Þjóðviljinn - 06.03.1981, Blaðsíða 11
Föstudagur 6. niars, 1981. ÞJÓÐVILJINN — StÐA II
íþróttir /> íþróttir
® Umsjén: Ingólfnr Hannesson.
íþróttir
Pétur Guðmundsson var atkvæðamestur hjá Valsmönnum i gærkvöld, skoraði 20 stig. Hér sést hann
gefa ungum aðdáendum rithandarsýnishorn.
Valur vann bikarlnn
Valsmenn sigruðu islands-
meistara Njarðvikinga i úrslitum
bikarkeppni KKÍ með 90 stigum
gegn 84 i hörðum og vel leiknum
úrslitaleik i gærkvöld . SigurVals
var fyllilega sanngjarn þvi þeir
höfðu allan timann örugg tök á
leiknum og forystu allt frá byrjun
með aðeins einni undantekningu
þegar Njarðvikingar skoruöu
fyrstu tvö stigin.
Það sem gerði útslagið var mun
meiri breidd i leik Vals, lið þeirra
var jafnara og lagöi ekkert upp úr
einstaklingsframtaki eins eða
neins. Þvi var ekki þannig farið
hjá Njarðvikingum þar sem
Danny Shouse skoraði hvorki
fleiri né færri en 43 stig og var
potturinn og pannan i leik liðsins.
Leikurinn var jafn i byrjun en
smátt og smátt náðu Valsmenn
öruggu forskoti, staðan breyttist
úr 8:7 i 12:7, úr 12:9 i 18:9 og i
hálfleik var staðan 41:33.
1 siðari hálfleik skoruðu Vals-
menn fyrstu tvö stigin en þvi næst
tóku Njarðvikingar mikinn kipp
og minnkuðu muninn i 43:41. A
þeim kafla virtust Valsmenn vera
að missa tökin á leiknum, en þá
tók Rikharður Hraínkelsson sig
til og skoraði hvert stigið á fætur
öðru. Var leikurinn alveg i járn-
um langt fram i seinni hálfleik og
minnst munaði einu stigi, 55:54,
og 57:56. Einhvernveginn virtust
Njarðvikingar aldrei orka að ná
yfirhöndinni þrátt fyrir góða við-
leitni. Náðu Valsmenn aftur
miklu forskoti og var sigurinn
aldrei i hættu, lokatölur sem áður
sagði, 90:84.
Pétur Guðmundsson var besti
maður Vals i leiknum.skoraði 20
stig.hirti fjölmörg fráköst og átti
stórfallegar sendingar á
samherja sina. Torfi Magnússon
skoraði 19, stig, Rikharður
skoraði 18 stig, Kristján 14 og
Brad Miley 13.
Danny Shouse var sá maður
Njarðvikinga sem allt byggðist á
og skoraði 43 stig. En einn maður
vinnur ekki leik og einstefna
Shouse bitnaði greinilega á liðs-
heildinni.
Að lokinni köriuknattleiksvertíð:
Aðsóknin hefur
dregist samán
Með leik Vals og UMFN i úrslit-
um bikarkeppninnar lauk i raun
körfuknattleiksvertiðinni, a.m.k.
hvað varðar mfl. karla, þvi um
helgina verða til lykta leidd mót
yngri flokkanna. Á undanförnum
árum hefur körfuknattleikurinn
verið i mikilli sókn sem sést hvað
bestá þvi aðaftur er farið að taka
Laugardalshöllina i notkun fyrir
leiki efstu deitdarinnar en það er
a.m.k. áratugur siöan körfu-
knattleikskeppni íslandsmótsins
var með öllu flutt úr Ilöllinni.
Eftir að bandariskir körfu-
knattleiksmenn komu hingað til
lands jókst aðsókn. Tölur sem
KKl heíur tekið saman benda þó
til þess að aðsókn hafi minnkað
nokkuð frá þvi sem var i fyrra
þegar hún náði hámarki sinu.
