Þjóðviljinn - 28.11.1980, Blaðsíða 1
UÚDVIUINN
Föstudagur 28. nóvember 1980 — 270. tbl. 45. árg.
BIÖRN ÞÓRHALLSSON
VARAFORSETI ASÍ
A síöustu stundu ákvaö toppurinn I Alþýöuflokknum aö hætta
viö aö bjóöa fram Karvel Pálmason á móti Birni Þórhallssyni I
embætti varaforseta ASl, og tefldi fram Jóni Helgasyni.
(Jrslit uröu þau aö Björn fékk 36450 atkvæöi (65,12%), Jón
Helgason fékk 18625 atkv. (33.27%) Auöir seölar voru 775, ógildir
125.
Kjöri til miðstjórnar og sambandsstjórnar ASl var ólckiö er
blaöiö fór 1 prentun. —ekh
Ásmundur forseti ASÍ
Karvel Pálmason óskar Asmundi Stefánssyni til hamingju meö forsetakjöriö í gærkvöld. Ljósm. — gel.
Fékk 64% at-
kvœða,Karvel 30%
,,Ég þakka þaö traust sem mér
hefur veriö sýnt I þessum kosn-
ingum. Ég sagði strax þegar ég
gaf kost á mér aö ég myndi leitast
við aö fylkja saman hinum óliku,
öflum innan samtakanna. Ég tel
kosninguna sýna aö til þess sé
ætlast af mér og vona aö ég reyn-
ist fær um aö sameina þá hópa
sem hér eru”, sagöi Asmundur,
Stefánsson erúrslitumvarlýst um
kl. 21.30 í gærkvöldi.
Asmundur hlaut glæsilega
kosninguog fékk meira en helm-
ingi fleiri atkvæöi en Karvel
Pálmason. úrslitin uröu sem hér
segir:
Asmundur atkv.
Stefánss. 35825 63.94%
Karvel Pálmas. 17550 30.43%
Guðm. Sæmundss. 2275 4.06%
Auðirseðlar 875 1.56%
Samtals 56025
Ljóst má vera af þessum kosn-
ingum að Alþýöuflokksmönnum
barst aöeins liösauki frá hluta
Ihaldsfulltrúanna viö forseta-
kosningarnar, en meiri hluti
þeirra sem taldir eru Sjálfstæöis-
menn studdu Asmund Stefánsson.
Kosningar á ASl þingi eru flók-
ið mál og hafa tekið sex til tiu
tima á siðustu þingum, enda taln-
ing tafsöm vegna mismunandi
vægis atkvæða og siðan þurfa
fylkingar tima til þess að endur-
meta stöðuna eftir hvern lið kosn-
inganna.
Benedikt Daviðsson mælti fyrir
tillögu meirihluta kjörnefndar
um Asmund Stefánsson sem for-
seta.Karl Steinar Guðnason mælti
fyrir tillögu minnihluta kjör-
nefndar um Karvel Pálmason
sem forseta.
Hinsvegar stakk Guðmundur
Sæmundsson upp á sjálfum sér og
flutti bráöfyndna kosningaræðu
þar sem hann gerði grin að af-
skiptum stjórnmálaflokkanna á
þinginu við góðar undirtektir
þingfulltrúa. Kvaðst hann ekki
gera ráð fyrir að hafa mikið að
segja i „ílokksmarkaða fram-
boðssauði”, enda þótt margir
þingfulltrúa væru orðnir „kUg-
uppgefnir á pUdda, púdda, pUddi”
flokkanna. Hann gæti þó þegar
upp væri staöið alltjent sagt eins
og Vilmundur aö ,,ef.. ef.. ef.. þá
heföi ég áreiðanlega náö kjöri”.
Kjörnefnd varð ekki sammála
um varaforsetaefni. Meirihlutinn
sem samanstóð af Benedikt
Daviðssyni, Guðmundi Hilmars-
syni, Gunnari Kristmundssyni,
Lárusi L. Sveinssyni og Sverri
Garðarssyni stakk upp á Birni
Þórhallssyni, Verslunarmanna-
félagi Reykjavikur. Minni hlutinn
sem i voru Karl Steinar Guðna-
son, Gunnar Már Kristófersson
og Hákon Hákonarson lögöu til að
Jón Helgason form. Einingar á
Akureyri yrði kosinn varafor-
:seiti en Sigfinnur Karlsson sat
hjá.
Þeir fulltrUar i kjörnefndinni
sem merktir hafa verið Fram-
Pétur Geir
Pétur púaður
niður
A þriðjudaginn var haldinn
fundur meö áhangendum
Sjálfstæðisflokksins á Alþýöu-
sambandsþingi.
Pétur Sigurösson tróö þar i
pontu og tilkynnti fundar-
mönnum aö Geir Hallgrims-
son, formaður flokksins.hefði
hug á aö hitta fundarmenn og
ávarpa þá, — væru þetta
skilaboð frá flokksformannin-
um.
Þegar Pétur hafði þetta
mælt færðist órói yfir salinn og
tóku menn að pUa á ræðu-
mann, og fór svo að Pétur var
piptur niður með þennan boð-
skap!
sóknarflokknum skiptust á meiri
og minni hlutann og má geta þess
að Hákon er Akureyringur eins og
Jón Helgason og Sigfinnur Karls-
son mun ekki hafa viljað ganga
gegn fulltrUa Ur Verkamanna-
sambandinu. Úrslit: Sjá siðustu
fréttir. Auk kosningar forseta,
sem eru hluti af 15 manna mið-
stjón, þurfti i gær að kjósa 13
menn i' miðstjórn og niu til vara,
og 18menn i sambandsstjórn ASI
og jafnmarga til vara. Þá var
Framhald á bls. 13
Alþýðusambandsþing:
Veitum Gervasoni hæli
1 gær var á þingi Alþýðusam-
bands íslands samþykkt áskorun
á dómsmálaráöherra um aö veita
Patrick Gervasoni landvist á
Happdrætti
Þjóðviljans:
Dregið á
mánudag
Dregið verður i Happ-
drætti Þjóðviljans n.k.
mánudag, þann 1. des..
