Þjóðviljinn - 01.11.1979, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 01.11.1979, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 1. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Ráðstefna um hjúkrunarmál A þessu hausti veröur Hjúkrunarfélag tslands 60 ára, en félagiö var stofnaö I nóvember áriö 1919. Af þvf tilefni veröur haldin ráöstefna um hjúkrunar- mál á Hótel Loftleiöum, dagana 2. og 3. nóvember. Tilgangur ráðstefnunnar er aö gera grein fyrir stefnu Hjúkrunarfélags tslands I menntunarmálum, sem mótast af þvi aö mætt sé nútimakröfum til heilbrigöisþjónustu. Einnig aö kynna og ræöa nýja starfshætti innan hjúkrunar sem miöa aö bættri heilbrigöisþjónustu. Unniö veröur aö þessum viö- fangsefnum i hópvinnu og niöur- stööur kynntar. Sjötugur Ragnar Eliasson, bilstjóri og af- greiöslumaöur hjá Steindóri til margra ára er sjötugur i dag. Ragnar stundaöi sjómennsku fyrr á árum og var m.a. kyndari á gömlu gufutogurunum. Músagildran Framhald af bls. 6. son sem nú stigur á fjalir leikhússins I fyrsta sinn og skapa þau öll jafnan og heilsteyptan blæ og vaxandi spennu allt til loka- punkts, sem er uppgötvun morö- ingjans. Sú leit orsakar svo mik- inn rugling aö allir liggja undir grun þá er lýkur, en moröinginn er.... „Vinsamlegast segiö ekki frá hvernig leik þessum lyktar. — Þaö gæti riöiö okkur aö fullu.” Trúrþessari beiöni Leikfélags Selfoss, sem kemur fram i veg- legri leikskrá MUsagildrunnar, læt ég væntanlegum leikhúsgest- um eftir aö komast aö hinu sanna og skora á þá aö sækja þessa sýningu. Aö lokum skal geta þess aö heimamanneskja, Hildigunnur Daviösdóttir, hannaöi leikmynd- ina sem er látlaus og smekkleg og fellur vel aö hinu dramatiska leikverki. Höröur. Sé ekkert Framhald af bls. 16. sagöi aö hann myndi innan tiöar ræöa aftur viö forráöamenn sjón- varpsins um máliö. Ingimar tók fram, aö hann sæi ekkert þvi til fyrirstööu aö skákin tæki langan tima, alltað 10 mánuöi, ef fengnir væru skákskýrendur til aö fjalla um skákina á skjánum og gera þetta aö skemmtilegum þætti og um leiö aö kennslustund I skák fyrir almenning. Einnig taldi dr. Ingimar koma til greina aö nota sima og hafa þá leikina 2 til 3 I viku , en samt sem áöur væri ekki hægt aö koma þvi þannig fyrir aö skákin tæki ekki nema einn mánuö, þaö hlytu allir að sjá, en útvarpsráö vill ekki aö skákin taki lengri tima. Þaö mun sem sé koma i ljós á næstu dögum hvort vilji er fyrir þvi hjá Rikisútvarpinu aö þessi stórsnjalla hugmynd veröi fram- kvæmd eöa ekki. -S.dór. BHM: Villandi fréttir um skerðingu launa Bandalag háskólamanna hefur sent frá sér eftirfarandi athuga- semdir út af launaveröbótum 1. des. 1979 og skeröingu 1. júni si.: ,,AÖ undanförnu hefur talsvert veriö fjallaö I fjölmiölum um skeröingu veröbóta á laun 1. desember n.k. Einkum hefur mönnum orðiö tiörætt um aö skv. gildandi lögum veröi veröbætur á laun hinna lægst launuöu u.þ.b. 9% en á laun annarra u.þ.b. 11%. í málflutningi ýmissa aöila, bæöi á þingi og I fjölmiölum, hefur veriö látiö aö þvi liggja aö hér væri um að ræöa sérstaka skeröingu á launum hinna lægst launuöu, en ekki vikiö oröi aöþvi aö laun annarra launþega voru skert sem þessu nam þegar 1. júnl s.l. BHM telur að hér sé um mjög villandi fréttaflutning aö ræöa og telur fulla áastæöu til aö skýra ástæöur þessa munar. Með lögum nr. 13/1979 um stjórn efnahagsmála o.fl. voru geröar nokkrar breytingar á út- reikningi veröbótavisitölu m.a. voru sett ákvæði um aö rýrnun viöskiptakjara skyldi hafa áhrif til lækkunar verðbótavisitölu og viöskiptakjarabatiá sama hátttil hækkunar. Samkvæmt bráöa- birgöaákvæöi meö lögunum skyldi þó ekki skeröa veröbætur 1. júni 1979 á laun þeirra sem Ung Nordisk Musik Mmmmmm^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mm höföu lægri laun en kr. 210.000 fyrir fulla dagvinnu. Hinn 1. september skyldi skerðing vegna viöskiptakjararýrnunar vera sú samaá ölllaun. Hinn l.desember 1979 skyldi slöan sama vlsitala gilda viö