Þjóðviljinn - 28.11.1980, Blaðsíða 11
Föstudagur 28. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
íþróttir^ íþróttir ífl iþróttir [^]
■ ■Umsjón: Ingólfur Hannesson. I I J ■ l u J
Margir með
12 rétta
Um siöustu helgi komu hvorki
fleiri né færri en 56 raöir fram
með 12 réttum i Getraununum,og
er vinningur fyrir hverja röö 147
þús. Meö 11 rétta voru 842 raðir,
vinningur 4.100 kr.
F ótboltaþ jálf arar
Þróttur enn í toppbaráttunni eftir sigur gegn KR 23:20
Lokamínútumar urðu
að martröð fyrír KR
fá boð á
námskeið
KÞl barst i vikunni boö frá
Knattspyrnuþjálfarafélagi Sviss
og UEF um að senda þátttakend-
ur á ráðstefnu i Bern 6. des. nk.
Aðalfyrirlesari verður þar Guy
This, belgiski landsliðsþjáifarinn.
Lysthafendur tali við stjórnar-
menn KÞI fyrir annað kvöld.
•
Trimm, trimm,
trimm, trimm...
Laugardaginn 29. nóv. gengsl
Viðavangshlaupanefnd F.R.I.
fyrir forgjafarhlaupi og al-
menningshlaupi á Miklatúni i
Reykjavik og hefjast þau á bila-
stæöinu viö Kjarvalsstaði, for-
gjafarhlaupið kl. 11 og almenn-
ingshlaupiö kl. 11:30.
Forgjafarhlaupið er um 6 km
og fá þeir.sem aldrei hafa tekið
þátt i keppni íihlaupum opinber-
lega, aö hef ja hlaupiö 10 minút-
um á undan bestu hlaupurun-
um. Aörir sem keppt hafa i
viðavangs- eða brautarhlaupum
fá forgjöf i samræmi við árang-
ur sinn i keppnum að undan-
förnu, allt frá nokkrum sekdnd-
um upp f 10 minútur. öllum er
heimil þátttaka i hlaupinu og fer
skráning fram á staönum.
Skráningu lýkur 15 mjnútum
fyrir hlaupiö. Það sem gerir
keppni þessa svo spennandi er
að allir eiga jafna möguleika á
að sigra i hlaupinu og er jafnan
um hörkukeppni að ræöa i slik-
um hlaupum. Hlaupið er á grasi
og er keppendum ráölagt að
nota annað hvort skó með gróf-
um botni eða gaddaskó. Sund-
höllin er opin á þessum tima og
geta þeir sem vilja haft fata-
skipti og fariö i bað þar. öllum
er heimil þátttaka, bæöi heilsu-
bótarskokkurum og keppnis-
mönnum, konum jafnt sem
körlum.
Þróttur fylgir enn i humátt á
eftir Vikingum í toppbaráttunni i
1. deild handboltans. 1 gærkvöld
lögöu Þróttararnir KR-inga aö
velli meö 3 marka mun, 23—20.
Sigur sinn innsiglaði Þróttur siö-
ustu 7 minúturnar, en fram aö
þeim tima haföi KR haft undir-
tökin og virtist stefna i stórsigur
um tíma. En þaö fór á annan veg,
KR-ingarnir léku mjög óyfir-
vegaö lokaminúturnar, létu æsa
sig upp og Þróttararnir skoruöu
hvert markiö á fætur öðru og
tryggöu sér sigurinn.
Það vargreinilegt á leikKR frá
byrjun leiksins aöliðið ætlaði sér
sigurinn, góð barátta i vöm og i
sókninni fóru Vesturbæingarnir
sér hægt. KR komst yfir, 1—0,
3—1, 4—2, og 6—4. Eitt til tvö
skildu liðin að næstu minuturnar,
7—6, 9—7, og 10—8. KR-ingarnir
léku mjög yfirvegaðan handbolta
það sem eftir lifði fyrri hálfleiks-
ins. Staðan breyttinst í 11—8 og
siöan i 13—9. Máttu Þróttarar
teljast heppnir að munurinn var
ekki meiri.
Liðin skiptust á að skora i upp-
hafi seinni hálfleiks, 14—10, og
16—12. Þá brugðu Þróttararnir
á það ráö aö taka Konráð fyrrum
Þróttara Jónsson úr umferð, ær;
haföi verið óstöðvandi og skorað
11 mörk. Sú leikaðferð gaf litinn
árangur næstu mfnúturnar,
18—14 og 19—15 og rúmar 12 min
til leiksloka. Nú fór að hlaupa i
Staðan i 1. deild handboltans er
nú þannig: Vikingur 8 7 1 0 155:127 15
Þróttur 8 6 0 2 189:172 12
Valur 8 4 1 3 172:145 9
FH 9 4 1 4 190:203 9
KR 9 3 2 4 198:204 8
Fylkir 7 2 1 4 135:159 5
Haukar 8 2 1 5 156:166 5
Fram 9 1 1 7 190:209 3
Konráö Jónsson hefur hér sent knöttinn í net Þróttar. Myndin er eiginlega táknræn fyrir leikinn framan-
af. I baksýn sést Siguröur Sveinsson, sem skaut KRingana I kaf I seinni hálfleik. Mynd: —gel.
