Þjóðviljinn - 30.11.1979, Síða 9
Föstudagur 30. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
bsekur
PÁLL H.JONSSON
Ný bamasaga
Páls HL Jónssonar
Út er komin á vegum IÐUNN-
AR barnasagan Agnarögn eftir
Pál H. Jónsson. Hann er kunnur
fyrir ljóö sin, lög, leikrit og sögu-
rit, en i fyrra sendi hann frá sér
barnasöguna Berjabít. Fyrir
hana hlaut höfundur verölaun
sem fræösluráö Reykjavikur-
borgar veitir bestu frumsaminni
barnabók ár hvert. — Agnarögn
er saga I I2köflum og fylgir mynd
hverjum kafla, en myndirnar
teiknaöi Þorbjörg Höskuldsdóttir.
Agnarögn segir frá átta ára
stúlku sem dvelst um skeiö hjá
afa sinum,samskiptum þeirra sln
I milli og viö börn og fullorðna I
hverfinu þar sem þau biía. Segir
svo um efni sögunnar i kynningu
forlagsins: „Gleðin og sorgin
vitja litlu stUlkunnar, og samfé-
lagið meðal barna og fullorðinna
er kannskiekkialltafeins friösælt
og vera ætti. Þeir eru til sem
spilla þessu sambýli vegna
þröngsýni og brenglaðs mats á
lifinu. Og ef til vill geta afi og
amma ekki bUiö lengur í hverf-
inu?”
Agnarögn er 123 blaöslöur.
Prisma prentaöi.
ULLMANNog
INGMAR
Sifipmyndír
IR9I tveggja listamanna
Quöfún Guómundsdóttirislenskaöi
SETBERG
Liv Ullman og
Ingmar Bergman
Setberg gefur út bókina um Liv
UUmann og Ingmar Bergman
eftir Bernie Garfinkel i þýöingu
GuörUnar Guömundsdóttur.
Hér er sagt frá lifi og starfi
tveggja stórbrotinna hstamanna.
Hvernig Liv þroskaðist sem leik-
kona undir handleiöslu Ingmars
Bergmans og varö jafnframt ást-
fangin af leikstjóranum fræga.
Tveir skapstórir listamenn áttu
sitt ástarævintýri, en varö ofviöa
aö lifa saman í hversdags-
leikanum. ,,Ég varö ástfangin af
Ingmar meöan á töku kvikmynd-
arinnar „Persona” stóö,” segir
Liv i bókinni. „1 minum augum
var hann guö — ég dáöi hann svo
mikið. Ég var bara tuttugu og
fimm ára og hann fjörutlu og
sex.” Þau bjuggu saman I 5 ár i
óvigöri sambUÖ og eignuðust
dótturina Linn, en slitu sam-
vistum. „Heföum viö haldið
áfram aö vera saman,” segir Liv,
„hefðum viö endanlega eyðilagt
þaö sem var gott á milli okkar.
Viö eigum enn þaö besta eftir aö
mestu leyti. Viö erum vinir og
vinnum saman. Gallinn var bara
sáaö viö vorum hvort ööru fjötur
um fót.”
Hvað segja þeir um stöðuna ?
Kjartan Olafsson, efsti maður á lista Alþýðubandalagsins i VestJjarðakjördœmi
Tel okkar stöðu sterka
— Ég tel aö staöa okkar
Alþýöubandalagsmanna sé
sterk hér á Vestfjöröum. Aö
vfsuhafa þeir fjórir flokkar sem
nú bjóöa fram tveimur dánar-
bUum aö skipta á miili sfn frá
siöustu kosningum, óháöa fram-
boöinu og framboöi
Samtakanna og þvi nokkuö
erfitt aö spá um hvert þaö fylgi,
sem þessi f ramboö fengu, fer aö
þessu sinni, sagöi Kjartan
Óiafsson, efsti maöur á lista
Alþýöubandalagsins er við
ræddum viö hann og spurðumst
frétta Ur kosningabaráttunni.
