Þjóðviljinn - 09.10.1980, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. október 1980
Frá Las Palmas á Gran Canaria
Kanaríeyja-
kynning
dagana 9. til 12. okt. að Hótel Loftleiðum
Dagana 9. til 12. október
fer fram aö Hótel
Loftleiðum //Kanaríeyja
kynning" þar sem borin
verður fram matur að
hætti Kanaríeyjamanna og
þarlendir matreiðslumenn
annast matseld á. Auk þess
verður boðið uppá
Æskan
Septemberblaö Æskunnar er
nýkomið út. Meðal efnis má
nefna:
ó, guðs vors lands, þjóðsöngur
Islendinga, Fuglinn, eftir Leo
Tolstoj. Hversvegna fer það
svona? Þjóðsagan. Ættjarðarást,
eftir Jóhönnu Brynjólfsdóttur.
Tindátinn, ævintýri, Tólf ára
telpa, kvæði eftir Jakob
Thorarensen. Kanntu að detta?
Fjölskylduþáttur i umsjá Kirkju-
málanefndar Bandalags kvenna i
Reykjavik. Kattamamma,
Bananatréð, Heilabr jótur.
Hvernig endurnar ferjuðu
hérann, skuggamyndir. Er þitt
heimili öruggt? September er
mánuður byrjenda i umferðinni.
Hvernig stendur á hafmeyjun-
um? Risinn ogkórónan, ævintýri.
,Kerling vill hafa nokkuö fyrir
snúð sinn”. Þegar ljónið fékk
tannpinu, ævintýri. Fjögurra
laufa smárinn og óskastundin.
Hvaöa dýr eru fljótust og sterk-
ust? Sagan um litlu fiskana fimm.
Litla kvæðiö um litlu hjónin, eftir
Davið Stefánsson. Að lesa fyrir
barnið. Haustið nálgast, kvæði
eftir Stefán frá Hvitadal. Hvaö er
heilinn? Gátan. Ferðist um land-
ið. Ringo Starr. Dýrin, vinir okk-
ar. Hans og Gréta, myndasögur,
skrýtlur, krossgáta o.m.fl. —
Ritstjóri er Grimur Engilberts.
— mhg
skemmtiatriði frá Kanarí-
egjum sem er söngf lokkur-
inn Mary Sanchez y Los
Bandama. Þarna er um að
ræða frábæra skemmti-
krafta/ það fengu frétta-
menn að heyra á frétta-
mannafundi fyrir
skömmu.
I nokkur ár hafa Flugleiðir h.f. i
samvinnu við islensku feröaskrif-
stofurnar haldiö uppi hópferðum
til Kanarieyja yfir vetrartimann
og nutu þessar ferðir mikilla
vinsælda um tima. Tvö siðustu ár
hefur nokkuð dregið úr aösókn i
Kanarieyjaferðirnar, en nú er
það ætlun þeirra aðila sem hafa
annast þær, ásamt frömuðum
ferðamálaáKanarieyjum að gera
tilraun til að Syfta þessum ferðum
upp á ný og er þessi Kanarleyja-
kynning liður i þeirri viðleitni.
Hér á landi eru staddir nokkrir
frömuðir ferðamála á Kanarieyj-
um með Cruz Caballero yfirmann
ferðamála á Kanarieyjum i
broddi fylkingar og munu þeir
dvelja hér meöan á Kanarieyja-
kynningunni stendur.
— S.dór.
Hvassviðri
og kuldi
Vetur konungur gengur brátt I
garð eftir einmuna gott sumar. í
gær var kuldi og rok viða á
landinu. Hvassast var i Vest-
mannaeyjum, 12 vindstig.
Afram er spáö hvassviðri á
austanveröu landinu, en siðdegis I
gær var farið að lægja á Vest
fjörðum og við Breiðafjörð. Enn
verður þó kalt og Veðurstofan
spáði allt að 6 stiga frosti i nótt
viða vestan lands.
—eos
• Blikkiðjan
Asgaröí 7/ Garðabæ
onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
Vantar vinnu
24 ára háskólanemi óskar eftir atvinnu nú
þegar (helst hlutastarfi). Flest kemur til
greina. Þeir sem áhuga hafa, vinsamlega
sendi tilboð til augl. deildar Þjóðviljans
merkt: „ATVINNA”, fyrir 15. okt. n.k.
