Þjóðviljinn - 29.12.1979, Side 5

Þjóðviljinn - 29.12.1979, Side 5
Laugardagur 29. desember 1979 >I>JÓÐVILJINN — SIÐA 5 Nýju valdhafarnir í Afganistam Kalla Soyét til liðs Babrak Karmal, hinn nýi leiðtogi Afganistan, bað í gær Sovétríkin um hernaðaraðstoð samkvæmt gagnkvæmum vináttusamningi sem bæði ríkin undirrituðu fyrir ári. Bandaríkjastjórn mót- mælti í gær afskiptum Sovétríkjanna af valda- tökunni i Afganistan. (Jtvarpið i afgönsku höfuö- borginni Kabúl, skýrði i gær frá þvi að Karmal forseti hefði beðið Sovétrikin um stjórnmálalega, efnahagslega og hernaðarlega aðstoð samkvæmt vináttu- samningum. Sovéska fréttastofan TASS skýrði frá þvi að valdhafar þar hefðu ákveðið að verða við beiðninni. Einnig var skýrt frá árnaðaróskum Brésnéfs forseta Sovétrikjanna til Karmals, vegna valdatökunnar. ,,Ég óska þér mikils árangurs I öllum athöfnum, sem verða hinni vinsamlegu afgönsku þjóð til góðs”, sagði Brésnéfs i orðsend- ingu sinni. Thomas Reston, talsmaður bandariska utanrikisráðuneytis- ins, sagði i gær að Bandarikja- ROTTERDAM: Minna af olíu frá Ínui Rotterdam (Reuter). Magn það áf íranskri olíu, sem fer um höfnina í Rotterdam, en þar er stærsti // f rjálsi" olíu- markaður i heimi, hefur minnkað um helming. Arið 1978 fóru 29.5 miljón tonn af hráoliu um höfnina i Rotter- dam, en á fyrstu ellefu mánuðum 1979 var magnið aðeins 14.7 miljón tonn. Samdrátturinn hefur verið sérlega mikill á allra siöustu mánuðum 1979. Talsmenn Rotterdamhafnar álita að ástæðan sé minnkandi oliuframleiðsla i íran, fremur en að irönsk yfirvöld hafi ákveðið að senda oliu til annarra hafna. Iran framleiddi 5.2 miljón tunnu- mál á dag árið 1978, en minna en 3.5 miljón tunnumál á þessu ári. Innflutningur oliu frá öðrum rikjum til Rotterdam, gerði meira en að vinna upp minnkaðan innflutning frá Iran. A þessu ári voru flutt inn rúmlega 118 miljón tonn af hráoliu, en það er 12 prósent aukning miðað við árið 1978. Olíuspádómar t fyrsta skipti i nitján ára sögu samtaka oliuframleiðslurikja (OPEC) lauk ráðherrafundi þeirra 20. desember s.l. án sam- komulags um oliuverðlag. Samt er það reginmisskilningur, að imynda sér aö þarmeð sjái fyrir endann á valdaskeiöi oliufram- leiðslurikjanna. ósamkomulag- ið innan OPEC virðist þvert á móti ýta oliuinnflutningsríkjum úr öskunni i eldinn. A OPEC-ráðherrafundinum i Cáracas i Venesúela ollu deilur milli Saudi-Arabiu, sem vill halda oliuveröi niðri, og ann- arra rikja (svo sem Iran og Libýu) sem vilja hátt oliuverð, óeiningu um verðlag. Ekki tókst að ná mála- miðlunarlausn likt og á OPEC- ráöherrafundinum i júni s.l. þegar ákveðið var að setja lágt verð á saudi-arabiska oliu, en hærra verð á oliu frá öðrum rikjum. Libýa og Nigeria voru reiðubúin að fallast á 30 dollara hámarksverð fyrir tunnumálið, ef Saudi-Arabia hækkaöi lág- marksverð sitt úr 24 dollurum i 26,50 dollara. Þessu tilboði hafnaöi Ahmed Zaki Yamani, oliumálaráðherra Saudi-Arabiu á þeirri forsendu, að efnahagur heimsins þyldi ekki hærra verð en 24 dollara fyrir tunnumálið. Margir menn af ólikum stjórnmálaskoðunum á Vestur- löndum munu fallast á þessa röksemdafærslu Yamani. Sam- tök vestrænna iðnrikja um efna- hagsmál (OECD) birtu rétt áður en OPEC-fundinum lauk spá um stöðnun hagvaxtar á næsta ári, og var þar gert ráð fyrir „mjög rólegum oliumark- aði” á næstunni. Engir aörir kostir Aukning þjóðartekna i vest- rænum iðnrikjum á árunum 1960-70 var að töluverðu leyti að þakka lágu verði á oliu og öðrum hráefnum. Orkukrepp- una nú á dögum má rekja til ódýrrar oliu á þessum árum. Þá jókst orkunotkun gifurlega og olian kom i stað annarra orku- gjafa, svo