Kjartan sagöi aö kosninga-
baráttan heföi gengiö vel,
frambjóöendur Alþýöubanda-
lagsins heföu fariö vitt um og
hitt fjöldann allan af fólki og
sagðist hann ekki hafa oröiö var
viö annaö en aö staöa
Alþýöubandalagsins sé sterk.
Það eina sem heföi veriö aö i
þessari kosningabaráttu væri
hve samgöngur allar hefðu
veriö frambjóöendum erfiöar.
Menn heföu oft á tlöum lent I
erfiöleikum á feröum sinum og
fyrir bragöiö heföi þurft aö
fresta fundum frá miöjum degi
fram á kvöld. Sameiginlegir
fundir heföu veriö margir,
sennilega hvergi fleiri i öörum
kjördæmum og tekist hefði aö
halda alla fyrirhugaöa fundi
þrátt fyrir erfiöar samgöngur
— Þessir fundir erU vinsælir
hjá fólki, þaö vill alls ekki láta
þá falla niöur. Heimamenn fá
þarna tækifæri til aö láta sinar
skoðanir I ljós og I afskekktum
byggðarlögum eru fundirnir til-
breyting,enda oft fjör á þessum
fundum, sagöi Kjartan.
Hver hafa svo veriö aðalmál
kosningabaráttunnar fyrir
vestan?
— Efnahagsmálin, án nokkurs
vafa*, bæöi veröbólgan og kjara-
málin hafa veriö efst á baugi á
fundunum, og einnig einstök
hagsmunamál hinna ýmsu
byggðarlaga. Þá hefur mikiö
veriö rætt um þaö af andstæð-
ingaflokkum Ihaldsins, hvernig
koma megi I veg fyrir aö leiftur-
Kjartan ólafsson
óttast leifturárás á' llfskjörin.
sóknin gegn lífskjörunum nái |
fram aö ganga, enda ljóst aö j
allur almenningur óttast þessa ]
leifturárás á lifskjörin mjög.
Menn eru uggandi um aö alræöi
peningavaldsinskomisthér á og
þaö er kviöi i mörgum yfir þvi,
ef íhaldiö kemst hér til valda.
Það er áberandi hve fólk til •
sveita gerir sér glögga grein
fyrir þessari miklu hættu og
bændafólk er uggandi um sinn
hag, komist íhaldiö til valda.
Verkafólk i kaupstööum hefur
þó alltaf verkalýöshreyfinguna
sér til varnar.en fólk til sveita
stendur berskjaldaö fyrir llfs-
kjaraárás ihaldsins.
— Ég vil aö lokum taka þaö
skýrt fram, aö ef horft er af
raunsæi á þessi mál, þá er stór
hætta á aö ihaldiö komi á alræöi
peningavaldsins eftir þessar
kosningar, en þaö er einnig
Ijóst, aö þaö munu margir taka
þátt i' þvi i þessum kosningum
aö reka til baka skriödrekasveit
Almenningur Ihaldsins og peningavaldsins I
landinu.
Helgi Seljan 1. maður á lista Alþýðubandalagsins i Austurlandskjördæmi:.
Þrír áfram á
//Við höfum verið á
ströngum sameiginlegum
framboðsfundum/" sagði
Helgi Seljan, sem skipar
1. sæti á lista
Alþýðubandalagsins i
Austurlandskjördæmi í
samtali við Þjóðviljann.
//Þetta hafa verið harðir
fundiren málefnalegir að
mörgu leyti."
„Viö höfum ekki orðiö varir
viö annað en góöan hug I okkar
fólki,” sagði Helgi. „Hér hefur
rlkt baráttugleöi og mikiö verið
starfaö.”
— NU hverfur Lúðvik af þingi.
Búist þið viðað það muni breyta
stöðunni?
„Ón e i t a n 1 e g a sakna
menn Lúöviks hér eystra og
það fer ekki hjá þvi aö menn
þurfa aö vinna þeim mun betur
af þeim sökum. 1 3. sæti listans
er nú ungur og röskur maöur,
Sveinn Jónsson á Egilsstööum.
Hann vinnur vel og hefur tekiö
þátt i kosningabaráttunni af
miklum krafti.”
