Þjóðviljinn - 11.04.1980, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. april 1980
Pétur fyrir utan Ibúð slna I Puttershoek, smáborg rétt utan við
Rotterdam.
r
„Eg sœtti
mig ekki... ”
fær allan þann tima sem það þarf
á að halda. Árangurinn hefur ekki
látiðstanda á sér.
Skaginn gæti velgt þeim
undir uggum
Það er oft gaman að velta þvi
fyrir sér hvernig islenskt topplið
myndi spjara sig 1 deildakeppni
útiilöndum. Pétur hefur ákveðna
skoðun á þvi.
— Sjáðu til, boltinn hér i
Hollandi er t.d. miklu hraðari og
harðari en heima. Skagaiiðið
myndi þó örugglega spjara sig vel
I áhugamannadeildinni hérna. Ég
er meira aö segja viss um að
Skaginn getur unnið sum liðin i 1.
deildinni hjá okkur, t.d. Haarlem,
og önnur slik prumpliö. Þannig
geöur IA staðið I flestum liöunum
hérna i Hollandi, en strákana
heima vantar bara meiri reynslu
i stórleikjum.
— Þegar'að Feyenoord lék gegn
1A sl. sumar höfðu strákarnir i
liðinu það á orði að Skagaliöið
væri mjög sterkt af áhugamanna-
liði að vera. Ég verð þó að segja
það, að leikurinn gegn B-liðinu
var hálfundarlegur, enda við ekki
vel upplagöir. Hvað um það, allir
hjá Feyenoord voru mjög ánægð-
ir með túrinn til Islands og fannst
íslenskur fótbolti merkilega góð-
ur.
Það á að gefa strákunum
heima fleiri tækifæri
Úr þvi að islensk knattspyrna
var komin til umræðu var ekki úr
vegi að spyrja Pétur um landslið-
iö.
— Landsliðið heima sýndi oft
mjög góöan leik I fyrri hálfleik, en
eftir þvi sem á leið leikina urðu
þeir að hálfgerðri martröö. Ann-
ars eigum við að geta teflt fram
góðu liði, við höfum ágætan
mannskap. Timinn fyrir leikina
var hins vegar allt of naumur
fyrir okkur atvinnumennina og
einnig var slæmt að þurfa að vera
langtimum saman aleinn i sókn-
inni.
— Þaðer min skoðun að ef ekki
er hægt aö ná i okkur atvinnu-
mennina með góðum fyrirvara
eigi aö gefa strákunum heima
tækifæri. Þeir fá alltof fáa sénsa
til þess aö spreyta sig; þeir eru oft
sveltir I sambandi viö landsliöiö.
Hvernig fannst þér landsliðs-
þjálfarinn, Youri Ilitchev, standa
sig?
— Youri hafði einfaldlega ekki
nægan tima með landsliðið. Það
er öruggt að karlinn er toppþjálf-
ari, þaö sýndi árangur hans hjá
Val, þar byggði hann upp gott liö.
Hjá landsliðinu var karlinn alltaf
i tfmahraki, hann ætlaöi að gera
of mikiö á of stuttum tima.
— Sum gagnrýnin á Youri var
ósanngjörn, en sumt af henni átti
hann fyllilega skilið. Það var t.d.
hart að Jón Pétursson skyldi vera
settur út úr liðinu og ég var
hreinlega hneykslaður þegar
Teitur var ekki valinn I liðið gegn
Hollendingum.
— Nú hefur Guöni Kjartansson
tekið viö liðinu og mér finnst hann
hafa fariö vel af stað. Hann hefur
bæði skrifaö okkur strákunum
hér úti og eins hefur hann verið að
kynna sér spilamennskuna hér
undanfarið. Það verður örugg-
lega gaman að starfa með
þjálfara, sem sýnir svona mikinn
áhuga.
Nú voru uppi sögusagnir I
fyrrasumar að þú vildir ekki leika
með landsliðinu. Var eitthvað til I
þeim?