Sveiflur hafa hins vegar verið
miklar. Samdráttur i aösókn að
úrvalsdeildarleikjum nemur tæp-
um 30% en mjög mikil aukning i
aðsókn að leikjum 1. deildar hefur
að nokkru komið þar á móti.
Lokaniðurstaðan er sú að
áhorfendafjöldinn i ár sé nálægt
18 þúsund sem er mjög svipað og
var á fyrsta ári úrvalsdeildarinn-
ar keppnistimabilið 1978—1979. I
fyrra komu liðlega 20 þúsund
manns að horfa á islandsmót og
Bikarkeppni.
Torfi Magnússon hampar sigurlaunum Valsmanna, bikar sem formað-
ur körfuknattleiksdeildar Vals, Halldór Einarsson,gaf til keppninnar.
Landsleikir í blaki
Um helgina leika íslendingar
landsleikiviðFæreyinga. Það eru
kvennaliðog unglingaliö (drengir
17—19 ára) þjóðanna sem eigast
við.
Þetta eru 5. og 6. kvennalands-
lákur tslands, en i fyrsta sinn
sem unglingalið fær aö spreyta
sig. Flogið veröur til Færeyja
fimmtudaginn 5. mars, leikiö i
Vogi föstud. 6. og Þórshöfn
laugardag 7. mars.
Liöin eru þannig skipuð:
Kvennalið
Nr.
3 Þorbjörg Rögnvaldsd. UBK
4 Birna Krist jánsd. IS
6 GuörúnGuömundsd. UBK
7 Þóra Andrésd IS
8 Jdha nna Guðjónsd. Viking
9 Máifriður Pálsd. IS
11 Hulda Laxdal Þrótti
12 Sigurborg Gunnarsd. UBK
NM unglinga
í badminton
t gær héldu 6 unglingar til Hels-
ingfors i Finnlandi þar sem fram
fer Norðurlandamót unglinga i
badminton. Þeir sem valdir voru
til þátttacu fyrir íslands hönd
voru eftirtaldir: Inga Kjartans-
dóttir, TBR, Laufey Sigurðar-
dóttir, ÍA, Þórdis Eðvald, TBR,
Gunnar Björnsson, TBR, Þorgeir
Jóhannsson, TBR, og Þorsteinn
P. Hængsson, TBR. I gær voru
leiknir landsleikir milli allra
Norðurlandaþjóðanna, en i dag
hefst svo einstaklingskeppnin.
Mótinu lýkur 8. mars.
Keppendur tslands á unglinga-
mótinu i Helsingfors. F.v. Hæng-
ur Þorsteinsson, fararstjóri,
Gunnar Björnsson, Þorsteinn P.
Hængsson, Þorgeir Jóhannsson,
Inga Kjartansdóttir og Þórdis
Eðvald. A myndina vantar
Laufeyju Sigurðardóttur.
Unglingalið
Nr.
1 Magnús K. Magnúss. HK
2 Jón Rafn Péturss. IMA
3 Kristján Sigurss. IMA
5 Þorvaldur Sigfúss. IMA
6 Karl Valtýsson IMA
7 Jón Árnason Þrótti
9 Haukur Magnúss. Þrótti
10 Astvaldur Arthurss. HK
Þjálfarar eru þeir félagar
Leifur Haröarson og Guðmundur
E. Pálsson Þrótti.
tslendingar og Færeyingar
hafa leikið 4 A-landsleiki kvenna
og islensku stúlkurnar hafa
sigrað 3—0 i öllum
leikjunum. t islenska liðið vantar
nú nokkrar af máttarstólpum
fyrri leikja og Færeyingar hafa
verið i stöðugri sókn, þannig að
búast má við jöfnum og spenn-
andi kvennaleikjum.
Mun fleiri félög i Færeyjum en
á tslandi hafa yngri flokka, þann-
ig að hætt er við að færeysku ung-
lingarnir veröi þeim islensku
skeinuhættir, þótt islenska karla-
landsliðið hafi sigrað Færeyinga
meö nokkrum yfirburöum, þegar
þjóöirnar mættust fyrir 2 árum.