Þjóðviljinn - 22.11.1979, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 22. nóvember 1979 ' ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Magniis óskarsson, formaöur Þróttar I ræöustól I afmælishófi félagsins um s.l. helgi.
Nýtt félagsheimili vigt við Sæviðarsund i tilefni af
30 ára afmœli Þróttar
Um s.l. helgi hélt knattspyrnu-
félagiö Þróttur upp á 30 ára af-
mæli sitt og einnig var vlgt form-
lega nýtt félagsheimili sem Þrótt-
arar hafa reist i samvinnu viö
Æskulýösráö Reykjavíkur. Er
slik samvinna Æskulýösráös og
fþróttafélags nýmæli hér í höfuö-
borginni.
Þróttur var stofnaður vestur i
Grimsstaöaholti, hinn 5. ágúst
1949. Voru þá liöin nærfellt 40 ár
frá þvi siðast var stofnað knatt-
spyrnufélag i Reykjavik, sem
ekki hafði dáið eða lognast út af
með einhverjum hætti. Urðu þvi
ekki margir til að spá Þrótti lang-
lifi. En stofnendurnir voru á öðru
máli. ABalmenn i þeim htípi voru
Halldór Sigurðsson, fyrsti for-
maður félagsins, sem nú er látinn
og Eyjólfur Jónsson, sundkappi.
Undir þeirra forystu og fleiri
góðra manna var haldið uppi
miklu starfi fyrir félagsmenn,
sem einkum voru úr Grimsstaða-
holtinu og Skerjafirðinum.
Árið 1964 var Þrótti úthlutað
iþrtíttasvæði í einu fjarlægasta
horni borgarinnar, inn viö Sævið-
Frá Póst- og
simrmálastjórn:
Umbúðir
fyrir póst-
sendingar
Til þess aö bæta úr vöntun á
hentugum umbúöuip fyrir póst-
sendingar hefur Post- og slma-
málastofnunin látiö framleiöa
sterka og þægilega pappakassa I
svipuöum stæröum og póstþjón-
ustur margra annarra landa hafa
á boöstólum. Kassarnir eru til
sölu á pósthúsum um land allt og
eru afhentir ósamsettir tii þess aö
minnka fyrirferð og auövelda-
flutning og geymslu. Kassarnir
eru iéttir og hafa þvl hverfandi
áhrif á burðargjald sendingarinn-
ar. Kassarnir eru I stæröunum
27x19x10 cm á kr. 130.-, 31x22x12
cm á 200. kr., og 39x25x14 cm á
250. kr.
Þessir kassar eru eitt skref í þá
átt að sending komist ólöskuð á
leiðarenda en eltki nægir þó að
setja brothætta og viðkvæma
hluti i slikan kassa án frekari um-
búnaðar. Slika hluti þarf að
skorða vandlega i kassanum og
Þannig lita umbúöirnar út —
tilbúnar til merkingar
fylla öll holrúm með högg-
deyfandi efni, samanber hinar al-
mennu reglur póstþjónústunnar
um umbúnað og frágang send-
inga, og eru starfsmenn póst-
þjónústunnar ávallt reiöubúnir aö
gefa allar upplýsingar þar að
lútandi.
Þess er vænst aö nýjung þessi
mælist vel fyrir og verði til
aukinna þæginda fyrir viðskipta-
vini stofnunarinnar, segir i frétt
Póst- og simamálastofn-
, unarinnar.
Skólastjórafundur norrœnna listaskóla
„Ekki útlendinga,
bara íslendinga”
1 byrjun nóvember var haldinn
i Reykjavlk árlegur fundur skóla-
stjóra norrænna listiönaöarskóla.
Þau persónulegu tengsl sem
skapast á þessum fundum hafa,
haft sitt aö segja fyrir nemenda-
skipti milli þessara skóla.
A fundinum var Einar
Hákonarson fulltrúi Myndlista-
og handiðaskólans en aðrir þátt-
takendur voru skólastjórar frá
Bergen, Kolding, Kaupmanna-
höfn, Gautaborg og Helsinki.
