Þjóðviljinn - 02.04.1980, Page 3
Mibvikudagur 2. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
100 MILJÓNIR TIL HÖNNUNAR K-DEILDAR
íByggingin barf
!að rísa hratt
segir formaður læknaráðs Landspítalans
Eins og skýrt var frá i Þjóð-
Iviljanum fyrir helgi verður á
þessu ári varið 100 miljónum
króna til hönnunar nýrrar
þjónustudeiidar á Landspltala-
I* lóðinni og verða I þeirri bygg-
ingu bæöi skurðstofur og
rannsóknastofur auk sérstakrar
, aðstöðu til krabbameinslækn-
Iinga.
Grétar ólafsson, formaður
Læknaráðs Landspitalans,sagði
, i samtali við Þjóðviljann i gær,
Iað það væri mjög mikilvægt
fyrir spitalann að fá þessa
byggingu i gagnið sem allra
, fyrst. A jarðhæð hennar verður
Imeðferðardeild og göngudeild
fyrir krabbameinssjúklinga, á
' annarri hæð verða rannsókna-
, stofur og á þriðju hæöinni
Iskurðstofur, en það eru þær
þjónustudeildir sem mest álag
hefur veriö á i gamla
■ spitalanum og virka sem nálar-
E auga á alla stafsemi þar.
Grétar sagði að s.l. 10 ár hefði
staðið til aö gera eitthvað til
úrbóta varðandi skurð- og
rannsóknadeildir spitalans, en
þetta er I fyrsta skipti sem fé er
veitt til þárra hluta. Fyrir 100
miljónirnar má á þessu ári fara
langt með að ljúka hönnuninni
en hins vegar yrði að treysta á
myndarlega fjárveitingu til
byrjunarframkvæmda á næsta
ári.
Bætt aðstaða til
krabbameinslækninga.
t fyrsta áfanga er reiknað
með að taka grunn að allri
byggingunni og byggja sérstaka
eins hæðar byggingu fyrir
geislalækningar. Landspitalinn
á nú aðeins eitt Kóbalt-geilsa-
tæki sem annar vart þörfinni
að sögn Grétars, og ekki hefur
verið hægt að festa kaup á ööru
tæki, svokölluðum „Linear
Accelerator”, vegna
húsnæðisskorts. A Landspital-
anum fer nær öll meðferð
krabbameinssjúklinga fram, en
á undanförnum árum hafa orðiö
geysilegar framfarir I þessari
grein læknisfræðinnar og eigum
við nú orðið sérmenntaöa lækna
sem eingöngu fást við krabba-
mein. Þessi nýja geislunar-
bygging mun því bæta
aðstöðuna verulega og auk þess
veröur sérstök meöferðardeild
og göngudeild fyrir krabba-
meinssjúklinga i þjónustubygg-
ingunni eins og fyrr segir.
Hinn hluti byggingarinnar
mun siöan risa I 2-3 áföngum og
með nýrri skurðdeild og
rannsóknarstofum, sem þar
eiga að koma, sagði Grétar að
myndi létta verulega á gamla
spitalanum. Þrengslin á skurð-
stofunum I gömlu byggingunni
væru slik, aö ómögulegt væri að
bæta viö sjúkrarúmum fyrr en
bætt yröi úr þeim.
Byggingareitur nýju þjónustudeildarinnar. Til hægri sést Kvenna-
deildin og til vinstri Landspftalinn. Ljósm.-gel.
Grétar sagði að lokum, að
yfirstjórn mannvirkjagerðar á
Landspitalalóöinni reiknaði
með að byggingin (sem nefnd er
K-deild) yrði tilbúin á 7 árum en
Læknaráð Landspitalans væri
bjartsýnna og reiknaði meö 5
árum. Byggingarhraðinn færi
auðvitað eftir fjárveitinga-
valdinu, en Læknaráðið teldi
brýnt aö hann yrði sem mestur.
Aætlaö er að byggingin muni i
heild kosta 3-4 miljaröa fyrir
utan tækjabúnaö.
Nýju byggingunni er ætlaður
staður norðan aðalbyggingar I
L a n d s p i t a 1 a n s , næst *
Barónsstignum. Hæöirnar þrjár J
veröa samtals 6200 fermetrar I
með inngöngum og svölum sem I
er svipað að stærð og ■
Geðdeildin. Þess má að lokum J
geta að deilurnar sem staöið I
hafa um byggingu Geðdeildar- I
innar byggðust allar á þvi >
hvort byggingin ætti að verða J
forgangsverkefni, — nýja I
þjónustudeildin, sem nú á að I
fara að hanna, eöa Geðdeildin. •
_________________________:a.‘j
Herstöðvaandstæðingar á Akureyri
Vel heppnaður
baráttufundur
Herstöðvaandstæðingar á
Akureyri efndu til göngu og
baráttufundar sl. laugardag 30.
mars og voru aðgerðirnar I alla
staði mjög vel hcppnaðar.
Gangan hófst við verslun KEA
við Hrisalund og þar flutti göngu-
stjóri, Hjörleifur Hjartarson,
ávarp. Siðan var gengið niður I
miðbæ og á Ráðhústorgi ávarpaði
Arnar Björnsson frá Húsavik
göngumenn.
