Þjóðviljinn - 01.11.1979, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. nóvember 1979
EIMSKIP
Við vekjum athygli viðskiptavina okkar á því
að vörur sem liggja í vörugeymsluhúsum okk-
ar ERU EKKI TRYGGÐAR AF OKKUR
GEGN BRUNA/ FROSTI EÐA ÖÐRUM
SKEMMDUM og liggja þar á ábyrgð vörueig-
enda.
— Athygli bifreiðainnflytjenda er vakin á því
aö hafa frostlög á kæiivatni bifreiðanna.
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
Ónnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI53468
Aðsetur
yfirkjörstjórnar Vesturlandskjördæmis
vegna alþingiskosninganna sem fram eiga
að fara 2. og 3. desember 1979 verður i
Hótel Borgarnesi, Borgarnesi.
Tekið verður á móti framboðum miðviku-
daginn 7. nóvember n.k. frá kl. 14.
Fundur til úrskurðar framkominna fram-
boðslista verður haldinn á sama stað
fimmtudaginn 8. nóvember kl. 14.
Yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis
31. október 1979
Jón Magnússon formaður
Keflavík Kjörskrá
Kjörskrá til alþingiskosninga er fram eiga
að fara 2. og 3. des. n.k. liggur frammi al-
menningi til sýnis á Bæjarskrifstofunni i
Keflavik, Hafnargötu 12, alla virka daga
frá 3. nóv. til 17. nóv. n.k., frá kl. 10-12 f.h.
og 1-4 e.h. þó ekki á láugardögum. Kærur
vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist
skrifstofu bæjarstjóra eigi siðar en 17.
nóv. n.k.
Keflavik 31. okt. 1979.
Bæjarstjórinn i Keflavik
Skáldsaga eftir Sigurð
A. Magnússon
Mál og menning hefur sent frá
sér nýja skáldsögu, Undir
kalstjörnu eftir Sigurö A.
Magniísson. Undirtitill er
Uppvaxtarsaga.
Undir kalstjörnu er veraldar-
saga ungs drengs sem elst upp á
kreppuárunum i fátækra- og
jaðarhverfum Reykjavikur, i
Kleppsholti, við Suðurlandsbraut,
i Laugardal, Laugarnesi, Pólun-
um við öskjuhlið. Lýst er af
nærfærni hvernig heimurinn
veröur til i vitund barns, og
foreldra hans og umhverfi sér
lesandi bæði meö næmum augum
barnsins og með yfirveguöum
skilningi sögumanns á fullorðins
aldri. Móðir hans dul, innhverf og
stolt, faðir hans opinskár tilfinn-
ingamaður, drykkfelldur og
vifinn. Undirtónn allrar
frásagnarinnar er uggur og tregi,
lesandi hefur stöðugt tilfinningu
þess að þessi heimur geti hruniö
til grunna fyrr en varir, og sög-
unni lýkur á sviplegu andláti
móður drengsins.
1 formála höfundar segir:
„Þessi saga rekur atvik sem
gerðust I reyndinni en getur þó
ekki talist sannsöguleg vegna
þess að hún endurvekur og um-
skapar löngu liðna atburði
samkvæmt lögmálum sem eru
ekki alténd virk í daglegu llfi.
Þeir einstaklingar sem viö sögu
koma eiga sér flestir fyrirmyndir
úr raunveruleikanum þó öllum
nöfnum sé breytt, en þær fyrir-
myndir verða meö engu móti
kallaöar til ábyrgðar á verkum
eða viðhorfum sögupersónanna
Sigurður A. Magndsson
sem erurissaðar upp að geðþótta
höfundar.”
Undir kalstjörnu er 256 bls.,
prentuð i Prentsmiðjunni Odda
hf.
Albert,
dönsk
æringja-
saga
IÐUNN hefur gefiö Ut bókina
Albert eftir danska höfundinn Ole
Lund Kirkegaard, myndskreytta
af höfudi sjálfum. Þorvaldur
Kristinsson þýddi.
