Þjóðviljinn - 01.11.1979, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 01.11.1979, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 1. nóvember 1979 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 11 FH-ingurinn Guðmundur Magnússon hefur átt jafna og góða leiki i HM-keppninni. Hann skoraði 2 mörk i gærkvöld gegn Ungverjum og barðist eins og ljón allan leikinn. íþróttir \ íþróttir Umsjón: Ingólfur Hannesson V ^ H Strákarnir skorudu 1 mark siðustu 14 mínúturnar Lokakaflinn varð þeim að falli Ungverjaland - ísland 17:14 //Það var ógurlegt að sjá þetta detta svona niður hjá okkur í lokin. Ég hef þá trú að strákana skorti enn reynslu á við keppinauta sína hér til þess að halda höfði í //krítískum stöðum". Slíkt kemur ekki nema með mikilli keppnis- reynslu, sérstaklega i erfiðum keppnum eins og hér á HM," sagði ólafur Aðalsteinn Jónsson, farar- stjóri m.mw í gærkvöld/ eftir að íslenska unglinga- liðið í handbolta hafði beðið lægri hlut fyrir Ung- verjum/14-17. Fyrstu 3 mörkin voru Islending- anna, 3-0, en Ungverjar voru nokkuð fljótir að átta sig og innan \ tiðar voru þeir búnir að jafna 3-3. Annars er vert að geta þess að fyrsta mark íslands kom á 8. min. Nú lágu Danirnir í því Danskurinn lá heldur betur I þvi I fótboltanum I gærkvöld . Landslið þeirra lék gegn Búlgariu I Evrópukeppni og tapaði 0-3. Fyrsta mark Búlgaranna kom á 21. min.,næsta á 51. og loks skor- aði Tsvetkov undir lokin sitt ann- að mark i leiknum. Danir voru slakir, sérstaklega sóknin, sem þó skartaði hinum frægu Simonsen og Henning Jensen. Ahugamannalandslið Sovét- manna og Vestur-Þjóöverja léku knattspyrnulandsleik i gærkvöld; og lyktaði honum með sigri Sovétmanna 3-1 eftir að staðan i hálfleik var jöfn 1-1. og fyrsta mark Ungverjanna á 11. min..Þetta segir nokkra sögu um gæöi varnarleiks beggja liðanna, og e.t.v. um slappleika sóknar- leiksins. Aftur náði Island forystunni, 4-3, en Ungverjar jöfnuðu enn og komust yfir skömmu seinna, 5-4. Þá var komið að okkar mönnum að sýna klærnar og þeir skoruðu grimmt það sem eftir lifði hálfleiksins, 5- 5,6-5,7-5, 7-6, 8-6, og 9-6. A siðustu mlnútunni fengu Ungverjar viti, en Clafur varði það með miklum tilþrifum. 9-6 fyrir Island I leik- hléi. Vörn Islenska liðsins var framúrskarandi góð I fyrri hálf- leiknum og sömuleiðis mark- varslan, en Brynjar varði 6 skot, hvert öðru erfiöara. Forskotið lét landinn ekki af hendi alveg strax, 9-7,10-7 og 11-7. Hér fengum viö tækifæri til að auka muninn i 5 mörk, en Guömundur lét verja frá sér 1 dauðafæri. Ungverjarnir komu muninum niöur i 1 mark nokkru seinna,12-11, Island skoraöi sitt 13. mark I næstu sókn, en Ungverjar minnkuðu forskotið aftur I 1 mark, 13-12. Þegar hér var komið sögu voru 14 min. til Alan Pascoe, fyrrum Evrópum. í 400 m grindahlaupi A tvinnumennsku verður að hefja sem fyrst í frjálsum Fyrir nokkrum árum var gerð tilraun til að stofna til keppni milli atvinnumanna I frjálsum iþróttum, en sú til- raun fór út um þúfur. 1 heimi frjálsiþróttanna er þó mikið um beinar peningagreiðslur þrátt fyrir að um sé að ræða keppni svokallaðra áhuga- manna. Þessum málum vilja margir breyta og I þeirra hópi er fyrrum Evrópumeistari I 400 m grindahlaupi, Bretinn Alan Pascoe. „Þeim, um bein sem vilja keppa peningaverðlaun, ætti að leyfast þaö óhindrað, og einnig ættu þjálfarar ein- stakra keppnismanna að fá greitt i samfæmi við þann árangur, sem iþróttamenn á þeirra vegum ná”, segir Pascoe m.a. i nýútkominni bók sinni, sem nefnist Saga frjálsiþróttamanns. „Mér finnst alltof mikið um alls konar boð og bönn i heimi iþróttanna, sérstak- lega hvað varðar auglýs- ingastarfserni og útgáfu- starfsemi ýmisskonar. Ég er viss um, aö þetta hefur slæm áhrif á helstu iþróttamenn heimsins”, segir Pascoe ennfremur. Hann segir einn- ig að atvinnumennska muni litil áhrif hafa á hina svoköll- uöu trimmara, þeir muni halda áfram slnu striki þrátt fyrir breytingu á toppnum. Að lokum minnist Pascoe á atvinnumennsku I frjálsum I þróttum og segir: „Ef ólympiunefndin fellst ekki á atvinnumennsku, þá hún um það. Frjálsar Iþróttir hafa löngum verið aðalsmerki leikanna og ef þær hyrfu á brott er ég hræddur um að ólymplunefndin breytti af- stöðu sinni.” Svo mörg voru þau orö Alans Pascoe. leiksloka og nú hrundi leikur Is- lenska liösins eins og spilaborg. Ekkert gekk, hvorki I sókn né vörn. Hins vegar