Skrifstofa Happdrættisins er
að Grettisgötu 3. Opin i dag
og næstu daga:
1 dag föstudag klukkan
9—19.
A morgun laugardag
klukkan 10—17.
A sunnudag klukkan'
13—17.
Aöalvinningurinn I Happ-
drætti Þjóðviljans að þessu
sinni er bifreið af gerðinni
Daihatsu Charade.
Af stööum úti á landi hefur
Djúpivogur orðið fyrstur til
að gera fullnaðarskil. Miöa-
salan þar nam 100% af út-
sendum miðum. Umboös-
maður á Djúpavogi er
Þórólfur Ragnarsson.
Aöeins með samhjálp
fjöldans tryggjum við út-
komu Þjóðviljans.
Gerið skil!
lslandi. Askorunin hljóöar svo:
„34. þing Aiþýöusambands
tslands skorar á dómsmálaráö-
herra aö veita franska flótta-
tnanninum Patrick Gervasoni
landvist á islandi.” Var tillagan
samþykkt meö öllum þorra at-
kvæöa á þinginu.
Aðalheiöur Bjarnfreösdóttir,
formaður Sóknar.mælti fyrir til-
lögunni og sagði hún m.a. i
snjallri ræðu sinni að ekki hefði
það verið til siös að krefja strand-
menn á Meðallandsfjöru um
passa! Elias Adólfsson, fulltrúi
Verslunarmannafélags Reykja-
vikur, mælti gegn tillögunni og
lagöi áherslu á að Gervasoni heföi
komið ólöglega inn i landið. Guð-
mundur J. Guðmundsson, for-
maöur Verkamannasambands
Islands, tók siðastur til máls.
Hann lagði áherslu á uppruna
Gervasoni en fjölskylda hans
tvistraöist sökum fátæktar þegar
hann var enn barn að aldri. Guð-
mundur benti á að eini „glæpur”
Gervasoni væri aö vilja ekki
bera vopn og spurði aö lokum
hvort Alþýöusamband íslands
vildi stuöla að þvi aö þessi verka-
mannasonur lenti i frönsku
fangelsi.
Mjög mikil þátttaka var i at-
kvæðagreiðslunni og var tiilagan
samþykkt með öllum atkvæðum
gegn 24. Flestir þeirra sem
greiddu atkvæði gegn tillögunni
voru félagar Eliasar Adólfssonar
úr VR.
—AI
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður:
Mál Gervasoni er sérstakt
Eins og frá er greint á baksiöu
Þjóöviljans í dag, settust nokkir
ungir Frakkar aö í sendiráöi
íslands i Paris i gærmorgun og
báöust hælis á tslandi sem
pólitiskir flóttamenn. I fylgd meö
þeim voru blaöamenn og Ijós-
myndarar.
i fréttum rikisútvarpsins I gær-
kvöld haföi fréttaritari þess i
Paris þaö eftir blaöamanni sem
hópnum fylgdi aö þarna heföi
veriö um TAKNRÆNA aögerö aö
ræöa.
Viö snerum okkur til Ragnars
Aöalsteinssonar, lögmanns
Gervasoni hér á landi,og spuröum
hvaö hann vildi segja af þessu til-
efni. Ragnar sagöi:
Ég tel þessa atburði i Paris sem
lýst hefur veriö i fréttum ekki
skipta neinu máli um afgreiðslu á
umsókn Gervasoni um grið á
tslandi. Meta verður aöstæður i
hverju máli sérstaklega og taka
ákvörðun á grundvelli þeirra.
Gervasoni hefur verið tvivegis
dæmdur aö sér f jarverandi i sam-
tals tveggja og hálfs árs
fangelsisvist. Að auki getur hann
átt von á kárlnum vegna stjórn-
málastarfsemi sem fólgin hefur
veriö i kröfum um afnám her-
dómstóla á friðartimum og sak-
aruppgjöf til handa þeim sem
skorast hafa undan þátttöku i her
vegna stjórnmálaskoöana sinna.
Aö auki hefur Gervasoni þá sér-
stöðu aö hafa hrakist úr Frakk-
landi vegabréfslaus og getur þvi
hvergi dvalist á löglegan hátt
nema hann fái sérstakt land-
vistarleyfi stjórnvalda. Slikt er
mjög fátitt um þá sem vikjast
undan herskyldu. Hafi sá sem
vikst undan herskyldu hins vegar
venjulegt vegabréf frá heima-
landi slnu, þá á hann þess kost að
feröast nánast hvert sem er, og
dveljast i nær hvaða landi sem
vera skal, enda tiökast þaö ekki
aö heimariki krefjist framsals
slikra manna. Sérstaða Gerva-
soni felst ekki sist i þvi að hann er
vegabréfslaus. Þess vegna gefur
niöurstaða i máli hans ekkert al-
mennt fordæmi.
Ég treysti Islenskum stjórn-
völdum til aö láta þessa
uppákomu i Paris ekki hafa nein
áhrif á endanlega ákvörðun i máli
Gervasoni, sagði Ragnar að lok-
um.
k.
Greinargerð frá
Stuðningsnefnd
Gervasoni
Ungir Frakkar settust
að í íslenska sendiráðinu
Sjá baksíðu
Sjá baksíðu