Þetta er gamansöm saga um
dreng sem er „dálitiö óþægur en
mikill æringi og finnur upp á
ýmsu”, eins og segir i kynningu á
kápubaki bókarinnar: „hann
grefur stelpugildru, glettist við
vasaþjóf, kemur upp um frúna
sem var söguð sundur og sendir
nokkra þorpara upp i loftið með
belg”.
Eftir Ole Lund Kirekgaardhafa
áðurkomið út á islensku bækurn-
ar Fúsi froskagleypir og
Gúmmi-Tarsan. Alberter 106 bls.
Oddi prentaði.
Sunna Borg (Anna) og Svanhildur Jóhannesdóttir (Marfa) f hlutverk-
um sinum.
Fyrsta öngstræti
LANDSRÁÐSTEFNA
Samtaka herstöðvaandstæðmga í Félagsstofnun
stúdenta 3. og 4. nóv. n.k.
DAGSKRÁ:
Laugardagur
Kl. 14.00: Setning og kosning starfs-
manna.
Kl. 14.15: Skýrsla miðnefndar.
Kl. 14.45: Reikningar.
Kl. 15.00: Umræður um skýrslu og reikn-
inga.
Kl. 16.30: Kaffihlfe.
Kl. 17-19: Umræður um starfsáætlun.
Kl. 20.30: Kvöldvaka.
Sunnudagur
Kl. 10.00: Starfshópar þinga.
Kl. 13.00: Matarhié.
Kl. 14.00; Alit starfshópa.
Kl. 15.00: Umræða um álit starfshópa.
Kl. 16.00: önnur mál.
Kl. 16.30: Kaffihlé.
Kl. 17.00: Afgreiðsla tOlagna og ályktana.
KI. 18.30: Alit uppstillingarnefndar og
kosning miðnefndar.
KI. 19.00: Ráðstefnunni slitið.
Ráðstefnan er opin öllum herstöðvaandstæðingum
til hægri eftir
Orn Bjarnason
A föstudag frumsýnir Leikfélag
Akureyrar nýtt Islenskt leikrit
eftir örn Bjarnasonog nefnist það
„Fyrsta öngstræti til hægri”. Er
þetta fyrsta verk Arnar, sem sýnt
er á sviði, en áður hefur verið
flutt eftir hann leikrit I útvarpi,
,,Bið 13” áriö 1977.
I öngstrætinu er greint frá
ungri stúlku, sem hrekst til
höfuðborgarinnar þar sem hún
kemst í kynni við eldri og
reyndari kynsystur sina, sem
lent hefur utangarðs I sam-
félaginu. Hlutverk i leiknum eru
19 en leikendur 12. Meö aöalhlut-
verk fara Svanhildur Jóhannes-
dóttir og Sunna Borg, en auk
þeirra fara Þráinn Karlsson,
Theodór Júliusson, Sigurveig
Jónsdóttir, Guðbjörg Guðmunds-
dóttir, Kristjana Jónsdóttir, Viö-
ar Eggertsson, Bjarni Stein-
grimsson og Hjft-tur E. Jónasson
meö hlutverk i leiknum.
Leikstjóri er Þórunn Sigurðar-
dóttir, en leikmynd hefur Sigur-
jón Jóhannsson gert.
„Fyrsta öngstræti tilhægri” er
þriöja verkefni LA á þessum vetri
og hefur leikfélagið verið boðið til
Sviþjóðar með þessa sýningu á
norrænt mót landshlutaleikhúsa,
sem haldið verður i örebro 3.-8.
desember. Sýningar ytra verða
tvær. Að lokinni frumsýningu á
öngstrætinu verða hafnar æf-
ingar á næsta verkefni, en þaö er
„Púntilla og Matti” eftir Bertolt
Brecht. Leikstj. er Hallmar Sig-
urösson og frumsýning' verður
væntanlega i janúar. Barnaleik-
ritið „Galdarkarlinn I Oz” er nú
sýnt fyrir fullu húsi og hefur verið
uppsdt á allar sýningar fram að
þessu.
— AI