Kjarnfóðurskömmtun
Á siðasta aðalfundi Stéttar-
sambands bænda var samþykkt
að hámark kjarnfóðursgjalds-
ins verði 200% af cif-verði inn-
flutts kjarnfóðurs. Það er hið
sama og ákveðið var meö
bráðabirgðalögunum frá 23.
júni sl..Samþykkt var og á fund-
inum að framleiðendur búfjár-
afurða greiði aðeins 1/6 hluta
gjaldsins af tilteknum skammti
kjarnfóðurs fyrir hverja afurða-
einingu eða miöaö við grip.
Þar sem ljóst er, að allmargir
framleiðendur eru I nokkurri
óvissu um þessa gjaldtöku.skal
hér gerð nánari grein fyrir
henni. Eingöngu er miðað við
innflutta fóðurblöndu i eftirfar-
andi skýringum, sem gefnar eru
af Upplýsingaþjónustu landbún-
aðarins. Þvi skal þess getið, aö
þeir framleiðendur, sem kaupa
óblandað fóður, fá 20% minni
skammt af kjarnfóðrí en kaupi
þeir tilbúnar fóðurblöndur
m%msi
> ÍÁ&mm vmm * 'v Hf$$ 'mí
\mW'
ttjgiSp
mm I 'W
Eskifjarðarkirkja
Mjólk
Allir bændur, sem iagt hafa
inn mjólk hjá mólkursamlögun-
um, eiga nú að hafa fengið
kjarnfóðurkort. Skammturinn á
kortunum miðast við mjólkur-
innlegg þeirra siðustu tvær vik-
urnar i águst, sem margfaldað
hefur verið meö 8 og þannig
fengist áætlað innlegg fram að
áramótum. Bóndi,sem lagði inn
2000 ltr. af mjólk tsíðustu tvær
vikurnar i ágúst fær reiknað 16
þús. ltr. innlegg frá 1. sept. til
31. des..Honum ber þvi réttur til
að kaupa 2.8 tonn af fóðurblöndu
með 33.0% gjaldi. Kaupi hann
meira greiðir hann 200% gjald-
ið.
Siðan veröur kjarnfóöur-
skammtur mjólkurframleið-
anda miðaður við þann kvóta,
sem hann fær úthlutað. Ef kvót-
inn verður 40 þús. ltr. þá fær
hann á lægra gjaldinu 175 g af
innfluttri fóðurblöndu á hvern
ltr. mjólkur eða samtals 7.0
tonn.
Kjöt
Fyrir 1 kg af nautakjöti á
bóndinn rétt á að kaupa 650 g af
fóðurblöndu með lægra gjald-
inu. Þegar reiknaður hefur ver-
iðkvóti sauðfjárbænda eiga þeir
rétt á að kaupa 400 g af fóður-
blöndu eða 320 g af óblönduðu
korni fyrir hvert kg , sem þeir
hafa lagt inn og er innan þeirra
kvóta. Fyrir 1 kg af svinakjöti
verður skammturinn 6 kg af
fóðurblöndu en fyrir 1 kg. af
kjúkling verður hann 4 kg af
fóðurblöndu. Kaupi þeir meira
en þessu nemur ber þeim að
greiöa 200% gjald. Eggjafram-
leiðendur fá 4 kg af fóður-
blöndu á lægra gjaldinu fyrir
hvert kg af eggjum, sem þeir
framleiða.
Þá er ákveöinn skammtur ætl-
aður vegna uppeldis á varpfugl-
um og holdahænsnum og
kynbóta- og uppeldisstöðvar
fyrir alifugla fá sérstakan fóð-
urkvóta með skattaafslætti. Þá
er og gert ráð fyrir að eigendur
reiðhesta fái kjarnfóðurskammt
á lægra gjaldinu.
—mhg
Eskijjaröarkirkja
80 ára
Sunnudaginn 12. okt. n.k.
verður haldið upp á áttræðisaf-
mæli Eskifjaröarkirkju. Að
sögn sóknarprestsins á Eski-
firði, Daviðs Baldurssonar,
verður sitthvað gert til hátiðar-
brigða á þessum merku tfma-
mótum kirkjunnar.
