Þjóðviljinn - 27.03.1980, Page 11

Þjóðviljinn - 27.03.1980, Page 11
I Fimmtudagur 27. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 7] íþróttir iþróttir g) iþróttir (f ,yið göngum til leiks ákveðnir í að sigra” Hilmar Björnsson — Þannig hefur þjálfunin ver- ið nokkuð frábrugðin þvi sem við höfum áöur kynnst hjá Val. Þessi viðhorf sem ég minntist á áðan hafa haft mikil áhrif á strákana og þaö hefur veriö æ erfiðara að „motivera” þá fyrir leiki í tslandsmótinu. Of fáir leikir höfuð- vandamálið Hvernig finnst þér handknatt- leikurinn vera i dag hér á landi? — Ég er á þvi að viö séum á uppleið. Það eru margir ungir strákar að koma inn í boltann og nokkrir af þeim sem hafa verið erlendis undanfarin ár eru á leiöinni heim. Þannig eru sifellt að bætast góöir leikmenn i þann hóp sem fyrir er. Vandamálið I handboltanum er að við spilum of fáa leiki á hverju keppnistimabili eöa öllu heldur of fáa erfiða leiki. 1 ts- landsmóti er of litið að spila ein- ungis 14 leiki. Annars er þróunin mjög greinileg i boltanum, það er meiri hugsun i honum en áður var. Nú leikur jafnvel FH taktiskan handknattleik og þú sérö hvaða árangri slikt skilar. Einnig finnst mér varnarleikur- inn mun betri en áður var. . Hvað með veikleikana? — Markvarslan er alltaf sama vandamálið. Þá gerum viö of mikið af þvi að skrúfa nið- ur hraðann i leikjunum, sér- staklega er það áberandi þegar lakara liðið reynir að notfæra sér slfkt. Þarna vantar að dómarar séu vakandi fyrir þvi aö dæma leiktöf. Þaö á að dæma á allt hnoð. Einhvern veginn er það eðli leiksins að spila hratt. Þú minnist á dómarana. Hvernig finnst þér dómgæslan vera hér? — Á meöan leikmenn æfa 5-6 sinnum i viku verða dómarar að æfa a.m.k. helming þess tima, það gilda sömu „prinsipin” fyrir báða hópana. Þegar að leikmenn undirbúa sig fyrir leiki, þá þurfa dómarar ekki siöur aö gera það. Þeir þurfa og eiga t.d. að hita upp. Svo að ég svari spurningu þinni nákvæm- ar, þá er léleg dómgæsla vandamál i öllum deildum og flokkum. Dómararnir eiga að vera hluti af heildinni og það á að vera metnaður félaganna að geta teflt fram sveit góðra dóm- ara. íslensku félagsliðin best á Norðurlöndum Nú hefur landsliðið verið i brennipunkti i vetur og deilt hefur verið um val þess. Hvaö viltu segja um þau mál? — Ég vara viö of hröðum breytingum, það á að byggja landslið upp af reynslumiklum leikmönnum og ungum strák- um, sem þurfa á skólun aö halda I alþjóðlegum handknattleik. Það er betra að vera með gott lið en góða einstaklinga. — Það er staðreynd aö I nútima handbolta þurfa menn að hafa ákveðinn likamsmassa til þess að ná árangri. Það verð- ur að horfa á þessa staðreynd. Reynslan hefur sýnt að „flink- ir boltastrákar” duga ekki mikið þegar leikið er gegn er- — segir þjálfari Valsmanna, Hilmar Björnsson, um leik Vals og Grosswallstadt á laugardaginn ,,Eftir að Valur var búinn að tapa þýðingarmiklum leikjum i upphafi íslandsmótsins má segja að okkar helsti hvati hafi verið þátttakan i. Evrópukeppninni. Þarna fengum við nýtt verkefni og við stefnum að toppárangri þar og i bikarkeppninni hér heima. Það má segja að vetur- inn hjá Val hafi einkennst af þessu.” Sá sem þannig mælir er Hilmar Björnsson, þjálfari handknattleiksliðs Vals, i viðtali við Þjv. fyrir skömmu. Þorbjörn Guðmundsson brýst f gegnum varnarvegg Atletico Madrid og skorar lendum liðum. Sérðu fram á bættan árangur landsliösins á næstunni? — Ég er bjartsýnn á betri árangur. Við eigum að geta haldið okkur á meðal hinna 12 bestu og á góðum árum eigum við aö komst i hóp hinna 8 bestu. Það eru flest félagsliöin komin með heilsársþjálfun, sem á eftir að skila sér i landsliðinu. Einnig gefur frammistaða unglinga- landsliðsins bjartar vonir. — Ég(vil minnast á að staö- reynd er að islensku