Þjóðviljinn - 27.03.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 27.03.1980, Blaðsíða 5
Þorsteinn jrá Hamri: Offset Ég fyrir mitt leyti hugsaöi lengi vel sem svo, og var ekki einn um þaö, aö dagblaöiö Þjóöviljinn væri stoö og stytta þeirra sem minnst máttu sin, sjálfsögö leiö- sögn fólks i samfélagslegum þrengingum. Veit ég vel aö „breyttir timar” og hraöskreiö tizka mæöir á mönnum; myndhverfingar lifs- gæöanna eru sérgrein auövalds- ins, allskonar „ég” brýzt úttír skel sinni og segist vera hin eina og sanna tilvist í mannsliki. En á þvi reisir fólk ekki sinar brýnustu kröfur þegar öll kurl koma til grafar. Þaö veröur aö reisa þær á þvi sem vel hefur ver- iöunniö, er unniö og veröur unniö, ekki einhverju sem viö trúum aö sé svo almennt aö þaö hljóti aö vera sjálfsagt. Böövar Guömundsson hjó fast til Þjóöviljans um daginn, og hjó fyrirmunnþeirra sem vilja reisa sinn rétt og aö er vegiö, svo notuö séu hans eigin orö. Hann fékk um hæl einbeittar yfirlýsingar rit- stjórans um aö Þjóöviljinn vildi rækja svo málefni sin ,,aö blaöiö þætti áhugavert fyrir stærri markaö en nú er”. Meö hliösjón af slikum mál- efnaþroska getur Þjóöviljinn náttúrlega innbyrt mikinn mark- aðum siöir, sameinaö Konfekt og Samúel átakalaust og skákaö þeim og þeirra likum hérlendis, öðlazt viöan markaö og gerzt um siöir óþarfur og loks skaölegur. Er ekki komiö nóg af þeim skuggalega ódámshætti og und- anslætti i viöhorfum fjölmiöla aö þeir eigi einkum aö vera þóknan- leg spegilmynd einhverrar óljósr- ar heildar, „þjóöarinnar,”, „fólksins”, „alþýöu manna”, „lesenda”? Hvernig væri aö sósiaiiskt þjóöfrelsismálgagn liti á sig sem ieiöandi og menntandi afl? Viktor Kortsnoj: Mætir hann Tal næst? Kortsnoj sigraði Viktoir Kortsnoj stóð upp sem sigurvegari i einvigi þeirra Petrosjan, þegar sá siðarnefndi gaf 9. skák- ina eftir 44 leiki. Þótt ein skák sé eftir verður hún ekki tefld, þvi Kortsnoj er kominn með tveggja vinninga forskot. Petrosjan gafst upp bréflega, enda hafa þeir félagar ekki talast við, frekar en endranær. Kortsnoj mætir nú sigurvegar- anum i einvigi þeirra Tals og Polugajevski, sem tefla I Alma Ata, Sovétrikjunum, og telur sjálfan sig öruggan sigurveg- ara! Petrosjan, sem kenndi tauga- óstyrk um slælega taflmennsku sina, var ekki á sama máli, held- ur spáir Tal sigri yfir þeim báö- um, Polugajevski og Kortsnoj. Þeir Tal og Polugajevski eru nýbyrjaöir aö tefla, þvi fresta varö einviginu vegna veikinda Tals. Ef aö likum lætur, veröur ekki auövelt aö fá fréttir frá ein- viginu. N.k. laugardag hefja þeir Spassky og Portich einvigi sitt sem haldiö er i Mexico-borg. Þó ekki sé tekið lengra timabil entveir fyrstu mánuðir þessa árs, þá eru þau tölublöö Þjóöviljans teljandiá fingrum annarrar hand- ar, sem ekki er meira eöa minna variö undir leiöréttingar á þvi sem logiövarog ranghermt dag- inn áöur. Sem