Þjóðviljinn - 29.02.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.02.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. febrúar 1980 I stuttu máli Frá Hagallnskvöldi 12. febr. Hagalín heimsœkir BSRB Húsfyllir var þann 12. febr. er opinberir starfsmenn fengu góöa gesti i heimsókn aB Grettisgötu 89. Þaö voru þau feögin Guömundur G. og Sigrlöur Hagalln. Baldvin Halldórsson, leik- ari, sagöi þar frá kynnum sín- um af skáldinu. Sigrlöur Hagalln las upp söguna „Móöir barnanna”, og þá sagöi Guömundur siálfur frá rithöfundarferli slnum. Síöan stjórnaöi Kristín H. Tryggva- dóttir, fræöslufulltrúi, fyrir- spurnaþætti og bárust skáld- inu fjöldi fyrirspurna um bæk- ur hans, fyrirlestra ofl. sem hann útskýröi með sinni alkunnu frásagnargleöi. Þetta er önnur bókmennta- kynningin sem fræöslunefnd BSRB stendur fyrir á þessum vetri, hin var meö Halldóri Laxness og var einnig mjög fjölsótt og hefur nefndin þegar áform uppi um fleiri fræðslu- erindi og bókmenntakynn- ingar. Einnig er fyrirhugaö námskeiö um fundarsköp og ræöumennsku. Þá er ætlunin aö efna til námskeiöa fyrir áhugamenn og trúnaöarmenn I félögum vlöa um land. H.H. Námskeiö I næringarfræöi og vöruþekkingu eru aö hefj- ast á vegum Náttúrulækn- ingafélags Islands. Veröur fyrsta námskeiöiö haldiö á Matstofu NLFl aö Laugavegi 20 B á morgun, laugardag og sunnudag kl. 9.30 til 5 báöa dagana. Leiöbeinendur veröa Jóhannes Gislason, Guöfinnur Jakobsson og Roy Firus. Námskeiösgjald er kr. 10 þúsund og er þá innifalinn há- degisverður á sunnudag og fjölritaö námsefni. Fataverksmiöjan Hekla á Akureyri hefur fengið aögang aö fatahönnun á vegura finnska samvinnusambands- ins SOK, aö sögn Sigurðar Arnórssonar, verksmiöju- stjóra. Fer þaö þannig fram, aö Hekla fær aö velja úr þeim flikum, sem SOK framleiöir og kaupir slöan höfundarétt og sniö til aö framleiða þessar fllkur hér á landi. Verksmiöjan er nú þegar byrjuö aö framleiöa talsvert af fllkum til innanlandssölu eftir þessu samkomulagi. Eru þaö aöallega úlpur, jakkar og buxur á börn og unglinga, þ.e. fyrst og fremst þær fllkur. sem fylgja tlskunni, en ekki vinnuföt. Mjög gott samstarf hefur tekist um þetta viö finnska samvinnusambandiö og eru jafnvel taldar horfur á aö á þessu ári geti oröiö um aö ræöa framleiöslu aö verömæti um 500 milj. kr., SOK á eina af fjórum sníöagerðartölvum I Finnlandi og gefur þaö góöa tryggingu fyrir þvl, aö sniðin séu rétt. Þeir flytja einnig mjög mikiö út, svo aö fatnaöur þeirra er sniöinn eftir vaxtar- lagi Noröur-Evrópubúa almennt. — mhg Sjálfkjörið í Lögreglufélaginu Aöeins listi uppstillingar- nefndar barst til kjörs I stjórn Lögreglufélags Reykjavlkur og varö hún þvl sjálfkjörin. Stjórnina skipa Björn Sigurðs- son form., Þorgrlmur Guö- mundsson varaform., GIsli M. Garöarsson ritari, Jón A, Guö- mundsson gjaldkeri og meö- stjórnendur Eirlkur Beck, Ölafur Guömundsson og Ei - rlkur Helgason. Varastjórn skipa Ragnheiöur Davlösdótt- ir, Hákon Sigurjónsson og Siguröur Kr. Sigurösson. Nœringarfrœði og vöruþekking Finnsk fatatíska á íslandi i „Landkrabbar” í Stykkishólmi: ! Líffræðingur I og stýrimaður ! skrifar leikrit ■ Leikstjóri og höfundur, Þórunn jjj Pálsdóttir og Hilmar Hauksson, ■ á æfingu. Leikfélagiö Grimnir I Stykkis- hólmi frumsýnir á sunnudaginn kemur, 2. mars, nýtt islenskt verk meö viöfangsefni úr dag- lega lffinu, nánar tiltekiö frysti- húslffinu, I Félagsheimili Stykkishólms. Þetta er fyrsta uppfærsla leikritsins, sem er kryddaö söngvum, heitir LANDKRABB- AR og er eftir Hilmar Hauks- son, sjávarliffræöing og stýri- mann, nú kennara viö Fjöl- brautaskólann I Breiöholti. Hilmar er maöur vlöreistur um veröldina á sjó og landi, meöal annars var hann I áhöfn norsku teinæringanna, sem sigldu frá Noregi til íslands þjóöhátiöar- Svavar Gestsson félagsmálaráðherra: Marka þarf framtíðar- stefnu í máhim fatlaðra Viö umræöur á Alþingi fyrir nokkru um málefni fatlaðra lagöi Svavar Gestsson félagsmálaráö- herra á þaö áherslu aö alþjóöaár fatlaöra 1981 ætti aö veröa lands- mönnum hvatning til aö marka framtlðarstefnu og verkefnaskrá f þessum málefnaflokki. Nauö- syniegt væri aö endurskoða margvfsleg lög og reglugeröir sem snerta hagsmunamál fatl- aöra, en ákvæöi um málefni fatl- aöra væru nú dreifö I mörgum lögum og reglugeröum og eölilegt aö þessir hlutir væru samræmdir og geröir einfaldari, bæöi fyrir fatlaöa og þá aöila f stjórnkerfinu er hafa meö þessi mál aö gera. Viö umræöur kom fram aö nú munu vera f gildi 16 lög og reglu- geröir er snerta málefni fatlaöra Umræöur um málefni fatlaöra hófust vegna frumvarps sem þingmennirnir Alexander Stefánsson og Þórarinn Sigurjónsson flytja þess efnis aö niöurfelling gjalda og innflutn- ingsgjalds á bifreiöum fatlaöra hækki um 50% frá gildandi lög- um. Eins og kunnugt er þá var toliskrárlögunum breytt 1979 á þann veg aö heimilaö var aö fella niöur gjöld eöa lækka af allt aö 400 bifreiöum árlega fyrir bæklaö fólk eöa lamað svo og fólk meö lungnasjúkdóma, hjartasjúk- dóma og aöra hliöstæöa sjúkdóma, allt á svo háu stigi aö þaö á erfitt meö aö fara feröa sinna án farartækis. 1 lögunum er miöaö viö ákveöna krónutölu, en siöan lögin voru sett hafa oröiö miklar verðhækkanir og tekur frumvarpiö miö af þeirri staö- reynd. Viö umræöur um máliö lagöi Jóhanna Siguröardóttir fram breytingartillögu þess efnis aö heimilt veröi aö hækka þessa undanþágu árlega meö tilliti til verölagsþröunar á hverjum tlma, svo ekki þurfi aö koma til laga- breytingar á hverju ári vegna veröhækkana. Svavar Gestsson, Guörún Helgadóttir og Arni Gunnarsson lýstu stuöningi viö þessa breyt- ingar-tillögu Jóhönnu og Alexand er Stefánsson flutningsmaöur' áöurgreinds frumvarps taldi einnig eölilegt aö athuga þennnan möguleika. Þá benti Guörún Helgadóttir á aö þeir sem fá lækkun á bifreiöagjöldum þurfa samkvæmt gildandi lögum aö eiga bifreiöar sinar 15 ár. Guörún sagöi aö öllum öryrkjum bæri saman um aö þessi timi væri of langur. Bifreiöum þessum væri ekið mikiö, eigendur gætu litt sem ekkert annast viögeröir á þeim og þær þess vegna dýrar I rekstri. Þegar loks væri leyfilegt aö selja bifreiöarnar þá væru þær oft illa farnar og verölitlar. Sagöist Guörún því telja rétt aö athuga möguleika á þvi aö stytta þennan tima 12 eöa 3 ár fyrir þá sem væru mestir öryrkjar og I 