Þjóðviljinn - 01.11.1979, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 1. nóvember 1979
Ingimar Eydal, Grétar og Rafn I Astró-trló.
Nýtt trió leikur á Hótel KEA
Fyrir skömmu hóf nýtt trió aö leika á Hótel KEA. Nefnist þaö
Astró-trió og er skipaö þeim Ingimar Eydal, Grétari Ingvarssyni
og Rafni Sveinssyni.
Astró-trfóiö leikur fyrir dansi á laugardagskvöldum og einka-
samkvæmum sem haldin eru i salarkynnum Hótel KEA og hefur
á skömmum tima náö ágætum vinsældum.
A laugardagskvöldum, milli kl. 7 og 9, leikur Ingimar Eydal
einn fyrir matargesti á Hótel Kea á nýtt og mjög fullkomiö hljóö-
færi, rafmangsorgel, sem hljómaö getur eins og heil hljómsveit
og likt eftir ýmsum ólikum hljóöfærum.
Hvað er svo glatt einu sinni enn
Söngskemmtun Söngskólans i Reykjavik „Hvaö er svo
glatt”... hefur nú gegniö þrisvar sinnum fyrir fullu húsi og færri
komist aö en vildu. Hefur þvi veriö ákveöiö aö halda eina sýn-
ingu enn föstudagskvöldiö, 2. nóv. kl. 23.30.
Ummæli gesta viröast á einn veg: „FRABÆR KVÖLD-
STUND....”, ,,... dúndrandi fjör allan timann....”, „mikil
stemmning....”, „vel þess viröi aö koma i bæinn” sagöi einn sem
koma aö noröan. Annar fullyrti að þetta væri „SKEMMTUN
ALDARINNAR”.
Mikiö er um að hópar utan af landi og starfsmannahópar komi
og eru miöar teknir frá i slikum tilfellum, en miöasala hefst n.k.
fimmtudag (1. nóv.) kl. 16.00
Rifist um fjúpuna
ORATOR,félag laganema,gengst fyrir fundi um CTILIF OG
FUGLAVEIÐAR A AFRÉTTUM OG ALMENNINGUM.
Fundurinn verður haldinn I stofu 101 I Lögbergi, húsi lagadeildar
H.I., fimmtudaginn 1. nóvember kl. 20:30. öllum er heimill að-
gangur meöan húsrúm leyfir.
Frummælendur veröa: Prófessor Siguröur Lindal, Haukur
Brynjólfsson varaform. Skotfveiðifélagsins og borsteinn bor-
steinsson bóndi og formaöur Landssambands veiöiréttareig-
enda. Aö erindum frummælenda loknum veröa opnar umræöur
og fyrirspurnir. Allt áhugafólk um útilifsrétt er hvatt til að sækja
fundinn.
Bókauppboö á Akureyri
ÞRIÐJA BÓKAUPPBOÐ Jóhannesar Óla Sæmundssonar
fornbókasala verður I Hótel Varöborg laugardaginn 3. nóvember
n.k. og hefst kl. 15.30.
bar veröa á boöstólum um 150 rit og bækur. Nefna má: Arsrit
Fræðafélagsins, Bóndinn á heiöinni, Búalög, Búfræöingurinn,
Dvöl (seinni), Einvaldsklærnar i Hornafiröi, Fagurt er I Fjörö-
um, Forlagaspár Kirós, Fornar grafir og fræðimenn, Forordn-
ing um garöa- og þúfnasléttun (1776), Haraldur Björnsson 1915-
45, Heima og erlendis (Guðm. Magn.), Horfnir góöhestar, Iöunn
I-XX, Jónsbók hin forna (lögbókin), Kvæöi Jóns Thoroddsen
(1871), Laxamýrarættin, Minningar og Skoöanir Einars Jóns-
sonar, Jörö (seinni), Komandi ár I-VI, Kristrún i Hamravik,
Viöeyjar-Njála, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, Skútu-
staöaætt, Sagnir og þjóöhættir (O.O.), Sterkir stofnar, Yoga.