— Nei, þetta var tóm lygi
alltsaman. Staðreyndin var sú að
ég var meiddur I nára og komst
þ.a.l. ekki heim. Þá var þvi einnig
logið að ég vildi ekki leika með
Asgeiri Sigurvinssyni, en þaö er
einnig lygi, sem á sér rætur á
sama staðnum og hinn þvætting-
urinn. Sannleikurinn er að ég er
allur af vilja gerður til að leika
með landsliöinu; þaö er heiður að
leika fyrir tsland.
Fólkiö hér nægjusamt,
þveröfugt við það sem er
heima
Talið barst nú aftur aö
heimþránni og því hvernig fólkið
á Skaganum taki stráknum Pétri
eftir að hann hefur gert garðinn
frægan I útlöndum.
— Ég hef ekki fundið breytingu
á vinum mlnum heima I minn
garð. Ég get gengiö inn I hús á
Akranesi eins og áður, sagt hallóð
og fengið gamla góða halló-ið til
baka. Ég er bara Pétur Pétursson
af Skaganum og þannig tekur fólk
mér.
— Hvaö heimþrána varðar þá
er hún að mestu horfin. Petrlna,
kærastan min, kom hingað út i
september og er allt miklu
þægilegra og heimilislegra. Það
var verst að vera einn.
— Ég er mjög ánægður með
lifið hér I Hollandi og langar ekki
aftur heim I bráð. Ég hreinlega
sætti mig ekki viö að fara að
vinna aftur i sementinu 10 tima á
dag og æfa fótbolta á eftir. Slikt
væri ómögulegt eftir að hafa
kynnst þessu hér úti.
Er mikill munur á hinu daglega
lifi i Hollandi og á tslandi?
— Nauðsynjavörur hér eru t.d.
ekki dýrar og fólk ákaflega
nægjusamt, þveröfugt við þaö
sem er heima. Hér býr fólk
undantekningalitið I litlum
ibúöum, vinnur sina 8 tima og er
ekki meö stress eða vesen.
Almenningur i Hollandi leggur
mikið upp úr velheppnuðum
sumarfrium, mun meira en að
safna um sig allskyns pjátri og
prjáli. Það er sáralitil veröbólga
hérna og veitt eru lán til húsa-
kaupa I allt aö 30 ár. Eins og þú
sérö er mikill munur á þessu llfi
og streðinu heima á Islandi.
Ég verö í atvinnuknatt-
spyrnu eins lengi og ég get.
Að lokum, Pétur, hvað tekur við
hjá þér eftir að samningnum við
Feyenoord lýkur?
— Nú, ég geröi 3 ára samning
við félagið og mér finnst gott að
vera hér. Hvað tekur siöan við er
ekki gott að segja til um.
— Af einhverri ástæðu hefur
mig alltaf langað til að leika i
Frakkiandi, það er nánast
óútskýranlegt. Ég myndi hins
vegar hugsa mig tvisvar um áður
en ég færi til Þýskalands. Þá veit
ég að ítölsk lið hafa gert fyrir-
spurnir um mig. Hvað sem þessu
öllu llður þá er ég staöráðinn i að
vera eins lengi i atvinnuknatt-
spyrnu og ég get og eitthvert liö
hefur áhuga á að fá mig I sfnar
raðir.
- IngH.
iþróttir |w íþróttir
„Við rassskelltum
Norðmennina vel”,
sagði Einar Bollason, landsliðsþjálfari eftir að
ísland hafði sigrað Noreg á Polar-cup, 83-58
islenska körfuknatt-
leikslandsliðinu tókst
heldur betur upp i gær-
kvöldi þegar liðið lék
gegn Norðmönnum á
Polar-cup (Norður-
landamótinu). Norð-
mennirnir voru eins og
börn i höndunum á
landanum og þegar
upp var staðið að leiks-
lokum hafði ísland
sigrað með 25 stiga
mun, 83-57.
