Þjóðviljinn - 27.03.1980, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. mars 1980
MÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýös-
hreyfingar og þjóðfrelsis <
útgefandi: Otgáfufélag ÞjóBviljans
Framkvæmdastjéri: EiBur Bergmann
Hitstjörar: Arni Bergmann, Einar Kari Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg HarBardóttir
UmsjónarmaBur SunnudagsblaBs: Ingólfur Margeirsson.
Kekstrarstjóri: Úlfar ÞormóBsson
AfgreiBslustjórí: Valþór HlöBversson
BlaBamenn: AlfheiBur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, GuBjón FriBriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magntis H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
tþróttafréttamaBur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson
útllt og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson, Sævar GuBbjörnsson
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
SafnvörBur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: SigrlBur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir ölafsson.
Skrlfstofa: GuBrún GuBvarBardóttir.
AfgreiBsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára SigurBar-
dóttir.
Sfmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, SigrlBur Kristjánsdóttlr.
Bflstjóri: Sigrún BárBardóttir
HúsmóBir: Jóna SigurBardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson.
Ritstjórn, afgreiBsla og auglýsingar: SiBumúIa S, Reykjavfk.slml 8 13 33.
Prentun: BlaBaprent hf.
Mikil
kjarabót jyrir
aldraöa
og öryrkja
• Jöfnun lifskjara og bætt kjör hinna lakast settu i
þjóðfélaginu eru á stefnuskrá núverandi rikis-
stjórnar. Slikar almennar yfirlýsingar hafa áður
sést i stjómarsáttmálum og jafnan er spurt um
efndir. Gagnvart öldruðum og öryrkjum, sem sann-
arlega eru lakast settir kjaralega séð i okkar landi,
hefur nú verið farið myndarlega af stað. Rlkis-
stjórnin hefur ákveðið, að frá 1. júni 1980 hækki
tekjutrygging aldraðra og öryrkja umfram
verðbætur sem nemur 5%. Er þetta i samræmi við
ákvæði stjórnarsáttmála um slika umframhækkun
tekjutryggingar 1. júni I ár og aftur 1. júni 1981.
• Félagsmálaráðherra hefur nú með reglugerð
skorið á hnútinn I áralangri þrætu um það hvort
framkvæmanlegt sé að lækka kostnað aldraðra og
öryrkja við lyf og læknisþjónustu. Frá og með 1.
april lækka greiðslur aldraðra og öryrkja fyrir lyf
og læknisþjónustu um 48%, og greiða þeir frá þeim
tima aðeins helming þess sem aðrir greiða.Þvi hef-
ur verið borið við er Alþýðubandalagið og ráðherrar
þess hafa hreyft nauðsyn þess að kostnaður þessara
tekjulægstu hópa þjóðfélagsins verði lækkaður að
ekld væri hægt að aðgreina greiðslur einstakra hópa
frá almennum greiðslum fyrir lyf og læknisþjón-
ustu. Kerfið hefur lagst þvert i málinu, en að sjálf-
sögðu er framkvæmdin ekki teljandi vandkvæðum
bundiaþvi áðumefndir hópar bera hvern dag á sér
fullgild vottorð sem sérgreina þá frá öðmm við-
skiptamönnum lyfjabúða og sjúkrastofnana.
• Hér er um ákaflega mikilvægt kjaraatriði fyrir
aldraða og öryrkja að ræða, þvi lyfjakostnaður
þeirra og annar kostnaður af viðskiptum við heil-
brigðiskerfið er oft i engu samræmi við tekjumar.
Ákvörðunin um að framvegis skuli greiðslur aldr-
aðra og öryrkja fyrir lyf og læknisþjónustu vera
helmingur af greiðslum annarra getur og haft
stefnumótandi áhrif.
• Það hefur verið meginregla að allir greiddu sama
gjald fyrir opinbera þjónustu burtséð frá tekjum.
Það hefur verið rökstutt með þvUð hinir tekjuhærri
greiði meira til samfélagslegra þarfa en hinir
tekjulægri, og svo hitt að menn hafa viljað láta jafnt
yfir alla ganga til þess að ekki sé litið á félagslega
aðstoð og opinbera þjónustu sem ölmusu til bág-
staddra. Augu æ fleiri hafa þó verið að opnast fyrir
þvi,að nauðsynlegt er að rikisvaldið gangi lengra I
tekjujöfnunarhlutverki sinu en gert hefur verið, og
þeir sem standa höllum fæti i samkeppnisþjóðfélag-
inu eru nú meðvitaðri en áður um rétt sinn til
félagslegrar samhjálpar. Þessvegna hlýtur ákvörð-
un félagsmálaráðherra um að aldraðir og öryrkjar
greiði helming lyfja- og Iæknisþjónustukostnaðar að
opna fyrir umræður um mismunandi greiðslur fyr-
ir sömu vörur og þjónustu eftir tekjum og aöstæöum
þeirra sem I hlut eiga.
—ekh
klrippt
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
9
i
i
■
I
■
I ,
i Islenska tóninn
\ vantaöi
m
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
i
Tandurhrein sál
Síðastliöiö haust var stofnað
hér f borginni félagiö Viöskipti
og verslun. Var þaö samansett
af heildsölum, smásölum og
verkalýösforingjum verslunar-
fólks. Var tilgangurinn einn» aö
auka veg verslunarinnar. Réöi
félagiö til áróöursreksturs
frægasta áróöursmeistara-
samtimans, höfund og hönnuö
leiftursóknar Sjálfstæöisflokks-
ins, Pétur Sveinbjarnarson.