Simi uppboösins er (96) 23331.
Landssamband slökkviliðsmanna
Þing Landssambands slökkviliösmanna var nýlega haidiö I
Festi I Grindavlk og var þar rætt ma. um aukna fræöslu-, starfs-
réttindi, löggildingu á starfinu, launamál og geröar ályktanir
varöandi brunamái og öryggismál.
Eftirtaldir voru kosnir i stjórn Landssambandsins:
Guömundur Haraldsson form., Guömundur Jónsson varaform.,
Höskuldur Einarsson gjaldkeri, Jónas Marteinsson ritari, ölafur
Sigurðsson fjármálaritari og meöstjórnendur Agúst Magnússon
og borbjörn Sveinsson.
Meiri stöðugleiki í stjórmm NLFÍ
17. landsþing Náttúrulækningafélags tslands var haldiö á
Heilsuhælinu I Hverageröi nýlega og sátu það 38 fulltrúar frá
þremur aöildarfelögum.
Samþykktar voru lagabreytingar er miöa aö meiri stööugleika
i stjórnun félagsins og stofnana þess, og kosin ný stjórn. Hana
skipa: Jóhannes Gislason forseti, Einar Aöalsteinsson vara-
forseti, Höröur Friöþjófsson ritari, Oddgeir Ottesen gjaldkeri og
Svana H. Stefánsdóttir meöstjórnandi.
Varastjórn skipa: borvaldur Bjarnason, Unnur Dis Skapta-
dóttir og Hilmar Noröfjörö.
Fréttabréf Iðntœknistofnunar
Iöntæknistofnun tslands hefur nú hafiö útgáfu fréttabréfs ag er
þvi ætlaö aö flytja fréttir af starfsemi stofnunarinnar og mál-
efnum tengdum henni.
Að þvi er stefnt, aö fréttabréfiö komi út 10 sinnum á ári. For-
stööumaöur fræöslu- og upplýsingadeildar, Snorri Pétursson,
mun annast ritstjórn þess.
baö er von stjórnar og starfsliös aö þe'ssi nýbreytni mælist vel
fyrir og veröi til aö styrkja tengls þeirra fjölmörgu aöila viö
stofnunina, sem hún á aö öllu jöfnu samskipti viö.
—mhg
PRÓFKJÖRSFÁRIÐ:
Vilji fólksins
eða flokksins?
1 prófkjörsfárinu er mikiö af þvi
látiö aö útkoma prófkjöra sé lýö-
ræöislegasta skipan sem til sé á
framboðslistum, — þetta sé þaö
sem fólkið vill o.s.frv..baö er hins
vegar alls ekki sama hvernig
þessi prófkjör eru framkvæmd
eöa hvernig er unniö úr þeim,
hvaða reglur gilda um greidd at-
kvæöi eða hvaöa reglur gilda um
hvernig á aö kjósa.
Sjálfstæöisflokkurinn breytti i
haust reglum sinum um prófkjör
og samræmdi þær fyrir öll kjör-
dæmi. betta var gert vegna
skandalsins, þegar formaður
flokksins féll i fyrra I prófkjöri
fyrir Albert Guðmundssyni eins
og frægt er oröiö og slikt mátti
ekki koma fyrir aftur. bess vegna
var fundin upp ný regla, regla
sem tryggði Geir efsta sætiö,
Albert annaö, Birgi tsleifi þaö
þriöja o.s.frv..betta er þaö sem
fólkiö vill i ár, segir Sjálfstæöis-
flokkurinn, en þaö er gaman aö
skoða hvað þaö heföi veriö sem
fólkiö vildi I ár ef ihaldið heföi
ekki breytt reglunum. bá heföi
listinn nefnilega litiö þannig út:
1. sæti: Birgir tsl. Gunnarsson (er
i 3.)
2. sæti: Geir Hallgrimsson (er i
1.)
3. sæti: Albert Guðmundsson (er
I 2.)