fyrr er aö vikiö skrifaöi Böövar Guðmundsson nýlega ádrepu um áviröingar Þjóöviljans liöfyrir liö, og Einar Karl Haraldsson hefur svaraö henni. Ég fagnaöi grein Böðvars, bvl ætiö er gott aö vita af mönn- um sem bregöa viö hart og láta ekki deigan siga, i sama mund og aðrir glata voninni; þaö vita nefnilega ekki allir aö vonin og æran eiga stööuga samleiö. Þaö var ljótt aö sjá Einar Karl Har- aldsson afsaka málfar Þjóövilj- ans meö framförum I prentiön, þvi sé sú raunin, aö tæknileg framþróun þjóni einungis hag- sæld og flýtisflaustri á ritstjórn- arskrifstofunum, en ekki hinum almenna lesanda, þá þurfum við ekkert blaö, engan Þjóövilja. Málfar og meöhöndlun þess er mál, mál manna, mál þjóöar, ekki amböguháttur og bull. Sóöa- skapur veröur ekki hótinu við- kunnanlegri þótt upplýst sé aö hann sé hannaöur I offset. Fimmtudagur 27. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 FRETTASK YRING Katalónía: Sigur þjóðernissinna Uppá siökastiö hefur ekki blásiö byrlega fyrir Adolfo Suarez, forsætisraöherra Spán- ar, og flokki hans Lýöræöis- bandalaginu (UCD). 1 siöustu viku beiö flokkurinn afhroö I kosningunum i Katalóníu, næst- um þvf jafnslæmt og i samsvar- andi héraöskosningum i baska- héraöinu Euzkadi þremur vik- um áöur. Sigurvegarinn i Katalóniu var þjóðernissinnaflokkurinn „Con- vergencia i Unio” undir stjórn bankastarfsmannsins Jordi Pujol, sem hlaut 28% atkvæöa og 43 þingsæti af 135 I hinu nýja þjóöþingi i Barcelona. Sóslal- istaflokkur Katalóniu (PSC) hlaut 33 þingsæti og 23% at- kvæða, og kommúnistarnir i PSUC, sem aldrei hafa afneitað leninismanum og oft fylgt allt annarri stefnu en Evrópu- kommúnistarnir hans Santiago Carrillo, fengu 25 þingsæti og 19% atkvæða. Stjórnarflokkur- inn UCD var I f jóröa sæti með 18 þingsæti (11%), og kemur þvi ekki til meö aö hafa nein raun- veruleg áhrif á gang mála I Katalóniu á næstunni. Adolfo Suarez haföi sjálfur tekiö þátt I kosningaslagnum, en allt kom fyrir ekki. Þátt- taka kjósenda var fremur dræm, aöeins 59% neyttu at- kvæöisréttar slns, en I Katalónluhéruöunum fjórum eru 4 og hálf miljón manna með kosningarrétt. Þessi dræma þátttaka er sögö hafa bitnað einna verst á UCD. Margir álita aö þessi kosninga- úrslit. veröi til þess að rlkis- stjórnin geri allt sem i hennar valdi stendur til að draga þaö á langinn aö sú nýja stjórn sem veriö er aö mynda i Barcelona fái raunveruleg völd. Þetta get- ur þýtt miklar tafir i fram- kvæmd þeirrar valddreifingar, sem stjórnin þykist stefna aö. Sigurvegari kosninganna, Jordi Pujol, var áöur fylgjandi góöu samstarfi viö sósialista og kommúnista, en I þessum kosn- ingum lagöi hann allt kapp á aö eyöileggja þann meirihluta sem þessir verkalýösflokkarhafa haft i Katalóniu. Kosningabarátta hans var aö miklu leyti fjár- mögnuö af bönkum og öörum fjársterkum aöilum, og aöalinn- tak hennar var aö hræöa