Þjóðviljinn - 29.03.1980, Síða 11

Þjóðviljinn - 29.03.1980, Síða 11
Laugardagur 29. mars 1980 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 11 Magnús Norödahl á sýningu sinniiGalleriinu. — Ljásm. — eik. Elliglöp í Gallerí Suöurgötu 7 Sú fyrsta og síðasta segir málarinn, Magnús Norðdahl 1 Galleri Suðurgötu 7 sýnir nú Magnús Norðdahl, og er sýningin opin frá kl. 15-21 alla daga og stendur fram yfir páska. A sýningunni eru 50 myndir og er um helmingur þeirra þegar seldur. Magnús sagði i samtali við Þjóðviljann i gær að þetta yrði liklega fyrsta og siðasta sýningin sin. Kallaði hann sýninguna elli- glöp, en hann fór ekki að mála fyrr en fyrir nokkrum árum. A6 sókn hefur veriö góð. — AI. Passíukórinn á Akureyri Passiukórinn heldur páskatón- leika i Akureyrarkirkju annað kvöld, sunnudagskvöld. Flutt verður Via Crucis eftir Liszt. Verkið var samið við 14 helgi- myndir um pislargöngu Krists og er fyrir orgel, blandaðan kór og einsöngvara. Litskyggnur verða sýndar undir flutningi verksins. Einsöngvarar verða Þuriður Baldursdóttir, Jón Hlöðver As- kelsson og Haraldur Hauksson. Orgelleikari verður Gigja Kjart- ansdóttir og stjórnandi Roar Kvam. ^^3 Helgi Bergmann sýnir Helgi Bergmann, listmálari, opnar sýningu i dag, laugardag, klukkan 14:00 að Laugavegi 12, i „Nýja galleriinu”, gengið inn frá Bergstaðastræti. Sýning Helga verður opin frá klukkan 14:00 til klukkan 22:00 laugardag og sunnudag. Sýnir Helgi 15 oliumálverk og 11 teikn- ingar. Meðfylgjandi mynd tók — eik af Helga á sýningunni og sjáum viö ekki betur en aö hann standi þarna við þrihöfða mynd sjálfs stn. V orvaka í Kópavogi Vorvaka Norræna félagsins i Kópavogi veröur aö þessu sinni sunnudaginn 30. mars kl. 20:30 I Þinghól, Alfhólsvegi 11. Samkór Kópavogs, sem æfir nú af kappi fyrir vinabæjarferö til Norðurlanda I júni, syngur á vök- unni undur stjórn Kristinar Jó- hannesdóttur. Sigurður Blöndal skógræktar- stjóri sýnir litskyggnur úr Fær- eyjaferö. Finnbogi Guðmundsson lands- bókavörður fjallar um fyrirhug- aða ferð til Norður-Skotlands, Hjaltlands, Orkneyja og Færeyja um miðjan júnimánuð I sumar. Kynntar veröa Færeyjaferöir Norræna fé’agsins. A undan vökunni er boöaöur aö- alfundur félagsins kl. 20:00. Dag- skrá hans er lögum samkvæmt. Allir eru velkomnir á vökuna meban húsrými leyfir. Sigurður Blöndal. Finnbogi Guðmundsson Leikhópur MS á æfingu. Mutter Courage og börn Leiklistarsvið Menntaskólans v/Sund frumsýnir um helgina ieikritið Mutter Courage og börn- in hennar eftir Bertold Brecht undir handleiðslu Sigrúnar Björnsdóttur, en hún hefur áöur sett upp Túskildingsóperuna eftir sama höfund. Leikritið var siðast sett upp hjá Þjóðleikhúsinu fyrir 15 árum. Hópurinn i MS byrjaði að æfa af krafti fyrir rúmum mánuði, en æfingar hafa staöiö yfir aö ein- hverju marki siöan i byrjun febrúar s.l. Sýningar verða I Félagsheimil- inu á Seltjarnarnesi og veröur fyrsta sýning á sunnudagskvöldið þann 30. mars. Siöan veröur sýnt mánudag, þriðjudag og fimmtu- dag I vikunni fyrir páskahelgina, alltaf kl. 20.30. Undanrásir að A miövikudaginn kemur, hefjast undanrásir Islandsmóts I sveitakeppni á Loftleiöum. Spilað verður á miðvikudags- kvöldið, fimmtudag og kvöld og föstudag og kvöld, alls 5 umferöir. A mótinu keppa 24 sveitir viðs vegar frá. Þeim er skipt I úrslit úr hverjum riðli. Nánar veröur greint