sem kola. Hið lága oliuverö á sjöunda áratugnum veldur þvl að nú geta oliufram- leiðslurikin snarhækkað oliu- verðiö, oiiuinnflytjendur hafa nefnilega — ekki lengur — ann- arra kosta völ. Rétt er að minna á i þessu sambandi, að OPEC- samtökin voru stofnuð að frum- kvæði Venesúela, vegna þess að vestrænir olluauðhringir höfðu einhliöa lækkað oliuverð. Augljóslega hafa oliuverð- hækkanir á siðari hluta ársins 1979, sem fóru langt yfir há- marksverðið sem OPEC-ráð- herrarnir ákváðu i júni s.l., komið illa niður á tilraunum vestrænna iðnrikja til að yfir- stiga efnahagskreppuna. Ýmis- legt bendir þó til, að innan tiðar verði oliuverðlag ekki alvarleg- asta vandamálið heldur ollu- skortur. Minni oliuframleiðsla Samtök vestrænna iðnrikja OECD, eru bjartsýn: Stöðnun i hagvexti Vesturlanda mun draga úr eftirspurninni og þar með þrýstingi á oliuverðlagið. Menn telja þetta happ i óhappi, jafnvel þóh OECD geti þess, að „aðeins litilvæg minnkun á framboðinu mundi hafa mikil áhrif á efnahagsútlitið”. Niels Ersböll, sem stjórnar samtök- um oliuinnflutningsrikja (IEA) býst einnig við nægri oliu á heimsmarkaðnum, vegna þess að Saudi-Arabar hafa tilkynnt að þeir muni auka oliufram- leiösiuna. Aður hefur verið deilt um oliuverðlag innan OPEC, og þá hefur Saudi-Arabia notað framleiðslugetu sina til að bjóða fram mikið magn af oliu á markaðnum, til þess að þrýsta verðlaginu niður. Margt bendir hins vegar til þess, að spádómur Ersböll ræt- ist ekki, og að varfærni OECD- hagfræðinganna muni þegar fram I sækir vera ofurbjartsýni. Fyrir fundinn i Caracas gáfu mörg OPEC-riki til kynna að þau myndu draga úr fram- leiðsluá næstunni, þ.á.m. Indó- nesia, Irak, Iran, Kúvæt, Nigeria, Venesúela og Sam- einuðu arabísku furstadæmin. Svartsýnismenn á Vesturlönd- um búast við að ársframleiðsla OPEC-rikjanna verði skorin niður um hálfan til einn miljarð tonna á næstu árum. Verðbólguvandinn Það kemur fleira til. Breska dagblaðið The Times vitnaöi nýlega i sérfræðing hjá OECD: „Þaö voru uppgangstimar á sjöunda áratugnum, vegna þess aö þá var ekki við verðbólgu- vandann að striða. Erfiöleika- timarnir hófust ekki árið 1973, þegar oliuveröhækkanirnar byrjuðu, þeir hófust tveim til þrem árum áður. Upphafið má rekja til áranna 1965-70. Ef breska hagkerfiö hefði verið heilbrigt, þá hefði þaö getað tekið áfallinu af oliuverð- hækkununum. Hagkerfi Vestur- Þýskalands, Japans og nokkur önnur réðu við hækkanirnar. Þessar oliuverðhækkanir virk- uðu til hins verra, en þær voru ekki upphaf vandans, þrátt fyrir aö þær muni kannski koma i veg fyrir aö takist að ráöa fram úr vandanum.” Verðbólguvandi vestrænna rikja, sem hófust áöur en oliu- verð hækkaöi árið 1973, veldur þvi að það er skynsamlegra að geyma oliuna i jörðinni en að selja hana fyrir peninga sem si- fellt rýrna að verðgildi. Upplausnarástandið á gjald- eyrismörkuðunum, og sérstak- lega verðfall dollarans — en hann er sá gjaldmiöill sem olian er greidd með — veldur sömu niðurstöðum. Vanmáttur Bandaríkjanna til að draga úr oliunotkun, eins og reynt var fyrr á þessu ári, hefur valdið tregðu hjá Saudi-Arabiu til að nota aukaframleiðslugetu sina til að halda verðinu niðri — jafnvel þótt Yamani segist enn ætla að beita þessari aðferð. Saudi-Arabia Fyrir leiðtoga Saudi-Arabiu er þaö ekki mestur vandinn, að landið tapar miijörðum dollara á degi hverjum, vegna lágs oliu- verðs og mikillar framleiðslu. Miklu alvarlegri er sá vandi, að landið þénar mikiu meira á oliunni en það kemur i lóg. Saudi-Arabia hefur dregist inn i þróunarhraða sem samfélags- skipanin þolir varla. Það er ekki hægt að bera landið nákvæm- lega