Helgi sagði gott hljóö I
Alþýöubandalagsmönnum.
„Viö fengum mikla uppsveiflu
siðast og auövitaö verða menn
aö vera vel á varöbergi, þvl viö
fórum þaö hátt upp.”
— Hefur verið deilt um ein-
hver sérstök mál öðrum fremur
á framboðsfundunum?
„Nei, en óneitanlega hafa
Helgi Seijan:
sakna menn
eystra.”
„Óneitanlega
Lúðviks hér
efnahagsmáiin staöiö uppúr
allri þessari umræöu. Fjórö-
ungsmál og landsbyggðamál
hafa Hka komið meira og minna
til tals og heimamál einstakra
staöa. Viö Alþýöubandalags-
menn höfum einnig haldiö vel
heppnaöa kosningafundi.”
— Og þið stefnið að þvi að
haida stööunni sem stærsti
flokkurinn I Austurlandskjör- j
dæmi?
„Já, viö stefnum aö þvi og I
a.m.k. er það markmiö okkar aö
þrlr menn af okkar lista veröi
áfram á þingi. Viö teljum þaö
mikilvægan liö I baráttunni
gegn hægriöflunum aö halda
þremur mönnum áfram inni.”
-eös
Helgi Guðmundsson, i 3. sæti á lista Alþýðubandalagsins á Norðurlandi eystra:
ÚrsBt kosninganna eru
innlegg í kjarasamninga
— Mér er efst i huga að verka-
fólk i þessu iandi geri sér grein
fyrir þvl aö verkalýöshreyfingin
stendur á næstu mánuðum
frammi fyrir þvl erfiða úrlausn-
arefni aö gera nýja kjarasamn-
inga, sagði Helgi Guðmundsson
trésmiöur á Akureyri i stuttu
samtali við Þjóöviljann. Helgi
skipar 3. sæti framboöslista AI-
þýöubandalagsins á Norður-
landi eystra.
— Það sem gerist I
kosningunum um helgina verö-
ur ekki síöur innlegg I þá bar-
áttu en samningagerðin sjálf,
sagöi Helgi. — Pólitlskt ástand I
landinu mun ráöa niöurstööum
samninganna ásamt baráttu-
þreki og kjarki verkalýöshreyf-
ingarinnar.
Viö höfum hér tvöfalt liö
ihaldsmanna I framboöi. Báöir
tala fyrir sama flokk þó að þeir
rifist um þaö, hvor hafi til þess
formlega heimild.
En varöandi þau verkefni sem
þarf aö vinna aö i þessu kjör-
dæmi, þá er mikiö verk t.d. ó-
unniö I samgöngumálum hér.
Hálfgeröur vegur er um Vikur-
skarö og i þessum efnum þarf aö
gera stórátak.
Annars eru pólitiskar aöstæö-
ur svipaöar hér og annarsstaðar
á landinu. Hér er til dæmis af-
skaplega stór hópur sem list
ekki á þá „leiftursókn” sem nú
er aö hefjast.
— Eru Alþýöubandalagsmenn
sæmilega bjartsýnir á úrslitin á
Norðurlandi eystra?
Helgi Guðmundsson: Kratarnir
lita á stjórnmál sem einskonar
vltaspyrnukeppni.
— Já, viö höfum enga ástæöu ]
til aö ætla annað en að þetta
gangi bærilega. Andstæðingar ]
okkar hafa ekki sýnt neitt þaö af
sér, sem gefur ástæðu til ann-
ars. Auövitaö gætir nokkuö póli-
tiskrar þreytu I fólki. Ég held aö
þessi popppólitlk krata sé af-
skaplega þreytandi til lengdar.
Ég held að kjósendur liti ekki á
stjórnmál sem neitt sport eöa
einskonar vltaspyrnukeppni,
eins og kratarnir viröast gera,
þeir ætla að láta aö kjósa linnu-
laust eftir þvi sem manni skilst
og sprengja allar rikisstjórnir
sem þeir geta mögulega sprengt
til þess aö knýja fram sinr vilja,
sem sjálfsagt enginn veit hver
er.
■ eos.
Einingarafl gegn íhaldi