héldu Ungverj- arnir sinu striki og þeir komust i 17-13 áður en ísland skoraði sitt 14. mark. Sorglegur endir á annars góðum leik tslands. Ungverjarnir eru meö sist betra lið en við, en þeir hafa leik- reynsluna framyfir og það reiö baggamuninn aö þessu sinni. Þá varöi markvörður þeirra eins og óöur maður allan leikinn og loka- kaflann varði hann 11 skot, sem er frábært. Alls varði hann 22 skot i leiknum. Stefán Halldórsson komst einna best Islendinganna frá þessum leik. Hann er ört vaxandi leik- maður og er yfirvegun hans mun meiri nú en áöur. Þá var Guömundur Magg traustur að venju og Brynjar varði vel framan af. Mörk lslands skorðuð: Stefán 8 (3v.), Guömundur M 2 og Krist- ján, Atli, Siguröur G og Birgir 1 mark hver. Þess má geta I lokin aö meiðsl Andrésar Kristjánssonar reynd- ust ekki eins alvarleg og ætlað var I fyrstu. Tannréttingarsér- fræöingur rétti framtennur hans með handafli einu saman. „Strákurinn er orðinn bara huggulegur,” sagði Ólafur Aðal- steinn aðspurður um málið. —IngH Island leikur gegn Austur-Þýskalandi Eftir úrslitin i leik Islands og Ungverjalands I gærkvöldi var ' ljóst að landinn léki gegn Austur- Þjóðverjum um 7.-8. sæti heims- meistarakeppninnar. Leikurinn fer fram i Suningen og hefst kl. 18 I dag. Um 5.-6. sætið leika Tékkar og Ungverjar, um 3.-4. sæti leika Danir og Sviar og um 1.-2. sæti leika Sovétmenn og Júgóslavar. IngH Þrír toppþjálfarar hjá Ægi í vetur Um þessar mundir eru að hefj- ast sundæfíngar hjá Sundfélaginu Ægi. Hefst vetrarstarfið nokkru seinna nú en undanfarin ár, vegna lokunar Sundhallar Reykjavlkur. Afreksfólk félags- ins hefur þó æft nú um tveggja mánaða skeið. Æfingar fyrir yngri félaga og nýja félaga hefjast þriðjudaginn 30. október I Sundhöll Reykjavikur. Æft veröur þrisvar I viku, þ.e. þriðjudaga, fimmtu- daga og föstudaga kl. 18.50. Þeim sem æfa er skipt I getuhópa, þannig að hver fái verkefni við sitt hæfi. Sundfélagið Ægir hefur ávallt lagt mikla rækt við unglinga- þjálfun og mun I vetur vanda til hennar jafnvel enn betur en nokkru sinni fyrr. Hefur félagið ráöið þrjá þjálfara til þess að þjálfa. Þeir eru Guðmundur Harðarson, sem um langt árabil hefur verið landsliðsþjálfari i sundi, Kristinn Kolbeinsson, sem hefur getið sér gott orð undan- farin ár viö þjálfun hjá Ægi, og Þórunn Alfreðsdóttir, en hún var, eins og flestum er kunnugt, besta Þórunn Alfreðsdóttir mun þjálfa sundmenn Ægis I vetur. sundkona okkar um árabil. Munu allir þessir þjálfarar þjálfa yngri flokka félagsins. Nánari upplýsingar veita Guömundur Harðarson i slma 30022 og Halldór Hafliðason I sima 35723. Hjá Ægi nærðu árangrier kjör- orö félagsins. Gildir þetta jafnt um þá er hyggjast æfa meö keppni i huga sem og þá er langar aöeins aö æfa sér til ánægju. Sigurvegarar á fyrsta Vetrarmóti unglinga I badminton Spennandi og skemmtileg keppni á fyrsta unglingamóti vetrarins Um s.l. helgi lauk fyrsta ung- lingamótinu á þessu keppnis- timabili. Keppnin var allfjöi- menn, og komu keppendur viða að, t.d. frá Hverageröi, Akranesi og Kópavogi, auk Reykjavikur. Keppt var i tviliðaleik og tvennd- arleik i öllum aldursflokkum ung- linga, og uröu sigurvegarar sem hér segir: Hnokkar — tviliðaleikur: Arni Þ. Hallgrimsson og Valdi- mar Sigurösson IA. Tátur — tviliöaleikur: Guðrún Ýr Gunnarsdóttir og Guörún Júliusdóttir TBR. Hnokkar — tátur — tvenndarleik- ur: Arni Þór Hallgrimsson og Asta Siguröardóttir IA. Sveinar — tviliöaleikur: Pétur Hjálmtýsson og Kári Kárason TBR. Meyjar — tviliðaleikur: Inga Kjartansdóttir og Þórdis Edwaid TBR. Sveinar — meyjar — tvenndar- leikur: Fritz H. Berndsen og Þórdis Edwald TBR. Tviliðaleikur drengja: Þorsteinn Páll Hængsson og Þorgeir Jóhannsson TBR. Telpur — tviliðaleikur: Þórunn óskarsdóttir KR og Ingunn Viðarsdóttir IA Drengir — telpur — tvenndarleik- ur: Þorgeir Jóhannsson og Bryndis Hilmarsdóttir TBR. Piltar — tviliðaleikur: Guðmundur Adolfsson og Skarphéöinn Garöarsson. Piltar — stúlkur — tvenndarleik- ur: Guðmundur Adolfsson TBR og Kristin Magnúsdóttir TBR. Stúlkur — tviliðaleikur: Bryndis Hilmarsdóttir og Kristin Magnúsdóttir TBR. Næsta unglingamót veröur i húsiTBR dagana 10.-11. nóv. n.k., en það er Unglingameistarmót Reykjavikur. Þátttökutilkynn- ingar i þaö mót skulu hafa borist til TBR i siðasta lagi þriðjudaginn 6. nóv. n.k..

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.