saman við Iran, en þó er hægt að hugsa sér að „efna- hagsundrinu” ljúki á samskon- ar hátt og hjá keisaranum i íran. Hertaka Moskunnar i Mekka virðist hafa verið gerð af pólitiskum ástæðum og beint gegn vestrænni þróunarstefnu drottnaranna. Hugsanlega veröur þess ekki langt að biöa, að ráðamenn i Saudi-Arabiu — likt og Norömenn og Mexikanar — lýsi þvi yfir að olian verði framleidd eftir þörfum landsins en ekki eftir þörfum vestrænna oliuinnflutningsrikja. (Information, jás) \ stjórn mundi senda formleg mótmæli til valdhafa i Moskvu, vegna aðildar sovéskra her- manna að valdatökunni I Afganistan. Sagði hann að Bandarikin teldu að 10.000 her- menn frá Sovétrikjunum væru i Afganistan og hefðu átt aðild að einhverjum átökum i höfuðborg- inni. „Við teljum ekki að Afganistan sé ógnað erlendis frá i þá veru, að afskipti Sovét- rikjanna séu réttlætanleg”, sagði Reston. Hann sagði að aðgerðir skæruliða i Afganistan væru „innanlandsuppreisn, sem borin er uppi af afgönsku þjóðinni”. 1 gærkvöldi skýrði útvarpið i Kabúl frá þvi, að auk Hafizulla Amins fyrrum forseta Afganistan, hefðu yngri bróðir Amins og frændi verið teknir af lifi. Sagði útvarpið að þeir hefðu allir þrir verið liflátnir vegna glæpa gegn afgönsku þjóðinni. Byltingadómstóll kvað upp dauðadóminn, og sagði Kabúl- útvarpið að dómstólinn mynduðu „byltingarsinnaðir trúar- og verkalýðsleiðtogar ”. Yngri bróðir Amins forseta var herstjóri norðurhluta landsins, en frændi hans var yfirmaður leyni- lögreglunnar i Afganistan og aðstoðarutanrikisráðherra. Ródesia: Kosningar í febrúar Salisbury (Reuter) Soames lávarður, breski landstjórinn i Ródesiu, ákvað i gær að kosningar skuli fara fram i landinu i seinni hluta febrúar 1980. Kosningarnar verða undan- fari sjálfstæðis þessarar bresku nýlendu, eftir 14 ára deilur. Landstjórinn gaf yfir- lýsingu sina nokkrum klukkustundum áöur en vopnahlé hófst á miðnætti I nótt. Samkvæmt friðar- samningunum sem gerðir voru I London, munu hvitir menn i Ródesiu kjósa sérstaklega um 20 af 100 þingsætum. Kosningar hvita minnihlutans fara fram 14. febrúar n.k. Siðan verður kosið um 80 þingsæti i almennum kosningum sem fara fram 27. til 29. febrúar n.k. Soames lávarður lagði áherslu á að allir hermenn hinna striðandi aðila i Ródesiu verði að vera komnir til fyrirfram ákveð- inna svæða i landinu 4. janúar 1980. „Mikið liggur við að sá frestur sé haldinn”, sagði Soames. Blaðberar athugið Rukkunarheftin eru tilbúin á afgreiðslu blaðsins, Síðumúla 6. Þjóðviljinn simi 81333. Frá Lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna HINN 1. APRÍL 1980 munu taka gildi nýjar reglur um útreikningsaðferð á greiðslum fyrir kaup á lifeyrisréttindum og á flutningi réttinda úr öðrum sjóðum til Lifeyrissjóðs starfsmanna rikisins, Lif- eyrissjóðs barnakennara og Lifeyrissjóðs hjúkrunarkvenna. NÝJU REGLURNAR VERÐA ÞANNIG: A. Fyrir kaup á lifeyrisréttindum aftur i timann, er félagar i nefndum sjóðum kynnu að eiga rétt á að greiða vegna eldri starfstima, sem iðgjöld hafa ekki verið greidd fyrir áður, verður sjóðsfélagi að greiða iðgjöld miðað við þau laun sem hann hefur þegar réttindakaupin eru greidd. B. Flutningar úr öðrum sjóðum verða ekki heimilaðir nema náðst hafi samkomulag við aðra lifeyrissjóði um framkvæmd þeirra. Kaup á réttindum aftur i timann verða þvi aðeins leyfð, að um þau sé sótt innnan árs frá þvi umsækjandi gerist sjóðsfélagi. (sbr. þó sérákvæði laga um Lifeyrissjóð hjúkrunarkvenna.) Lifeyrissjóður starfsmanna rikisins. Lifeyrissjóður barnakennara. Lifeyrissjóður hjúkrunarkvenna. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.