Að göngunni lokinni var
baráttufundur með fjölbreyttri
dagskrá i Sjálfstæöishúsinu.
Sönghópur kom fram og flutt var
jBensín- —|
hækkunini
ekki enn ;
! afgreidd
Skattprósentan til |
■ rikissjóðs endur- j
Iskoðuð?
■ Ríkisstjórnin f jallaði j
I ekki um bensínhækk- I
I unina á fundi sínum í I
■ gær eins og búist hafði J
I verið við en hækkunar- I
I beiðnin hefur nú legið I
! óafgreidd i um tvær ■
| vikur.
Þó verö á gasoliu og |
I bensíni fari nú lækkandi á ,
■ heimsmarkaði, kemur sú ■
I lækkun okkur ekki til góöa I
I fyrr en seinna, þar sem |
■ farmarnir sem nú er beðið ■
J eftir verðlagningu á voru I
| keyptir á hærra verði.
j Rikisstjórnin mun nú hafa |
■ til athugunar að endurskoða ■
J skattprósentu til rikissjóðs i
| bensinveröinu.
revia eftir Guðmund Sæmunds-
son. Chileanskur flóttamaður
búsettur á Akureyri, Julio Ocares
að nafni, lýsti ástandinu 1 heima-
landi sinu. Sigriður Hafstað á
Tjöm I Svarfaöardal flutti ljóð
eftir Jakobinu Sigurðardóttir i
Garði og Jón Hafsteinn Jónsson
menntaskólakennari flutti aðal-
ræðu dagsins. Lokaávarp flutti
svo Stefania Þorgrimsdóttir i
Garði i Mývatnssveit.
Talið er að um 200 manns hafi
tekið þátt I göngunni og húsfyllir
var I Sjálfstæðishúsinu. Það er
mál manna að þátttaka i aðgerö-
unum hafi farið fram úr djörfustu
vonum manna.
JG/S.dór
Hunda-
eigendur
fá engan
póst
Póstmenn I Keflavik hafa
neitað að bera út póst til nokkurra
hæjarbúa sem hafa lausa hunda I
görðum sinum og verða þessir
hundaeigendur nú sjálfir að
sækja sinn póst á pósthúsið.
Hér er um að ræða 3-4 aðila og
segir stöðvarstjóri Pósts og sima
i Keflavik i viötali við Suður-
nesjatiðindi að hundaeigendurnir
sjálfir hafi skapað þetta vanda-
mál og hann geti ekki þvingað
póstburðarfólk til aö bera út
póstinn til þeirra. Ef póstmaöur
yrði bitinn væri Póstur og simi
skaðabótaskyldur ef um slíka
fyrirskipun væri að ræða.
í Keflavík er hundahald leyfi-
legt, en um það gilda ákveðnar
reglur, m.a. mega hundar ekki
vera lausir eða I það löngu bandi
að fólk komist ekki óhindraö að
húsunum.
—AI.
Landbúnaðarráðherra hyggst gæða sér á góðmetinu. — Mynd — gel.
Páskalambið og vetuigamla
kindin jöfn aö atkvæðum
Markaðsnefnd landbúnaðarins
er nú að gera tilraun með að selja
„páskalömb” til Danmerkur.
Voru lömbin fædd I janúarbyrjun
og var slátrað s.I. föstudag.
I gær bauð Markaðsnefndin
allvænum hópi manna að smakka
á páskalambi en til samanburðar
var dilkakjöt frá þvi I haust og
kjöt af veturgamalli kind. Er
„neytendur” höfðu lokiö snæðingi
fór fram atkvæðagreiðsla um
bragðgæöin. Var gefið fyrir frá
einum og upp i fimm. Orslit urðu
þau, að páskalambið og vetur-
gamla kindin urðu hnifjöfn eða
með meöaleinkunnina 3.84.
Dilkakjötiö frá I haust hlaut
hinsvegar meðaleinkunnina 2.91.
Nú er bara að vona aö
bragðlaukar Dana reynist öðru
visi en Islendinga.
—mhg.
Mikill
áhugi á
björgun-
arnetinu
Mikill áhugi er nú hjá ýmsum
bæði til sjós og lands, aö tryggja
sér björgunarnet hjá Markúsi
Þorgeirssyni skipstjóra, en
nýlega kynnti Markús i samvinnu
viö Siglingamálastofnun notkun
þessa umrædda björgunarnets.
Bæjarútgerö Hafnarfjarðar
hefur pantað fjögur net hjá
Markúsiog eru þau ætluð til notk-
unar i skuttogurum útgerð-
arinnar b/v Mai og b/v Júni.
Þá hefur lögreglan i Hafnar-
firði pantað þrjú björgunarnet
hjá Markúsi, sem siðan verða
höfð til taks i bifreiöum Hafnar-
fjarðarlögreglunnar.
Markús sagði i samtali við
Þjóðviljann, að hann ynni nú að
kappi að gerð þeirra björgunar-
neta, sem þegar hefðu verið
pöntuð, og hann vissi um fjöl-
margar fleiri pantanir sem væru
á leiðinni. Þá sagöi Markús aö
hann væri búinn aö stækka netiö
upp I 2x4 m, þannig aö það tæki
hæglega tvo menn.
-lg
Allt í páskamatinn
Opið til kl. 10 í kvöld
Ármúla 1 A, simi 8(> 111.