Þjóðviljinn - 27.03.1980, Page 7
Fimmtudagur 27. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — StDA 7
URIMATO
HERINNBURT
Samtök
Umsjón:
Árni Hjartarson
Jón Ásgeir Sigurðsson
Rósa Stejngrimsdóttir
Sveinn Rúnar Hauksson
Vilborg Harðardóttir
Skrifstofa Samtaka herstöðvaand-
stæðinga að Tryggvagötu 10 er opin alla
virka daga frá kl. 14 til 19. Þar er á
boðstólum margvíslegt útgáfuefni
Samtakanna s.s. bækur, bæklingar,
veggspjöld, merki o.fl. o.fl. Eru mer)n
hvattir til að líta inn ella slá á þráðinn (S.
17966). Þá má minna á gírónúmer
Samtakanna, 30309-7, sem ætíð er fiár
vant.
Hvers vegna
30. mars?
Hvers vegna minnast her-
stöövaandstæðingar 30. mars ár-
lega með fundahöldum og látum?
Þetta vita nú vist fiestir, en þö
koma árlega fram nýjar kynslóð-
ir sem þarf að uppfrseða nm þetta
efni. 30. mars er enginn hátiðis-
dagur i augum herstöðvaand-
sttæðinga, en hann er dagur
harðrar baráttu. Þennan dag árið
1949 var horfið frá hinni gömlu
hiutieysisstefnu landsins og þjóö-
inni gert að skipa sér I fiokk lepp-
'rlkja bandarlska heimsveidisins.
Samþykkt var á Aiþlngi að tsiand
skyldi gerast stofnaðili að NATO,
hernaðarbandaiagi auðvaidsins.
Mikil mótmæii gegn NATO-að-
ildinni höfðu farið fram vlða um
land allan þennan örlagarlka
marsmánuð, þar sem megin
krafan var þjóðaratkvæði um
málið. Mótmæiln náðu hámarki i
siagnum mikla á Austurvelli 30.
mars þegar fundarmönnum á
fjöldafundi verkalýösfélaganna
laust saman viö hvitiiðasveitir
sem iátnar höfðu verið leynast I
Alþingishúsinu. Þá var kylfum og
táragasi beitt gegn þeim sem
vildu iáta þjóðarviljann skera úr
um þetta mál. tsland skyidi verða
NATO-riki hvort sem þjóðinni
þætti Ijúfteða ieitt. Nato-sinnar á
alþingi sóru og sárt við lögðu að
þeim væri ekkert f jær skapi en fá
eriendaK*.)icr inn I landið. Svo liðu
þrjú ár. Þá voru aliir eiðstafir
sviknir og nýtt hernám landsins
var samþykkt af þeim sem ákaf-
ast sóru aö Nato-aðlidin hefði
ekkert siikt I för með sér. Nú
höfðu þeir hins vegar lært það af
reynslunni frá 1949 að alþýða
manna var afar fjandsamleg öllu
hernaðarmakki. Þess vegna var
sá fundur sem samþykkti her-
námið ekki haidlnn fyrir opnum
tjöldum, heidur var leynilega til
hans boðað, og öllu sem þar fór
fram er haldið strangiega leyndu
enn idag. Herinn kom þvi öllum á
óvörum og kröfum um að þjóðin
segði állt sitt á hernáminu i þjóð-
aratkvæöagreiðslu hefur öllum
veriö vfsað á bug frá upphafi og
til dagsins I dag. Hins vegar hefur
veriö unnið ötullega að þvl að
gera okkur háð hernum og nú er
svo komið að Suðurnes byggja at-
vinnuafkomu sina að verulegu
ieyti á honum.
Saga inngöngunnar i NATO 1949
og hcrnámsins 1951 er saga óiýð-
ræöislegra vinnubragða, svika og
valdnlðslu. Sá slagur sem hófst á
Austurvelii 30. mars 1949, stendur
enn I dag,og árlega brýna her-
stöðvaandstæðingar það fyrir
sjálfum sér og öðrum að barátt-
unni muni haidiö áfram þar tii
sigur vinnst.
tJR LEIÐARA
ÞJOÐVILJANS
31. MARS 1949
örlagaríkustu svik sögu vorrar voru framin við þjóð
vora í gær. Svik Sturlungaaldarhöfðingjanna við sjálf-
stæði landsins 1262 og of beldi erlends hervalds frá Kópa-
vogi 1662 voru lögðsaman og framin í gær. Auðmenn ís-
lands og þý þeirra á Alþingi sviku landið, bandaríska
hervaldið og ofbeldislið kvislinga þess réðist á fólkið.
