Þjóðviljinn - 24.07.1980, Side 1

Þjóðviljinn - 24.07.1980, Side 1
UÚÐVIUINN Rafinagnsveita Reykjavíkur: Hækkaði gjaldskrána þó fjárhagsstaðan væri góð Fimmtudagur 24. júli 1980 — 166. tbl. 45. árg. Gat aukið endurgreiðslur lána um nær 700 miljónir umfiram áætlun Rafmagnsveita Reykja- víkur hafði úr það miklúm fjármunum að spila á síðasta ári að stof nunin gat hraðað endurgreiðslum á langtímalánum um 669 miljónir króna. Á sama tíma taldi stofnunin hins vegar nauðsynlegt að hækka gjaldskrá sína. Áætlað hafði verið að endurgreiða langtímalán að upphæð 969 miljónir króna á árinu 1979, en Raf- magnsveitan greiddi niður lán fyrir 1638 miljónir á því ári. Þessar tölur eru fengnar úr skýrslu endurskoðunar- deildar Reykjavíkur- borgar fyrir árið 1979. Sú spurning hlýtur að vakna hvort ekki hefði verið eðli- legra að nota þetta fjár- magn á annan háttt.d. með minni hækkun á gjald- skránni. Ingvar Asmundsson fjármála- stjóri Rafmagnsveitunnar sagöist i samtali viö bjóöviljann álita aö sú ákvöröun aö hraöa endur- greiöslum á langtimalánum heföi komiö sér best fyrir neytendur. Meö þvi aö borga erlend lán fyrr en áætlaö heföi veriö væri hægt aö endurgreiöa þau á lægra gengi en ella. Ingvar Asmundsson sagöist telja þaö bera vott um árangur af þeirri stefnu aö hraöa endur- greiöslu erlendra lána aö Raf- magnsveitan heföi ekki þurft aö Framhald á bls. 13 Samningaviðrœður ASI og VMSS: Heimta ekki réttindaafsal — segir Guðmundur J. Guðmundsson Samninganefndir Al- þýðusambandsins og Vinnumálasambands samvinnufélaga voru á fundi frá kl. 2-7 i gær. A fundinum var rætt um þær tillögur að umræðu- grundvelli er Vinnu- málasambandið lagði fram i fyrradag. Fyrr um daginn hafði samn- inganefnd ASl haldið fund um tillögumar. Tillögur Vinnumálasambands- ins hafa veriö afhentar Vinnu- veitendasambandinu þó aö þaö eigi ekki formlega aöild aö viö- ræöunum, þvi bæöi ASI og VMSS uröu sammála um þaö aö bjóöa VSl aöild aö viöræöunum. Sáttasemjari hefur boöaö samningamenn A S.t og Vinnu- málasambandsins til nýs fundar klukkan 3 i dag. Snorri Jónsson, starfandi for- seti Alþýöusambandsinsfsagöi eftir fundinn I gær, aö enn væri allt I óvissu um hvort samningar tækjust, þvi mörg atriöi ætti eftir aö ræöa nánar og skoöa til þraut- ar. Aöspuröur sagöi Snorri aö dagurinn i gær hafi út af fyrir sig ekki valdiö vonbrigöum og vilji sé fyrir hendi til aö ræöa málin I al- vöru. „bvi er ekki aö neita, aö viss opnun er I þessum tillögum Vinnumálasambandsins i átt til okkar krafna, en þær eru þó enn allfjarri kröfum okkar. barna eru vissir jákvæöir hlutir, en ann- aö sem okkur þykir býsna þröngt,” sagöi Guömundur J. Guömundsson formaöur VMSl eftir fundinn i gær. „baö hefur komiö greinilega fram á þessum fundum’*> sagöi Guömundur enn fremur, „aö VMSI ætlar sér ekki aö tefja þess- ar samningaviöræöur meö nein- um tillögumum visitöluskeröingu né kröfum um afsal réttinda eins og komiö hefur fram I kröfum VSl. A þessum fundum meö VMSS hefur veriö mikiö unniö og máliö skýrst all nokkuö. Viö höld- um þvi áfram viöræöum okkar á morgun”, sagöi Guömundur aö lokum. þm. Ný heilsugœslustöð í Kópavogi: Mikill áfangi fyrir Kópavogsbúa „Þetta er mikill áfangi fyrir ibúa Kópa- vogs” sagði Ólafur Jónsson bæjarfulltrúi og formaður stjórnar hinnar nýju heilsu- gæslustöðvar sem var vigð i gær i Kópavogi. Stöðin er til húsa við Fannborg i tveggja hæða húsi sem er allt hið glæsilegasta og tekur nú við starfsemi þeirri sem sjúkrasamlag Kópavogs hefur staðið fyrir til þessa. Viö athöfnina i gær voru fluttar margar ræöur. Úlafur Jónsson lýsti byggingunni og aödraganda hennar. Húsiö var steypt á ár- unum 76- 77 og er 856 fermetrar aö flatarmáli. ólafur sagöi aö þaö heföi kostaö mikla baráttu aö