaldeyri Vélrœöi viö launafólk segja stjórnarandstœöingar Breska íhaldsstjórnin nam í gær úr gildi allt gjaldeyriseftirlit/ þ.á m. þær takmarkanir á fjár- festingum erlendis sem verið hafa í gildi i Bret- landi nær 40 ár. Rikisstjórn Margrétar Thatcher segir þessar ráðstafan- ir vera hluta af stefnu hennar i átt til frjáls framtaks og afnáms allra hafta. Breski fjármálaráðherrann, Sir Geoffrey Howe, nefndi þetta sögulega ákvörðun. Hann sagði fyrirbreska þinginu: ,,Frá morg- undeginum mun rikja algjört frelsi til að kaupa, eiga og nota erlenda gjaldmiðla i hverskonar skyni. Ferðagjaldeyrir, lán til út- lendinga, kaup á fasteignum og fjárfestingar verða engum tak- mörkunum háð.” Sir Geoffrey sagði aö meö þessu móti sinnti Bretland þeirri kvöð sem fylgdi aðild að Efnahags- bandalaginu, um að leyfa frjálsan flutning fjármagns milli landa. Fyrstu meiriháttar afleiðingar þessara ráðstafana ihaldsstjórn- arinnar sáust á gjaldeyrismörk- uðum I Vestur-Evrópu, þegar sterlingspundið féll snögglega i verði. Breskar útflutningsvörur verða af þeim sökum ódýrari en áöur. Denis Healey, sem var fjár- málaráðherra i sfðustu rikis- stjórn Verkamannaflokksins, gagnrýndi þessa ákvörðun i- haldsstjórnarinnar harðlega. Hann sagði að þetta væri óprúttin og kreddukennd ákvörðun, sem mundi veikja stöðu bresks iðnað- ar, valda auknu atvinnuleysi og gjaldþrotum fyrirtækja. Þingmaður Verkamanna- flokksins, Bob Cryer, sagði að einkaframtakið myndi „ausa peningum i fjárfestingar erlend- is” I staö þess að fjárfesta I inn lendum iðnaði. „Þetta eru vélræði við launafólk”, sagði Bob Cryer. Á TÍMUM OLÍUSKORTS: Stóraukinn olíugróði Pittsburgh, Pennsylvaniu (Reuter) Þrjú meiriháttar oliufyrirtæki i Bandarikjunum tilkynntu i gær, að gróði þeirra hefði stóraukist á siðustu mánuðum. Stærsti olluauöhringur heims- ins, Exxon Corporation, skýrði frá þvi, að undanfarna þrjá mán- uði hefði orðið metgróði. Upphæðin nemur 1.5 miljarði dollara eða 575 miljörðum Isl. króna. Til samanburðar má geta þess að gróðinn hjá Exxon á þrem mánuðum jafngildir rúmlega tvö- faldri upphæð fjárlaga islenska rikisins á þessu ári. Oliufyrirtækin Gulf Oil og Conoco segja að á undanförnum þrem mánuðum hafi gróðinn ver- ið tvöfaldur miðað við sama timabil á siðasta ári. 011 fyrirtækin rekja hinn aukna gróða til umsvifa utan Bandarikj- anna. vakt viö Mývatn Eins og skýrt var frá I Þjóð- viljanum fyrir skömmu er nú á hverri stundu búist við umbrotum á Kröflusvæðinu í Mývatnssveit. Siðan i mai, að siðasta hrina gekk yfir á svæðinu og land seig um 80 sm. hefur landris verið stöðugt og er nú komið upp fyrir það sem var i mai. Jarðvisindamaður hefur verið settur á skjálftavakt I Mývatns- sveit, almannavörnum þar til halds og trausts, enda er búist við nýrri hrinu á hverri stundu. Karl Grönvold jarðfræðingur er á skjálftavaktinni nú og sagði hann i gær að land hefði risiö upp fyrir það sem var I mai sl. og að i fyrradag hefði skjálftatiðni nokk- uð aukist en róast fljótt aftur. Ekki sagði Karl nein merki þess að til alvarlegra tiðinda drægi al- veg á næstunni, en engin leið væri samt að spá með vissu fyrir um hvenær til tiðinda drægi. _ s.dór. Moshe Moshe Dayan var i gær formlega veitt lausn sem ut- anrikisráðherra tsraei. Hann baðst lausnar s.l. sunnudag, vegna þess að hann sættir sig ekki við afstöðu israelsku rlk- isstjórnarinnar i samninga- viðræðunum við Egyptaland og Bandarfkin, um sjálfstætt palestinskt riki á vesturbakka Jórdan og á Gaza-svæöunu. „Sjálfstœði” 1 friöarsamningunum milli Israela og Egypta er ákvæði um „fullt sjáífræði” til handa Ibúunum á vesturbakka Jór- dan og