ákvöröun veröbóta á öll laun. Þeirri skeröingu sem kom almennt á laun 1. júnl s.l. og nam 2% var þvi frestað til 1. desember á laun sem vorulægri en 210.000 i mai s.l. BHM gerir enjga athugasemd viö þær ráöageröir, sem nú eru uppi, um aö láta þessa 2% skeröingu ekki hafa áhrif á verö- bætur hinna lægst launuöu 1. desember, en vill hins vegar aö allar staöreyndir málsins séu ljósar.” Kvótinn Framhald af bls. l6. kanna fullkomlega meö mæling- um ef fá á óyggjandi niöurstöðu. Þannig er þaö líka meö loönuna. Viö höfum veriö aö leita aö besta árstimanum til aö rannsaka stofnstæröina, og ég vil einnig benda á, aö þaö mun ekki standa áokkur fiskifræöingum aö endur- skoöa og breyta tillögum okkar ef eitthvaö nýtt kemur fram, sem gefur tilefni til þess,sagöi Hjálm- ar aö lokum. —S.dór ......... Tökum að okkur viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið- um eldhúsinnréttingar, einnig viðgerðir á eldri innréttingum. Gerum við leka vegna steypugalla. Verslið við ábyrga aðila. TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ Bergstaðastræti 33, simi 41070 ■ - ......... alþýöubandalagíö Alþýðubandalagið i Reykjavik Félagsgjöld Félagar i Alþýöubandalaginu I Reykjavlk sem skulda árgjöld fyrir 1978 og/eöa 1979 eru hvattir til aö greiöa þau sem fyrst á skrifstofu félagsins aö Gretisgötu 3. Stjórnin. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Reykjanes- kjördæmi heldur fund I Hlégaröi Mosfellssveit, fimmtudaginn 1. nóvember kl. 20.30. Fundarefni: 1. Tekin ákvöröun um framboðslista. 2. Umræöur um kosningabaráttuna. 3. önnur mál. Fulltrúar eru beönir um aö mæta stundvislega. — Stjórnin. Aiþýðubandalagið i Reykjavik. Sjáifboðaliðar Stjórn Alþýöubandalagsins I Reykjavlk hvetur félaga til þess aö skrá sig til sjálfboðaliðastarfa til undirbúnings Alþingiskosningunum. Skráning sjálfboöaliöa er I sima 17500. Félagsfundur AbR Stjórnin verður nk. laugardag 3. nóv. kl. 14.00 i Sigtúni, uppi. Skilafrestur á nýjum yerkum er til 10. nóv. Alþýðubandalagið á Seifossi og nágrenni. Aðalfundur Alþýöubandalagsins á Selfossi og nágrenni veröur haldinn laugardaginn 3. nóv. kl. 14.00 Kirkjuvegi 7. — Dagskrá nánar auglýst siöar. Ung Nordisk Musik nefnist félagsskapur, sem hefur þaö markmiö, aö flytja verk nor- rænna tónskálda, sem eru yngri en þrltugir, og gefa ungum hljóö- færaleikurum á Noröurlöndum tækifæri til aö kynnast nútima- tónlist. Félagsskapurinn gengst fyrir sérstakri tónlistarhátiö á ári hver ju og skiptast Noröurlöndin á aö halda hana. tslendingar hafa veriö I félagsskapnum frá þvi 1973 og tekið þátt I hátlöunum, nú siðast I sumar. Næsta hátiö verö- ur haldin I Helsinki I mai á næsta ári og verkum fyrir hátlöina skal skilaö fyrir 10. nóvember n.k..Það tónlistarfólk, sem hefur áhuga á aö kynnast félagsskapnum nánar, er hvatt til að hafa samband viö Signýju Sæmundsdóttur I slma 74195 eöa 24457. Fulltrúaráðsfundur AbR verður n.k. föstudag 2. nóv. kl. 20.30 i fundarsal Sóknar, Freviu- götu 27. J Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins sem boðaöur hefur verið 6. nóvember veröur haldinn I Dómus Medica og hefst kl. 17 . A dagskrá fundarins veröur: 1. Undirbúningur kosninganna • 2. Akvörðun um flokksráösfund 3. önnur mál. KALLI KLUNNI — Heyröu Palli, geröu nú alvöru úr þvl aö stööva vélina. Bandiö er ekki óendanlegt — og okkur rekur lengra og lengra frá landi! — Heyröu mignú, hvaöertuaögera, Kalli? — Ég er aö detta i sjóinn, Svartipétur. Bandiö nær ekki lengra, bjargaöu mér nú áöur en buxurnar minar gegnblotna! — LOKsins gátu þeir stoppaö vélina, nú náum viöþeim bráöum aö landi. Þaö er annars langt siöan hendurnar mínar hafa komist I snertingu viö vatn, sjáöu hvaö þær eru orðnar Ijósar! FOLDA Ég vil vera forseti lýðveldisins! „ En þú? r K ' J V~ MMM... Neú það er alltof erfitt/ Mikki.. Ég meina bara svona MIÐLUNGS forseta. Hvað segirðu við þvi? Oj, það er alltof venjulegt! 71 -WtD

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.