kjósendur burt frá kommunum i PSUC, m.a. meö þvi aö segja aö þeir væru ekki raunverulegir þjððernissinnar, heldur þættust vera þaö til þess aö komast I valdastööu. Hinn heföbundni vinstrimeiri- hluti I Katalóniu var þvl I mjög erfiðri aöstööu. Þjóöernis- sinnarnir böröust hart gegn honum, en þeir eru eini flokkur- inn sem hefur samstarfsmögu- leika viö stjórnarflokkinn I Madrid. Þar aö auki lýsti foringi spænskra sósialista, Felipe Gonzalez, þvi yfir aö hann væri andvígur öllu samstarfi viö kommúnista. Og loks má gera ráö fyrir aö ef mynduö heföi veriö samstjórn sósialista og kommúnista I Barcelona, heföu enn frekari hindranir komið I ljós i sambandi viö sjálfstjórn Katalóniu. Sigur þjóöernissinna kom bvi ekki á óvart, en hitt grunaði fáa, aö hann yrði svo stór sem raun bet vitni. Convergencia i Unio krækti sér i mörg atkvæöi frá UCD, og er álit margra aö ástæðan sé sú, aö Jordi Pujol sé mun gáfaöri stjórmálamaður en Anton Canyellas, foringi UCD i Katalóniu. Þessir tveir eru, ásamt sósialistanum Joan Reventos og frambjóöanda kommúnista Josep Benet, taldir koma til greina sem forsetaefni i Katalóniu. Af þeim er Pujol talinn liklegastur til aö hreppa hnossiö. A Franco-timanum var Pujol afskaplega varkár and- stæöingur fasismans. Katalónla er ríkt og iðnvætt svæöi á spænskan mælikvaröa, og þar rikir mun meira jafnvægi en I Euzkadi. Aöskilnaöarhreyf- ingar hafa ekki mikið látiö á sér kræla þar, og enn siöur hryöju- verkahópar. Eittsvart ský er þó á framtiðarhimni þessa stööug- leika: atvinnuleysi, sem magn- ast hratt. Um 300.000 manns eru nú atvinnulausir I þessum fjór- um héruðum, en ibúatalan er um 8 miliónir. Aframhaldandi stööugleiki á svæöinu er aö miklu leyti undir þvl kominn, hvort sóslalistum og þjóðernissinnum tekst aö koma sér niöur á samstarfs- grundvöll. Liklegra viröist þó aö þjóöernis- sinnar taki upp samstarf viö flokk sem heitir Esquerra Republikcana (ERC) og er vinstrisinnaður lýöveldis- flokkur, en hann kom best út úr kosningunum af 12 smáflokkum sem buöu fram auk þeirra stóru, sem áöur voru nefndir. Þessi flokkur fylgir „þriöju leiö- inni” milli kapitalisma og kommúnisma, og er i alla staöi „hófsamur”, vinsamlegur kon- ungsveldinu og hugsanlega góöur stuöningsaöili fyrir þjóöernissinnana I Katalóniu. — ih(Information) Einvígiö í Bad Lauterberg Hiibner eykur Nú blasir sigur viö v- þýska stórmeistaranum Robert HUbner i einvígi hans við Ungverjann Andras Adorjan. HUbner jók forskot sitt upp í tvo vinninga meö sigri í 5tu skákinni/ og þegar ein- ungis eru 5 skákir eftir er taliö algerlega óhugsandi aö Ungverjinn nái að rétta sinn hlut. Þó ber þess að geta aö Adorjan hefur und- anfarið sýnt ótrúlega hörku þegar á móti hefur blásið. Hann vann t.d. slðustu tvær skákir slnar á millisvæöamótinu 1 Riga gegn þeim Larsen og Miles og fékk aö tefla viö landa sinn Ribli um sæti i