frá skipan riöla 1 þætti blaösins,nk. miðvikudag. I sambandi við mót þetta, vekur einna mesta athygli aö mótanefnd sá ástæðu til að breyta hefðbundnum venjum nú, hvað snertir niðurröðun sveita i riðla. Þetta hlýtur að kalla á það, að komiö sé i veg fyrir, að keppendur i mótinu, sitji i þessari sömu mótanefnd, til aö fyrirbyggja leiöindi. Einnig verður að setja reglu- gerð, er kveöur á um starf nefndarinnar. Sveit Óðals efst: „Gamni”-mót BR, sem var hraðsveitakeppni með 7 spilum milli sveita, lauk sl. miðviku- dag. Sigurvegari varö sveit óðals. Röö efstu sveita varð annars þessi stig 1. sv. Óöals 192 2. sv. Jónasar P. Erlingss. 170 3. sv. Hjalta Eliass. 167 4. sv. Sævars Þorbjömss. 158 5. sv. Agústs Helgasonar 157 6. sv. Sigurðar B. Þorst. 156 Næsta keppni félagsins er Butler-tvimenningur, er hefst eftir páska. Jakob og Jón sigruðu: Barometer-keppni Asanna lauk sl. mánudag, með sigri þeirra Jakobs R. Möller og Jóns Baldurssonar. Voru þeir vel að sigri sinum komnir, eftir a hafa tekið góöa forystu um miöbik mótsins. Röð efstu para varð þessi: stig 1. Jakob R. Möller — Jón Baldursson 191 2. Ragnar Björnsson — Sævin Bjarnason 137 3. óli Már Guöm. — ÞórarinnSigþórss. 74 4-5. Armann J. Láruss. — Sverrir Armannss. 72 heQast 4-5. Skúli Einarsson — Þor lák ur Jónsson 72 6. Sigriður Rögnvaldsd. — Einar Guðlaugss. 51 A mánudaginn kemur veröur spiluö létt hraðsveitakeppni eða eins kvölds tvfmenningur, eftir þátttöku. Sveit Sveinbjörns Jóns- sonar sigraði Siðastliðið þriöjudagskvöld 18. mars lauk fjögurra umferða sveitahraðkeppni Bridgefélags Akureyrar. Þetta keppnisfyrir- komulag er afar vinsælt hjá fé- laginu, en allar sveitirnar spila saman I hverri umferð, 2 spil. Aö þessu sinni sigraði sveit Sveinbjörns Jónssonar, hlaut 1153 stig, en auk hans eru i sveitinni Einar Sveinbjörnsson, Baldur Arnason, Adam Ingólfs- son, Arni Ingimundarson og Glsli Jónsson. Röö efstu sveita varð þessi: stig 1. sv. Sveinbj. Jónssonar 1153 2. sv. Alfreðs Pálss. 1147 3. sv. Þórarins B. Jónss. 1080 5. sv. Stefáns Ragnarss. 1075 6. sv. Jóns Stefánssonar 1061 7. sv. Siguröar Viglundss. 1055 Alls spiluðu 15 sveitir. — Meö- alárangur var 1008 stig. Keppnisstjóri var sem fyrr Albert Sigurðsson. P H J Frá Barðstr.fél. Rvk: Eftir 20 umferðir i Barometerkeppni félagsins, er röð efstu para þessi: stig 1. Sigrún Straumland — KristinKristjánsd. 170 2. Þórarinn Arnason — Ragnar Björnsson 102 3. Gunnlaugur Þorsteinss. — Hjörtur Eyjólfsson 90 4. Hermann ólafsson — Siguröur Kristjánss. 68 5. Baldur Guðmundss. — Þorvaldur Lúðvikss. 63 6. Viðar Guðmundsson — BirgirMagnússon 59 7. Hörður Daviösson — Viöar Guðmundsson 46 Frá Bridgefél. Kópavogs: Eftir 15 umferðir af 29 I Baro- meter-keppni félagsins hafa feögarnir Vilhjálmur og Siguröur forystuna, en fast á eftir þeim koma þeir Sverrir Armannsson og Guðmundur Páil Arnarson. Röö efstu para var þessi: stig 1. Vilhj. Sigurðsson — Siguröur Vilhj. 195 2. Guöm. P. Amarson — Sverrir Armannsson 171 3. Haukur Hannesson — Bjarni Pétursson 120 4. Grimur Thorarensen — Sigurður Thorarensen 104 5. Sigrún Pétursd. — Valdimar Asmundss. 99 6. Karl Stefánsson — Birgir tsleifsson 96 Besta árangri 20/3 náðu: Ómar Jónsson — Jón Þorvarðarson 96 Guðm. Arnarson — Sverrir Armannsson 74 Gunnar ólafsson — PéturM.Helgason 74

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.