Þjóðviljinn - 11.04.1980, Blaðsíða 15
Föstudagur 11. apr» 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Dæmigert atriöi úr mynd meö Gög og Gokke.
Sjaldan er em báran stök
Nú ætti enginn aö vera i
vandræöum meö aö halda
krökkunum innan dyra i
kvöld: Gög og Gokke eru i
sjónvarpinu. Sýnd veröur
syrpa úr gamanmyndum
þeirra.
Gög og Gokke hétu reyndar
Stan Laurel og Oliver Hardy.
Þeir byrjuöu aö leika i kvik-
myndum hvor i sinu lagi en
slógu fyrst rækilega i gegn
þegar þeir tóku upp samstarf
og bjuggu til persónurnar sem
viö þekkjum öll: hrakfalla-
bálkana dæmalausu Gög og
Gokke.
1 kvöld veröur rakinn ferill
Sjónvarp
kl. 20.40
þeirra félaga. Sýndar veröa
myndir sem geröar voru
meöan þeir léku hvor i sinu
lagi, þá er fjallaö um upphaf
samstarfsins og sýnt hvernig
persónur þeirra taka á sig
endanlega mynd. Auk þeirra
tveggja koma viö sögu margir
kunnir leikarar frá timum
þöglu myndanna, m.a. Jean
Harlow, Charlie Chase og
Jimmy Finlayson.
Góöa skemmtun!
Sjónarmið verkafólks
Kjaramálin og erlend kjörbörn
á íslandi til umræðu í Kastljósi
Kjaramálin veröa til um-
fjöllunar f Kastljósi i kvöld.
Ómar Ragnarsson fréttamaö-
ur leiöir saman I sjónvarpssal
talsmenn þeirra aöila sem nú
sitja á samningafundum:
Ragnar Arnalds fjármálaráö-
herra, Kristján Thorlacius
formann BSRB, Þorstein
Pálsson framkvæmdastjóra
Vinnuveitendasambands og
Asmund Stefánsson fram-
kvæmdastjóra Alþýöusam-
bandsins.
Einnig er ætlunin aö reyna
aö fá einhvern talsmann
Verkamannasambandsins til
aö ræöa viö einhvern úr hdpi
verkafólks i Vestmannaeyj-
um. Verkakvennafélagiö Snót
I Eyjum geröi nýlega harö-
oröa ályktun, þar sem Verka-
mannasambandiö var átaliö
Sjónvarp
kl. 22.15
fyrir linkind i samningamál-
um. Eflaust veröur tilbreyting
aö fá nú aö heyra sjónarmiö
hins almenna verkamanns og
ætti aö vera hressandi innlegg
I umræöuna, þar sem sömu
foringjarnir hittast venjulega
aftur og aftur.
Guömundur Arni Stefánsson
blaöamaöur fjallar um útlend
börn, sem hafa veriö ættleidd
hingaö til lands. Veröur rætt
viö kjörforeldra slikra barna
m.a., en þessi hluti þáttarins
veröur tekinn ýmist á filmu
eöa i upptökusal.
-eös
Skikkaður til Grímseyjar
Sagt frá séra Oddi V. Gíslasyni
Baldvin Halldórsson leikari
byrjar I kvöld lestur nýrrar
kvöldsögu. Þaö er reyndar
ekki saga I venjulegum skiln-
ingi, en „nokkrar staöreyndir
og hugleiöingar um séra Odd
V. Gislason og lifsferil' hans,”
eftir Gunnar Benediktsson rit-
höfund. Gunnar nefnir saman-
tekt sina „Oddur frá Rósu-
húsi”.
„Þaö er svo undarlegt, jafn
mikiö og búiö er aö skrifa um
Odd, hvaö heimildir um hann
hafa veriö lltiö hagnýttara,”
sagöi Gunnar er viö ræddum
viö hann I gær. „Oddur var
frægur fyrir bjargráö sin
gagnvart sjóslysum, en hann
skipulagöi sjóslysavarnir á
undraskömmum tíma og var
þar algjör brautryöjandi.
Fyrst varö hann þó frægur
1861 , þegar hann var
skikkaöur til aö veröa prestur
I Grtmsey. Hann færöist undan
þvi, en viö þvl lágu ströng
Útvarp
kl. 22.40
viöurlög. Hann komst þó
undan þessu á heilsufarsvott-
oröi frá landlækni. Um þetta
var mikiö talaö á sinum tima
þvi aö Oddur var annálaö
hraustmenni.”
Oddur varö lika frægur fyrir
brúöarrániö, er hann sótti
brúöi sina suöur I Kirkjuvog i
Höfnum. Um þaö hafa
spunnist miklar og
„dásamlega skemmtilegar og
spennandi þjóösögur,” eins og
Gunnar Benediktsson sagöi.
Oddur var prestur I Grinda-
vik 1887-90, en 1894 fór hann
vestur til Kanada og geröist
prestur þar. Hann tók læknis-
próf og fékk inngöngu I lækna-
félag Bandarikjanna áriö 1910,
en lést skömmu siöar, I janúar
1911. -eös.
Markmiðið er jöfnun
flutningskostnaðar
Síaukinn flutningskostn-
aður á vörur, sem seldar
eru utan Stór-Reykja-
víkursvæðisins, er um-
talsef ni þessarar greinar,
sem birtist í Austurlandi
fyrir skömmu.