Áskorendakeppn- ina. Eftir 3 skákir var staðan 2 1/2 -1/2 Ribli i vil, en undir lokin náði Adorjan aö jafna og komast áfram á betri stigum frá milli- svæðamótinu. Þaö er þvl I raun aldrei aö vita nema aö Adrorjan nái aö veita harövitugt viönám undir lokin, þó ekki gefi tafl- mennska hans til kynna aö svo veröi. Hér kemur 5. skákin. Hllbner notfærir sér mistök andstæöings sins út I ystu æsar og knýr fram sigur I endatafli: 5. einvigisskák Hvftt: Robert Httbner Svart: Andras Adorjan Sikileyjarvörn 1. e4-c5 2. Rf3-c6 3. Bb5 (Þaö viröist vera á dagskrá hjá Hilbner aö tefla aldrei sama af- brigöiö oftar en einu sinni. í 3. skák lék hann 3. d4 og vann glæsi- lega.) 3. ...-ge 4. 0-0-Bg7 5. Hel-Rf6 6. c3-a6 7. Bxc6-dxc6 8. h3-0-0 9. d4-cxd4 10. cxd4-c5 11. e5-Rd5 12. dxc5-Rb4 13. Rc3-Bf5 (Eftir 13. — Rd3 14. He2 Rxc5 15. Bg5 hefur hvltur greinilega betra tafl.) 14. Rd4-Rd3 15. Rxf5-gxf5? (Fyrsta skyssan er yfirleitt sú al- varlegasta. Svartur gat fyllilega haldiö I horfinu með 15. — Rxel t.d. 16. Rh6+ Bxh6 17. Bxh6 Rd3 18. De2 Rxc5 19. Hdl De 8 og þó svarta staðan sé þröng þá er ekki aö sjá á henni snöggan blett.) 16. He2-Rxe5 17. Bg5! ((Þannig tryggir hvitur yfirburöi sina — I endatafli. Taflmennska Hubners frá og með þessum leik er einkar athyglisverö. Hann smá* eykur yfirburöi sina þar til yfir lýkur.) 17. ...-Dxdl 18. Hxdl-f6 19. Be3-Hfd8 20. Hed2-Hxd2 21. Hxd2-Kf7 (Auövitaö ekki 21. — Rc4 22. Hd7 forskotið og hrókurinn sker upp herör á drottningarvængnum.) 22. Hd4-Hb8 23. Ra4-Ke8? (Þar meö fýkur eitt stykki peö. Staöa svarts var þó tæpast verj- andi, og á klukkunni átti hann ein- ungis eftir 5 minútur á 23 leiki.) 24. Hh4-Hd8 25. Hxh7-Kf8 26. Hh4-Rc6 27. Hc4-e5 28. g3-Kf7 29. Kg2-Kg6 30. Hc3-Bh6 31. Bxh6-Kxh6 32. Rb6-Hd2? (Hrein timasóun.) 33. Rc4-Hd7 34. Hb3-Kg6 35. Hb6-e4 36. Rd6-Rd8 37. g4! 37. ,..-fxg4 38. hxg4-He7 39. Rf5-He5 40. b4-Re6 41. Hxb7 — Og svartur gafst upp. Síöustu fréttir: Taltap- aöi fyrstu skákinni Hfibner og Adorjan héidu baráttunni áfram 1 gærkveldi, þegar þeir tefldu 6. skákina i einvfginu. Adorjan haföi hvftt og lék kóngspeöinu, sem Hubner svaraöi meö Caro-Cann vörn. Eftir mikia baráttu fór skákin i bið eftir 40. leik svarts sem var a5. Sérfræöingar telja horfurnar frekar hviti I hag; spurningin er aðeins hvort Hiibner tekst aö finna vörn er nægi til jafnteflis. Biöstaöan er þessi: Hvltur, Adorjan: Kgl — Hb7 —- peö á h6-f2-c4-c5-a2 Svartur, Húbner: Kf6 — He8 — peö á g2-f5-c6-a5 Eins og er hefur hvitur peöi meira, og hann á leik. Biöskákin veröur tefld áfram i dag. Þær fréttir bárust I gær aö Polugajefvski heföi unniö fyrstu skákina i einvigi sinu viö Tal. Skákin varö alls 41 leikur. Mönn- um skal þó bent á aö Tal tapar yfirleitt fyrstu skákinni i einvigj- um sem hann slöan vinnur, hver svo sem raunin veröur nú.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.