koma stööinni á fót og litt heföi gengiö þar til fjárveiting fékkst á fjárlögum rikisins. Stööin kostar 234 miljónir króna, en þá á eftir aö kaupa ýmis tæki. t stööinni munu 4 heilsugæslu- læknar hafa aöstööu auk 2ja barnalækna, tannlæknis, 4 HEllSUStSLUSTnn Heilsugæslustööin hefur til umráða tvær hæöir I þessu húsi sem stendur viö Fannborg i Kópavogi Ljósm: eik heimilislækna og 10 sérfræöinga sem þarna veröa ýmist meö aö- stööu eöa i hlutastarfi. Meðal annars veröur I stööinni göngu- deild fyrir soreasissjúklinga. Alls munu um 40 starfsmenn vinna viö stööina og á hún aö geta sinnt um 2000 bæjarbúum á mánuði. Læknavakt verður daglega frá kl. 8 aö morgni til 18.30 að kvöldi. begar Ólafur haföi lokiö máli sinu tók Svavar Gestsson til máls og óskaöi Kópavogsbúum til hamingju meö heilsugæslustöö- ina. Hann sagöi aö skammt væri milli stórra atburöa, i fyrradag var tekin skóflustunga aö nýrri Framhald á bls. 13 Ólafi Jónssyni bæjarfulitrúa var sérstaklega þakkað fyrir framgöngu í baráttunni fyrir heiisugæslustööinni en hann er formaöur stjórnar heilsugæslustöövarinnar. Ólafur er.til hægri á myndinni. Ljósm: eik Staðreyndír um kaupmátt launa — í stað falsana Morgunblaðsins Ibaö er margt skrýtiö, sem lesa má i Morgunblaöinu þessa dagana um þróun kaupmáttar launa I landinu. bannig er þvi t.d. haldiö fram á baksiöu t Morgunblaösins f gær, aö kaup- Imáttur launa hafi veriö mestur „viö lok stjórnartimabils Geirs Hallgrimssonar” áriö 1978. ( Auövitaö er þetta argasta fölsun Ihjá Morgunblaöinu, sem nauösynlegt er aö leiörétta strax. , Litum á töflu, sem birt er á blaðsföu 24 I siöasta hefti (april 1980) af Fréttabréfi kjararann- sóknarnefndar. bar er sýnd þróun kaupmáttar dagvinnu- tfmakaups verkamanna frá árinu 1963. Miðaö er viö vlsitölu framfærslukostnaöar, og kaup- mátturinn áriö 1971 kallaöur 100. Hæstur er kaupmátturinn á 6 mán. timabili á fyrri helm- ingi árs 1974, þá 132,2 stig, og svo aftur á siöasta ársfjórö- ungnum 1978 og fyrsta ársfjórö- ungnum 1979, þaö er 131,6 stig (miöaö viö 100 áriö 1971). betta var siöasta hálfa áriö hjá vinstri stjórninni 1971—-1974 og fyrsta hálfa áriö hjá rikisstjórn ólafs Jóhannssonar, 1978—1979v sem Morgunblaöiö kallaöi lika jafnan vinstri stjórn. Siöasta hálfa áriö sem rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar fór meö völd var þessi sami kaupmáttur hins vegar 124,8 stig. Kaupmátturinn hækkaöi sem þessu nam um 6,8 stig viö stjórnarskiptin siösumars 1978, ekki sist vegna afnáms sölu- skatts af matvælum og vegna aukinna niöurgreiöslna. bar meö haföi kaupmátturinn náö sama stigi og hann haföi áöur fariö hæst, en I tvö og hálft ár, allt ríkisstjórnartimabil Geirs Hallgrimssonar fram aö kjara- samningunum i júli 1977, var kaupmátturinn aöeins á bilinu 111,1 — 115,2 stig! Eins og áöur sagöi var kaup- máttur verkamanna 131,6 stig (miðað viö 100 1971) slðasta hálfa áriö fyrir oliukreppu og Ólafslög (þ.e. fyrsta hálfa ár eftir stjórnarskiptin 1978). Meö tilkomu Ólafslaga i april 1979 tók kaupmátturinn hins vegar aö siga I samræmi viö versnandi viöskiptakjör og einnig vegna skeröingarákvæöi I kjara- samningunum sjálfum. A siöasta ársfjóröungi ársins 1979 I var kaupmáttur verkamanna I þannig kominn niöur 1123,9 stig. I Af þessum tölum Kjararann- ■ sóknarnefndar er ljóst, aö kaup- máttur dagvinnukaups verka- manna þarf aö hækka um svo sem 5% frá þvi sem var um siöustu áramót til aö ná þvi kaupmáttarstigi, sem áöur • hefur best verið á landi hér. baö er verkefni verkalýös- I hreyfingarinnar I yfirstandandi | kjarasamningum aö tryggja • þeim lægst launuöu sllkar I kjarabætur, þrátt fyrir 15—16% I lakari viöskiptakjör en fyrir 2 | árum. •

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.