Fyrir Alþingi liggur nú tillaga
um afnám söluskatts af flutn-
ingsgjaldi. Tillaga þessa efnis
hefur oft komiö fram áöur.
Siöast báru þeir Helgi Seljan og
Stefán Jónsson tillögu um þetta
fram á þingi á siöustu dögum
rikisstjórnar Geirs
Hallgrimssonar. Þá náöi máliö
enn ekki fram aö ganea.
Nú viröist máliö loksins hafa
fengiö þannig undirtektir aö
góöar horfur eru á aö þaö nái
fram. Þeir sem tjáöu sig um til-
lögu Sigurlaugar Bjarnadóttur
töldu aö hér væri brýnt rétt-
lætismál á feröinni og er þaö vel
en hér þarf aö ganga lengra.
Jöfnuöur flutningskostnaöar
veröur aö vera markmiöiö.
Viö fábreyttara vöruvali úti á
landsbyggöinni veröur litiö gert
en aö erfiöir aödrættir séu
rikinu tekjulind er auövitaö
smánarlegt.
Samkvæmt upplýsingum
Hagstofunnar kaupir visitölu-
fjölskyldan (hjón meö tvö börn,
sem aö sjálfsögöu er miöaö viö
aö búi I Reykjavik) hreinlætis-
vörur fyrir u.þ.b. 102 þúsund á
ári.
Þegar sama magn af hrein-
lætisvörum er keypt I
Neskaupstaö hafa eftirtaldar
álögur komiö á vöruna umfram
þá álagningu sem fjölskyldan I
Reykjavik þarf aö borga:
Flutningskostnaöur
(á heildsöluverö) 6.120
Alagning á flutningskostnaö
1.836
Söluskattur af flutningskostnaöi
og álagningu á flutningskostnaö
1.751
Fjölskyldan I Neskaupstaö
borgar þvi
111.707
fyrir sömu vöru eöa kr. 9.707
meira.
A Noröfiröi eru um 500 fjöl-
skyldur. Miöaö viö ofangreinda
meöalnotkun af hreinlætis-
vörum greiöa þær 875 þúsund
krónur til rikisins sem auka-
skatt vegna langs flutnings
vörunnar. Alls greiöa Noröfirö-
ingar 5 miljónum kr. meira en
Reykvikingar fyrir sama magn
af hreinlætisvöru.
Þessi vara er eftir
upplýsingum Hagstofunnar
aöeins um 1—1 1/2% af neyslu-
vöru visitölufjölskýldunnar.
Austurland fékk þær upplýs-
ingar hjá Gisla Haraldssyni,
kaupfélagsstjóra Kaupfélagsins
Fram á Neskaupstaö, aö sölu-
skattur af flutningskostnaöi á
vefnaöar- og byggingarvöru
seldri af fyrirtækinu s.l. ár hafi
numiö 3.7 milljónum króna, 3.7
milljónir sem rikiö heföi ekkí
fengiö heföi varan veriö keypt I
Reykjavik. Og þá kemur enn
eitt óréttlæti inn I máliö. Sölu-
skattskyldur aöili sem rekur
verslun og flytur vöru frá
Reykjavtk þarf aö borga sölu-
skatt af flutningskostnaöi en ef
einstaklingur kaupir vöruna
beint og greiöi flutning sjálfur
kemur enginn söluskattur á
flutninginn. Ekki beint til aö
draga úr erfiöleikum dreifbýlis-
verslunarinnar. ’ Noröfiröingar
borga þvl 21 millj. kr. meira
Fjögurra manna fjöiskylda á Neskaupstaö borgar nærri io þús.
krónum meira fyrir sama skammt af hreinlætisvörum og reykviska
visitölufjölskyldan er talin brúka árlega.
alls fyrir þessa vöru en
Reykvlkingar.
Gisli sagöi ennfremur, aö
bara þessi skattur af seldri vöru
kaupfélagsins sem flutnings
kostnaöur kæmi á heföi oröiö 9.2
milljónir s.l. ár ef ekki heföu
komiö til þær aðgeröir vinstri
stjórnarinnar slöustu aö af nema
söluskatt af matvöru sem
lækkaði þessa upphæö til muna
og meö þvl aö flytja stóran hluta
vörunnar beint inn heföi einnig
tekist aö lækka upphæöina.
Vissulega munar landsbyggö-
ina um afnám söluskatts af
flutningskostnaöi en enn meira
um útjöfnun flutnings-
kostnaöar.
Fyrir þá sem álita aö þaö sé of
erfitt I framkvæmd og þýöi of
miklar álögur á neytendur 1
Reykjavlk skal bent á athyglis-
veröa tilraun sem kaupfélögin
hafa gert meö þvl aö jafna niöur
flutningskostnaöi á tilboðsvöru
sina. Otkoman varö sú, aö ofan
á vöruna lagöist 0.3-0.4% um
land allt I staö 0.0% I Reykjavlk
og um 7% á Austfjöröum.
Þetta var óvænt niöurstaöa og
hún sýnir aö þetta er mjög vel
framkvæmanlegt. Reyndar er
flutningskostnaöi þegar jafnaö
út á ýmsum vörum eins og
kunnugt er s.s. kartöflum, ollu
og bensini og mjólkurvöru en
alger jöfnun flutningskostnaöar
er lágmarkskrafa.
Brennivinslegill (Þjóöminjasafniö. -Ljósm.:gel).