4. sæti: Friörik Sófusson (er I 5.)
5. sæti: Ellert B. Schram (erI6.)
6. sæti: Ragnhildur Helgadóttir
(er i 7.)
7. sæti: Pétur Sigurðsson (eri8.)
8. sæti: Gunnar Thoroddsen (er I
4.)
9. sæti: Guðmundur H.
Garöarsson (óbreytt)
10. sæti: Elin Pálmadóttir
(óbreytt)
11. sæti: Björg Einarsdóttir
(óbreytt)
12. sæti: Jónas Bjarnason
(óbreytt).
Hvaö er það sem ræöur, — vilji
flokksins eöa vilji fólksins?
—AI
Fjórir fara í alþjóðlega
hjólakeppni í Énglandi
Fjórir 12 ára skólanemar, frá
Búöardal, Reykjavik og Akur-
eyri, hafa unniö sér rétt til þátt-
töku i alþjóðlegu hjólakeppninni,
sem fram fer i Englandi næsta
vor, en þeir uröur stigahæstir
eftir spurningakeppni Umferöar-
ráös s.l. vor og hjólreiöakeppni i
októbermánuöi s.l..
1 marsmánuöi undanfarin ár
hefur Umferöarráö i samvinnu
viö lögreglu og menntamálaráöu-
neyti gengist fyrir árlegri spurn-
ingakeppni fyrir 12 ára nemendur
iskólum landsins. Þeir nemendur
sem hafa staöiö sig best hafa sið-
an tekiö þátt i hjólreiöakeppni
sem byggist á góöakstri og hjól-
reiðaþrautum. Hefur sú keppni
fariö fram I Reykjavlk og á Akur-
eyri, nú á þessu ári i október-
mánuöi. Úrslit uröu sem hér seg-
ir:
1. Ingþór óli Thorlacius
Grunnsk. Búöardal 548 st.
2. Hreiöar Haraldsson
Laugalækjask. Reykjav. 534 st.
3. Hermann örn Ingólfss.
Glerárskóla Akureyri 530 st.
4. Bragi Gunnarsson
Æfinga- og tilr. skóla K.H.t. R. 528
st.
Karl Gunnlaugsson
Réttarholtssk. Rvík. 525 st.
6. Logi Jóhannesson
Vighólaskóla Kópav. 515 st.
Fjórir efstu hafa þvi unnið sér
rétt til þátttöku I alþjóðlegu hjóla-
keppninni sem fer fram I Eng-
landi næsta vor.
Boðað til almenns umræðufundar
Fækkun starfefólks
á ríkisspítölunum
Ert þú sjúklingurinn
sem ekki kemst inn á
sjúkrahús, — eða starfs-
maðurinn sem ekki heldur
vinnu — eða starfsmaður-
inn, sem eftir verður með
tvöfalt vinnuálag?
Þessara spurninga er spurt i
dreifiriti starfshóps fulltrúa frá
Hjúkrunarfélagi tslands, Meina-
tæknafélagi Islands, Sjúkraliöa-
félagi Islands, Starfsmannafélag-
inu Sókn, Stéttarfélagi isl. félags-
ráögjafa og Þroskaþjálfafélagi
Island.
Seint i sumar sendi stjórnar-
nefnd rikisspitalanna frá sér bréf
þess efnis, að fækka beri starfs-
fólki á rikisspltölunum i
sparnaöarskyni. Talaö er um aö
fækka niöur i heimiluö stööugildi
og I reynd mun þaö þýða u,þ.b.
280 stööur. Erfitt hefur gengiö að
fá upplýsingar um hvernig fram-
kvæma eigi þessa fækkun. Þeim
sem vel til þekkja sýnist augljóst
að komi fækkunin til fram-
kvæmda muni þaö kosta lakari
þjónustu viö sjúklinga og meira
vinnuálag fyrir starfsfólk, segir i
fréttatilkynningu frá starfshóp-
unum.