1 ráði er að barnastarf safn-
aðarins hefjist þennan sama
dag kl. 11. og kl. 14 verður
hátiðarmessa I Eskifjaröar-
kirkju. Prófastur Austfjarða-
prófastsdæmis, sr. Trausti
Pétursson, mun predika en
staðarprestur þjóna fyrir
altari. Að athöfn lokinni veröur
kirkjugestum boöið til kaffi-
samsætis i félagsheimilinu Val-
höll.
KI. 21 verða tónleikar haldnir
I Eskifjarðarkirkju og gefst þar
tækifæri til að hlýða á góða
gesti. Fram koma söngmála-
stjóri Þjóðkirkjunnar, Haukur
Guðlaugsson, sem leikur á orgel
kirkjunnar, sr. Gunnar Bjöms-
son, sellóleikari, ásamt
söngvurunum Guörúnu Tómas-
dótturogHalldóri Vilhelmssyni.
Vonast er til að þátttaka safh-
aðarfólks verði sem almennust.
—mhg
Gjaldheimta í
Landbúnaðar-
sjóðina
Talsvert hefur hvinið i sum-
um fjölmiðlum að undanförnu
vegna innheimtu gjalda af viss-
um greinum búvöruframleiðsl-
unnar. Af þeim ástæðum hefur
Upplýsingaþjónusta land-
búnaðarins sent okkur eftirfar-
andi greinargerö:
Samkvæmt lögum ber Fram-
leiösluráði landbúnaöarins að
innheimta gjöld af allri fram-
leiðslu landbúnaðarafurða.
Þessi gjöld renna til Stofnlána-
deildar landbúnaðarins, Bjarg-
ráðasjóðs, búnaðarsamband-
anna og Stéttarsambands
bænda. Ennfremur hefur
Framleiðsluráð séö um inn-
heimtu á gjöldum til Lifeyris-
sjóðs bænda. Samtals nema
gjöldin sem Framleiðsluráð á
að innheimta samkvæmt lögum
1.85% af verðmæti afurðanna,
reiknað á verði til fram-
leiðenda. Afurðasölufélögin
hafa haldið þessum gjöldum eft-
iraf afurðaverði sauðfjár, svina
og nautgripa og staðið skil á
þeim til Framleiösluráðs. Þar
hafa ekki komiö upp nein
vandkvæði á innheimtu.
Aftur á móti hefur gengið
mjög erfiðlega að innheimta
gjöldin hjá alifuglabændum. Þó
eru þar til framleiðendur, sem
hafa staðið skil á þessum lög-
boðnu gjöldum, en stór hópur
hefur aldrei greitt neitt. Fram-
leiðsluráð hefur þó aldrei bpitt
harkalegum aðgerðum við inn-
heimtu gjaldanna en skrifað
vinsamleg bréf til alifugla-
bænda og bent þeim á að standa
I skilum. Þar sem mest af ali-
fuglaafurðum er selt beint til
smásala eða neytenda þá verða
framleiðendur sjálfir að halda
eftir þessum gjöldum og greiða
þau til Framleiðsluráðs. Þessir
sjóðir veita alifuglabændum
sömu réttindi og öðrum bænd-
um. Þeir eiga að geta fengið lán
úr Stofnlánadeildinni, aðstoð úr
Bjargráðasjóði og alla þá þjón-
ustu, sem aðrir bændur fá hjá
bændasamtökunum.
Framleiðsluráð hefur ákveðið
að ný afsláttarkort vegna fóð-
' urbætiskaupa verði ekki afhent
svina- og alifuglabændum nema
að þeir geti sýnt kvittanir fyrir
greiðslu gjaldanna fyrir árin
1978 og 1979 eða að þeir greiði
gjöldin hjá Framleiðsluráði.
Einnig geta þeir samiö um
greiðslu gjaldanna og standi þá
skil á þeim fyrir ákveðinn tima.
Þessi gjöld eru hliöstæö opin-
berum gjöldum, sem ber að
greiða. Það þykir ekki gott til
afspurnar aö svikja undan
skatti.
—mhg