Þjóðviljinn - 28.11.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.11.1980, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. nóvember 1980. Kærleiksheimilið Þú biður borðbænina meðopinaugu! Ég þín! Þekkirdu þau? Alltaf er jafn gaman aft fletta myndaalbúmum, ekki sist þeg- ar um er að ræða gamlar mynd- ir af þekktum persónum. Skyldu , lesendur geta imyndaö sér af hverjum myndirnar eru i þess- ; ari seriu? Sjá nýrri myndir i ’ Lesendadálki á siöu 15. Molar Ekki af baki Aðstaöan, sem við menntuöu og efnuðu stéttirnar höfum, er sama og gamla mannsins, sem sat á herðum hins fátæka, sá er bara munurinn að við erum ólikir honum i þvi aö okkur tekur mjög sárt til fátæka mannsins, og við vildum allt gera til að bæta hag hans. Viö viljum ekki aðeins láta hann fá svo mikiö fæði, að hann geti staðiðá fótunum, viöviljum llka kenna honum og fræða hann, sýna honum fegurð náttúr- unnar, ræða við hann um fagra tónlist og gefa honum ógrynni ágætra ráðlegginga. Já, við viljum næstum allt fyrir fátæka manninn gera, nema að fara af baki hans. LeoTolstoy. Aðalbjörn var að leggja siðustu hönd á verk við Guðnýju NS7 þegar við hittum hann á bryggj- unni. — Ljósm. —gel— Draumurmn rættist: Öll fjölskyldan á sjóinn næsta sumar i þessari viku fór hann Aðal- björn Haraldsson á Seyðisfirði i fyrsta róðurinn á „Guönýju” sinni með 21 linu og fékk 2,8 tonn af þorski og ýsu. Þar með hefur langþráður draumur ræst og tveggja ára starf skilaö sér og nú er allt útlit fyrir að öll fjölskyldan, Aöal- björn og kona hans Guðný Ragnarsdóttir, 13 ára sonurinn Haraldur Ragnar og 7 ára dóttirin Harpa Gunnur, fari á sjóinn næsta sumar. Sjálfur ætlar Aðalbjörn að snúa sér að þessu alfarið, en hann hefur áður stundað ýmis störf, m.a. veriö gjaldkeri á sýsluskrifstof- unni, og við netagerð, en er reyndar stýrimaður og var áður á togaranum Gullveri. Við hittum Aðalbjörn niðrá bryggju á Seyðisfirði um daginn er hann var aö leggja siöustu hönd á verk viö trilluna. Skrokkinn og húsið, ósamsett þó, sagöist hann hafa keypt frá Englandi fyrir tveim árum og siðan hefur hann dundað við bátinn öllum tómstundum og reyndar eingöngu siðan um páska. 011 fjölskyldan hefur hjálpast að eftir föngum og er sonurinn meðeigandi, vann sem sendill I bankanum i sumar og lagði hálfa miljón i útgerðina. — En hvernig gengur að láta enda mætast þegar fjölskyldu- faðirinn leggur I svona? Um það spurðum við eiginkonuna, þegar hún sagði okkur frá fyrsta róðr- inum i sima i gær: — Jú, þetta gengur, sagði Guðný, sem er i hálfu starfi við sjúkrahúsið á staðnum. — Við erum mjög samhent fjölskylda, og höfum verið hroðalega spar- söm að undanförnu. Ég sauma og prjóna og brenni meira að segja kaffið sjálf, en við ætlum lika að njóta þess að vera saman á bátnum næsta sumar. Hann er mjög vel innréttaður, meö góðu eldunarplássi og koj- um, — ég var að Ijúka við að sauma rúmfötin á þær um dag- mn! — vh Það er munur að vera maður Að koma Jóni í vinnuna St jórnunarféla g islands heldur verkstjórnarnámskeið fyrir menn sem vilja „koma sér áfram” og læra að stjórna fyrir- tækjum. Fyrir þá eru lögð dæmi til útreikninga, væntanlega til að kenna þeim að skipuleggja vinnuna í fyrirtækinu út f ystu æsar, þegar þar aö kemur. Hér koma glefsur úr einu sliku dæmi: „Athugun á fram- kvæmdaráætluninni að koma Jóni i vinnuna”. Þar eru talin upp ýmis atriði sem Jón þarf aö framkvæma að morgni og gef- inn upp sá timi sem þau taka. Morgunninn hefst á þvi að vekjaraklukkan hringir. Jón fer fram úr og setur hitann á (þetta hlýtur eiginlega að vera úti á landi?). Hann stingur sér aftur upp i þar til hitnar i hfisinu (dormar I lOminútur). Siðan fer hann á fætur, rakar sig og fer i sturtu, klæðist, borðar morgun- verð, burstar tennurnar, setur á sig bindi og frakka, tekur tösku og nesti, kyssir konuna bless (það tekur eina minútu). Svo er greint frá athöfnum konu Jóns á þessum morgni. Hvað skyldi hún gera? „Fara á fætur, strauja skyrtu Jóns, vekja börnin, útbúa morgunverð, borða morgun- verð, útbúa nesti fyrir Jón, greiða sér og varalita sig (?). Þaö á aö reikna út m.a. hvernig Jón hefði getað sofið lengur, hvort hann hefði t.d. getaö látið strauja skyrtuna sina kvöldið áður. Svona er hugsað i herbúöum Stjórnunarfélagsins á þvi herr- ans ári 1980. Skyldi verkaskipt- ingin vera svona á mörgum heimilum enn þann dag i dag? — ká Tekid eftir . . . Nýja stærðfræðin? Eftir forsetakjörið á þingi ASÍ I gær er sagt að Asmundur Stefánsson hafi klappað þétt- ingsfast á bakiö á hnarreistum manni að vestan og hvislað bliö- lega i eyra hans: Farvel, Kar- vel. 1 Vikurfréttum segir svo undir fyrirsögninni „Talnarugl”: Eitthvað virðist þeir hafa ruglast i tölum, skipulagsmenn- irnir, er þeir röðuöu númerum á húsin við Skólaveg. Ef jöfnu númerin frá 2-10 eru skoðuö kemur furöulegt i ljós, þvi röðin er þessi: Nr. 2 Ragnar Björnsson, nr. 8 Sjúkrahúsiö, nr. 4 Bókhaldsstofa Arna R. Arnasonar og siðan nr. 10. Tannlæknisstofan. Sem sé i staö þess að telja 2-4-6-8-10 telja þeir 2-8-4-10. Hætt er við aö nem- endur á barnaskólaprófi fengju ekki háa einkunn ef þeir teldu svona. Filipp, klukkan er korter yfir sjö! < ^Mmfhm ég kem.. Q K \/ O / MÉtÍ' i éHsÉfcé — Þessir verðir i dýragöröunum ættu einhverntima aö þvo á sér lappirnar.... ma

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.