Alþingi Islendinga var traðkað og hrundið niður í nið-
urlægingu fyrri alda, meirihlutinn gerður að auðsveipu
þýi erlends valds, réttur minnihlutans algerlega brotinn
á bak aftur og þjóðin svipt þeim réttindum, sem stjórn-
arskrá lýðeldisins sérstaklega helgar henni: réttinum
til þjóðaratkvæðagreiðslu, og sá réttur var veittur þjóð-
inni með lýðveldisstofnuninni einmitt til þess að tryggja
að hún gæti tekið f ram fyrir hendur þingsins, ef það ætl-
aði að brjóta gegn þjóðarviljanum.
Svívirðingarsai*>»ingurinn, sem setur Island undir
hervald Bandarlkjanna, var ólöglega samþykktur með
þverbroti allra þingræðisregla, af mönnum, sem ekkert
umboð höfðu frá þjóðinni til þess viðurstyggilega verks.
Og sem tákn þess að þaðan I f rá skuli of beldið drottna
yfir Islandi, lætur ríkisstjórnin og þá fyrst og fremst
foringjar Ihaldsins, vopnaðan Heimdallarskrll og lög-
reglu ráðast á friðsama Islendlnga, sem komið höfðu á
vettvang til að sýna fylgi við fslenzkan málstað og sum-
part að áeggjan stjórnarflokkanna sjálfra. Níðingslegri
aðfarir en ríkisstjórnarinnar l gær þekkir fslandssagan
ekki. Það var líkast því sem þessir pólitfskt gjaldþrota
svikarar vildu stof na til bióðbaðs I Reykjavík, til þess að
svala strax heift sinni á þeirri þjóð, sem þeir eru að
svlkja undir hervald Bandaríkjanna.
Blóðugar árásir stormsveita leppstjórnarinnar á fólk-
ið I Reykjavlk munu jafn lltt úr minni llða sem þjóðsvik-
in sjálf, er I gær voru framin. Valdhafarnir, sem mánuð-
um saman hafa farið á bak við þjóðina, vegið að þjóð-
inni, neitað hennl um að fá að beita kosningarétti sínum,
til þess að ákveða um örlagaríkustu mál sögu sinnar,
hafa nú beitt vopnum gegn þjóðinni, sem þeir hræðast og
hata, af þvl þeir eru að svíkja hana I tryggðum. Og þess-
um valdhöf um er haldið uppi af peningum frá því stór-
veldi, sem þeir nú voru að svlkja ísland I hendurnar é.
BARÁTTIJ8AMKOMA
nCRSTÖÐVAANDSTÆÐINGA
VERDIJR lÍALDIN í
FÉIAOSSTOFNIJN STLDFNTA
Sunnudaginn 30. mars kl. 14.00
Dagskrá:
1. Ávarp miðnefndar Samtaka herstöðvaandstæðinga:
Guðmundur Georgsson, formaður SHA
2. Ræða: Kjartan Ólafsson, ritstjóri
3. Söngur: Kjarabót
4. Ljóða- og smásagnalestur: Baldur Óskarsson, Bríet
Héðinsdóttir les úr verkum Svövu Jakobsdóttur,
NínuBjarkar Árnadóttur, Ólafs Hauks Simonarsonar
5. Alþýðuleikhúsið flyturleikþátteftir Gunnar Karlsson
6. Guðmundur Ingólfsson leikur á píanó
7. Dagskrárhlé í salnum. Stúdentakjallarinn opinn
8. Sönghópur Rauðsokka
9. Ljóða- og smásagnalestur: Elísabet Jökulsdóttir,
Guðbergur Bergsson, Kristinn Reyr, Sveinbjörn
Þorkelsson
10. Bubbi Morthens ásamt hljómsveit
11. Ljóða- og smásagnalestur: Anton Helgi Jónsson,
Dagur Sigurðsson, Valdís Óskarsdóttir,
Þórarinn Eldjárn
Kynnir á samkomunni: Kristján Guðlaugsson
___Föndurog barnagæsla á meðan samkoman stendur