Þjóðviljinn - 12.11.1980, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 12.11.1980, Qupperneq 3
Miðvikudagur 12. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Aldrei meira á einni vertíð af suðurlandssíld 210 þús. tiinnur þegar saltaðar Söltun á þessari vertið komst i fyrrakvöld uppfyrir 210 þúsund tunnur síldar og er það meira en nokkru sinnihefur veriö saltaö af suðurlandssild á einni vertið, að þvier Einar Benediktsson fulltrúi hjá Sildarútvegsnefnd sagði Þjóðviljanum. Þótt sildin hafi að þessu sinni aðallega veiðst fyrir Austurlandi er hún af sama stofni og kenndur hefur verið við Suðurlandið eöa Suðausturlandið. Samið hefur verið um sölu á 230 þúsund tunn- um sem samsvarar uþb. 32 þús- und tonnum hráeínis uppúr sjó, en leyfður kvóti er 50 þúsund tonn. Aður hafa mest verið saltaðar af suðurlandssildinni 191 þúsund tunnur á einni vertið.en mörg ár eru siöan. —vh ÍOGT og ÍUT: Veröld án vímu tslenskir ungtemplarar og þingstúkur IOGT I Reykjavlk og Hafnarfirði eru um þessar mund- ir að hefja framkvæmd á stóru verkefni, sem fengið hefur nafnið „Veröld án vimu” og verður I gangi á Stór-Reykjavikursvæðinu næstu tvö ár. Hér er um að ræöa fræöslu- og kynningarstarf sem ætlað er að efla starfsemi IOGT og ÍUT. Helstu starfsþættirnir eru: fræðsla i skólum, viðhorfanám- skeið, vinnustaðafundir, fjöl- skyldufundir, gestakvöld, um- ræðufundir, ráðstefnur og kynn- ing á breiöum grundvelli i fjöl- miölum. Miðstöð starfsins veröur i Templarahöllinni viö Eiriksgötu og er opið þar alla virka daga kl. 16-19. Þar verður opið" hús alla fimmtudaga i vetur kl. 17-19. Sérstök framkvæmdanefnd hefur verið skipuð til að vinna aö þessu verkefni, og er Einar Hannesson formaður hennar. Norræna góðtemplararáöiö og Norræna ungtemplarasambandið styrkja starfið með fjárframlög- um og eiga fulltrúa i fram- kvæmdanefndinni. — ih Frá borgarstjórn: Pælt í unglingum, skól- og kynlífsfræðslu unum Á siðasta fundi borgarstjórnar var samþykkt að veita tveggja miljón króna styrk til sýninga á unglingaleikriti Alþýðuleikhtiss- ins, Pæld’i’öf, en I þvi er fjallað um kynþroska, kynlif og getnaðarvarnir. Sigurjón Pétursson flutti tillög- una um styrkinn og sagði aö þetta væriathyglisverð sýning um mál- efni, sem legiö hefði i þagnar- gildi. Ég er sannfæröur um að engum einum kennara hefði tek- ist að vekja athygli og áhuga unglinganna á sama hátt og þessi sýning geröi, sagði Sigurjón, og ég er sannfærður um að það situr meira eftir af þvi sem þau eiga að læra eftir þessa fræðslu en venju- lega kennslustund. Albert Guðmundsson var á móti styrkveitingunni og sagöi aö hann teldi kennaramenntað fólk betur til þess fallið að flytja námsefni inn i skólana en leikara. Davfð Oddsson sagði að styrk- beiönir ættu að koma svo snemma fram aö hægt væri aö af- greiöa þær viö gerð fjárhagsáætl- ana. Hann sagðist ekki setja sig gegn þvi aö þessi sýning færi inn f skólana utan skólatima en sú varð niðurstaöa fræösluráðs, þar sem Davið á sæti. Hann sagðist telja nauðsynlegt að foreldrar gætu haft atbeina aö þvi hvort börn þeirra sæju þessa sýningu og aðþeir