Gaza-svæðinu. Skil- greiningin er afar óljós, og jafnframt er veigamiklum at- riðum sleppt. Þar er ekkert sagt um að Israel skuli flytja herafla sinn á brott af þessum svæðum. Og þar kemur ekki fram um að stjórn þessara svæða, sem Arabar búsetja. FRÉTTA- SKÝRING Dayan skuli vera I höndum Araba. Af þessum sökum er heldur ekkert um það I friðarsamn- ingunum, hverskonar arabisk stjórn taki við völdum á þess- um svæðum. Þar gæti komiö til palestinsk stjórn á vegum palestinsku baráttusamtak- anna PLO, eða t.d. jórdönsk stjórn, en vesturbakkinn var áður hluti af Jórdan-riki. Hægt haföi verið að gefa PLO kost á að taka þátt i viö- ræðunum um sjálfræði áður- nefndra svæða, eða ef Israel heföi þvertekiö fyrir slikt, þá hefði mátt stefna aö palest- inskri stjórn (án þátttöku PLO) eða jafnvel jórdanskri stjórn. Ekkert af þessu hefur komiö til greina vegna for- stokkaörar afstööu israelsku rikisstjórnarinnar, sem Day- an mótmælti meö þvi aö biöj- ast lausnar. Afstaða Begin- stjórnarinnar Viöræöur Israel, Egypta- lands og Bandarikjanna um framtiö stjórnarfyrirkomu- lags á vesturbakkanum og hættir Gaza-svæöinu, hafa staöið I stað undanfarna sex mánuöi. Rikisstjórn Menachen Begins forsætisráöherra Israel hefur nefnilega fylgt þeirri linu, að veita ibúum þessara svæöa eins takmarkað sjálfræöi og frekast er unnt. Begin útnefndi fulltrúa Isra- el i þessum samningaviðræö- um Josef Burg, innanrikisráö- herra, en hann er algjörlega andvlgur palestinskri sjálf- stjórn á þessum svæöum. Flokkur Burgs, Þjóölegi trú- arflokkurinn, krefst þvert á móti að stofnsett verði isra- elsk byggðarlög á vesturbakk- anum og Gaza-svæöinu, sem augljóslega kæmi i veg fyrir sjálfstæöi þessara landsvæöa. Fyrir viku virtist Dayan hafa unniö afstööu sinni fram- gang, þegar Israelska rikis- stjórnin féll frá áformum um aö leyfa lsraelum aö taka eignarnámi jarðir I einkaeigu palestinskra ibúa svæðanna tveggja. Rikisstjórnin féllst á aö „láta nægja” aö veita ísra- elum leyfi til aö nytja jaröir i eigu rikisins. Þarna var þó aö- eins um oröaleik aö ræöa, vegna þess aö fæstir þeirra sem yrkja jöröina á þessum svæöum, hafa i höndum papp- Ira um eignarrétt sinn. Skort- ur á slikum pappirum er regl- an i löndum þriöja heimsins. Dayan er þvi ekki svo mjög andvlgur eignarnámi tsraela á þessum svæöum, enda vart viö aö búast af þeim manni sem stóö fyrir útþenslu isra- elska rikisins 1967. Hinsvegar vildi Dayan ekki sætta sig viö harölinustefnu Begin-stjórn- arinnar i viöræöunum um stjórnarfyrirkomulag vestur- bakkans og Gaza-svæöisins. Ovíst um framhaldið Utanrlkisráðherra Egypta, Boutros Ghali, sagði s.l. sunnudag, að afsögn Dayans væri sönnun þess, aö afstaöa Israelsku rikisstjórnarinnar stæði i vegi fyrir friði i Mið - austurlöndum. „Afstaða isra- elsku rikisstjórnarinnar til palestinskrar sjálfstjórnar mætir einnig andstööu innan- lands”, sagöi Boutros Ghaii. Dayan telur Begin ekki hafa notfært sér hina einstæöu möguleika á þvi aö losna úr ei- lifu striösástandi gagnvart ná- grannarikjunum. Hinsvegar er allsendis óljóst hvaða þýö- ingu afsögn hans hefur bæöi varöandi sjálfstæöi vestur- bakkans og Gaza-svæðisins, Moshe Dayan brosir eftir aö hafa beðist lausnar. og einnig varðandi eignarhaid á landsvæðum þar. Astæður Dayans eru nefnilega allóljós- ar þegar allt kemur til alls. Þó bendir afsögnin til þess að friöarsamningarnir séu farnir aöhafaáhrif: Arabarik- in standa ekki lengur and spænis Israel sem sameinaðui óvinaher, og af þeim sökum hafa Israelskir ieiðtogar látiö af þeirri stefnu sinni aö standa saman hvað sem það kostar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.