Þjóðviljinn - 27.02.1981, Qupperneq 11
Föstudagur 27. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
iþrottir / iþrottir
^ ■ Umsjön: Ingólfur Hannesson.
íþróttir
Ingólfur
Hannesson
skrifar frá
Frakklandi
Staðan
Staöan í riðlunum tveimur
eftir leiki miðvikudagsins er
nú þessi:
A-riöill:
Pólland..4 4 0 0 105:69 8
Sviþjóð ...4 3 0 1 76:74 6
Island........4 2 0 2 80:69 4
Frakkland ... 4 2 0 2 81:80 4
HoIIand.......4 1 0 3 67:81 2
Austurr...... 4 0 0 4 51:87 4
B-riðill:
Tékkóslv......4 4 0 0 80:55 8
Sviss.........4 3 0 1 71:69 6
Danmörk.......4 2 0 2 83:70 4
Búlgaría......4 2 0 2 80:80 4
israel........4 1 0 3 75:96 2
Noregur ......4 0 0 j 61:80 0
i kvöld leika islendingar
við Pólverja. Það eru
einungis fræðilegir niögu-
leikar á þvi að við komumst
áfram. Sigur gegn Pólverj-
um dugir ekki einn til.
Frakkar þurfa að tapa eða
gera jafntefli við Austur-
rikismenn. Markatala er
ekki látin ráða, ef tvö eða
fleiri lið verða jöfn, heldur
innbyrðis úrslit og okkar
menn hafa tapað bæði fyrir
Frökkum og Svium.
Frakkar með
mútu-
starfsemi?
Dómgæslan hér I B-keppn-
inni i Frakklandi hefur verið
með ýmsu móti og er þá vægt
til orða tekið. Hefur mörgum
sýnst að lið Frakka hafi I
a.m.k. einum leikja sinna
fengið að njóta sannkallaðra
heimadómara. Blaðamaður
Þjóðviljans hafði tal af
markverði hollenska liðsins,
en Hollendingar töpuðu með
eins marks mun fyrir Frökk-
um i æsispennandi leik. Gef-
um honum, þ.e.JacquesJost-
en orðið:
..Það er alveg 100% öruggt
að i leik okkar við Frakka
var búið að múta dómurun-
um. Við töpuðum þessum
leik, en þegar staðan var jöfn
og aðeins 20 sekúndum fyrir
leikslok var einn leikmanna
okkar keyrður i gólfið. Þarna
var greinilega um brot að
ræða, en dómararnir létu
leikinn halda áfram.
Frakkarnir brunuðu upp og
skoruðu.”
•
Á villígötiim
Eftir landsleik íslands og
Frakkland á miðvikudags-
kvöldið var það alls ekki tck-
ið út með sældinni að komast
til næsta áfangastaðar, sem
var i Dijon. Ferðalag sem
raunar átti ekki að taka
meira en 1 1/2 klst.
framlcngdist um helming.
Bilstjórinn sem er lágvaxinn
maður og knár villtist heldur
betur af leiö og voru
örþreyttir og niðurbrotnir
landsliðsmenn islands á
þvælingi um úthverfi Dijon
meira en góðu hófi gegndi.
IEr út af fyrir sig fróðlegt að
vita hvort skapiö hafi ekki
farið i taugarnar á sumum
landsliðsmannanna.
,,Á morgun spila ég minn siöasta leik
með islenska landsliðinu”, sagði Ólafur
H. Jónsson i viötali við blm. Þjóðviljans
i gær.
« -ljósm.-eik-
Ólafur H. Jónsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik
„Leik minn síðasta
landsleik á laue-
ardaginn”
//Á laugardaginn leik ég
minn siðasta leik með
islenska landsliðinu i hand-
knattleik/" sagði ólafur H.
Jónsson/ fyrirliði íslands
hér i B-keppninni stuttu
eftir komuna til Dijon í
gærkvöldi. Ólafur hefur
verið einn litríkasti leik-
maður íslensks handknatt-
leiks úm árabil, leikíð 140
landsleiki. Hann hefur
einatt verið kjölfestan i
leik liðsins/ ódrepandi
baráttujaxl sem drifið hef-
ur leikmenn áfram með
ósérhlifni og yfirvegun.
Auk þess að hafa unnið
flest þau verðlaun sem
handknattleiksmaður á
islandi getur unnið hefur
ólafur orðið v-þýskur
meistari með G.W.
Dankersen, en með þvi liði
lék hann um þriggja ára
skeið ásamt félaga sinum
úr iandliðinu, Axeli Axels-
syni. Það er sjónarsviptir
að Ólafi úr handknattleiks-
landsliðinu og ekki vist að
hans skarð verði fyllt svo
glatt.
Atli með
vettlinga!
t V-Evrópu rikja nú miklar
vetrarhörkur. Hefur þetta komið
niður á ýmsum atriðum hins
mannlega lifs, ekki sist knatt-
spyrnunni, þar eð vellir eru alla
jafnan undirlagðir fannfergi.
Leikmenn atvinnumannaliðanna
mæta dúðaðir á æfingar og dugar
bó skammt til. Þrátt fyrir þessi
ósköp vakti það ekki litlá eftirtekt
þegar Atli Eðvaldsson, leikmaður
Borussia Dortmund, mætti á eina
æfinguna með vettlinga sem unn-
usta hans ku hafa prjónað.
V-Þjóðverjar sem aðrir útlend-
ingar halda eins og kunnugt er að
tslendingar séu komnir af bæði
Eskimóum og isbjörnum. Var
gerður maður út af örkinni frá
stórblaöinu „Bild” þar sem Atli
var myndaður bak og fyrir með
vettlingana á höndunum. Er þaö
mál manna að sjaldan eða aldrei
hafi vettlingar snortið þýska
knattspyrnuunnendur jafn djúpt.
Atli
Eðvaldsson
Afmælishátíð
Vals
Knattspyrnufélagið
Valur á 70 ára af mæli í
ár. Verður þess minnst
með ýmsum hætti á
árinu, en fyrsta hátiðin
verður nk. mánudags-
kvöld kl. 20.00.
Þar verður margt til
skemmtunar og má til nefna
að formaður félagsins flytur
ávarp, þvi næst verður sér-
kennileg handknattleiks-
keppni, þar sem iyftinga-
menn og glimumenn keppa.
Þá verður innanhúss knatt-
spyrna, þar sem eigast við
lið Vals og Fram i mfl. karla
og verður notast við mark-
verði i leiknum.
Baldur Brjánsson töfra-
maður mun koma fram og
skemmta fólki, en rúsinan i
pylsuendanum verður leikur
i körfuknattlcik milli mfl.
Vals og úrvalsliðs, sem Jón
Sigurðsson KR-ingur mun
velja. Verða útlendu
leikmennirnir sennilega allir
i þvi liöi.
Skíðamót í
Hveradölum
Reykjavikurmeistaramót i
skiðagöngu verður haldið i
Hveradölum, laugardaginn
28. febrúar n.k. og hefst það
með nafnakalli kl. 13.00.
Keppt verður i 15 km.
göngu karla 20 ára og eldri
og i flokkum unglinga.