gætu farið með þeim. Sýn- ingar utan skólatima væru háðar ákvöröun skólastjóranna og þeg- ar hefðu tveir skólar ákveðið að taka leikritið ekki. Hins vegar væri honum ekki kunnugt um að neinn skóli heföi óskað eftir leik- ritinu, þannig að ekki væri vitað hvað væri veriö aö greiöa niöur með þessum styrk. Ég vil þó ekki leggja stein i götu þessa máls, sagði Davið aö lokum og mun þvi sitja hjá. Þess má geta að Davið Oddsson greiddi styrkbeiðninni atkvæði i fræðsluráði. Kristján Benedjjttsson, sem er formaður fræðslifráðs sagði aö ráðiö hefðif fjallaö itarlega um sýninguna og flestir ef ekki aliir ráðsmenn séð hana. Það heföi veriö samdóma álit manna aö sýningin væri mjög athyglisverö og margt gott i henni þó meining- arheföu veriö deildar um einstök og fá atriði. í heild er þetta góð sýning, sagöi Kristján, en fræösluráð vildi þó ekki að hún yrði beint kennsluefni heldur aö sýningar yröu utan skóiatima og opnaður möguleiki á þvi að for- eldrar gætu séð hana. Ég tel að þetta leikrit fylli dálitið upp i eyöu, sem verið hefur i skóla- starfinu hjá okkur, þaö er fengur aöþvi, þaðer skemmtilegt og nær tökum á unglingunum. Ég tel þvi fyllilega réttlætanlegt fyrir borgarfulltrúa að greiða tillög- unni atkvæði, sagöi hann. Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri Hólabrekkuskóla er varaborgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og tók hann næstur til máls. Hann sagöi að skólamenn hefðu verið að velta þvl fyrir sér upp á sið- kastiö hvernig haga ætti þessum málum. Leikfélag Reykjavikur værinúmeösýningar I skólunum, sem styrktar væru af borginni, Alþýðuleikhúsið óskaði nú eftir styrk og hann væri sannfærður um aö fleiri leikhópar væru á leiö- inni. Þetta þýðir aö gera þarf upp á milli leiksýninganna, því varla er hægt að styrkja allar sýningar og alla leikhópa, sagöi Sigurjón Fjeldsted. Hann sagði að þaö væri mjög gott i kennslu að geta komiö efni á framfæri á þennan hátt, og áhugi barnanna væri meiri þegar vel tækist til. Hins vegar var Sigurjón and- snúinn þvi aö sýningar á Pæld’I’öi væru styrktar, og sagöi að i líf- fræöikennslunni væri veitt kyn- fræðsla. Þá sagði hann að fjöl- mörg önnur mál yrðu útundan I kennslu I skólunum og áreiðan- lega vildu ýmsir þiggja styrki til aö koma sinum áhugamálum á framfæri. Þó rætt hefði verið um að skólarnir sinntu þessum mála- flokki ekki, hefði engin könnun farið fram á þvi atriði. Að lokum vék hann að foreldravaldinu og sagði að þessi sýning væri um- deild meöal foreldra og stór hóp- ur þeirra vildi sjá sjálfir um kyn- fræðslu barna sinna. Sigurjón Fjeldsted og Albert Guömundsson voru þeir einu sem greiddu atkvæði gegn tillögunni Davlö Oddsson, Ólafur B. Thors og Páll Glslason sátu hjá en Birg- ir Isl. Gunnarsson EUn Pálma- dóttir og borgarfulltrúar meiri- hlutans greiddu atkvæði meö til- lögunni. Fangelsi eöa Herra ráðherra. Ég leyfi mér að skrifa yöur opið bréf, I von um skilning og að ráöuneyti yð- ar svari beiðni minni um hæii á tslandi. Tilgangur bréfsins er að fá svar við eftirfarandi: a) Er brottvisun min frá íslandi ennþá ákveðin 2. desember, eða