1 fréttatilkynningu segir að
framhaldsnám nemenda i listiön
sé mjög æskilegt, ef ekki nauö-
syn, en með hverju ári verði
eríiðara fyrir útlendinga að fá
inni i framhaldsskólum Norður-
landa. Nemendur i Myndlista- og
handiðaskólanum hafa þó
gegnum tiðina staöiö sig mjög vel
i ströngum inntökuprófum og við
listiönaðarskólann i Kaupmanna-
höfn er t.d. haft að orðtaki: Við
tökum ekki útlendinga, bara Is-
lendinga.
—GFr
arsund og Eliiðavog. Búa nú um
10 þúsund manns i Langolts- og
Heimahverfinu sem næst liggur
svæðinu.
Knattspyrnuvöllur á þessum
nýja stað var vigður árið 1969 og á
Þróttur þvi aðeins rúm 10 ár að
baki i þessu ööru lifi i sögu félags-
ins. Þrátt fyrirþað hefur tekist að
byggja upp öflugt félags- og
iþróttastarf og hefur sérstök
áhersla verið lögö á starfsemi
yngri flokkanna. Er það starf nú
að skila sér i árangri meistara-
flokka félagsins.
Sem fyrr segir var nýtt félags-
heimili tekiö formlega i notkun
um helgina. Fyrsta skóflustungan
að þvi var tekið 16. mars 1976 og
byrjað var að nota hluta hússins
vorið 1978 en nú er það nálægt þvi
að vera fullbúið.
Þetta er stórt hús á tveim hæö-
um. A neðri hæðinni eru stórir og
rjimgóðirbúningsklefar, gufubað,
þrekþjálfunarherbergi, dómara-
herbergi og afgreiðsla.
A efri hæðinni er rúmgóður
samkomusalur, eldhús, fundar-
herbergi, skrifstofur og tóm-
stundaaðstaða.
lafmælishófinuum s.l. helgi af-
henti kvennadeild Þrtíttar félag-
inu aö gjöf stórt litasjónvarp með
myndsegulbandi og einnig af-
hentu eldri Þróttarar félaginu
merki þess á stórum koparskildi,
sem komið verður við inngang
nýja hússins.
Umdæmisstúka nr. 1:
Vitaverður
áfengisáróður
í Morgun-
póstinum
A haustþingi umdæmisstúk-
unnar nr. 1 voru ýmsar ályktanir
geröar um áfengismál. I einni
þeirra segir er haustþingiö telji
vítaverthvlllkuráfengisáróöur er
rekinn I morgunpósti útvarpsins
og telur ástæöu til aö athuga
hvort mataruppskriftirnar sumar
séu ekki brot á banni viö áfengis-
auglýsingum. Beinir þingiö þvi til
stjórnenda útvarpsins aö þeir
leggi fyrir dagskrármenn aö ekki
sé haföur I frammi dulbúinn eöa
beinn áfengisáróður I útvarpinu.
Haustþingið minnir m.a. á þau
straumhvörf sem orðiö hafa i
viðhorfum til áfengismála viöa
um heim á þann veg aö
óhjákvæmilegt þykir að opinberu
valdi og lögbönnum sé beitt til aö
takmarka það hve áfengi er
haldið að fól! i. Ber þar hvort
tveggja til að menn eru uppgefnir
á neikvæðri reynslu af frjáls-
hyggjunni og rannsóknir hafa
sannað að heildarneysla áfengis
skiptir mestu, og neyslan vex eða
minnkar eftir þvi hve auövelt er
að komast yfir áfengi.
—GFr
Bente Clod frestar för
Danski rithöfundurinn Bente Clod, sem átti að halda fyrir-
lestur I Norræna húsinu hefur oröiö að fresta för sinni til tslands
sakir mikils annrikis. Þvi fellur fyrirlestur hennar niöur að
þessu sinni, en von er á henni hingað til lands næstavor.
r
Afram opið hús hjá
Leigjendasamtökunum
Sl. laugardag höfðu Leigjendasamtökin opiö hús á skrifstofu
sinni, Bókhlöðustig 7, á milli kl. 3-6. Þangaö komu m.a. Guörún
Helgadóttir borgarfulltrúi á vegum Alþýöubandalagsins og
Gerður Steindórsdóttir formaöur Félagsmálaráös Reykjavikur.