Skjótt lagöi Pétur linuna:
Stéttarfélag verslunarmanna,
kaupmenn og heildsalar, skyldu
sameinast i einum draumi: hin-
um ameriska draumi, þar sem
smákallinn á alla möguleika.
Þá varö til auglýsingin sem
birt hefur veriö i sjónvarpi um
blaösölustrákinn, sem I raun-
inni er heildsali... því auövitaö
er heildsalinn meö tandurhreina
barnssál likt og blaösölubörnin i
Austurstræti.
Vér skemmdarfýsnarmenn,
helvitis kommarnir, söknum
þess úr þessari annars yndis-
legu auglýsingu, aö hvergi er aö
finna íslenska drauminn. Hinn
ameriski, sem aöeins hefur ræst
I Vilhjálmi Þór, sem byrjaöi
sem sendill hjá KEA en endaöi
sem bankastjóri Alþjóöabank-
ans; og Birni ólafssyni, sem
byrjaöi sem póstburöarmaður
en endaöi sem iönrekandi,
heildsali, ráöherra og alþingis-
maöur, ræöur auglýsingunni.
Hins vegar er ekki aö finna
neina svörun i smaladrengnum,
sem vakinn var upp viö háttu-
75 ára í dag
Stundum getureinföld saga
umblaðastrák
leitt hugann að iniilendri
heddverstun!
liðli h fildverslunar er þamiig,
ad flestir gera s?r ekki grein jyrir nauðsyn hennar.
Innlettd heildversfun skapar jjöibreytt vöruúrval,
cinfaldar vörudreijingu,
og rryggir belri þjónu.stu fyrir smásöluverslunina,
sem þú skiptir við á hverjum degi.
t'rjáls atvinnurekstur i lýörxöísríkjum
er trygging þln fyrir daglegri þjónustu,
sem öllum finnst sjdlfsögð.
Stundum gleymkt bara hve heildverslun er nouðsynleg!
vióskipli
&veizlun
mál og fékk góöfúslega aö
leggja sig undir seinni mjaltir;
þessum alislenska manni, sem
dreymdi stóra drauma um auö
og völd i vosbúð yfirsetunnar.
Þaö skyldi þó ekki vera, aö
Islenski draumurinn hafi aldrei
rzest, og eina vonin I draumnum
sem ööru sé Ameríka?
— úþ
og skorrið.
Stefán Illugason
Mitt I dagsins önn fæ ég þær
fréttir aö vinur minn Stefán
Illugason veröi 75 ára 27. mars,
Gaman heföi veriö aö skrifa góöa
og ýtarlega afmæliskveöju til
Stefáns.en þaö veröur aö bfoa átt-
ræðisafmælisins.
Allir sem unniö hafa hjá Skipa-
útgerð rikisins þekkja Stefán.
Þetta er einn af þessum þraut-
seigu og ötulu verkamönnum sem
vinna langan vinnudag viö höfn-
ina og hafa til aö bera stéttvisi og
greind sem margur langskóla-
genginn maöurinn mætti öfunda
þá af. Þaö hefur ekki veriö muliö
undir Stefán um dagna, hann
fæddist ekki meö gullskeið i
munninum, en meö þvi aö vinna
höröum höndum og af miklum
dugnaöi hefur honum búnast.
Enginn hefur heldur veriö svik-
inn af hans vinnu.
Stefán er uppalinn 1 Grundar-
firöi og hann er einn af þessum
mörgu gömlu verkamönnum sem
aldrei hafa getað slitiö sig frá
sveitinni. Hann hefur átt sveita-
býli upp viö Rauöavatn og unniö
þártil viöbótar löngum vinnudegi
mikiö starf viö túnrækt, kartöflu-
garöa aö ógleymdu uppáhaldinu,
kindastússinu, Aldrei hefur
Stefán átt færri en 40-50 rollur. Nú
hefur hann fé sitt I Fjárborg,
svæöi þvi sem Reykjavikurborg
hefur afmarkaö fyrir sauðfjár-
eigendur.
Aö heimsækja Stefán yfir sauö-
buröinn á sunnudegi eöa seint á
sumarkvöldi aö lokinni vinnu. þá
er hann ekki yfir sjötugt heldur
kornungur maður vestan úr
Grundarfiröi.
Góöur málstaöur hefur jafnan óskum konu hans og fjölmörgum
notiö þess aö eiga Stefán Illuga- börnum til hamingju. Megum viö
son aö. Verkalýöshyggja hans er
ósvikin.
Ennþá vinnur Stefán við
Reykjavikurhöfn og gefur yngri
mönnum ekkert eftir. Ennþá
sinnir hann fjárbúskapnum. Viö
Dagsbrúnarmenn sendum Stefáni
hlýjar kveðjur I tilefni dagsins og
sem lengst hitta hann hressan og
glaðan. Liföu heill, Stefán.
Guömundur J. Guömundsson
Stefán mun taka á móti vinum
og kunningjum I Fáksheimilinu á
laugardagskvöldið n.k.