KR-liðið mikill taugaæsingur, öll
ógnun hvarf úr sókninni. 1 kjöl-
farið fylgdi siðan aö Sigurður
Sveinsson komst í bardagaham
og þegar það gerist fær fátt hann
stöðvað. Siggi skoraði 3 næstu
mörk, 19—18 og 10 min. eftir.
Haukur Geirmundsson kom KR i
20—18, en Siggi skoraði 2 mörk i
röðfyrir Þrótt, 20—20 og 6 min.til
leiksloka. Upplausnin varö siðan
algjör i liði KR það sem eftir var
og Þróttur tryggöi sér öruggan
sigur á siðustu 4 minútunum,
23—20.
KR-ingamir léku mjög þokka-
legan handbolta meötilliti til þess
að þeirra helsta markaskorara,
Alfreð Gislason, vantaöi, en hann
er slasaöur. Vörnin var þokkaleg
og góð ógnun i sókninni. Hins veg-
ar höfðu þeir engin svör á reiðum
höndum þegar Konráö var tekinn
úr umferð og þaö varð þeirra
banabiti.
Konráö var mjög góöur i KR-
liðinu og fór oft illa meö sina
gömlu félaga. Þá voru Þeir
Jóhannes og Friörik sterkir i
vörninni.
Aðeins stórleikur Sigurðar
Sveinssonar hélt Þrótti á floti aö
þessu sinni. Hann nánast vann
leikinn fyrir þá einn sins liðs,
skoraöi 15 af 20 mörkum liösins.
Þá var Kristinn knattspyrnu-
kappi Atlason drjúgur i markinu i
lokin. Magnús og Olafur voru
þokkalegir i vörninni.
Mörk Þróttar skoruöu: Sigurð-
ur 15/3, Páll 3, Jón Viðar 2 og
Magnús, Ólafur og Gisli 1 mark
hver.
Fyrir KR skoruöu: Konráö
12/3, Haukur 0 3/1, Haukur G,2.
Friðrik, Björn og Jóhannes 1
mark hver.
-IngH
Bandarlkjamennirnir I liöum KR og 1R, Keith Yow og Andy Fleming,
berjast um knöttinn. Þeir munu báðir leika með KR á trlandi um helg-
ina. Mynd: —gel.
ÍR — KR i úrvalsdeildinni í gærkvöldi
ÍR-ingpr lítil hindrun
fyrir Irlandsfara KR
Körfuboltaliö KR hélt I morgun
af stað til þátttöku á hcljarmiklu
móti á trlandi um helgina. t gær-
kvöld léku KR-ingarnir við tR,
gömlu erkifjendurna, og sigruöu
Vesturbæingarnir næsta örugg-
lega, 97—94. Þeir halda þvi með 2
stig ásamt þjálfara og leikmanni
ÍR, Andy Fleming, til trlands.
1R hóf leikinn af talsverðum
krafti, komst i 6—3. KR-ingarnir
jöfnuðu 13—13 og eftir það var
mótstaða IR nánast úr sögunni.
Einkum virtist móralsleysi há
IR-ingunum. KR komst i 41—27 og
hafði siðan 10 stig yfir i hálfleik,
46—36.
Fyrstu 6 stigin i seinni hálfleik
voru KR-inganna, 52—36. Þegar
staðan var orðin 72—50 fyrir KR
fór Einar þjálfari Bollason að
gefa varamönnum „vindlum”
sinum tækifæri á að spreyta sig.
Þá var eins og IR-ingar fengju
vitaminspraut i .og þeir byrj-
uðu að saxa á forskot KR jafnt og
þétt uns munurinn var orðin 6
stig, 78—72. Það sem eftir var
leiksins tefldi KR fram sinu
sterkasta liði, 97—90 og loks
97-94.
Kristinn Jörundsson bar af
félögum sinum i IR-liðinu eins og
gull af eir. Hann er að komast i
„eðlilega” æfinguog þá erekki að
sökum aö spyrja. Kolbeinn átti
margar ágætar rispur. Hins
vegar kom slök frammistaða
þeirra Andy Fleming og Jóns
Jörundssonar nokkuð á óvart.
Agúst Lindal leikur nú hvern
stórleikinn á fætur öðrum og i
gærkvöld' var hann ein aðaldrif-
fjöðrin i liði KR, snöggur og
baráttuglaður. Garðar Jóhanns-
son sýndi einnig mjög góða takta
og var nánast undantekning ef
skot hans rötuðu ekki rétta leiö i
körfu 1R. Jón Sigurösson stóð
fyrir sinu eins og endranær og átti
hann margar snilldarsendingar á
samherja sina.
Stigahæstir i liði 1R voru:
Kristinn 27, Fleming 20, Kolbeinn
19 og Jón Jör 11.
Fyrir KR skoruðu mest: Jón 20,
Yow 20, Garðar 19, Agúst 15 og
Geir 10. S/IngH
Staöan I úrvalsdeildinn I körfu-
knattleik að afloknum leik KR og
1R I gærkvöld’ er nú þannig:
UMFN..............7 7 0 683:572 14
KR ...............7 5 2 639:602 10
Valur.............7 4 3 612:606 8
ÍR................9 4 5 783:785 8
IS................7 1 6 558:604 2
Armann............7 1 6 545:651 2
Næstu leikir i úrvalsdeildinni
eru 1 kvöld. i Hagaskólanum leika
Valur og Armann og I Njarðvik
leika UMFN og ÍS.