4 ár fyrir aöra öryrkja. —Þm Frá stofnfundi deildar Neytendasamtakanna á Höfn i Hornafirði f haust. — MyndrJ.G.). Neytendasamtökin efiast: Fjölsóttir stofnfundir Um síöustu helgi voru haldnir á vegum neytendasamtakanna stofnfundir deilda i Skagafiröi og A-Húnavatnssýslu. A þessa fundi komu fulltrúar úr stjórn NS, þeir Reynir Armannsson, formaöur NS og Jóhannes Gunnarsson, for- maöur Borgarfjaröardeildar NS. Báöir voru þessir fundir vel sóttir og var athyglisvert, aö á fundinum á Sauöárkróki mætti fólk úr nærlieeiandi sveitum og einnig frá Hofsósi og Varmahllö, en á Hofsósi er 10. hver I- búi stofnfélagi i deildinni. Þess má geta aö nú þegar hafa 197 manns látiö skrá sig sem stofnfé- laga I Neytendasamtökum Skagafjaröar, en áöur voru á þessu svæöi einungis 8 félagar i NS. Aö auki fóru fulltrúar samtak- anna I heimsókn i Rækjuvinnsl- una á Blönduósi, þar sem flutt var stutt erindi og starfsfólk bar fram fyrirspurnir. Umræöur á fundunum voru fjörugar og margir tóku til máls. Var fólk einróma á þeirri skoöun, aö frjáls samtök neyt- enda þyrfti aö stórefla og gera þau aö marktæku afli i þjóöfélag- inu. Neytendasamtökin hafa eflst mjög aö undanförnu og nú eru starfandi 14 deildir vfðsvegar um land. Búnaðarþing vill: Urbætur í orkumálum Út af erindum Búnaöarsamb. A-Húnvetninga og Búnaðarsamb. Suö- urlands ályktar Búnaöarþing eftirfarandi: „Búnaðarþing itrekar samþykkt sina frá 1979 varðandi endurbætur á dreifikerfi raforku isveitum, jöfnun raforkuverðs o.fl. (mál nr. 18-1979) og leggur jafnframt þunga áherslu á eftirfarandi: 1. AB áætlun Orkuráös um endurbyggingu og styrkingu dreifikerfis raforku i sveitum komi til framkvæmda þegar á þessu ári. 2. Aö Alþingi og rikisstjórn tryggi nægilegt fé á fjárlögum hverju sinni I samræmi viö nefnda áætlun og verðlagsþróun. 3. Aö lokiö veröi hiö allra fyrsta tengingu þeirra býla, sem enn eru ó- tengd viö samveitu, en fyrirhugað er að tengja á þann hátt. Jafnframt verði formrafvæðingarþeirra býla, sem eru utan ramma samveitn- anna, ákveöiö og framkvæmt hiö fyrsta. 4. Aö jákvæöari og hraöari afgreiösla náist varöandi fulla veröjöfnun á rafmagni en veriö hefur til þessa”. — mhg. Sviösmynd úr leikritinu. Vinnslusalur i frystihúsi. — Ljósm. Ól. H. Torfason. áriö 1974. Hann hefur marg- háttaöa reynslu af sjávarútvegi, veiöum og vinnslu. Var útibús- stjóri Hafrannsóknarstofnunar- innar á Húsavik 1978—79. Hann er einnig hljómlistarmaöur og hefur viöa komiö fram. Samdi sjálfur öll lög og texta, sem fluttir eru I sýningunni. Leikstjóri er Þórunn Páls- dóttir, sem er útskrifaöur leik- ari frá Leiklistarskóla Rikisins. Hun hefur leikiö meö Nemenda- leikhúsinu, Leikfélagi Reykja- vikur, Alþýöuleikhúsinu, I út- varpi og sjónvarpi og annast leiösögn i framsögn og leik- rænni tjáningu hjá ýmsum skól- um. Leikurinn gerist I frystihúsi i sjávarþorpi og fjallar um átök í og ástir starfsfólks og lýsir m.a. viöureign þess viö nýjan verk- ■ stjóra „aö sunnan”, bónuskerf- inu og svo framvegis. I Þetta er viöamikil sýning meö ■ 18 leikurum. hliómlistarfólki oe tilhey randi sviöskröftum. ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.