Þjóðviljinn - 11.03.1981, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 11.03.1981, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 11. mars 1981 Skora á yfir- völd og starfsmanna- félagið að sýna frum- kvæði í fóstru- deilunni Foreldrasamtök barna á dag- vistarheimilum Reykjavikur- borgar hafa sent frá sér eftirfar- andi yfirlýsingu: Foreldrasamtökin lýsa áhyggj- um sinum yfir þvi að ekki skuli hafa tekist viðunandi samningar við fóstrur i nýafstöðnum sér- kjarasamningum. Samtökunum kemur ekki á óvart að langflestar fóstrur hafa nú sagt upp störfum. Sá mögu- leiki að fóstrur gangi út af dag- heimilum og leikskólum i vor eða sumar knýr samtökin til að hvetja borgaryfirvöld til að endurskoða i alvöru þessa samn- inga. Þeir sem komið hafa nálægt starfi dagvistarheimila vita að starfsmannaskipti þar eru mjög tið. Þessar ,,breytingar”og lang- vinn óánægja starfsliðs með kjör sin er okkur foreldrum mikið áhyggjuefni. Við trúum þvi ekki að hlutverk fóstra við uppeldi og mótun barna sé ekki metið til jafns við hlutverk kennara. Foreldrasamtökin eru ekki þrýstihópur en þau vilja vekja at- hygli á tvennu: 1. Óánægja fóstra er mjög al- menn. Takist ekki endurskoðun sérkjarasamninga kemur án efa til þess að uppsagnir þeirra taki gildi. 2. Ringulreiðin sem verður þegar útivinnandi foreldrar halda kyrru fyrir heima með börnum sinum verður veruleg, bæði fyrir þá sjálfa og vinnustaðina. Foreldrasamtökin álita að hér sé á ferðinni mikilvægt og sam- þætt hagsmunamál foreldra, fóstra og atvinnulifsins og þau vænta þess að borgaryfirvöld og Starfsmannafélag Reykjavikur- borgar sýni frumkvæði ög já- kvæðan skilning á málinu. Sam- tökin vilja einnig hvetja hags- munasamtök vinnuveitenda og launþega að ljá málstað fóstra lið sitt. ■ BHHHB » ■■■■■■■■■ ■ Lýsa yfir ; I stuðningi ! I við fóstrur I Byggingar í Reykjavik á síðasta ári: Lokið við smíði 818 íbúða Timburhúsin sækja á Á árinu 1980 var lokið við smiði 818 ibúða i Reykja- vik/ samtals 313 rúm- metrar að stærð. 92.975 rúmmetrar voru full- byggðir í skólum, félags- heimilum og sjúkrahúsum og 39.612 rúmmetrar af verslunar- og skrifstofu- húsnæði. Um áramótin voru í smiðum 795 íbúðir, þar af eru 402 fokheldar eða lengra komnar. Á sið- asta ári var hafin bygging á 479 nyjum ibúðum. Lokið var við 376 fleiri ibúðir á siðasta ári en á árinu 1979 og aðeins tvivegis á siðasta áratug var lokið við fleiri ibúðir, árin 1972 og 1974. Að sögn Gunngeirs Péturssonar hjá byggingafull- trúa er skýringin sú að mikið var fullbyggt af stórum blokkarbygg- ingum, m.a. af Byggung og öðr- um byggingasamvinnufélögum. Hins vegar var á árinu 1980 aðeins hafin bygging á 479 ibúð- um, 57 færri en árinu áður og svipað og á árinu 1977. Skýringin er að margar lóðir, sem úthlutað var i fyrravetur, eru enn óhreyfðar m.a. á Eiðsgranda, ar sem stór hluti úthlutananna var. Gunngeir sagði að timburhúsin hefðu sótt nokkuð á en riflega 35 þúsund rúmmetrar af fullgerðu ibúðarhúsnæði i borginni voru i timburhúsum, og stór hluti af þvi i einingahúsum. — AI A aðalfundi foreldrafélags á dagvistarheimilinu Hamraborg i Reykjavik var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Aðaifundur foreldra- félagsins á dagheimilinu Hamraborg lýsir yfir fullum stuðningi við yfirstandandi kjarabaráttu fóstra. Kröfur fóstra um laun samkvæmt 13. launaflokki eru fyllilega réttmætar og lengri undir- búningstimi er mikilvægt hagsmunamál barna og fóstra. Fundurinn átelur borgaryfirvöld harðlega fyrir seinagang þann og skeytingarleysi, sem þau hafa sýnt i þessu .má'li og skorar á þau að ganga til samninga við fóstrur nú þegar”. Unglingabókakeppni móðurmálskennara: Finnsk saga talin best Saga eftir finnska rithöfundinn Marjatta Ellila var dæmd best i samkeppni norrænna móður- málskennara um smásögur við hæfi lesenda á aidrinum 12—16 ára. Efnt var til samkeppninnar sl. vor i tilefni norræna málaársins og veitti Norræni menningar- sjóðurinn styrk til samkeppn- innar. Tvær sögur voru valdar frá Danmörku, Noregi, Sviþjóö og Finnlandi, önnur á finnsku, hin á sænsku, en ein frá Færeyjum og tslandi. Alls hlutu þvi 10 sögur verðlaun, 2000 norskar krónur hver. Mikil þátttaka varð i sam- keppninni og bárust alls á 5. hundrað sögur til dómnefnda i öllum löndunum. 