Ætlunin er að endurtaka „opna húsiö” nk. laugardaga. Og
munu fulltrúar stjórnmálaflokkana mæta og spjalla við
leigjendur. Næsta laugardag kemur Georg H. Tryggvason,
aðstoðarmaður félagsmálaráöherra og starfmaður nefndar-
innar sem samdi lögin um húsaleigusamninga, Einnig mætir
Jóhanna Sigurðardóttir f.v. þingmaður Alþýöuflokksins.
Skrifstofan verður opin milli 3 og 6. Skorað er á leigjendur að
mæta, fá sér kaffi og spjalla við gesti og fræðast af þeim.
Ársrit Útivistar 1979
Út er komið ársrit Útivistar 1979 og nefnist það Útivist 5. Þetta
fallega rit er 90 siður að þessu sinni prýtt fjöldamörgum mynd-
um m.a. i lit. Umsjón með útgáfunni 'hafa þeir Einar Þ. Guð-
johnsen og Jón I. Bjarnason.
Gjöf til vangefinna
A félagsfundi, þriðjudaginn 6. nóv. s.l. afhenti Kvennadeild
Reykjavikurdeildar Rauöa Kross Islands, Styrktarfélagi van-
gefinna 6,7 miljónir að gjöf til kaupa á innbúi i dagheimili það,
sem félagið hefur I smiðum við Stjörnugróf i Reykjavik.
Stefnt er aö þvi aö heimili þetta verði tilbúið til notkunar á næsta
ári.
A myndinni sést er form. Kvennadeildarinnar, Helga Einars-
dóttir, afhendir form. Styrktarfélagsins, Magnúsi Kristinssyni,
gjöfina.
Ræddu hugsjónir um óháð störf
Forsvarsmenn félaga ráögjafarverkfræöinga á Noröurlöndum
héldu nýlega áriegan fund sinn á Hótel Loftleiöum, en hann
gengur undir nafninu RINORD og er haldinn tii skiptis á Noröur-
löndunum öllum. Þar skiptast þessir aöilar á skoöunum og upp-
lýsingum um starfsemi og þróun mála er varöa ráögjafarstörf.
18 sátu fund RINORD og ræddu ma. um breytingar á skipan
byggingarmála á Norðurlöndum, útboö á ráðgjafarþjónustu,
þóknun fyrir störf ráögjafarverkfræðinga og hugsjónir um óháð
atörf þeirra undir öllum kringumstæðum, segir i fréttatilkynn-
ingu frá Félagi Ráögjafarverkfræöinga á Islandi.
Fjörugt félagslif
landa i Khöfn
Blómlegt og fjörugt félagslif
er meöai Islendinga I
Kaupmannahöfn og hefur
mjög vaxiö og eflst undanfarin
ár eftir aö aöstaöan fékkst i
Húsi Jóns Sigurössonar. Er
þar eitthvaö um aö vera
allflest kvöld og tslendingum
sem viödvöl hafa i Höfn bent á
aö kikja þar inn ef þeir vilja
komast I samband viö landa.
Húsiö er i östervoldgade 12,
simi 146035.
Starfandi eru kórar, bridge-
hópur, kvennabaráttuhópar,
knattspyrnuflokkur og f 1.,
spilakvöld og kvikmyndasýn-
ingar fyrir börn, eru reglu-
lega/auk fagnaða ýmissa og
funda, þ.á.m. pólitlskra
umræðufunda sem stefnt erað
hafa mánaöarlega I vetur.
Nýlega var haldiö ijóöakvöld
þar sem ung islensk skáld i
Khöfn lásu úr verkúm sinum,
Konukvöld er nýafstaðið og
erindi fræðimanns, sem nú
dvelur I fræöimannsibúöinni I
Jónshúsi, en þaö er Sigurður
Þórarinsson jaröfræöingur,
sem verður þar til næstu
mánaöamóta.
Oftaster eitthvaö um aö vera i
Jónshúsi.
Frá starfseminni segir i
fréttabréfi sem kemur út
reglulega, en nú hefur auk
þess komiö upp sú hugmynd
aö gefa út blað á vegum
Islendingafélagsins. Ný stjórn
þess var kosin i haust og skipa
hana Gfsli Þórðarson form
Ottar Ottósson gjaldkeri og
Guörún Eirikidóttir, Ester
Hjartardóttir varaform.,
Ingólfur Baldvinsson og
Stefania Skarphéðinsdóttir
meöstjórnendur.