I sambandi viö þennan fyrir-
hugaöa sparnað hefur ekkert ver-
iö talað viö starfsfólkið. Þær hug-
myndir, sem fram koma I fyrr-
nefndu bréfi frá stjórnarnefnd
rikisspítalanna, viröast ekki
koma starfsfólkinu viö, ef marka
má þá tregöu, sem verið hefur á
upplýsingum varöandi fram-
kvæmd þessarar starfsfólksfækk-
unar.
Starfshópurinn hefur reynt aö
kanna þessar ráöageröir og um
leiö ástandiö varöandi starfs-
mannahald á rikisspitölunum.
Hópurinn boöar til almenns um-
ræöufundar um þessi mál aö
Hótel Sögu mánudaginn 5. nóv. kl.
20.30. Stjórnarnefnd rikis-
spitalanna ráöherra og fleirum
hefur verið boöiö aö koma á fund-
inn og taka þátt i almennum um-
ræöum sem veröa aö loknum
framsöguræöum.
Gösta Werner er einn helsti
sérfræöingur Evrópu um
kvikmyndagerö.
Gösta Werner
sýnir myndir
t kvöld, fimmtudag 1.
nóvember kl. hálf nlu, flytur
dr. phil. Gösta Werner,
prófessor viö Stokkhólms-
háskóla.erindi um evrópska
kvikmyndagerð I Norræna
húsinu. Gösta Werner hefur
getiö sér gott orö fyrir
skemmtileg erindi um þetta
efni, og auk þess mun hann
sýna þrjár stuttar kvik-
myndir, sem hann hefur
sjálfur gert, en hann er einn-
ig vel þekktur fyrir myndir
sinar, hefur meöal annars
fengiö verölaun fyrir þær á
kvikmyndahátföum I
Cannes, Feneyjum og Edin-
borg.
Eins og flestum mun kunn-
ugt stendur nú yfir I Regn-
boganum sænsk kvikmynda-
vika og er Werner staddur
hér i tengslum viö hana.
Erindið i Norræna húsinu er
hiö siöasta sem hann flytur
aö þessu sinni, og ætti enginn
áhugamaöur um kvik-
myndagerö aö láta sér þetta
happ úr hendi sleppa.
Rangœingar
hefja vetrarstaif
Rangæingafélagiö I
Reykjavlk er aö hefja vetr-
arstarf sitt um þessar mund-
ir. Bridge-deild félagsins
byrjaöi starfsemi sina fyrir
nokkru og kór félagsins er aö
hefja sitt fimmta starfsár I
haust.
Fyrsta samkoma Rangæ-
ingafélagsins veröur i Hreyf-
ilshúsinu viö Grensásveg
föstudaginn 2. nóvember kl.
20.30. Spiluö veröur félags-
vist og kór félagsins syngur
nokkur lög. Aögöngumiðar
veröa jafnframt happdrætt-
ismiðar og er aöalvinningur-
inn einnar viku dvöl i
Hamragöröum undir Eyja-
fjöilum næsta sumar. Aö fé-
lagsvistinni lokinni verður
dansaö.
Sunnudaginn 11. nóvember
verður kaffisamsæti aö lok-
inni guösþjónustu i
Bústaðakrikju kl. 14.00.
Boðin tenging
við norrœnt
„datanet”
Norðurlöndin Danmörk,
Finnland, Noregur og
Sviþjóö hafa sameinast um
aö setja upp sjálfstætt fjar-
skiptanet fyrir svokallaöan
dataflutning, sem hefur
fengiö heitiö Almenna
norræna datanetiö, NPDN.
Til landsins eru kommr
þrir tæknimenn frá dönsku
póst- og simamálastjórninni
til þess að kynna tslending-
um þetta norræna upplýs-
inganet og ræöa möguleika á
tengingu Islands við þaö.
Veröur haldinn fundur I dag
þar sem þeir kynna máliö,
möguleika fyrir notendur og
á hvern hátt Island getur
tengst netinu.
I framhaldi af fundinum
veröur siöan kannnaöur
áhugi Islenskra fvrirtækia .