Norömenn komust yfir i byrj-
un, en Island náöi fljótt foryst-
unni, 14-5 og þessi munur hélst
næstu minúturnar. Jón Sig. og
Pétur voru siöan hvfldir um
miðbik fyrri hálfleiksins, og á
meðan tókst Norömönnum að
jafna, 30-30. Sú dýrð stóð þó ekki ,
lengi hjá þeim þvl landinn setti
allt á fulla ferð á ný og náði aft-
ur 9 stiga forskoti fyrir leikhlé,
41-32.
Sami munur hélst á liðunum
framanaf seinni hálfleiknum,
57-48. Þá upphófst einhver æöis-
gengnasti leikkafli sem islenskt
körfuboltalandslið hefur sýnt.
Leikaðferðinni var breytt yfir I
maður—á — mann og á næstu 9
min. skoraði Island 26 stig f röð,
já, 26-0. Staðan breyttist i 83-48,
en lokamínúturnar tókst Norð-
mönnum aðeins aö rétta úr
kútnum, 83-57.
Pétur var frábær I islenska
liöinu, hann lék hinn hávaxna
miöherja Noregs (2.16 m) oft
grátt. Þá átti Jón sannkallaöan
gullleik. Guðsteinn lék sinn
besta landsleik og einnig voru
góðir Jónas, Kristinn og Simon.
Stigin fyrir Island skoruðu:
Pétur 23, Jón 14, Kristinn 12,
Slmon 9, Jónas 8, Torfi 6.
Hollensk lið
bera viurnar í
Pétur Guðm.
Eftir hinn frábæra leik sem
Pétur Guðmundsson sýndi með
islenska landsliðinu I gærkvöldi
gengu á hans fund útsendarar
hollenskra liða og vildu ganga
til samninga við hann. Pétur
var ekki alveg á þvl og sagðist
skyldu tala við þá að mótinu
loknu, fyrr ekki.
Njósnarar frá ítölsku liöi eru
nú staddir á Polar cup, gagn-
gert til þess að horfa á Pétur
leika og má gera ráð fyrir því að
þeir geri vart við sig innan tið-
ar.
Pétur Guðmundsson átti frábæran leik I Islenska liðinu 1 gærkvöldi
og skoraði 23 stig.
Mjög óvæntur sigur
Dana gegn Finnum
„Þetta var brjálæðislegur
leikur, hittni Dananna undir
lokin var hreint með ólikind-
um,” sagði Einar Bollason,
landsliðsþjálfari, en hann var
meðal áhorfenda á leik Dan-
merkur og Finnlands, sem Dan-
ir sigruöu I, 81-79 (35-44).
Þetta er fyrsti ósigur Finna á
Polar-cup frá upphafi og tóku
þeir tapinu mjög illa. Þess má
geta að annar dómaranna var
Islenskur, Kristbjörn Alberts-
son og þótti hann standa sig vel.
Gott mark Péturs
færði Fram 2 stig
Pétur Ormslev, Fram.
Framarar sigruðu KR-inga
þegar liðin léku I Reykjavlkur-
mótinu I knattspyrnu I gær-
kvöldi, 1-0. Sigurmark Fram
skoraði Pétur Ormslev á 73.
min. eftir slæm mistök mark-
varðar KR, Stefáns Jóhanns-
sonar. Löng sending kom fyrir
mark KR, Stefán hikaði I út-
hlaupi og það var nóg fyrir Pét-
ur Ormslev. Hann var á undan
að knettinum og renndi honum I
hliðarnetið.
I fyrri hálfleiknum var spil
beggja liða nokkuð þunglama-
legt og sannkallaö jafnræði
rikti. I seinni hálfleiknum fór að
rofa til og þá voru þaö Framar-
arnir sem náðu undirtökunum.
Sóknir þeirra voru ákaflega
hættulegar og Pétur brenndi áf
úr nokkrum góðum færum áöur
en honum tókst að skora. Hættu-
legasta tækifæri KR féll i skaut
Jóns Oddssonar, en skot hans
fór framhjá.
— IngH.