félagsliðin eru nú hin bestu á Norðurlönd- um. Vikingur og Valur hafa lagt að velli Svfþjóðarmeistarana, Drott og Ystad. Valur sigraði norska liöiö Refstad og nú lögð- um við að velli Atletico Madrid sem sigraði Danmerkur- meistarana. Þessi upptalning segir nokkuð. Vikingarnir áttu reyndar að sigra Heim i vetur en þeir misreiknuðu sig á sál- rænu uppbyggingunni fyrir leik- inn. Annars er Vikingsliðið gott dæmi um lið sem er að gera skemmtilega hluti. Hvað finnst þér standa hand- knattleiknum helst fyrir þrifum hér á landi? — Almennt skipulagsleysi og hringlandaháttur. Þetta á eink- um við um niöurröðun á æfing- um og leikjum. Þannig er nán- ast útilokaö að skipuleggja starf sitt langt fram i timann. Ég hef t.a.m. þurft oftar en einu sinni aö fara með Valsliðið i útihlaup við Sundlaugarnar til þess aö halda mönnum i æfingu. Þarna eru fyrirvaralitið felldir niður timar i stóru húsunum. — Eitt vandamál fylgir alltaf Islenskum iþróttum, en það er 'innutiminn eöa öllu heldur, aö eðlilegt hlutfall vinnu og hvildar næst ekki. Sem dæmi get ég nefnt að strákarnir i Val eyddu 24 klukkutimum i handbolta i siðustu viku!!! ,,Eftir þvi sem þú vinn- ur fleiri sigra ertu nær tapinu” Þá erum við komnir að úr- slitaleiknum gegn vestur-þýsku meisturunum Grosswallstadt. Hvernig list þér á að Valur leik- ur gegn þessum frægu köppum? — Þetta þýska lið hefur sigraö nánast allt sem hægt er að sigra og slegið næstum öll met sem hægt er að slá. Þannig held ég að það sé erfitt að skapa nýja hvata fyrir þá. Heimsmeistar- inn fyrrverandi I hnefaleikum Muhamed Ali orðaði þetta þannig: „Eftir þvi sem þú vinn- ur fleiri sigra ertu nær tapinu.” Hvaða möguleika hefur Valur á sigri? — Ég legg dæmið þannig upp, aö ekkert þýði að vera ánægður meö 3-5 marka tap. Við ætlum okkur að sigra,ef viö gerum það ekki þá er eins gott að hætta þessu. Þaö skiptir engu máli hvað liöin hafa afrekað á undan- förnum misserum, það er ein- ungis þessi eini klukkutími sem öllu máli skiptír. — Það er f jöldinn allur af fólki sem er þegar búiö að spila leik- inn fyrir okkur. Það er sagt aö nánast sé óþarfi að spila leikinn t.d. eru öll skrif vestur-þýskra blaða i þessa átt. Slikt gefur okkur einungis aukna mögu- leika. En er það ekki nánast dauða- högg á handboltamenn I Val aö hafa komist þetta langt i keppn- inni? Hafa þeir aö nógu miklu að stefna á næstu árum? — Reynslan hefur sýnt að lið sem hafa fengiö smjörþefinn af glæsilegum árangri sætta sig illa við aö missa flugiö. Þeir sem eruwanir þvi að sigra,sætta sig ekki viö aö tapa. Þegar að góöur árangur næst, þá aukast kröfurnar og jafnvel enn betri árangur næst. Skagamenn myndu t.d. aldrei sætta sig við 3.-4. sæti i 1. deild fótboltans, en e.t.v. myndi eitthvert annaö liö gera það. Gerir ’þú meiri kröfur eftir að þú ert kominn á toppinn, ef svo má að orði komast? — Ég breytist ekkert. Þjálfun er vinna og þaö eru engar patentlausnir til. Það er ekki hægt að stytta sér leið I þessum efnum. En e.t.v. eftir þessa frammistöðu Vals á ég erfiðara með að sætta mig við einhvern miölungsárangur. Hættir Hilmar með Valsliðið? Verður Hilmar Björnsson áfram þjálfari Vals? — Það hefur verið umtalað að ég hætti i vor og Valur leiti eftir erlendum þjálfara. Ég er búinn að vera 5 ár hjá Val og það er sennilega kominn timi til þess að breyta til. Við höfum nánast náð öllum þeim titlum sem eru á lausu. Annars get ég ekki svarað spurningu þinni afdráttarlaust, en mér hefur alltaf fundist að leikmennirnir ættu að ráða mestu um það hver þjálfar þá. Að lokunvHilmar, hvernig fer leikurinn á laugardaginn? — Um það vil ég ekki spá, en ég get fullvissaö þig um að Vals- menn munu ekki sætta sig við tap fyrr en að fullreynt er. —lngH

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.