1 islensku dóm- nefndinni áttu sæti þau Ragna ólafsdóttir kennari, Þórður Helgason kennari og Þorsteinn frá Hamri rithöfundur. Bárust þeim alls 13 sögur og urðu þau sammála um að besta islenska smásagan væri sagan Morgun- Ferðaþjónusta á Islandi Skilyrði til ferðaþjónustu á ts- landi og möguleikar iandsins sem ferðamannalands er umræðuefní á ráðstefnu sem Félag islenskra ferðaskrifstofa og Verslunarráð isiands gangast fyrir I sam- einingu. Ætlunin er að varpa ljósi á vax- andi þýðingu ferðaþjónustu sem atvinnugreinar, segja fundarboð- endur, og benda á, að á sl. ári hafi komið hingað 65.900 erlendir . ferðamenn og gjaldeyristekjur vegna útgjalda þeirra innanlands hafi numið um 110 miljónum Gkr. sem sé um 2% af heildargjald- eyrisöflun þjóðarinnar. Einnig er nefnt, að við ferðaþjónustu og tengdar greinar starfi um 4.200 manns. Ráðstefnan verður haldin i Kristalsal Hóte' Loftleiða nk. fimmtudag, 12. mars, og hefst kl. 12,15 með léttum hádegisverði, þar sem Steingrimur Hermanns- son samgönguráðherra mun flytja ávarp. dögg eftir Guðjón Sveinsson rit- höfund sem á undanförnum árum hefur skrifað mikið fyrir börn og unglinga. Þessar tiu sögur voru nú lagðar fyrir samnorræna dómnefnd undir stjórn Gunnel Beckman. Ragna ólafsdóttir starfaði i nefndinni fyrir Islands hönd. Taldi nefndin finnsku söguna R3vsommar eftir Marjatta Ellil3 bestu söguna. Nú eru allar verðlaunasög- urnar i prentun og væntanlegar á markað á næstu vikum. Gefur norska útgáfufyrirtækið Cappe- len sögurnar út. Dreifingaraðili á Islandi verður Námsgagnastofn- un. Birtast þær allar á frummál- unum en auk þess finnska sagan, sú færeyska og islenska i þýð- ingum. Þess er vænst að siðar verði allar sögurnar gefnar út á islensku. Þeir sem sendu handrit til is- lensku dómnefndarinnar geta vitjað þeirra á skrifstofu Versl- unarskóla Islands við Grundar- stig næstu daga frá kl. 9—17. ! Alþýðubandalagið V -Húnavatnssýslu: Fram j kvæmdír ! hef jist við I Blöndu- virkjun Félagsfundur i Alþýðu- I bandalagsfélagi Vestur - Húnvetninga, sem haidinn var þann 1. mars sl. sam- , þykkti tiilögu um raforku- ■ mál. Fundurinn „skorar á I stjórnvöld að ljúka sem fyrst , samningaviðræðum vegna ■ Blönduvirkjunar þannig að I hægt sé að hefjast handa um | virkjunarframkvæmdir. , Fundurinn minnir á, að i | rikisstjórnarsáttmála er | ákvæði um að næsta stór- | virkjun skuli reist utan eld- • virkra svæða. Blönduvirkjun I er best staðsett slikra virkj- I ana gagnvart raforkumark- | aðinum, auk annarra kosta. • Með tilliti til þessa og I orkuskortsins, sem undan- ] farið hefur komið I ljós, | hvetur fundurinn til skjótra « framkvæmda i þessu máli”. I Sjálfsbjörg Reykjavík: Lækka þarf j bílakostnað Reykjavíkurfélag Sjálfs- | bjargar samþykkti eftirfar- | andi ályktun á aðalfundi « sinum: „Aðalfundur Sjálfs- | bjargar, félags fatlaðra i | Reykjavik og nágrenni, « haldinn fimmtudaginn 26. fe- I brúar 1981, fagnar fram- | komnu frumvarpi fjármála- I ráðherra til laga um bif- • reiðakaup öryrkja en minnir I jafnframt á að kostnaður við | rekstur bifreiðar eykst sifellt I og hvetur þvi fundurinn * rikisstjórnina að leita ráða I til að lækka kostnaðinn i | samráði við öryrkjafélögin i I landinu”. I Athugasemd vegna Skráar- I gatsins Við sem höfum stjórn- « málastarf með höndum þurf- j um ýmsu að una i blaðaskrif- | um um störf okkar. Það | venst þó eins og fleira. Ég á ■ þó erfitt með að sætta mig J við að það sé borið á mig að | ég sinni ekki þeim störfum, | sem ég hef tekið að mér. I * þættinum „Skráargatiö” i J sunnudagsblaði Þjóðviljans ] segirsvohelgina 7.—8. mars-. | „Hann (þ.e. Birgir Isl. ] Gunnarsson) sést nú varla á . borgarstjórnarfundum...”. Þessi fullyrðing blaðsins er | röng. Frá áramótum t.d. hef ] ég setið alla fundi borgar- . stjórnar nema einn, þ.e. sið- j asta fund, en þá hömluðu sérstök forföll. I haust var ég t forfallaður á nokkrum fund- ■ um vegna dvalar erlendis m.a. vegna nokkurra vikna setu á þingi S.Þ. i New York. , Þrátt fyrir það treysti ég ■ mér til að fara i samjöfnuð við hvaða borgarfulltrúa Al- þýðubandalagsins sem er , um mætingu á fundum ■ borgarstjórnar. E.t.v. er það skortur á | kimnigáfu af minni hendi að , taka alvarlega það, sem i l umræddum dálki segir, en | það verður þá að hafa það. | 9. mars 1981 • Birgir ísl. Gunnarsson I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.