Þjóðviljinn - 02.04.1980, Síða 5

Þjóðviljinn - 02.04.1980, Síða 5
Miövikudagur 2. aprfl 1980 'þjóDVILJINN — SÍÐA 5 Vonsviknir aprflhlaupendur ganga upp dr portinu hjá Lýsi og mjöl um kl. 4 I gær. Ofarlega sér i skiltiö sem verkamennirnir settu upp til að visa á „bilasýninguna”. Fréttin um Mihitzubilana Einn tók yaxta- aukalán Dagblöðin i Reykjavik frömdu grátt gaman i gær. Þau ákváðu að hafa sama aprilgabbið og fengu Pétur Sveinbjarnarson fram- kvæmdastjóra til liðs við sig. Attu að vera til sölu 300 hræódýrir japanskir bilar að gerðinni Mihitzu i Hafnarfirði. Einn kom alla leið ofan úr Borgarfirði til þess að hlaupa 1. april og annar tók vaxtaaukaián upp á hálfu þriðju miljón til þess að geta borgað strax á borðið. Strax og morgunblöðin komu út urðu allar simalinur glóandi á rit- stjórnarskrifstofunum og vildi fólk fá að vita hvort um gabb væri að ræða þvi að það vildi alls ekki missa af þvi tækifæri að kaupa nýjan japanskan bil á 2.2miljónir króna. Simastúlkurnar á Þjóö- viljanum sögðust ekki vita hvort um gabb væri að ræða en bentu á að fréttin væri samhljóða i hinum blöðunum. t fréttinni var sagt að Pétur Sveinbjarnarson yrði til staðar kl. 4 hjá Lýsi og mjöl h.f. við Hvaleyrarbraut og tæki þar á móti pöntunum. Starfsfólk Lýsis og mjöls vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þvi að frá þvi snemma i gærmorgun linnti ekki sim- hringingum þar. Nokkrir strákar I mjölverksmiðjunni tóku sig til að máluðu á stórt skilti sem vis- aði niður i port: „Bilasýning kl. 4”. Til þess að komast inn i þetta daunilla port varð að fara fyrir horn en þar stóð skýrum stöfum á stórri krossviðarplötu: „1. april”. Sögðu þeir i samtali við Þjóð- viljann að stööugur straumur fólks hefði verið þarna frá þvi snemma um morguninn og brást fólk misjafnlega við þegar þaö komst að raun um að það væri að hlaupa l. april. Einn maður á gömlum Skoda var svo reiður að hann ætlaði að berja strákana. Sömu sögu var að segja i bíla- porti Bifrastar við Hvaleyrar- brautina en þar áttu bilarnir að vera geymdir. Þangað lá straum- ur fólks og slmhringingum linnti ekki. Þar gaf sig fram maður um hádegið sem sagðist vera kominn ofan Ur Borgarfirði og einnig sá með vaxtaaukalánið. Þá hafði Oli H. Þóröarson samband við Þjóðviljann og sagði að mikið hefði verið hringt i um- ferðarráð vegna fyrri tengsla Péturs Sveinbjarnarsonar við það. Þaö skal tekið fram að Pétur fór til Utlanda snemma i gær- morgun svo aö fólk gat ekki náð i hann. Blaðamenn Þjóðviljans fóru á Hvaleyrarholtiö á fjórða timan- um I gær og þá lá stöðugur straumur fólks þangað. Sumir dóluðu um á bilum sínum og góndu I allar áttir en hikuðu við að gefa sig fram ef um aprilgabb væri að ræða. Þeir sem gáfu sig fram brugðust misjafnlega við. Menn áttu erfitt með að kyngja þeirri staðreynd að þeir hefðu verið plataðir. Tveir sögðu i sam- tali við Þjóðviljann að þeir hefðu hvort sem var átt erindi i Hafnar- fjörð. Annar sem hafði spurt um bilasýninguna hjá Bifröst svaraöi þvi til þegar Þjóðviljinn spurði hann eftir að hann kom Ur portinu hjá Lýsi og mjöl að hann hefði verið að leita að manni i verk- smiðjunni og gekk snUðugur á brott. Erna Jónsdóttir simastúlka f af- greiðslu Bifrastar hjá bflaportinu á Hvaleyrarholti hafði nóg að gera við aö svara i síma i gær og skemmti sér konunglega. Aberandi var I mörgum bilum að hjón höfðu tekið sig upp Ur Reykjavik til að spá I þetta kosta- boð. Starfsfólk Lýsis og mjöls og Bifrastar sagði aö sumir hefðu neitað þvi að l.aprfl væri I dag svo ákveðnir hefðu þeir veriö að næla sér i bil. Þess skal getið að sumum lá illt orð til Péturs Sveinbjarnarsonar er þeir uppgötvuðu gabbið , en þaö skal tekið skýrt fram að hann átti engan þátt i að bUa það til hlýddi aðeins kallinu þegar blöðin báðu hann að vera með. Flest blöðin voru með annað gabb heldur en þetta til þess aö villa um og skýrði Þjóðviljinn t.d. frá þvi að Ölafur Jóhannesson hefði ákveöiö að gefa kost á sér til forsetaframboös. Urðu margir til aö trUa þvi og hringt var frá einni erlendri fréttastofu i Þjóðviljann til þess að fá staðfestingu á frétt- inni áður en hUn yrði send til Ut- landa. Að lokum skal geta þess að eng- inn bill með nafninu Mihitzu er til. -GFr Nei,- nú ligg ég lagiega i þvi, gæti hafa komið upp i huga þessa manns þegar hann sá skiltið ofan I daunillu porti Lýsis og mjöls I Hafnarfirði kominn til þess að tryggja sér Mihitzubfl (Ljósm.:gel) „Dj, eruö þið grófir”, sögðu þessi þegar þau uppgötvuðu að þau höfðu hlaupið 1. apríl en gátu samt ekki annað en hlegið, (Ljósm.:gel) Ekki iinnti simhringingum frá þvi snemma um morguninn hjá Lýsi og mjöl h.f. við Hvaleyrarbraut og varð litið úr vinnu hjá Eiriki Skarphéðinssyni á skrifstofunni. Sumir reyndu að snúa sér út úr vandræðum sfnum þegar þeir uppgötv- uðu gabbið, þóttust vera að leita að manni eða sögðust hafa átt erindi I Hafnarfjörö hvort sem var (Ljósm.:gel) með páskaliljunum Lítið við í næstu blómabúð

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.