hefur henni verið aflétt? b) Ef þér úrskuröiö aö ég eigi ekki rétt á aö búa hér og starfa, eigi ekki tilkall til þeirra per- sónuskilrikja sem frönsk stjóm- völd neita mér um, til að gera mér ókleift að lifa löglega i út- legð — þá þætti mér betra aö vita það strax. Þar sem ég hef áður orðið fyr'ir dapurlegri reynslu af starfsmönnum yöar, kysi ég heldur að hún endurtæki sig Opið bréf frá Patrick Gervasoni til Friðjóns Þórðarsonar dómsmála- ráðherra ekki, þannig að 2. desember yröi ég afhentur lögreglu útlend- ingaeftirlitsins og færður út á flugvöll án þess að hafa haft svo frelsi? mikiö sem tækifæri til aö pakka. Þótt ég eigi viðbrögöum stórs hluta Islensku þjóðarinnar að þakka timabundiö frelsi mitt, þáhljótið þéraðfallastá, aöþað er bæði erfitt og ógnvekjandi að lifa og starfa án þess að vita hvort I næstu framtið biöur manns fangelsi eöa frelsi. Herra ráöherra, hver er ákvörðun yðar: fangelsi eöa frelsi? Ég fullvissa yður um að ég er reiðubúinn að beygja mig fyrirákvörðun yöar, en uni ekki lengur stööugu óöryggi og ótta. Siðan 8. mal, 1980 biö ég svars frá yöur. Biðin er að veröa óbærileg og ég væri yöur þakk- látur ef þér gerðuö mér kunn- uga ákvöröun yðar. Reykjavík, 11. nóvember, 1980. Patrick Gervasoni. Þrymskviða sýnd í Portúgal Teiknimyndin um Þryms- kvíöu, sem frumsýnd var I júnl I sumar, og er fyrsta Is- lenska teiknimyndin gerð hér á landi, veröur sýnd á teiknimy ndahátlð sem stendur yfir I Portúgal dag- ana 19.—23. nóv, Internation- al Animated film Festival CI.ÍNANIMA 80. Höfundur Þrymskviðu er Siguröur Orn Brynjólfsson. Kvikmyndun og klippingu önnuöust Öli Orn Andreassen og Sigurður Orn Brynjðlfs- son. Hljóösetningu Þorsteinn OJ Björnsson og Sigurður örn Brynjólfsson, ásamt ýrnsum öðrum. Lesari er Etlingur Gislason leikari. iÞrymskviða var sýnd viða um landiö i sumar, ásamt heimildamyndinni Mörg eru dags augu. Teiknimyndin hefur verið boðin sjón- varpinu til sýningar, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort hún verður sýnd þar. Herjólfur í slipp Feröir Ms. Herjólfs milli lands og Eyja liggja niöri um þessar mundir. Skipið er i slipp vegna botnhreinsunar og athugunar á skrúfunni. Ferðir hef jast að nýju upp úr næstu helgi. — Ká. Þjóðleikhúsið: Frumsýn- ingu frestað vegna aðsóknar Vegna mikillar aösóknar I Þjóöleikhúsinu aö undan- förnu hefur oröiö aö færa til sýningar, þannig m.a. aö frumsýning á NÓTT OG DEGI eftir Tom Stoppard veröur föstudaginn 28. nóvember. Aösókn að Smalastúlkunni og útlögunum hefur veriö góð I allt haust og Snjórhefur sótt sig m jög upp á siökastið, en fáar sýningar eru nú eftir á þessu nýjasta leikriti Kjartans Ragnarssonar. Hætta varð sýningum á leikriti Jökuls Jakobssonar i ÖRUGGRI BORG fyrir fullu húsi, þrátt fyrir fjölda auka- sýninga og er sýnt að reyna verður að koma á sýningum siðar og þá væntanlega með breyttri hlutverkaskipan, þareðÞorsteinn Gunnarsson hverfur nú aö störfum fyrir Leikfélag Reykjavikur, en hann hefur nú i haust leikið þar sitt gamla hlutverk með góöfúslegu leyfi Leikfélags- ins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.